Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 128. máls.
133. löggjafarþing 2006–2007.
Þskj. 314 — 128. mál.
menntamálaráðherra við fyrirspurn Valdimars L. Friðrikssonar um Hlíðarskóla á Akureyri.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
1. Hversu margir nemendur stunda nám við Hlíðarskóla á Akureyri?
2. Hver er árlegur rekstrarkostnaður skólans?
3. Hvernig kemur ríkið að rekstri skólans?
4. Hverjir bera ábyrgð á rekstri og fjármögnun skólans?
Svar við fyrirspurninni er m.a. byggt á upplýsingum frá skólaskrifstofu Akureyrarbæjar. Hlíðarskóli í Varpholti, áður Bröttuhlíðarskóli, var stofnaður árið 2001. Skólinn er ætlaður börnum með alvarleg hegðunarfrávik og geðfatlanir.
Skólaárið 2006–2007 stundar 21 nemandi á grunnskólaaldri nám við skólann og einn á framhaldsskólaaldri, samtals 22 nemendur. Nemendahópnum er skipt í þrjár deildir. Í strákadeild eru 13 en í stúlknadeild 6. Þriðja deildin, Skjöldur, er fyrir geðfatlaða nemendur. Þar eru tveir nemendur á grunnskólaaldri og einn á framhaldsskólaaldri.
Samkvæmt upplýsingum frá skólaskrifstofu Akureyrarbæjar nam rekstrarkostnaður skólans árið 2005 48,8 millj. kr. Endurskoðuð fjárhagsáætlun ársins 2006 gerir ráð fyrir að rekstrarkostnaðurinn nemi 78,9 millj. kr.
Skólaárið 2006–2007 greiðir ríkið nám eins nemanda á framhaldsskólaaldri sem er í sérstöku úrræði við skólann.
Skólinn heyrir undir grunnskóla Akureyrar og annast bærinn alla fjármögnun og rekstur hans, ef frá er talin fjármögnun ríkisins sem getið er í svari við 3. tölulið hér að framan.
133. löggjafarþing 2006–2007.
Þskj. 314 — 128. mál.
Svar