Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 224. máls.
133. löggjafarþing 2006–2007.
Þskj. 225  —  224. mál.




Fyrirspurn



til forsætisráðherra um stjórnsýslu í tengslum við stækkandi þjóðlendur.

Frá Kolbrúnu Halldórsdóttur.



     1.      Hvaða ráðstafanir hefur ráðuneytið gert varðandi breytta stjórnsýslu og aukna ábyrgð sem hlýst af sífellt stækkandi þjóðlendum?
     2.      Hver var aðkoma ráðuneytisins að efnistöku úr friðlandinu við Hrafntinnusker til endurbóta Þjóðleikhússins?