Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 129. máls.
133. löggjafarþing 2006–2007.
Þskj. 313 — 129. mál.
menntamálaráðherra við fyrirspurn Valdimars L. Friðrikssonar um ferðasjóð íþróttafélaga.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
Hvað líður vinnu nefndar um úttekt á kostnaði við ferðalög íþróttafélaga á viðurkennd mót? Er áætlað að hún skili tillögum um sérstakan sjóð til að taka þátt í þeim kostnaði og ef svo er, hvenær?
Í samræmi við þingsályktun sem samþykkt var frá 3. júní sl. (789. mál 132. löggjafarþings) hefur verið skipuð nefnd sem gera á úttekt á kostnaði við ferðalög íþróttafélaga á viðurkennd mót. Nefndinni er jafnframt ætlað að setja fram tillögur um hvort rétt sé að koma á sérstökum sjóði til að taka þátt í þeim kostnaði, og þá einnig hugmyndir um hvernig fjármögnun hans skuli háttað og eftir hvaða reglum úthluta skuli úr honum. Enn fremur skal nefndin gera tillögu um úthlutun úr sjóðnum til íþróttagreina, m.a. með tilliti til einstakra landssvæða, aldurshópa og kynja. Nefndin hefur þegar tekið til starfa en henni var í erindisbréfi veittur frestur til 1. febrúar nk. til að ljúka ætlunarverki sínu.
Nefndin er þannig skipuð:
– Gísli Þór Magnússon skrifstofustjóri, formaður, tilnefndur af menntamálaráðuneyti,
– Nökkvi Bragason hagfræðingur, tilnefndur af fjármálaráðuneyti,
– Svanfríður Jónasdóttir bæjarstjóri, tilnefnd af Sambandi íslenskra sveitarfélaga,
– Stefán Konráðsson framkvæmdastjóri, tilnefndur af Íþrótta- og Ólympíusambandi Íslands,
– Helga Steinunn Guðmundsdóttir, tilnefnd af Íþrótta- og Ólympíusambandi Íslands fyrir Norðurland,
– Jóhann Króknes, tilnefndur af Íþrótta- og Ólympíusambandi Íslands fyrir Vestfirði,
– Árni Ólason, tilnefndur af Íþrótta- og Ólympíusambandi Íslands fyrir Austurland,
– Þór Ísfeld Vilhjálmsson, tilnefndur af Íþrótta- og Ólympíusambandi Íslands fyrir Suðurland.
Starfsmaður nefndarinnar verður Líney Rut Halldórsdóttir deildarstjóri.
133. löggjafarþing 2006–2007.
Þskj. 313 — 129. mál.
Svar