Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 161. máls.
133. löggjafarþing 2006–2007.
Þskj. 289  —  161. mál.




Svar



umhverfisráðherra við fyrirspurn Kolbrúnar Halldórsdóttur um járnblendiverksmiðjuna á Grundartanga.

     1.      Hvernig er háttað eftirliti með losun mengunarefna frá járnblendiverksmiðjunni á Grundartanga (Íslenska járnblendifélaginu ehf.)?
    Hinn 24. nóvember 1988 gaf Hollustuvernd ríkisins út starfsleyfi fyrir Íslenska járnblendifélagið fyrir járnblendiverksmiðju á Grundartanga. Starfsleyfið tók gildi 1. júní 1999 og gildir í tíu ár. Umhverfisstofnun fer með eftirlit með framkvæmd leyfisins.
    Í grein 3.1 í starfsleyfinu eru gerðar kröfur um eftirfarandi mælingar:

Kröfur Framkvæmd Árangur
Ryk í útblæstri frá ofni Mælt í upphafi Í lagi
Ryk frá töppunarreykháf Mælt árlega Í lagi
Ryk frá óhreinsuðu skálalofti Mælt árlega Í lagi
Brennisteinsdíoxíð í ofngasi Mælt árlega Í lagi
Vöktun í sjó vegna urðunarstaðar Sex staðir Ekki mælanleg áhrif
Úttekt á þungmálmum í hráefni, framleiðslu og úrgangi Gera úttekt einu sinni á starfsleyfistíma Útreiknuð losun
PAH-efni í ryki Gera úttekt einu sinni á starfsleyfistíma Losun 180 kg/ári (norsk skýrsla)
Svifefni, pH og olía í frárennsli, mæla árlega Hefur ekki verið mælt Losun óveruleg

    Mælingar voru gerðar í útblæstri frá hreinsivirki verksmiðjunnar við upphaf starfsemi hennar og sýndu þær að mengun var langt undir mörkum. Útstreymið er leitt út í gegnum síuhús en ekki skorstein og var ekki talin ástæða til að endurtaka mælingarnar.
    Árlegar mælingar á útblásturslofti frá ofnhúsi eru gerðar af Iðntæknistofnun. Rykmælingar hafa verið innan marka starfsleyfis, sbr. ákvæði gr. 2.1.7 í leyfinu. Brennisteinsdíoxíð er mælt árlega í útblæstri frá hreinsivirki og er losun innan marka starfsleyfis.
    Nú er eina frárennslið frá verksmiðjunni frá setþró fyrir vætingu á forskiljuryki. Samkvæmt ákvæði starfsleyfis á að mæla gildi svifagna. Vegna breytinga á frárennslislögnum í tengslum við Grundartangahöfn hefur þessu ekki verið komið í framkvæmd. Að mati Umhverfisstofnunar er engin ástæða til að ætla að gildi svifagna sé yfir viðmiðunarmörkum sem sett eru í starfsleyfi (100mg/l).

     2.      Hvað veldur því að ryklosun frá verksmiðjunni hefur aukist mikið undanfarið?
    Í grein 2.1.5 er kveðið á um að hámarksreyklosun fyrir viðkomandi ofn sé innan við 2% af rekstrartíma miðað við eitt ár en 1,5% miðað við þriggja ára tímabil. Eftirfarandi reyklosun (%) hefur verið frá verksmiðjunni síðustu þrjú ár og er verksmiðjan því vel innan settra marka í starfsleyfi:

Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.


    Í starfsleyfi er kveðið á um að tilkynna skuli um reyklosun sem varir lengur en 3 klst. Alls hefur verið tilkynnt um eftirfarandi reyklosun á þessu ári:

Dags. Tími, mín.
21. febrúar 200
25. apríl 540
18. maí 240
19. maí 90
8.–10. júlí 511
1.581
=26 klst. 20 mín.

    Samkvæmt ákvæði greinar 3.2 í starfsleyfi skal fyrirtækið skila umhverfisskýrslu fyrra árs fyrir 1. mars ár hvert þar sem m.a. skal gerð grein fyrir rekstri reykhreinsivirkja og fjölda og lengd reyklosa. Við útreikning á heildarlengd reyklosa er bæði miðað við full og takmörkuð reyklos. Fyrirtækið hefur þó skilað yfirliti til Umhverfisstofnunar um reyklos það sem af er þessu ári og voru þau fleiri á fyrri hluta þessa árs en þeim síðari og tengdust erfiðleikum við rekstur ofns 2 eftir að hann var fóðraður í lok síðasta árs. Fjöldi á þessu ári eru þó vel innan viðmiðunarmarka starfsleyfis.
    Helstu orsakir reyklosa er hár hiti í útblásturslofti og vandamál vegna fasvika í rafskautum í ofnum. Ef hiti í útblásturslofti fer yfir ákveðin mörk slær reykhreinsivirki út og útblásturslofti er hleypt út um skorstein án hreinsunar. Þetta er gert til að verja ofnapoka í reykhreinsivirki sem hafa takmarkað hitaþol. Tekið er fram að tíðni reyklosa tengist rekstarerfiðleikum verksmiðjunnar og er það því kappsmál fyrirtækisins að fækka þeim.

     3.      Hefur fjölgað kvörtunum um sýnilega mengun frá verksmiðjunni á þessu ári?

    Formlegum kvörtunum hefur ekki fjölgað á þessu ári en hins vegar hafa borist ýmsar ábendingar um að reyklos hafi verið tíð, einkum á fyrri hluta ársins.

     4.      Hversu mikið ryk sleppur gegnum hreinsivirki verksmiðjunnar og hversu mikið sleppur út fram hjá því?

    Hámarksmagn sem leyfilegt er að sleppa út samkvæmt starfsleyfi er 20 mg/m 3 að ársmeðaltali. Þar sem verksmiðjan hefur haldið þessi mörk má áætla að losun miðað við heildarútblástursloft sé að hámarki 100 tonn á ári. Ryklosun við reyklos er áætluð að hámarki 100 tonn, svo alls losar verksmiðjan innan við 200 tonn á ári af ryki í andrúmsloftið.

     5.      Hvers vegna er ekki skylt að tilkynna um ryklosun sem varir skemur en þrjár klukkustundir?
    Þetta er samkvæmt ákvæði í starfsleyfi og er byggt á fyrirmyndum í tilsvarandi starfsleyfum bæði innlendum og erlendum (norskum). Eðli rekstursins er með þeim hætti að tíðar truflanir eru á ofnrekstri og þarf að taka tillit til þess í starfsleyfi.

     6.      Hvað hefur úttekt á þungmálmum frá hráefni og framleiðsluferli leitt í ljós?

    Útreikningar á losun þungmálma sýna eftirfarandi losun í ryki:

Málmur Í gasfasa kg/ári Í ryki kg/ári Í útblæstri alls kg/ári
Hg 0,78 0,02 0,78
As 6,8 5,4 6,85
Cd 0 1,5 0,02
Zn 0 67 0,67
Pb 0 41 0,41
Cu 0 12 0,12
Cr 0 24 0,24

    Ryk í útblæstri er um 1% af heildarmagni og er heildarlosun áætluð á grundvelli þess. Meiri hluti kísilryksins er seldur sem hráefni í sementsframleiðslu o.fl.

     7.      Hvernig samræmist staðfest losun mengandi efna starfsleyfi verksmiðjunnar?

    Vísað er í svar við 1. lið fyrirspurnarinnar.

     8.      Hvernig verður staðið að undirbúningi fyrir endurnýjun starfsleyfis verksmiðjunnar samkvæmt reglugerð nr. 785/1999?

    Verði gerð krafa um nýtt starfsleyfi vegna breytts reksturs þarf fyrirtækið að sækja um það til Umhverfisstofnunar, sbr. ákvæði 10. gr. í reglugerð nr. 785/1999, um starfsleyfi fyrir atvinnurekstur sem getur haft í för með sér mengun. Við veitingu starfsleyfisins er tekið mið af ákvæðum reglugerðar nr. 785/1999 og öðrum reglugerðum sem heyra undir lög nr. 7/1998, um mengunarvarnir og hollustuhætti.

     9.      Hvaða áform eru uppi um stækkun verksmiðjunnar og/eða breytingu á framleiðslu hennar?

    Samkvæmt upplýsingum fyrirtækisins er ekki fyrirhuguð aukning í grunnframleiðslu en samkvæmt ákvæði starfsleyfis er heimild til framleiðslu 190.000 tonn af 75% FeSi (kísiljárni) í fjórum ofnum en núna framleiðir fyrirtækið 120.000 tonn í þremur ofnum. Þær breytingar sem fyrirhugaðar eru felast í framhaldsvinnslu á kísiljárni með íblöndun magnesíums og fleiri málma til framleiðslu á sérhæfðari afurðum. Þessi íblöndun mun fara fram í nýjum biðofnum. Við stækkun eykst ekki heildarlosun í andrúmsloft en bætt er við mölunar- og pökkunarbúnaði.

     10.      Hverjir koma að ákvörðun um hugsanlega stækkun verksmiðjunnar eða breytingu á framleiðslu hennar?
    Ákvörðun um stækkun verksmiðjunnar eða breytingu á framleiðslu er eðlilega í höndum eigenda hennar. Hins vegar eru breytingar á framleiðslu verksmiðjunnar tilkynningarskyldar samkvæmt lögum um mat á umhverfisáhrifum. Tekin er ákvörðun um matsskyldu eftir lögbundið umsagnarferli og eru umsagnaraðilar m.a. Umhverfisstofnun, heilbrigðisnefndir sveitarfélaga og aðrir opinberir aðilar. Verði niðurstaðan sú að framkvæmdin sé ekki matsskyld er samt hugsanlegt að fyrirtækið þurfi að sækja um nýtt starfsleyfi en það er ákvörðun sem Umhverfisstofnun þarf að taka í framhaldi af ákvörðun Skipulagsstofnunar vegna mats á umhverfisáhrifum.