Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 265. máls.
133. löggjafarþing 2006–2007.
Þskj. 268 — 265. mál.
um hjólreiðabraut meðfram Þingvallavegi.
Alþingi ályktar að fela samgönguráðherra að undirbúa lögn hjólreiðabrautar meðfram Þingvallavegi. Samgönguráðherra leggi haustið 2007 fyrir Alþingi skýrslu um hvernig heppilegast sé að leggja slíka braut og hver sé líklegur kostnaður við verkið.
Hjólreiðar hafa mjög aukist í landinu að undanförnu og sveitarfélög mörg hver tekið aukið tillit til þeirra með hjólreiðastígum. Skort hefur á slíkt tillit við framkvæmdir hins opinbera, og raunar hafar hjólreiðamenn verið gerðir útlægir við stórvirki í vegamálum að undanförnu, sbr. bæði Hvalfjarðargöng og Reykjanesbraut. Haldi svo fram sem horfir er ekki líklegt að innlendir menn hefji að ráði hjólreiðar á þjóðvegum, og einnig má gera ráð fyrir að þeim erlendu ferðamönnum fækki sem vekja sér þann faramáta. Þó skortir ekki yfirlýsingar um hollustu og nytsemi hjólreiða fyrir einstaklinginn, fjölskylduna og samfélagið allt, m.a. í ritum frá samgönguráðuneytinu og í samgönguáætlun.
Fyrir Alþingi liggur nú í fjórða sinn þingsályktunartillaga Kolbrúnar Halldórsdóttur o.fl. þingmanna, úr öllum þingflokkum, um stofnbrautakerfi fyrir hjólreiðar (82. mál, þskj. 82). Hér er lagt til að samgönguráðherra reki af sér slyðruorð gagnvart hjólreiðum með því að hefja undirbúning einnar tiltekinnar hjólreiðabrautar, í þeirri von að reynsla sem fengist af þeirri ráðagerð – og framkvæmd síðar – gæti létt Vegagerðinni og öðrum framkvæmdaraðilum róðurinn síðar við verkefni á borð við það sem ráð er fyrir gert í fyrrnefndri tillögu.
Leiðin frá Vesturlandsvegi að Þingvöllum varð fyrir valinu vegna ábendingar frá reyndum hjólreiðamanni. Þar er allajafna ekki mikil umferð en oft ekið hratt. Prófa mætti eftir atvikum sérstaka hjólreiðabraut til hliðar við veginn eða sérmerkta braut á veginum sjálfum. Leiðin er talsvert hjóluð, enda eru Þingvellir í ágætri fjarlægð frá höfuðborgarsvæðinu fyrir sæmilega hjólreiðamenn, t.d. til helgarferðar, og staðurinn er að vonum ákjósanlegur áfangastaður erlendra ferðamanna. Vegna sögu staðarins og sérstakrar stöðu þjóðgarðsins þar er við hæfi að greiða sem flestum för á Þingvöll. Þá er hjólreiðabraut sem tengir Þingvelli við mesta þéttbýli landsins í góðu samræmi við skuldbindingar Íslendinga í tengslum við skráningu Þingvalla á heimsminjaskrá UNESCO.
133. löggjafarþing 2006–2007.
Þskj. 268 — 265. mál.
Tillaga til þingsályktunar
um hjólreiðabraut meðfram Þingvallavegi.
Flm.: Mörður Árnason, Þórunn Sveinbjarnardóttir, Björgvin G. Sigurðsson,
Guðrún Ögmundsdóttir, Össur Skarphéðinsson.
Alþingi ályktar að fela samgönguráðherra að undirbúa lögn hjólreiðabrautar meðfram Þingvallavegi. Samgönguráðherra leggi haustið 2007 fyrir Alþingi skýrslu um hvernig heppilegast sé að leggja slíka braut og hver sé líklegur kostnaður við verkið.
Greinargerð.