Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 225. máls.
133. löggjafarþing 2006–2007.
Þskj. 270  —  225. mál.




Svar



forsætisráðherra við fyrirspurn Marðar Árnasonar um ráðstöfun ráðherrabústaðarins við Tjarnargötu.

     1.      Hver hefur heimild til að ráðstafa ráðherrabústaðnum við Tjarnargötu til funda og veisluhalda?
    Forsætisráðuneytið fer með eignarforræði yfir ráðherrabústaðnum við Tjarnargötu, sbr. 7. tölul. 2. gr. reglugerðar nr. 3/2004, um Stjórnarráð Íslands, og eru afnot af bústaðnum eingöngu heimil að fengnu leyfi þess.

     2.      Er slík ráðstöfun takmörkuð við viðburði á vegum ríkisstjórnarinnar og einstakra ráðherra? Ef ekki, hvaða reglur gilda þá um ráðstöfun bústaðarins?
    Ráðuneytum eru heimil afnot af ráðherrabústaðnum með því skilyrði að gestaboð eða fundir séu haldnir af ráðherra.

     3.      Hvað kostar að fá ráðherrabústaðinn til fundar eða veislu – t.d. til tveggja stunda blaðamannafundar og til kvöldverðarboðs? Sjá þeir sem afnot hafa af bústaðnum sjálfir um að útvega veitingar eða sér tiltekinn veitingamaður um þær?

    Ráðuneyti greiða ekki sérstaklega fyrir afnot af ráðherrabústaðnum, en kostnaður við almennan rekstur bústaðarins og viðhald greiðist af forsætisráðuneyti. Sérstakur kostnaður, sem til er stofnað vegna afnota ráðuneyta af bústaðnum, greiðist af viðkomandi ráðuneyti. Ráðuneytin ákveða hvert fyrir sig hvaðan þau kaupa veitingar til gestaboða eða funda.