Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 113. máls.
133. löggjafarþing 2006–2007.
Þskj. 269 — 113. mál.
dómsmálaráðherra við fyrirspurn Jóhönnu Sigurðardóttur um fíkniefni.
1. Hve mikið magn fíkniefna hafa lögregla og tollgæsla lagt hald á árin 2004 og 2005 og það sem af er árinu 2006, og hvert er áætlað götuverðmæti þeirra? Er um að ræða aukningu á þessu ári samanborið við 2003 og 2004 og þá hve mikla?
Í meðfylgjandi töflu er að finna upplýsingar um magn fíkniefna sem lögregla og tollgæsla hafa lagt hald á árin 2003, 2004, 2005 og fyrstu níu mánuði ársins 2006. Hvað varðar aukningu á tilteknum efnum vísast til þeirra upplýsinga sem fram koma í töflunni.
Nákvæmt götuverðmæti þessara efna liggur ekki fyrir, en samkvæmt upplýsingum sem Lögreglan í Reykjavík hefur aflað má ætla að eftirfarandi götuverð gildi nú um eftirfarandi efni:
Miðað við þessar upplýsingar má ætla að götuverðmæti þessara efna það sem af er á þessu ári sé:
Hass: 56.777.000 – 70.971.250 kr. ( m.v. 2.000–2.500 kr./g).
Amfetamín: 225.065.000 – 315.091.000 kr. (m.v. kr. 5.000– 7.000 kr./g).
Kókaín: kr. 69.225.000 – 90.525.000 kr. (m.v. 13.000–17.000 kr./g).
Maríjúana: 4.554.000 kr.
2. Hve margir hlutu dóm fyrir innflutning eða dreifingu fíkniefna árin 2004 og 2005?
Hér eru teknar saman upplýsingar um fjölda einstaklinga sem fóru fyrir dómstóla vegna innflutnings fíkniefna og/eða sölu eða dreifingar fíkniefna á árunum 2001 til 2005. Annars vegar er um að ræða brot á 173. gr. a. almennra hegningarlaga, nr. 19/1940, og hins vegar brot á lögum um ávana- og fíkniefni, nr. 65/1974.
Þessu til samanburðar er mikilvægt að skoða hvernig fjöldi fíkniefnabrota hefur þróast á tímabilinu. Þessar upplýsingar má sjá í næstu töflu. Þar kemur fram að á síðasta ári fjölgaði brotum vegna dreifingar eða sölu fíkniefna en brotum vegna innflutnings fækkaði hins vegar á sama tíma.
3. Hver er fjöldi þeirra sem talinn er hafa ánetjast fíkniefnum, skipt eftir aldri og kyni?
Hér er óskað eftir upplýsingum sem ráðuneytið hefur ekki og var því leitað eftir upplýsingum hjá landlæknisembættinu. Landlæknisembættið vísaði á SÁÁ sem svaraði ráðuneytinu á þennan veg:
„Í fyrirspurninni eru ekki gefin upp nein tímamörk. Því er ekki vitað hvort spurt er um þá sem ánetjast hafa á síðasta ári eða á síðustu tíu árum. Einnig er erfitt að átta sig á hvað fíkniefni merkja í fyrirspurninni. Hér er sú leið valin að tala um ólögleg vímuefni í stað fíkniefna og telja að spurt sé um þau. Ólöglegum vímuefnum er skipt hér til hægðarauka í þrjá meginflokka: a. örvandi vímuefni, b. morfín og skyld efni þ.m.t. heróín, og c. kannabisefni. Í svörunum hér á eftir er stuðst við tölulegar upplýsingar úr gagnagrunni sjúkrahússins Vogs og ályktað út frá þeim. Til frekari upplýsinga og glöggvunar er ennfremur bent á Ársrit SÁÁ 2005–2006.
Kannabisefni:
Kannabis er algengasta ólöglega vímuefnið og flestir sem ánetjast því gera það á ungum aldri. Það veldur mestum skaða meðal unglinga og ungs fólks sem er yngra en 25 ára. Um 2500 einstaklingar hafa ánetjast þessum efnum á síðustu 10 árum. Hlutfall kvenna er 26% og meðalaldur þegar vandinn er greindur er um 22 ár. Síðustu þrjú árin hafa um 250 nýir ánetjast þessum efnum á hverju ári.
Örvandi ólögleg vímuefni:
Örvandi vímuefni eru yfirleitt talin hættulegri en kannabisefni, einkum vegna þess að þeirra er oft neytt með því að sprauta þeim í æð. Um 60% fíklanna sprauta efninu einhvern tíma í æð og 40% gera það reglulega og lengur en eitt ár. Hlutfallslega fleiri fíklar sem ánetjast hafa örvandi vímuefnum leita sér meðferðar en kannabisfíklar. Um 2500 einstaklingar hafa ánetjast og orðið fíknir í örvandi ólögleg vímuefni (amfetamín og/eða kókaín og/eða E-pillu) á síðustu tíu árum. Hlutfall kvenna er um 30% og meðalaldur þegar vandinn er greindur í fyrsta sinni er um 23,5 ár. Síðustu fjögur árin hafa um 300 nýir ánetjast þessum efnum á hverju ári.
Morfín og skyld efni þar með talið heróín:
Heróín er lítið notað hér á landi. Íslendingar sem ánetjast því gera það erlendis og koma gjarnan heim og nota morfín þess í stað. Á síðustu 10 árum hafa 300 einstaklingar ánetjast morfíni og skyldum efnum og farið að sprauta þeim í æð. Hlutfall kvenna er 32% og meðalaldur þegar vandinn er greindur í fyrsta sinn er 32 ár. Síðustu fjögur árin hafa um 40 nýir ánetjast morfíni og farið að sprauta því í æð á hverju ári.
Hóparnir skarast:
Hópar framantalinna vímuefnafíkla skarast. Einkum er þetta augljóst ef litið er til lengri tíma. Segja má að um 4000 einstaklingar hafi ánetjast ólöglegum vímuefnum á síðustu 10 árum. Meðalaldur þeirra við greiningu er um 23 ár og hlutfall kvenna er um 26%. Um 400 einstaklingar ánetjast ólöglegum vímuefnum á hverju ári. Meðal þessara einstaklinga er áfengisfíkn og mikil áfengisneysla mjög algeng.“
4. Telur ráðherra að það fé sem varið er til toll- og löggæslu, þ.m.t. fíkniefnadeildar lögreglunnar, sé nægjanlegt til að halda uppi öflugum forvörnum og eftirliti með innflutningi, dreifingu og neyslu fíkniefna? Hve miklu fé var varið til þess árin 2005 og 2006?
Árið 2005 runnu 7,3 milljarðar kr. til toll- og löggæslu. Leitast er við að halda uppi öflugum forvörnum og eftirliti með innflutningi, dreifingu og neyslu fíkniefna. Samsvarandi upphæð fyrir fyrstu níu mánuði ársins 2006 eru 5,6 milljarðar kr.
Lögreglan í Reykjavík er stærsta lögregluembætti landsins og rekur öfluga fíkniefnadeild sem er aðgreind í bókhaldi stofnunarinnar. Umfang þeirrar starfsemi getur veitt vísbendingu um umfang forvarna og eftirlit hjá lögreglu, en er ekki tæmandi yfirlit yfir það fé sem embættið veitir í forvarnir og eftirlit með fíkniefnamálum. Á árinu 2005 ráðstafaði embættið um 212 millj. kr. til þessa verkefna. Á fyrstu níu mánuðum ársins 2006 er upphæðin u.þ.b. 177 millj. kr.
5. Eru uppi áform um að efla fíkniefnavarnir og þá hvernig?
Um næstu áramót taka gildi breytingar á skipulagi löggæslumála í landinu sem samþykktar voru á síðasta löggjafarþingi. Þær breytingar fela í sér eflingu og styrkingu löggæslu hringinn í kringum landið. Birtast þær einkum í því að lögregluumdæmi eru stækkuð og þeim fækkað úr 26 í 15. Af þessum fimmtán bera sjö ábyrgð á rannsókn í stærri og flóknari málum innan síns umdæmis eða annars skilgreinds svæðis. Á suðvesturhorni landsins eru lögregluliðin efld sérstaklega, annars vegar með sameiningu lögregluliðanna á höfuðborgarsvæðinu og hins vegar með sameiningu lögregluliðanna á Suðurnesjum í eitt lið.
Þessi breyting á skipulagi lögreglumála felur í sér að lögreglan verður betur í stakk búin til að takast á við aðsteðjandi vanda, þar á meðal vegna innflutnings og sölu fíkniefna. Skipulag og helstu áhersluatriði nýs embættis á höfuðborgarsvæðinu voru kynnt fyrir skömmu en þar verður m.a. lögð áhersla á aukna sýnilega löggæslu, eflda hverfa og grenndarlöggæslu og forvarnastarf í samvinnu við sveitarfélög o.fl., og betri og skilvirkari rannsóknir sakamála. Sérstaklega var kynnt að í skipulagi hins nýja embættis er gert ráð fyrir því að tekið verði með öflugum hætti á fíkniefnavanda, m.a. með stofnun sérstaks aðgerðahóps og eflingu götueftirlits fíkniefna.
Þá er í lögunum jafnframt mælt fyrir um um starfrækslu greiningardeildar hjá embætti ríkislögreglustjóra og öðrum lögregluembættum. 5. október sl. setti starfshópur skipaður af dómsmálaráðherra fram tillögur um stofnun öryggis- og greiningarþjónustu hjá embætti ríkislögreglustjóra, sbr. ákvæði 1. gr. I. kafla laga nr. 46/2006, og er þjónustunni m.a. ætlað að kortleggja hættu af skipulagðri glæpastarfsemi, þar á meðal vegna innflutnings fíkniefna.
Lögregla og tollgæsla hafa lagt aukna áherslu á aðgerðir í fíkniefnamálum og má t.d. nefna samstarfssamning þessara aðila frá árinu 1999. Þá hefur verið náið samstarf milli lögreglu og tollgæslu við þjálfun og uppbyggingu nets fíkniefnaleitarhunda, sem skilað hefur miklum árangri við að upplýsa fíkniefnamál. Einnig hefur embætti ríkislögreglustjóra í samvinnu við lögreglustjórana og tollgæsluna eflt mjög aðgerðir til aðstoðar lögreglustjórum á útihátíðum í því skyni að sporna við fíkniefnameðhöndlun. Árangur þeirra aðgerða er mikill sem m.a. má sjá á umfjöllun um þær um og eftir síðustu verslunarmannahelgi.
Sýslumaðurinn á Keflavíkurflugvelli hefur lagt aukna áherslu á þennan málaflokk og hefur það skilað miklum árangri. Sömu sögu er að segja um embættið á Seyðisfirði sem hefur vegna ferjunnar Norrænu fengið aðstoð frá ríkislögreglustjóra, fíkniefnadeild lögreglustjórans í Reykjavík, embætti sýslumannsins á Keflavíkurflugvelli og á Eskifirði, auk tollstjórans í Reykjavík.
Embætti ríkislögreglustjóra lét framkvæma ítarlega fræðilega rannsókn á skipulagðri glæpastarfsemi hér á landi haustið 2004 og hefur því verki verið fylgt eftir með margvíslegum hætti. Í því sambandi má nefna heildræna greiningu á skipulagðri glæpastarfsemi, m.a. með þróun á aðferðafræði sem gerir mögulegt að skoða gögn lögreglu út frá netkerfisnálgun, þ.e. tengslamyndanir afbrotamanna. Þessi vinna er vel á veg komin og mun auka enn úrræði gegn skipulagðri glæpastarfsemi, þar á meðal fíkniefnabrotum. Einnig skal hér nefna undirbúning embættis ríkislögreglustjóra að innleiðingu svonefndrar verkefnamiðaðrar löggæslu, sem auðvelda á lögreglu að takast á við afbrot.
Þá má nefna umburðarbréf ríkislögreglustjóra til lögreglustjóranna í desember 2003 um auknar aðgerðir en því var fylgt eftir með heimsóknum til lögregluembættanna. Í því sambandi þarf að hafa í huga að aðgerðir til að sporna t.d. við sölu og dreifingu fíkniefna og uppljóstrun slíkra brota eru frumkvæðisverkefni. Árangur þessa kemur vel í ljós þegar skoðaður er fjöldi fíkniefnabrota og haldlagning fíkniefna hjá lögreglu og tollgæslu. Þannig fjölgaði skráðum fíkniefnabrotum milli áranna 2003 og 2005 úr 1.385 í 1.816 á öllu landinu og fjöldi tilvika þar sem lagt var hald á fíkniefni sama tímabil jókst úr 1.686 í 2.484.
Þetta má sjá eftir efnistegundum á meðfylgjandi mynd:
133. löggjafarþing 2006–2007.
Þskj. 269 — 113. mál.
Svar

Fíkniefni sem lagt hefur verið hald á 2003–2006.
| jan.–sept 2006 | 2005 | 2004 | 2003 | |
| Hass (g) | 28.388,5 | 20.772,2 | 36.944,79 | 54.967,69 |
| Fræ (g) | 4,8 | 123,7 | 62,98 | 64,15 |
| Fræ (stk.) | 0 | 15,9 | 428 | 857 |
| Plöntur (stk.) | 884 | 892 | 1.195 | 1.794 |
| Maríjúana (g) | 2.277,3 | 4.831,7 | 2.373,10 | 3.361,81 |
| Tóbaksblandað hass (g) | 294,8 | 405,8 | 303,22 | 320,28 |
| Kannabislauf (g) | 19.858,4 | 11.138,9 | 1.755,67 | 9.875,32 |
| Kannabisstönglar (g) | 7.544,9 | 3.171,1 | 1.681,48 | 3.677,70 |
| Amfetamín (g) | 45.013,5 | 8.931,9 | 15.783,04 | 2.945,40 |
| Amfetamín (stk.) | 133,3 | 986,3 | 75 | 309,5 |
| Metamfetamín | 0,9 | 3.987,2 | ||
| Kókaín (g) | 5.325,0 | 1.138,8 | 6.159,97 | 1.192,09 |
| E-töflur (g) | 27,4 | 136,22 | 22,01 | 21,22 |
| E-töflur (stk.) | 950,5 | 1.518,5 | 7.532,4 | 3.189,75 |
| Heróín (g) | 5,6 | 0 | 0,05 | 2,89 |
| LSD (stk.) | 27 | 4.346 | 2.032 | 1 |
| LSD (ml) | 0 | 0 | 0 | 0 |
Nákvæmt götuverðmæti þessara efna liggur ekki fyrir, en samkvæmt upplýsingum sem Lögreglan í Reykjavík hefur aflað má ætla að eftirfarandi götuverð gildi nú um eftirfarandi efni:
| Hass | 1 g | 2.000–2.500 kr. |
| Amfetamín | 1 g | 5.000–7.000 kr. |
| Kókaín | 1 g | 13.000–17.000 kr. |
| Maríjúana | 1 g | 2.000 kr. |
Miðað við þessar upplýsingar má ætla að götuverðmæti þessara efna það sem af er á þessu ári sé:
Hass: 56.777.000 – 70.971.250 kr. ( m.v. 2.000–2.500 kr./g).
Amfetamín: 225.065.000 – 315.091.000 kr. (m.v. kr. 5.000– 7.000 kr./g).
Kókaín: kr. 69.225.000 – 90.525.000 kr. (m.v. 13.000–17.000 kr./g).
Maríjúana: 4.554.000 kr.
2. Hve margir hlutu dóm fyrir innflutning eða dreifingu fíkniefna árin 2004 og 2005?
Hér eru teknar saman upplýsingar um fjölda einstaklinga sem fóru fyrir dómstóla vegna innflutnings fíkniefna og/eða sölu eða dreifingar fíkniefna á árunum 2001 til 2005. Annars vegar er um að ræða brot á 173. gr. a. almennra hegningarlaga, nr. 19/1940, og hins vegar brot á lögum um ávana- og fíkniefni, nr. 65/1974.
Dómsmál vegna innflutnings, sölu eða
dreifingar fíkniefna 2001–2005.
| 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | |
| Máli lokið með héraðsdómi | 81 | 64 | 74 | 104 | 57 |
| Hæstaréttardómur | 8 | 1 | 3 | 8 | 8 |
| Samtals | 89 | 65 | 77 | 112 | 65 |
Þessu til samanburðar er mikilvægt að skoða hvernig fjöldi fíkniefnabrota hefur þróast á tímabilinu. Þessar upplýsingar má sjá í næstu töflu. Þar kemur fram að á síðasta ári fjölgaði brotum vegna dreifingar eða sölu fíkniefna en brotum vegna innflutnings fækkaði hins vegar á sama tíma.
Skráð fíkniefnabrot 2000–2005.
| 2005 | 2004 | 2003 | 2002 | 2001 | 2000 | Meðaltal | Frávik | |
| Dreifing, sala | 114 | 104 | 117 | 70 | 63 | 46 | 80,0 | 42,5 |
| Innflutningur | 95 | 165 | 149 | 121 | 117 | 103 | 131,0 | –27,5 |
| Varsla, neysla | 1.388 | 1.197 | 947 | 632 | 593 | 507 | 775,2 | 79,1 |
| Framleiðsla | 26 | 31 | 31 | 26 | 14 | 8 | 22,0 | 18,2 |
| Ýmis fíkniefnabrot | 193 | 174 | 141 | 145 | 124 | 117 | 140,2 | 37,7 |
| Samtals | 1.816 | 1.671 | 1.385 | 994 | 911 | 781 | 1.148,4 | 58,1 |
3. Hver er fjöldi þeirra sem talinn er hafa ánetjast fíkniefnum, skipt eftir aldri og kyni?
Hér er óskað eftir upplýsingum sem ráðuneytið hefur ekki og var því leitað eftir upplýsingum hjá landlæknisembættinu. Landlæknisembættið vísaði á SÁÁ sem svaraði ráðuneytinu á þennan veg:
„Í fyrirspurninni eru ekki gefin upp nein tímamörk. Því er ekki vitað hvort spurt er um þá sem ánetjast hafa á síðasta ári eða á síðustu tíu árum. Einnig er erfitt að átta sig á hvað fíkniefni merkja í fyrirspurninni. Hér er sú leið valin að tala um ólögleg vímuefni í stað fíkniefna og telja að spurt sé um þau. Ólöglegum vímuefnum er skipt hér til hægðarauka í þrjá meginflokka: a. örvandi vímuefni, b. morfín og skyld efni þ.m.t. heróín, og c. kannabisefni. Í svörunum hér á eftir er stuðst við tölulegar upplýsingar úr gagnagrunni sjúkrahússins Vogs og ályktað út frá þeim. Til frekari upplýsinga og glöggvunar er ennfremur bent á Ársrit SÁÁ 2005–2006.
Kannabisefni:
Kannabis er algengasta ólöglega vímuefnið og flestir sem ánetjast því gera það á ungum aldri. Það veldur mestum skaða meðal unglinga og ungs fólks sem er yngra en 25 ára. Um 2500 einstaklingar hafa ánetjast þessum efnum á síðustu 10 árum. Hlutfall kvenna er 26% og meðalaldur þegar vandinn er greindur er um 22 ár. Síðustu þrjú árin hafa um 250 nýir ánetjast þessum efnum á hverju ári.
Örvandi ólögleg vímuefni:
Örvandi vímuefni eru yfirleitt talin hættulegri en kannabisefni, einkum vegna þess að þeirra er oft neytt með því að sprauta þeim í æð. Um 60% fíklanna sprauta efninu einhvern tíma í æð og 40% gera það reglulega og lengur en eitt ár. Hlutfallslega fleiri fíklar sem ánetjast hafa örvandi vímuefnum leita sér meðferðar en kannabisfíklar. Um 2500 einstaklingar hafa ánetjast og orðið fíknir í örvandi ólögleg vímuefni (amfetamín og/eða kókaín og/eða E-pillu) á síðustu tíu árum. Hlutfall kvenna er um 30% og meðalaldur þegar vandinn er greindur í fyrsta sinni er um 23,5 ár. Síðustu fjögur árin hafa um 300 nýir ánetjast þessum efnum á hverju ári.
Morfín og skyld efni þar með talið heróín:
Heróín er lítið notað hér á landi. Íslendingar sem ánetjast því gera það erlendis og koma gjarnan heim og nota morfín þess í stað. Á síðustu 10 árum hafa 300 einstaklingar ánetjast morfíni og skyldum efnum og farið að sprauta þeim í æð. Hlutfall kvenna er 32% og meðalaldur þegar vandinn er greindur í fyrsta sinn er 32 ár. Síðustu fjögur árin hafa um 40 nýir ánetjast morfíni og farið að sprauta því í æð á hverju ári.
Hóparnir skarast:
Hópar framantalinna vímuefnafíkla skarast. Einkum er þetta augljóst ef litið er til lengri tíma. Segja má að um 4000 einstaklingar hafi ánetjast ólöglegum vímuefnum á síðustu 10 árum. Meðalaldur þeirra við greiningu er um 23 ár og hlutfall kvenna er um 26%. Um 400 einstaklingar ánetjast ólöglegum vímuefnum á hverju ári. Meðal þessara einstaklinga er áfengisfíkn og mikil áfengisneysla mjög algeng.“
4. Telur ráðherra að það fé sem varið er til toll- og löggæslu, þ.m.t. fíkniefnadeildar lögreglunnar, sé nægjanlegt til að halda uppi öflugum forvörnum og eftirliti með innflutningi, dreifingu og neyslu fíkniefna? Hve miklu fé var varið til þess árin 2005 og 2006?
Árið 2005 runnu 7,3 milljarðar kr. til toll- og löggæslu. Leitast er við að halda uppi öflugum forvörnum og eftirliti með innflutningi, dreifingu og neyslu fíkniefna. Samsvarandi upphæð fyrir fyrstu níu mánuði ársins 2006 eru 5,6 milljarðar kr.
Lögreglan í Reykjavík er stærsta lögregluembætti landsins og rekur öfluga fíkniefnadeild sem er aðgreind í bókhaldi stofnunarinnar. Umfang þeirrar starfsemi getur veitt vísbendingu um umfang forvarna og eftirlit hjá lögreglu, en er ekki tæmandi yfirlit yfir það fé sem embættið veitir í forvarnir og eftirlit með fíkniefnamálum. Á árinu 2005 ráðstafaði embættið um 212 millj. kr. til þessa verkefna. Á fyrstu níu mánuðum ársins 2006 er upphæðin u.þ.b. 177 millj. kr.
5. Eru uppi áform um að efla fíkniefnavarnir og þá hvernig?
Um næstu áramót taka gildi breytingar á skipulagi löggæslumála í landinu sem samþykktar voru á síðasta löggjafarþingi. Þær breytingar fela í sér eflingu og styrkingu löggæslu hringinn í kringum landið. Birtast þær einkum í því að lögregluumdæmi eru stækkuð og þeim fækkað úr 26 í 15. Af þessum fimmtán bera sjö ábyrgð á rannsókn í stærri og flóknari málum innan síns umdæmis eða annars skilgreinds svæðis. Á suðvesturhorni landsins eru lögregluliðin efld sérstaklega, annars vegar með sameiningu lögregluliðanna á höfuðborgarsvæðinu og hins vegar með sameiningu lögregluliðanna á Suðurnesjum í eitt lið.
Þessi breyting á skipulagi lögreglumála felur í sér að lögreglan verður betur í stakk búin til að takast á við aðsteðjandi vanda, þar á meðal vegna innflutnings og sölu fíkniefna. Skipulag og helstu áhersluatriði nýs embættis á höfuðborgarsvæðinu voru kynnt fyrir skömmu en þar verður m.a. lögð áhersla á aukna sýnilega löggæslu, eflda hverfa og grenndarlöggæslu og forvarnastarf í samvinnu við sveitarfélög o.fl., og betri og skilvirkari rannsóknir sakamála. Sérstaklega var kynnt að í skipulagi hins nýja embættis er gert ráð fyrir því að tekið verði með öflugum hætti á fíkniefnavanda, m.a. með stofnun sérstaks aðgerðahóps og eflingu götueftirlits fíkniefna.
Þá er í lögunum jafnframt mælt fyrir um um starfrækslu greiningardeildar hjá embætti ríkislögreglustjóra og öðrum lögregluembættum. 5. október sl. setti starfshópur skipaður af dómsmálaráðherra fram tillögur um stofnun öryggis- og greiningarþjónustu hjá embætti ríkislögreglustjóra, sbr. ákvæði 1. gr. I. kafla laga nr. 46/2006, og er þjónustunni m.a. ætlað að kortleggja hættu af skipulagðri glæpastarfsemi, þar á meðal vegna innflutnings fíkniefna.
Lögregla og tollgæsla hafa lagt aukna áherslu á aðgerðir í fíkniefnamálum og má t.d. nefna samstarfssamning þessara aðila frá árinu 1999. Þá hefur verið náið samstarf milli lögreglu og tollgæslu við þjálfun og uppbyggingu nets fíkniefnaleitarhunda, sem skilað hefur miklum árangri við að upplýsa fíkniefnamál. Einnig hefur embætti ríkislögreglustjóra í samvinnu við lögreglustjórana og tollgæsluna eflt mjög aðgerðir til aðstoðar lögreglustjórum á útihátíðum í því skyni að sporna við fíkniefnameðhöndlun. Árangur þeirra aðgerða er mikill sem m.a. má sjá á umfjöllun um þær um og eftir síðustu verslunarmannahelgi.
Sýslumaðurinn á Keflavíkurflugvelli hefur lagt aukna áherslu á þennan málaflokk og hefur það skilað miklum árangri. Sömu sögu er að segja um embættið á Seyðisfirði sem hefur vegna ferjunnar Norrænu fengið aðstoð frá ríkislögreglustjóra, fíkniefnadeild lögreglustjórans í Reykjavík, embætti sýslumannsins á Keflavíkurflugvelli og á Eskifirði, auk tollstjórans í Reykjavík.
Embætti ríkislögreglustjóra lét framkvæma ítarlega fræðilega rannsókn á skipulagðri glæpastarfsemi hér á landi haustið 2004 og hefur því verki verið fylgt eftir með margvíslegum hætti. Í því sambandi má nefna heildræna greiningu á skipulagðri glæpastarfsemi, m.a. með þróun á aðferðafræði sem gerir mögulegt að skoða gögn lögreglu út frá netkerfisnálgun, þ.e. tengslamyndanir afbrotamanna. Þessi vinna er vel á veg komin og mun auka enn úrræði gegn skipulagðri glæpastarfsemi, þar á meðal fíkniefnabrotum. Einnig skal hér nefna undirbúning embættis ríkislögreglustjóra að innleiðingu svonefndrar verkefnamiðaðrar löggæslu, sem auðvelda á lögreglu að takast á við afbrot.
Þá má nefna umburðarbréf ríkislögreglustjóra til lögreglustjóranna í desember 2003 um auknar aðgerðir en því var fylgt eftir með heimsóknum til lögregluembættanna. Í því sambandi þarf að hafa í huga að aðgerðir til að sporna t.d. við sölu og dreifingu fíkniefna og uppljóstrun slíkra brota eru frumkvæðisverkefni. Árangur þessa kemur vel í ljós þegar skoðaður er fjöldi fíkniefnabrota og haldlagning fíkniefna hjá lögreglu og tollgæslu. Þannig fjölgaði skráðum fíkniefnabrotum milli áranna 2003 og 2005 úr 1.385 í 1.816 á öllu landinu og fjöldi tilvika þar sem lagt var hald á fíkniefni sama tímabil jókst úr 1.686 í 2.484.
Þetta má sjá eftir efnistegundum á meðfylgjandi mynd:
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.