Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 132. máls.
menntamálaráðherra við fyrirspurn Kristjáns L. Möllers um fjárframlög til Fjölmenntar.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
Hver hafa verið heildarfjárframlög til Fjölmenntar, fullorðinsfræðslu fyrir fatlaða, frá stofnun hennar og hvernig skiptast þau eftir árum, sundurliðað eftir sveitarfélögum og kjördæmum?
Sjálfseignarstofnunin Fjölmennt yfirtók þau verkefni sem áður voru unnin á vegum fullorðinsfræðslu fatlaðra með samningi við menntamálaráðuneytið sem tók gildi 1. ágúst 2002.
Heildarfjárframlög menntamálaráðuneytisins hafa verið eftirfarandi frá stofnun Fjölmenntar á verðlagi hvers árs:
Fjárframlögin samanstanda af greiðslum samkvæmt samningi, vegna forfalla og orlofa, sérkennslu og samstarfsverkefnis Fjölmenntar og Geðhjálpar, auk sérstaks þróunarverkefnis.
Í samningnum eru engin ákvæði um skiptingu fjárframlaga milli landshluta eða aðra skiptingu. Skipting fjárframlags er alfarið á forræði Fjölmenntar.
133. löggjafarþing 2006–2007.
Prentað upp.
Þskj. 290 — 132. mál.
Leiðrétt tafla.
Svar
menntamálaráðherra við fyrirspurn Kristjáns L. Möllers um fjárframlög til Fjölmenntar.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
Hver hafa verið heildarfjárframlög til Fjölmenntar, fullorðinsfræðslu fyrir fatlaða, frá stofnun hennar og hvernig skiptast þau eftir árum, sundurliðað eftir sveitarfélögum og kjördæmum?
Sjálfseignarstofnunin Fjölmennt yfirtók þau verkefni sem áður voru unnin á vegum fullorðinsfræðslu fatlaðra með samningi við menntamálaráðuneytið sem tók gildi 1. ágúst 2002.
Heildarfjárframlög menntamálaráðuneytisins hafa verið eftirfarandi frá stofnun Fjölmenntar á verðlagi hvers árs:
| Ár | Framlög |
| 2002 | 77.256.601 |
| 2003 | 156.349.039 |
| 2004 | 175.765.780 |
| 2005 | 188.062.198 |
| 2006 | 192.477.088 |