Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 173. máls.
133. löggjafarþing 2006–2007.
Þskj. 291 — 173. mál.
fjármálaráðherra við fyrirspurn Sigurjóns Þórðarsonar um Gini-stuðul.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
Hver er Gini-stuðull fyrir ráðstöfunartekjur hjóna og sambúðarfólks árið 2005?
Gini-stuðull fyrir ráðstöfunartekjur hjóna og sambúðarfólks fyrir tekjuárið 2005 er 0,357. Til ráðstöfunartekna teljast heildartekjur að viðbættum fjármagnstekjum samkvæmt skattframtali ásamt barna- og vaxtabótum að frádregnum tekju-, eignar- og fjármagnstekjuskatti. Gagnagrunnur sem Gini-stuðullinn er reiknaður út frá er nákvæmari nú en við fyrri útreikninga. Ef sambærileg gögn eru notuð til að reikna Gini-stuðul fyrir tekjuárið 2004 mælist hann 0,312, en var í fyrri mælingu 0,308.
Ef fjármagnstekjur og skattar af þeim teljast ekki með í ráðstöfunartekjum hjóna og sambúðarfólks er Gini-stuðullinn fyrir tekjuárið 2005 0,218 en var 0,219 tekjuárið 2004.
133. löggjafarþing 2006–2007.
Þskj. 291 — 173. mál.
Svar