Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 299. máls.
133. löggjafarþing 2006–2007.
Þskj. 312 — 299. mál.
til umhverfisráðherra um þátt flugsamgangna í losun gróðurhúsalofttegunda.
1. Hver hefur losun gróðurhúsalofttegunda frá innanlandsflugi verið frá árinu 1990, þ.e. árin 1995, 2000 og 2005?
2. Hvaða sambærilegar tölur liggja fyrir um losun gróðurhúsalofttegunda íslenskra flugfélaga sem fljúga á alþjóðaflugleiðum?
3. Hvernig er líklegt að þróunin verði á þessu sviði á næstu árum, bæði í innanlands- og alþjóðaflugi?
4. Hvernig hyggjast íslensk stjórnvöld stuðla að því að dregið verði úr losun gróðurhúsalofttegunda frá flugvélum?
Skriflegt svar óskast.
Mikið hefur borið á áhyggjum erlendis, m.a. innan Evrópusambandsins, af ört vaxandi þætti flugsamgangna í losun gróðurhúsalofttegunda á sama tíma og stefnt er að því að draga stórlega úr losun þessara lofttegunda á flestum öðrum sviðum.
133. löggjafarþing 2006–2007.
Þskj. 312 — 299. mál.
Fyrirspurn
til umhverfisráðherra um þátt flugsamgangna í losun gróðurhúsalofttegunda.
Frá Kolbrúnu Halldórsdóttur.
1. Hver hefur losun gróðurhúsalofttegunda frá innanlandsflugi verið frá árinu 1990, þ.e. árin 1995, 2000 og 2005?
2. Hvaða sambærilegar tölur liggja fyrir um losun gróðurhúsalofttegunda íslenskra flugfélaga sem fljúga á alþjóðaflugleiðum?
3. Hvernig er líklegt að þróunin verði á þessu sviði á næstu árum, bæði í innanlands- og alþjóðaflugi?
4. Hvernig hyggjast íslensk stjórnvöld stuðla að því að dregið verði úr losun gróðurhúsalofttegunda frá flugvélum?
Skriflegt svar óskast.
Greinargerð.