Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 271. máls.
um skattaívilnanir vegna gjafa og framlaga til mannúðar- og menningarmála.
Alþingi ályktar að fela fjármálaráðherra að skipa nefnd til að endurskoða lagareglur um skattaívilnanir vegna gjafa til mannúðar- og menningarmála. Í tillögum sínum hafi nefndin að markmiði að heimilaður verði frádráttur frá tekjum einstaklinga vegna gjafa og framlaga til líknar- og hjálparstarfs, menningarmála, þar á meðal náttúruverndar- og umhverfismála, rannsókna og íþróttastarfs, og að rýmkaðar verði núgildandi heimildir til frádráttar í svipuðu skyni frá tekjum lögaðila og þeim tekjum manna sem stafa af atvinnurekstri eða sjálfstæðri starfsemi. Nefndin skoði sérstaklega hvort æskilegt er að veita meiri ívilnanir þegar um er að ræða framlög í styrktarsjóði sem gefandinn hefur ekki umráð yfir. Höfð verði hliðsjón af lögum og reglum sem gilda um skattaívilnanir vegna gjafa til menningar- og mannúðarmála í helstu viðmiðunarlöndum Íslands.
Í flestum ríkjum hvetja stjórnvöld bæði einstaklinga og fyrirtæki til þess að gefa til mannúðar- og menningarmála með margs konar skattaívilnunum. Viðurkennt er að líknar- og hjálparsamtök, sem ekki eru rekin í hagnaðarskyni og starfa jafnt á innlendum og alþjóðlegum vettvangi, hafa mikilvægu hlutverki að gegna og hvarvetna þykir ástæða til þess að styðja óeigingjarnt starf þeirra með þessum hætti. Hið sama gildir um framlög til menningarmála og vísindalegra rannsóknarstarfa. Á Íslandi er sérstök ástæða til að styrkja íþróttastarf einnig með þessum hætti.
Samkvæmt íslenskum skattareglum hafa einstaklingar ekki heimild til að draga gjafir til mannúðar- og menningarmála frá skattskyldum tekjum og verður ekki séð að sérstök rök séu fyrir þeirri sérstöðu. Allar gjafir eru í raun skattskyldar, hvort sem um er að ræða beinar gjafir í peningum eða öðrum verðmætum. Þá leiddi lausleg könnun nokkurra starfsmanna íslenskra hjálparsamtaka í ljós að Ísland var fyrir nokkrum árum það ríki þar sem minnstar skattaívilnanir voru veittar til fyrirtækja vegna framlaga til mannúðarmála af þeim sjö ríkjum sem tekin voru til athugunar. Í skýrslu sem Jónas Guðmundsson samdi árið 2004 er niðurstaðan á sömu nótum: Íslensk góðgerðarfélög búa við erfiðara skattaumhverfi en sambærileg félög í samanburðarlöndunum. Skattbyrði íslenskra fyrirtækja hefur hins vegar verið lækkuð til muna á undanförnum árum.
Frá tekjum lögaðila og þeim tekjum manna sem stafa af atvinnurekstri eða sjálfstæðri starfsemi eða eru tengdar slíkum rekstri má, samkvæmt lögum um tekjuskatt (nr. 90/2003, 31. gr.), draga einstakar gjafir og framlög til kirkjufélaga og viðurkenndrar líknarstarfsemi, þó ekki yfir 0,5% af tekjum á því ári sem gjöf er afhent. Hið sama gildir um gjafir og framlög til menningarmála og vísindalegra rannsóknarstarfa, og einnig um framlög til stjórnmálaflokka. Fjármálaráðherra hefur ákveðið með reglugerð hvaða málaflokkar og stofnanir hér um ræðir.
Á allmörgum þingum, síðast á 128. löggjafarþingi, hefur verið til umfjöllunar frumvarp til laga um breytingu á lögum um tekjuskatt og eignarskatt sem Ágúst Einarsson var fyrsti flutningsmaður að. Þar var gerð tillaga um lögfestingu þess að lögaðilar mættu draga tvöfalda þá fjárhæð frá tekjum sem þeir verja til menningarmála, kvikmyndagerðar og vísindastarfsemi. Ef fyrirtæki gæfi 100 þús. kr. til menningar- og vísindastarfsemi hefði það samkvæmt frumvarpinu mátt draga 200 þús. kr. frá útgjöldum en einungis 100 þús. kr. samkvæmt núgildandi lögum. Þetta frumvarp hafði talsverðan hljómgrunn á þingi og fékk jákvæðar umsagnir aðila sem þekkja vel til mála. Tvöföldunarreglan mundi hvetja fyrirtæki til að auka framlög sín, enda lækkuðu skattskyldar tekjur þeirra þar með. Væri slík regla lögfest ætti hún skýlaust einnig að gilda um framlög til mannúðarmála og íþróttastarfs.
Miðað við það sem þekkist meðal annarra þjóða væri ekki heldur úr vegi, að dómi flutningsmanna, að lögaðilar sem gefa til mannúðar- og menningarmála hefðu heimild til þess að draga hærri prósentu en 0,5% frá tekjum, eins og kveðið er á um í núgildandi lögum, áður en byrjað er að greiða skatt. Í því sambandi má benda á að í Bandaríkjunum er frádráttarprósentan 10% og 15% í Danmörku.
Enda þótt víðast séu í gildi reglur um skattaívilnanir til einstaklinga sem gefa til mannúðar- og menningarmála þá eru þær mjög mismunandi eftir löndum. Mismunandi er hvort skattafslátturinn kemur fram hjá samtökunum, eða verkefninu sem um ræðir, einstaklingnum eða báðum aðilum. Mestu skiptir hér að finna leið sem hentar við íslenskar aðstæður. Ekki er fjarri lagi, frá sjónarhóli flutningsmanna, að gera ráð fyrir heimild fyrir einstaklinga til þess að draga allt að 100–200 þús. kr. frá tekjum vegna gjafa til mannúðar-, menningar- og íþróttamála, áður en byrjað er að greiða skatt.
Lagt er til að nefndin hafi til hliðsjónar lög og reglur í helstu viðmiðunarlöndum Íslands við samningu tillagna sinna og taki afstöðu til þess hvort skilgreina þurfi og flokka hjálpar- og líknarsamtök nánar en nú er gert og gera skilsmun á skattafslætti til menningarmála eftir því hvers eðlis starfsemin er.
Sem kunnugt er hafa fyrirtæki og einstakir auðugir kaupsýslumenn hérlendis stóraukið framlög sín til menningarmála að undanförnu. Það er þróun sem allir fagna, enda eðlilegt að fyrirtækin veiti samfélagi því sem þau eru sprottin úr og styðjast við slíkan stuðning. Einnig hafa fyrirtækin verið gjöful þegar kemur að einstökum mannúðarmálum. Sá galli getur fylgt þessum framlögum að smekkur og jafnvel geðþótti gefendanna ráði um of fjármagni til lista, menningar og einstakra mannúðarverkefna. Nefnd hefur verið sú tilhneiging hjá fjársterkum listvinum vestan hafs og austan að ganga fram hjá því sem ferskast er í menningarsköpun og beita sér einkum að hinum viðurkenndu og sígildum greinum. Þótt raunar séu dæmi hérlendis um hið gagnstæða á síðari árum mælir margt með því að gefendur séu hvattir til framlaga án þess að þeim fylgi bein áhrif á þá starfsemi sem styrkt er. Því er lagt til að nefnd fjármálaráðherra kanni hvort æskilegt er að veita þeim gefendum aukna ívilnun sem láta fé sitt renna í styrktarsjóði sem eru þeim óháðir og þar sem tryggt er að einungis fagleg viðhorf ráða úthutun. Má hugsa sér að slíkir sjóðir fengju vegna þessa sérstaka vottun á vegum menntamálaráðuneytis og félagsmálaráðuneytis.
Almennt er talið æskilegt markmið að hjálpar- og líknarsamtök fái aflafé sitt úr sem flestum áttum og séu ekki um of háð neinum einum aðila, hvort sem um er að ræða ríki, trúfélög, fyrirtæki eða einstaklinga. Endurskoðun á lagareglum um skattaívilnanir vegna gjafa til mannúðarmála þjónar þeim tilgangi að skjóta fleiri og styrkari stoðum undir starfsemi frjálsra félagasamtaka sem slíkum málum sinna. Reynslan sýnir að Íslendingar eru síst eftirbátar annarra þjóða í frjálsum gjöfum til hjálparsamtaka. Því má ætla að frekari hvatning frá ríkisvaldinu muni skila sér í myndarlegu framlagi frá almenningi og fyrirtækjum til mannúðarmála á næstu árum.
Mikill sköpunarkraftur er fólginn í íslenskri menningarstarfsemi og má ætla að hlutur hennar í landsframleiðslu sé um 4% um þessar mundir (Ágúst Einarsson: „Menning og tónlist í hagkerfinu.“ Hagmál 44 (2005), bls. 6–10). Skattaívilnun á þessu sviði, eins og hér er gert ráð fyrir, yrði lyftistöng fyrir frjálsa leikhópa, kvikmyndagerð, tónleikahald og aðra menningarstarfsemi, og leiddi til aukinna umsvifa sem síðar skila tekjum í ríkissjóð, m.a. í formi virðisaukaskatts og tekjuskatts einstaklinga.
Íþróttastarfsemi á Íslandi byggist enn mjög á sjálfboðnu starfi og framlögum stuðningsmanna, þótt ýmsar framfarir hafi orðið í fjármálum íþróttahreyfingarinnar og opinberum stuðningi við hana á síðari árum. Samstarf hreyfingarinnar við einstök fyrirtæki myndar þó víðast hryggjarstykkið við úthald keppenda og keppnisliða í fremstu röð, en þar er oftast um viðskiptasamninga að ræða þar sem framlögin eru goldin t.d. með auglýsingum. Skattaívilnun vegna venjulegra framlaga mundi auðvelda íþróttahreyfingunni mjög að útvega fé til sinnar starfsemi, sérstaklega barna- og unglingastarfs.
Ástæða er til þess að hvetja fyrirtæki og einstaklinga til þess að styrkja vísindastarfsemi með skattaívilnun vegna þess hvað slík starfsemi skiptir miklu máli um framtíðarvelferð í þekkingarþjóðfélagi. Starfsemi innan æðri menntastofnana þarf að efla með ráðum og dáð og gildir það jafnt um öll meginfræðasvið háskóla, hugvísindi, raunvísindi, félagsvísindi og heilbrigðisvísindi.
Í íslenskri löggjöf er farið með framlög og gjafir til stjórnmálaflokka á sama hátt og til kirkjufélaga, viðurkenndrar líknarstarfsemi, menningarmála og vísindalegra rannsóknarstarfa. Hér er ekkert hreyft við þeim framlögum og gjöfum, enda sérstök nefnd að störfum um fjármál stjórnmálaflokkanna.
Þessi þingsályktunartillaga er byggð á svipaðri þingsályktunartillögu Einars Karls Haraldssonar o.fl. þingmanna Samfylkingarinnar frá haustþingi 2003, með þeim efnisbreytingum einum sem varða aukna ívilnun vegna framlaga í einstaka sjóði og framlaga til íþróttastarfs. Sú tillaga komst aldrei til umræðu en vakti athygli bæði meðal menningarfólks og áhugamanna um mannúðarmál. Rétt er að geta þess að í þingsályktunartillögu Söndru Franks frá vorþingi 2006 um skattaumhverfi líknarfélaga var fjallað um gjafir og framlög til líknarfélaga með svipuðum hætti og hér. Fylgiskjal.
Jónas Guðmundsson,
hagfræðingur:
Í flestum aðildarríkjum OECD þekkist að styðjendur og styrkjendur félagasamtaka eigi rétt á lækkun á eigin skattgreiðslum vegna gjafa 1 sem þeir láta af hendi rakna. 2 Reglan er sú að eingöngu stuðningur við valda hópa almannaheillasamtaka veiti rétt til slíks frádráttar gefanda. Slík frádráttarákvæði hafa víða reynst félagasamtökum mikilvægt tæki til öflunar tekna, vegna þess að þau hvetja til gjafa. Í Bandaríkjunum er viðurkennt að þessi skattaákvæði séu mikilvægari en öll önnur fyrir þau félög sem njóta góðs af. Er eftirsótt fyrir samtök og stofnanir að fá skráningu skattayfirvalda sem viðurkenndra aðila til að taka á móti frádráttarbærum gjöfum.
Víðast hvar eru frádráttarákvæðin þess efnis að viðkomandi gefanda er heimilt að draga verðmæti gjafar beint frá skattskyldum tekjum sínum. Þannig lækkar gjöfin skattstofn einstaklingsins eða fyrirtækisins. Á móti gjöfinni sparar greiðandinn því skattgreiðslur til ríkisins; 3 lækkun skattgreiðslna er því meiri sem skattþrep viðkomandi er hærra. Ennfremur þekkist að í stað frádráttar frá skattskyldum tekjum veiti gjafir til góðra málefna beinan afslátt af álögðum eða reiknuðum tekjuskattsgreiðslum. Kosturinn við þessa aðferð er að mismunandi skattþrep hafa ekki áhrif á upphæð skattaafsláttarins. 4 Þriðja aðferðin er sú að á móti gjöfum skattgreiðenda sendi skattayfirvöld mótframlag til viðkomandi félags. 5 Í öllum tilfellum er þátttaka opinbera aðilans í réttu hlutfalli við þann stuðning sem skattgreiðandinn veitir.
Í afslætti af greiðslum skattgreiðanda (eða mótframlagi) felst skýrasti stuðningur opinberra aðila við starfsemi almannaheilla- eða góðgerðarsamtaka. Sumir hafa nefnt þetta „niðurgreiðslur“ á starfsemi samtakanna.
Hér á landi eru takmarkaðir möguleikar fyrirtækja til að veita slíkar gjafir. Núgildandi skattalög heimila frádrátt frá tekjum af atvinnurekstri og sjálfstæðri starfsemi, að hámarki 0,5% af skattskyldum tekjum þessara lögaðila, vegna gjafa til kirkjufélaga, viðurkenndrar líknarstarfsemi, menningarmála, stjórnmálaflokka og vísindalegra rannsóknastarfa. 6 Engin heimild er til frádráttar frá skattskyldum tekjum einstaklinga.
Svo vill til að heimild til skattafrádráttar var eitt sinn mun rýmri hér á landi. Allt til ársins 1979 gátu gjafir bæði einstaklinga og fyrirtækja að ákveðnu marki komið til lækkunar á tekjuskatti þeirra sem gáfu. Gefendurnir gátu dregið þessar gjafir frá skattskyldum tekjum sínum, og lækkað þannig skattstofn sinn. Í tekju- og eignarskattslögum var þá eitt ákvæði um frádrátt frá skattskyldum tekjum þannig:
Einstakar gjafir til menningarmála, vísindalegra rannsóknastofnana, viðurkenndrar líknarstarfsemi og kirkjufélaga, þó ekki yfir 10% af skattskyldum tekjum gefenda, enda sé hver gjöf ekki undir 300 kr. Fjármálaráðherra ákveður í reglugerð, hvaða málaflokkar og stofnanir komi til greina samkvæmt þessum staflið. 7
Þetta ákvæði var afnumið með lögum nr. 40/1978.
Ísland: Einungis fyrirtæki geta dregið að hámarki 0,5% af skattskyldum tekjum vegna gjafa til skilgreindra almannaheillamálefna. 8 Einstaklingar geta ekki nýtt sér slíkan frádrátt.
Bandaríkin: Einstaklingar og fyrirtæki geta dregið gjafir til viðurkenndra góðgerðarfélaga 9 (svonefndra 501(c)(3) félaga, eftir grein í skattalögum) frá tekjum sem taldar eru fram til skatts. 10 Félögin geta starfað að trúarlegum, góðgerðarlegum, vísindalegum, bókmenntalegum og menntunarlegum tilgangi. Á lista skattayfirvalda eru einnig staðbundnar opinberar stofnanir, bræðra- og systrafélög, félög sem berjast fyrir velferð barna og gegn illri meðferð á dýrum, og önnur samfélagslega bætandi félög. Félögin verða að starfa sem "nonprofit" félög og þurfa að hlýta öðrum takmörkunum. Gjafir geta verið í ýmsu formi, t.d. peningar, fasteignir eða föt. Frádráttur vegna peningagjafa getur að hámarki numið 50% af tekjum einstaklings en 30% vegna eignagjafa. Frádráttarbærar gjafir fyrirtækja mega ekki vera hærri en sem nemur 10% af hagnaði þeirra fyrir skatta. 11
Bretland: Einstaklingar geta dregið einstakar gjafir til góðgerðarfélaga að lágmarki 250 sterlingspund frá skattskyldum tekjum. Geri einstaklingar samninga til a.m.k. þriggja ára um stuðning við félag dregur hann upphæðina hins vegar ekki frá skattskyldum tekjum sínum; skattayfirvöld senda þess í stað fjárupphæð sem svarar til skattgreiðslu af gjafaupphæðinni til viðtakandi félags. Þetta felur í sér að yfirvöldin senda félögunum mótframlög við gjafir einstaklinganna.
Danmörk: Skattayfirvöld birta árlega lista yfir félög sem geta tekið við frádráttarbærum gjöfum frá einstaklingum og fyrirtækjum. Frádráttarbærar gjafir einstaklinga þurfa að vera á bilinu 500 til 5000 danskar krónur. Séu gjafir samkvæmt langtímasamningi (tíu ára) á milli félaga og einstaklinga, getur hámarksupphæðin þó verið 15 þús. dkr. á ári, eða allt að 15% af tekjum einstaklingsins. Frádráttarbærar gjafir fyrirtækja geta numið allt að 15 þús. dkr. eða 15% af hagnaði viðkomandi fyrirtækja.
ESB: Öll aðildarríki veita gefendum, fyrirtækjum og einstaklingum, skattaafslátt. Í sumum ríkjum er það aðeins skilgreindur hópur félaga sem getur veitt þannig gjöfum viðtöku.
133. löggjafarþing 2006–2007.
Prentað upp.
Þskj. 280 — 271. mál.
Flutningsmenn.
Tillaga til þingsályktunar
um skattaívilnanir vegna gjafa og framlaga til mannúðar- og menningarmála.
Flm.: Mörður Árnason, Björgvin G. Sigurðsson, Einar Már Sigurðarson,
Þórunn Sveinbjarnardóttir, Ásta R. Jóhannesdóttir,
Össur Skarphéðinsson, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir.
Alþingi ályktar að fela fjármálaráðherra að skipa nefnd til að endurskoða lagareglur um skattaívilnanir vegna gjafa til mannúðar- og menningarmála. Í tillögum sínum hafi nefndin að markmiði að heimilaður verði frádráttur frá tekjum einstaklinga vegna gjafa og framlaga til líknar- og hjálparstarfs, menningarmála, þar á meðal náttúruverndar- og umhverfismála, rannsókna og íþróttastarfs, og að rýmkaðar verði núgildandi heimildir til frádráttar í svipuðu skyni frá tekjum lögaðila og þeim tekjum manna sem stafa af atvinnurekstri eða sjálfstæðri starfsemi. Nefndin skoði sérstaklega hvort æskilegt er að veita meiri ívilnanir þegar um er að ræða framlög í styrktarsjóði sem gefandinn hefur ekki umráð yfir. Höfð verði hliðsjón af lögum og reglum sem gilda um skattaívilnanir vegna gjafa til menningar- og mannúðarmála í helstu viðmiðunarlöndum Íslands.
Greinargerð.
Í flestum ríkjum hvetja stjórnvöld bæði einstaklinga og fyrirtæki til þess að gefa til mannúðar- og menningarmála með margs konar skattaívilnunum. Viðurkennt er að líknar- og hjálparsamtök, sem ekki eru rekin í hagnaðarskyni og starfa jafnt á innlendum og alþjóðlegum vettvangi, hafa mikilvægu hlutverki að gegna og hvarvetna þykir ástæða til þess að styðja óeigingjarnt starf þeirra með þessum hætti. Hið sama gildir um framlög til menningarmála og vísindalegra rannsóknarstarfa. Á Íslandi er sérstök ástæða til að styrkja íþróttastarf einnig með þessum hætti.
Samkvæmt íslenskum skattareglum hafa einstaklingar ekki heimild til að draga gjafir til mannúðar- og menningarmála frá skattskyldum tekjum og verður ekki séð að sérstök rök séu fyrir þeirri sérstöðu. Allar gjafir eru í raun skattskyldar, hvort sem um er að ræða beinar gjafir í peningum eða öðrum verðmætum. Þá leiddi lausleg könnun nokkurra starfsmanna íslenskra hjálparsamtaka í ljós að Ísland var fyrir nokkrum árum það ríki þar sem minnstar skattaívilnanir voru veittar til fyrirtækja vegna framlaga til mannúðarmála af þeim sjö ríkjum sem tekin voru til athugunar. Í skýrslu sem Jónas Guðmundsson samdi árið 2004 er niðurstaðan á sömu nótum: Íslensk góðgerðarfélög búa við erfiðara skattaumhverfi en sambærileg félög í samanburðarlöndunum. Skattbyrði íslenskra fyrirtækja hefur hins vegar verið lækkuð til muna á undanförnum árum.
Frá tekjum lögaðila og þeim tekjum manna sem stafa af atvinnurekstri eða sjálfstæðri starfsemi eða eru tengdar slíkum rekstri má, samkvæmt lögum um tekjuskatt (nr. 90/2003, 31. gr.), draga einstakar gjafir og framlög til kirkjufélaga og viðurkenndrar líknarstarfsemi, þó ekki yfir 0,5% af tekjum á því ári sem gjöf er afhent. Hið sama gildir um gjafir og framlög til menningarmála og vísindalegra rannsóknarstarfa, og einnig um framlög til stjórnmálaflokka. Fjármálaráðherra hefur ákveðið með reglugerð hvaða málaflokkar og stofnanir hér um ræðir.
Á allmörgum þingum, síðast á 128. löggjafarþingi, hefur verið til umfjöllunar frumvarp til laga um breytingu á lögum um tekjuskatt og eignarskatt sem Ágúst Einarsson var fyrsti flutningsmaður að. Þar var gerð tillaga um lögfestingu þess að lögaðilar mættu draga tvöfalda þá fjárhæð frá tekjum sem þeir verja til menningarmála, kvikmyndagerðar og vísindastarfsemi. Ef fyrirtæki gæfi 100 þús. kr. til menningar- og vísindastarfsemi hefði það samkvæmt frumvarpinu mátt draga 200 þús. kr. frá útgjöldum en einungis 100 þús. kr. samkvæmt núgildandi lögum. Þetta frumvarp hafði talsverðan hljómgrunn á þingi og fékk jákvæðar umsagnir aðila sem þekkja vel til mála. Tvöföldunarreglan mundi hvetja fyrirtæki til að auka framlög sín, enda lækkuðu skattskyldar tekjur þeirra þar með. Væri slík regla lögfest ætti hún skýlaust einnig að gilda um framlög til mannúðarmála og íþróttastarfs.
Miðað við það sem þekkist meðal annarra þjóða væri ekki heldur úr vegi, að dómi flutningsmanna, að lögaðilar sem gefa til mannúðar- og menningarmála hefðu heimild til þess að draga hærri prósentu en 0,5% frá tekjum, eins og kveðið er á um í núgildandi lögum, áður en byrjað er að greiða skatt. Í því sambandi má benda á að í Bandaríkjunum er frádráttarprósentan 10% og 15% í Danmörku.
Enda þótt víðast séu í gildi reglur um skattaívilnanir til einstaklinga sem gefa til mannúðar- og menningarmála þá eru þær mjög mismunandi eftir löndum. Mismunandi er hvort skattafslátturinn kemur fram hjá samtökunum, eða verkefninu sem um ræðir, einstaklingnum eða báðum aðilum. Mestu skiptir hér að finna leið sem hentar við íslenskar aðstæður. Ekki er fjarri lagi, frá sjónarhóli flutningsmanna, að gera ráð fyrir heimild fyrir einstaklinga til þess að draga allt að 100–200 þús. kr. frá tekjum vegna gjafa til mannúðar-, menningar- og íþróttamála, áður en byrjað er að greiða skatt.
Lagt er til að nefndin hafi til hliðsjónar lög og reglur í helstu viðmiðunarlöndum Íslands við samningu tillagna sinna og taki afstöðu til þess hvort skilgreina þurfi og flokka hjálpar- og líknarsamtök nánar en nú er gert og gera skilsmun á skattafslætti til menningarmála eftir því hvers eðlis starfsemin er.
Sem kunnugt er hafa fyrirtæki og einstakir auðugir kaupsýslumenn hérlendis stóraukið framlög sín til menningarmála að undanförnu. Það er þróun sem allir fagna, enda eðlilegt að fyrirtækin veiti samfélagi því sem þau eru sprottin úr og styðjast við slíkan stuðning. Einnig hafa fyrirtækin verið gjöful þegar kemur að einstökum mannúðarmálum. Sá galli getur fylgt þessum framlögum að smekkur og jafnvel geðþótti gefendanna ráði um of fjármagni til lista, menningar og einstakra mannúðarverkefna. Nefnd hefur verið sú tilhneiging hjá fjársterkum listvinum vestan hafs og austan að ganga fram hjá því sem ferskast er í menningarsköpun og beita sér einkum að hinum viðurkenndu og sígildum greinum. Þótt raunar séu dæmi hérlendis um hið gagnstæða á síðari árum mælir margt með því að gefendur séu hvattir til framlaga án þess að þeim fylgi bein áhrif á þá starfsemi sem styrkt er. Því er lagt til að nefnd fjármálaráðherra kanni hvort æskilegt er að veita þeim gefendum aukna ívilnun sem láta fé sitt renna í styrktarsjóði sem eru þeim óháðir og þar sem tryggt er að einungis fagleg viðhorf ráða úthutun. Má hugsa sér að slíkir sjóðir fengju vegna þessa sérstaka vottun á vegum menntamálaráðuneytis og félagsmálaráðuneytis.
Almennt er talið æskilegt markmið að hjálpar- og líknarsamtök fái aflafé sitt úr sem flestum áttum og séu ekki um of háð neinum einum aðila, hvort sem um er að ræða ríki, trúfélög, fyrirtæki eða einstaklinga. Endurskoðun á lagareglum um skattaívilnanir vegna gjafa til mannúðarmála þjónar þeim tilgangi að skjóta fleiri og styrkari stoðum undir starfsemi frjálsra félagasamtaka sem slíkum málum sinna. Reynslan sýnir að Íslendingar eru síst eftirbátar annarra þjóða í frjálsum gjöfum til hjálparsamtaka. Því má ætla að frekari hvatning frá ríkisvaldinu muni skila sér í myndarlegu framlagi frá almenningi og fyrirtækjum til mannúðarmála á næstu árum.
Mikill sköpunarkraftur er fólginn í íslenskri menningarstarfsemi og má ætla að hlutur hennar í landsframleiðslu sé um 4% um þessar mundir (Ágúst Einarsson: „Menning og tónlist í hagkerfinu.“ Hagmál 44 (2005), bls. 6–10). Skattaívilnun á þessu sviði, eins og hér er gert ráð fyrir, yrði lyftistöng fyrir frjálsa leikhópa, kvikmyndagerð, tónleikahald og aðra menningarstarfsemi, og leiddi til aukinna umsvifa sem síðar skila tekjum í ríkissjóð, m.a. í formi virðisaukaskatts og tekjuskatts einstaklinga.
Íþróttastarfsemi á Íslandi byggist enn mjög á sjálfboðnu starfi og framlögum stuðningsmanna, þótt ýmsar framfarir hafi orðið í fjármálum íþróttahreyfingarinnar og opinberum stuðningi við hana á síðari árum. Samstarf hreyfingarinnar við einstök fyrirtæki myndar þó víðast hryggjarstykkið við úthald keppenda og keppnisliða í fremstu röð, en þar er oftast um viðskiptasamninga að ræða þar sem framlögin eru goldin t.d. með auglýsingum. Skattaívilnun vegna venjulegra framlaga mundi auðvelda íþróttahreyfingunni mjög að útvega fé til sinnar starfsemi, sérstaklega barna- og unglingastarfs.
Ástæða er til þess að hvetja fyrirtæki og einstaklinga til þess að styrkja vísindastarfsemi með skattaívilnun vegna þess hvað slík starfsemi skiptir miklu máli um framtíðarvelferð í þekkingarþjóðfélagi. Starfsemi innan æðri menntastofnana þarf að efla með ráðum og dáð og gildir það jafnt um öll meginfræðasvið háskóla, hugvísindi, raunvísindi, félagsvísindi og heilbrigðisvísindi.
Í íslenskri löggjöf er farið með framlög og gjafir til stjórnmálaflokka á sama hátt og til kirkjufélaga, viðurkenndrar líknarstarfsemi, menningarmála og vísindalegra rannsóknarstarfa. Hér er ekkert hreyft við þeim framlögum og gjöfum, enda sérstök nefnd að störfum um fjármál stjórnmálaflokkanna.
Þessi þingsályktunartillaga er byggð á svipaðri þingsályktunartillögu Einars Karls Haraldssonar o.fl. þingmanna Samfylkingarinnar frá haustþingi 2003, með þeim efnisbreytingum einum sem varða aukna ívilnun vegna framlaga í einstaka sjóði og framlaga til íþróttastarfs. Sú tillaga komst aldrei til umræðu en vakti athygli bæði meðal menningarfólks og áhugamanna um mannúðarmál. Rétt er að geta þess að í þingsályktunartillögu Söndru Franks frá vorþingi 2006 um skattaumhverfi líknarfélaga var fjallað um gjafir og framlög til líknarfélaga með svipuðum hætti og hér. Fylgiskjal.
Jónas Guðmundsson,
hagfræðingur:
Kafli úr skýrslunni Skattaumhverfi félagasamtaka á Íslandi
og í öðrum löndum – með sérstöku tilliti til góðgerðasamtaka.
(Útg.:Samvinnuhópur ABC-barnahjálpar, Barnaheilla, Hjálparstarfs kirkjunnar,
Rauða kross Íslands og SOS-barnaþorpanna, 2004.)
Í flestum aðildarríkjum OECD þekkist að styðjendur og styrkjendur félagasamtaka eigi rétt á lækkun á eigin skattgreiðslum vegna gjafa 1 sem þeir láta af hendi rakna. 2 Reglan er sú að eingöngu stuðningur við valda hópa almannaheillasamtaka veiti rétt til slíks frádráttar gefanda. Slík frádráttarákvæði hafa víða reynst félagasamtökum mikilvægt tæki til öflunar tekna, vegna þess að þau hvetja til gjafa. Í Bandaríkjunum er viðurkennt að þessi skattaákvæði séu mikilvægari en öll önnur fyrir þau félög sem njóta góðs af. Er eftirsótt fyrir samtök og stofnanir að fá skráningu skattayfirvalda sem viðurkenndra aðila til að taka á móti frádráttarbærum gjöfum.
Víðast hvar eru frádráttarákvæðin þess efnis að viðkomandi gefanda er heimilt að draga verðmæti gjafar beint frá skattskyldum tekjum sínum. Þannig lækkar gjöfin skattstofn einstaklingsins eða fyrirtækisins. Á móti gjöfinni sparar greiðandinn því skattgreiðslur til ríkisins; 3 lækkun skattgreiðslna er því meiri sem skattþrep viðkomandi er hærra. Ennfremur þekkist að í stað frádráttar frá skattskyldum tekjum veiti gjafir til góðra málefna beinan afslátt af álögðum eða reiknuðum tekjuskattsgreiðslum. Kosturinn við þessa aðferð er að mismunandi skattþrep hafa ekki áhrif á upphæð skattaafsláttarins. 4 Þriðja aðferðin er sú að á móti gjöfum skattgreiðenda sendi skattayfirvöld mótframlag til viðkomandi félags. 5 Í öllum tilfellum er þátttaka opinbera aðilans í réttu hlutfalli við þann stuðning sem skattgreiðandinn veitir.
Í afslætti af greiðslum skattgreiðanda (eða mótframlagi) felst skýrasti stuðningur opinberra aðila við starfsemi almannaheilla- eða góðgerðarsamtaka. Sumir hafa nefnt þetta „niðurgreiðslur“ á starfsemi samtakanna.
Hér á landi eru takmarkaðir möguleikar fyrirtækja til að veita slíkar gjafir. Núgildandi skattalög heimila frádrátt frá tekjum af atvinnurekstri og sjálfstæðri starfsemi, að hámarki 0,5% af skattskyldum tekjum þessara lögaðila, vegna gjafa til kirkjufélaga, viðurkenndrar líknarstarfsemi, menningarmála, stjórnmálaflokka og vísindalegra rannsóknastarfa. 6 Engin heimild er til frádráttar frá skattskyldum tekjum einstaklinga.
Svo vill til að heimild til skattafrádráttar var eitt sinn mun rýmri hér á landi. Allt til ársins 1979 gátu gjafir bæði einstaklinga og fyrirtækja að ákveðnu marki komið til lækkunar á tekjuskatti þeirra sem gáfu. Gefendurnir gátu dregið þessar gjafir frá skattskyldum tekjum sínum, og lækkað þannig skattstofn sinn. Í tekju- og eignarskattslögum var þá eitt ákvæði um frádrátt frá skattskyldum tekjum þannig:
Einstakar gjafir til menningarmála, vísindalegra rannsóknastofnana, viðurkenndrar líknarstarfsemi og kirkjufélaga, þó ekki yfir 10% af skattskyldum tekjum gefenda, enda sé hver gjöf ekki undir 300 kr. Fjármálaráðherra ákveður í reglugerð, hvaða málaflokkar og stofnanir komi til greina samkvæmt þessum staflið. 7
Þetta ákvæði var afnumið með lögum nr. 40/1978.
Ísland: Einungis fyrirtæki geta dregið að hámarki 0,5% af skattskyldum tekjum vegna gjafa til skilgreindra almannaheillamálefna. 8 Einstaklingar geta ekki nýtt sér slíkan frádrátt.
Bandaríkin: Einstaklingar og fyrirtæki geta dregið gjafir til viðurkenndra góðgerðarfélaga 9 (svonefndra 501(c)(3) félaga, eftir grein í skattalögum) frá tekjum sem taldar eru fram til skatts. 10 Félögin geta starfað að trúarlegum, góðgerðarlegum, vísindalegum, bókmenntalegum og menntunarlegum tilgangi. Á lista skattayfirvalda eru einnig staðbundnar opinberar stofnanir, bræðra- og systrafélög, félög sem berjast fyrir velferð barna og gegn illri meðferð á dýrum, og önnur samfélagslega bætandi félög. Félögin verða að starfa sem "nonprofit" félög og þurfa að hlýta öðrum takmörkunum. Gjafir geta verið í ýmsu formi, t.d. peningar, fasteignir eða föt. Frádráttur vegna peningagjafa getur að hámarki numið 50% af tekjum einstaklings en 30% vegna eignagjafa. Frádráttarbærar gjafir fyrirtækja mega ekki vera hærri en sem nemur 10% af hagnaði þeirra fyrir skatta. 11
Bretland: Einstaklingar geta dregið einstakar gjafir til góðgerðarfélaga að lágmarki 250 sterlingspund frá skattskyldum tekjum. Geri einstaklingar samninga til a.m.k. þriggja ára um stuðning við félag dregur hann upphæðina hins vegar ekki frá skattskyldum tekjum sínum; skattayfirvöld senda þess í stað fjárupphæð sem svarar til skattgreiðslu af gjafaupphæðinni til viðtakandi félags. Þetta felur í sér að yfirvöldin senda félögunum mótframlög við gjafir einstaklinganna.
Danmörk: Skattayfirvöld birta árlega lista yfir félög sem geta tekið við frádráttarbærum gjöfum frá einstaklingum og fyrirtækjum. Frádráttarbærar gjafir einstaklinga þurfa að vera á bilinu 500 til 5000 danskar krónur. Séu gjafir samkvæmt langtímasamningi (tíu ára) á milli félaga og einstaklinga, getur hámarksupphæðin þó verið 15 þús. dkr. á ári, eða allt að 15% af tekjum einstaklingsins. Frádráttarbærar gjafir fyrirtækja geta numið allt að 15 þús. dkr. eða 15% af hagnaði viðkomandi fyrirtækja.
ESB: Öll aðildarríki veita gefendum, fyrirtækjum og einstaklingum, skattaafslátt. Í sumum ríkjum er það aðeins skilgreindur hópur félaga sem getur veitt þannig gjöfum viðtöku.
- Neðanmálsgrein: 1
- 1 Gjöfin má ekki vera endurgjald fyrir þjónustu eða vörur sem félagið lætur viðkomandi í té.
- Neðanmálsgrein: 2
- 2 Er stundum rætt um að gjöfum sem þessum fylgi tvöföld tekjuskattsundanþága, annars vegar hjá þiggjanda, eins og rætt var um í kaflanum á undan, og hins vegar hjá gefandanum. Sjá The Tax Treatment of Nongovernmental Organizations 1998:4.
- Neðanmálsgrein: 3
- 3 Gefandinn getur látið ákveðna upphæð renna til samtaka að eigin vali, en þarf í raun ekki að fórna allri þeirri upphæð af eigin tekjum sínum; hluta upphæðinnar fær hann til baka frá hinu opinbera í lægri skattgreiðslu; 10 þúsund króna gjöf kostar gefandann e.t.v. aðeins 7 þúsund krónur. Í Ungverjalandi mun vera hægt að ráðstafa þannig 1% af skatttekjum sínum til góðra málefna.
- Neðanmálsgrein: 4
- 4 Salamon 1999:179.
- Neðanmálsgrein: 5
- 5 Segja má að þessi aðferð komi í sama stað niður og aðferð tvö, viðkomandi skattgreiðandi gefur einungis minna til að byrja með, vitandi að hið opinbera bætir við framlag hans.
- Neðanmálsgrein: 6
-
6 Í 16. gr. Reglugerðar fjármálaráðherra nr. 483/1994 er nánar skilgreind sú starfsemi sem fyrirtæki geta gefið til og notið frádráttar frá skattskyldum tekjum fyrir:
a. Hvers konar menningarmálastarfsemi fyrir almenning, svo sem byggingar skólahúsa og íþróttamannvirkja, rekstur skóla, íþróttastarfsemi, fræðiritaútgáfa, fræðslukvikmyndagerð, bóka-, skjala-, lista og minjasöfnun, bókmennta- og listastarfsemi, verndum fornra mannvirkja og sérstæðra náttúrufyrirbrigða, skóggræðsla, sandgræðsla, verndun fiskimiða o.fl. sem til menningarmála heyrir.
b. Hvers konar vísindaleg rannsóknarstarfsemi, hvort heldur er á sviði hugvísinda eða raunvísinda.
c. Hvers konar viðurkennd líknarstarfsemi. Hér til telst m.a. bygging og rekstur sjúkrahúsa, heilsugæslustöðva, elliheimila, vöggustofa, barnaheimila, stofnana fyrir drykkjusjúklinga og lamaða og fatlaða og annarra hliðstæðra stofnana. Hér til teljast enn fremur slysavarnir á landi, sjó og lofti.
d. Starfsemi þjóðkirkjunnar og annarra opinberlega viðukenndra trúfélaga, er söfnuði hafa hér á landi, starfsemi deilda innan slíkra safnaða, svo og hver önnur viðurkennd kirkjuleg starfsemi.
e. Stjórnmálaflokkar. - Neðanmálsgrein: 7
- 7 D-liður, 12. gr. laga nr. 68/1971.
- Neðanmálsgrein: 8
- 8 Erfitt er að bera saman vægi þessa 0,5% ákvæðis og fyrra 10% ákvæðis, þar sem nú er hlutfallið reiknað af heildartekjum (veltu) en áður af nettótekjum (hagnaði).
- Neðanmálsgrein: 9
- 9 Athyglisvert er að neytendafélög, sem leitast við að veita almenningi réttar upplýsingar og ýta undir öryggi í daglegu lífi, eru almennt viðurkennd sem góðgerðarfélög en njóta samt ekki réttinda til að taka við frádráttarbærum gjöfum. Sjá Hopkins 2001: 44.
- Neðanmálsgrein: 10
- 10 Slíkur tekjuskattsfrádráttur einstaklinga til bandaríska alríkisins hefur verið í gildi frá 1917; skattafrádráttur fyrirtækja frá 1935. Sjá Urban Institute 2004.
- Neðanmálsgrein: 11
- 11 Bandarísk þingnefnd, Joint Committee on Taxation, áætlaði að frádráttur vegna gjafa til góðgerðarfélaga lækkaði skatttekjur alríkisins um 181,7 milljarða dollara á árunum 2000–2004 (Hopkins 2001:308). Lauslega reiknað, með tilliti til þess að íslenska þjóðin er aðeins einn þúsundasti hinnar bandarísku, svaraði þetta til þess að skatttekjur íslenska ríkisins væru 3,3 milljörðum lægri fyrir vikið.