Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 297. máls.
133. löggjafarþing 2006–2007.
Þskj. 310  —  297. mál.




Frumvarp til laga



um breytingu á umferðarlögum, nr. 50/1987, með síðari breytingum.

Flm.: Kolbrún Halldórsdóttir.



1. gr.

    Í stað orðanna „15 km á klst.“ í 1. málsl. c-liðar undir liðnum Reiðhjól í 2. gr. laganna kemur: 25 km á klst.

2. gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi.

Greinargerð.


    Með frumvarpi þessu er lögð til breyting á skilgreiningu á hugtakinu reiðhjól í umferðarlögum, nr. 50/1987. Tillagan felur í sér að efri hraðamörk lítilla vél- eða rafknúinna ökutækja, sbr. c-lið skilgreiningar, verði hækkuð upp í 25 km á klst.
    Með lögum nr. 84/2004 voru gerðar breytingar á umferðarlögum, nr. 50/1987, þar sem skilgreiningu á reiðhjóli í 2. gr. laganna var breytt þannig að lítil vél- eða rafknúin farartæki, hvort sem þau eru knúin með rafmótor eða sprengihreyfli, sem ekki eru hönnuð til hraðari aksturs en 15 km á klst. voru skilgreind sem reiðhjól. Undir þá skilgreiningu féllu m.a. vélknúin hlaupahjól sem þá höfðu rutt sér mjög til rúms. Þegar lagafrumvarpið var til meðferðar á Alþingi komu fram hugmyndir um að efri hraðamörkin (15 km á klst.) væru e.t.v. of lág.
    Þegar skoðuð eru sambærileg lög annars staðar á Norðurlöndunum kemur í ljós að skilgreiningarnar eru mjög ólíkar frá einu landi til annars og er samanburður því vart raunhæfur. Í dönskum umferðarlögum er t.d. ekki að finna skilgreiningu á hugtakinu reiðhjól þó að þar gildi sérstök ákvæði um hjólreiðabrautir. Í dönsku lögunum kemur fram að aka megi litlum skellinöðrum, sem ná að hámarki 30 km á klst., á slíkum brautum. Í norskum umferðarlögum er hugtakið ekki skilgreint. Í sænskum umferðarlögum eru skilgreiningar margþættar og þar er líkt og í dönsku lögunum ákvæði um hjólreiðabrautir. Gert er ráð fyrir að aka megi litlum skellinöðrum sem ná að hámarki 30 km/klst. á slíkum brautum. Í finnsku umferðarlögunum eru pedaldrifin hjól sem knúin eru með rafmótor allt að 250 W og fara ekki yfir 25 km á klst. flokkuð sem reiðhjól. Í þessu frumvarpi er lagt til að notuð verði sama viðmiðun og er í finnsku lögunum.
    Framleiðendur vél- og rafknúinna reiðhjóla gefa þau oft upp fyrir 20–24 km á klst. og eru mótorarnir þannig útbúnir að þeim verður ekki ekið hraðar. Hjólum af þessu tagi hefur fjölgað mjög í Evrópu á seinni árum. Kemur þar tvennt til, annars vegar fjölgar þeim sem kjósa að nota hjól sem samgöngutæki í evrópskum borgum og hins vegar kýs eldra fólk í auknum mæli að njóta útivistar á reiðhjólum en hafa oft ekki nægan líkamsstyrk til að hefðbundið fótstigið reiðhjól gagnist þeim. Einnig hafa rafknúin reiðhjól reynst þeim vel sem vegna einhvers konar fötlunar skortir líkamlegan styrk til að nota fótstigið reiðhjól.
    Í ljósi aukinnar mengunar frá bifreiðum í þéttbýli er mikilvægt að lagaákvæði hvetji fólk til að nýta reiðhjól sem samgöngutæki í auknum mæli. Þá þarf að gæta þess að vél- og rafknúin reiðhjól séu ekki útilokuð. Nauðsynlegt er að sem flestir geti tekið þátt í þeirri samgöngubyltingu sem þarf að eiga sér stað svo að við náum tökum á samdrætti í útstreymi koldíoxíðs frá samgöngutækjum. Lagafrumvarp þetta er liður í slíkri viðleitni.
    Lagt er til að lítil vél- eða rafknúin ökutæki, hvort sem þau eru knúin með rafmótor eða sprengihreyfli, sem ekki eru hönnuð til hraðari aksturs en 24 km á klst., verði skilgreind sem reiðhjól. Undir þá skilgreiningu falli m.a. vél- og rafknúin reiðhjól. Rökin eru þau sömu og notuð voru í með lagabreytingunni 2004, þ.e. ef þau verða skilgreind sem létt bifhjól þurfa þau að uppfylla skilyrði reglugerðar 308/2003 um gerð og búnað ökutækja. Það þýðir að taka þyrfti ökupróf til að stjórna þessum hjólum auk þess sem óheimilt væri að nota þau annars staðar en á götum í almennri umferð, þ.e. ekki væri heimilt að aka þeim á gangstéttum, göngustígum og hjólreiðastígum. Vél- eða rafknúin reiðhjól (sem og hlaupahjól) sem ekki eru hönnuð til hraðari aksturs en 20–24 km á klst. eru of veigalítil tæki til að vera innan um bifreiðar í almennri umferð, enda ekki hugsuð sem slík, og getur það skapað almenna slysahættu að skilgreina þau sem létt bifhjól. Verður því að telja skynsamlegra að skilgreina þau sem reiðhjól.