Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 300. máls.
133. löggjafarþing 2006–2007.
Þskj. 315  —  300. mál.




Tillaga til þingsályktunar



um heildarstefnu í nýsköpun og atvinnuþróun.

Flm.: Sigríður Ingvarsdóttir, Arnbjörg Sveinsdóttir.



    Alþingi ályktar að fela forsætisráðherra og iðnaðarráðherra að skipa nefnd til þess að móta heildarstefnu í nýsköpun og þróun og skila framkvæmdaáætlun í formi skýrslu til forsætisráðherra.
    Nefndin skal skipuð sjö fulltrúum. Skal einn tilnefndur af forsætisráðherra sem jafnframt verði formaður, einn tilnefndur af iðnaðarráðherra, einn tilnefndur fyrir hönd opinberra stofnana, einn tilnefndur af samtökum fyrirtækja, tveir frá háskólum og einn frá frumkvöðlum tilnefndur af iðnaðarráðherra.
    Forsætisráherra skal skila Alþingi skýrslu fyrir árslok 2007.

Greinargerð.


    Með þingsályktunartillögu þessari er lagt til að forsætisráðherra og iðnaðarráðherra verði falið að skipa nefnd til þess að móta heildarstefnu í nýsköpun og þróun og gera framkvæmdaáætlun í formi skýrslu sem skila eigi til Alþingis fyrir árslok 2007.
    Samkeppnishæfni þjóða er breytingum háð og stöðugt þarf að huga að því hvernig unnt er að efla hana fyrir þjóðfélagið í heild. Samkvæmt nýlegri skýrslu Alþjóðlegu efnahagsstofnunarinnar (e. „World Economic Forum“) er Ísland í 14. sæti af 125 hagkerfum heimsins. Skýrslur stofnunarinnar eru taldar til mikilvægustu heimilda um styrk og veikleika hagkerfa einstakra landa og byggist á því að meta hagvaxtarhorfur einstakra landa til næstu fimm til átta ára. Samkeppnishæfni þjóða er þar skilgreind sem geta til að ná viðvarandi vexti þjóðartekna á mann.
    Samkvæmt skýrslunni kemur Ísland vel út hvað varðar opinberar grunnstoðir og grunnstoðir fyrirtækja, sérstaklega þegar litið er til heilsugæslu og menntunar. Ísland fær ágæta einkunn í skilvirkni en veikleikar eru sérstaklega taldir vera í samkeppni og útflutningi. Almenn efnahagsskilyrði sem tilheyra grunnstoðum fyrirtækja eru helsti veikleiki í samkeppnishæfni okkar og einnig flest atriði er varða nýsköpun og þróunarþætti. Nýsköpun er undirstaða hagvaxtar og því mikilvægt að hugað sé að því hvers vegna staða Íslands er ekki betri en raun ber vitni í nýsköpun og þróun í samanburði við aðrar þjóðir og enn fremur hvernig unnt sé að ýta undir og styrkja nýsköpun til framtíðar. Samkvæmt skýrslunni er vægi hátækniútflutnings einungis 7% hér á landi en Finnland og Svíþjóð eru með um og yfir 20% og Írland yfir 40%.
    Í heildarstefnu í nýsköpun og atvinnuþróun er mikilvægt að skoðaðar séu leiðir til að efla rannsóknastarf innan háskólanna og tengja það fyrirtækjum. Þá þarf einnig að skoða hvernig unnt sé að auka framboð fjármagns til nýsköpunar, t.d. hvernig nota megi skattkerfið til að koma til móts við fyrirtæki á sviði þróunar og nýsköpunar og skoða hvernig skattaumhverfi nýsköpunarfyrirtækja er hjá þeim þjóðum sem koma best út á lista stofnunarinnar.
    Víða í nágrannalöndum okkar fjárfestir hið opinbera ríkulega í nýsköpun með langtímaaðgerðum. Ágóðinn kemur síðan fram í formi öflugs, fjölbreytts atvinnulífs, bættrar samkeppnishæfni og skatttekna í framtíðinni. Þar sem hins vegar er ekki fjárfest í nýsköpun verður atvinnulíf einsleitara, samfélög staðna og verða viðkvæmari fyrir sveiflum. Það leiðir af sér að láglaunastörfum fjölgar sem getur þýtt byggðaröskun og atgervisflótta. Nýsköpun, menntun og símenntun sporna við slíkri þróun.
    Hér á landi hefur verið unnið nokkuð í nýsköpunar- og þróunarmálum, m.a. með stofnun Tækniþróunarsjóðs og einnig hefur framboð fjármagns aukist nokkuð. Þá hefur Vísinda- og tækniráð samþykkt vísinda- og tæknistefnu 2006–2009 þar sem fram kemur ákveðin framtíðarsýn og lagðar til leiðir til þess að ná henni. Flutningsmenn telja þó að þessi tillaga sé mun víðtækari og feli í sér meiri heildarsýn þar sem lögð er áhersla á að skoða hvers vegna staða Íslands í nýsköpun og þróun er ekki betri og hvernig aðrar þjóðir hafa snúið þessa þróun sér í hag. Þannig er nauðsynlegt að auka framboð fjármagns til nýsköpunar til framtíðar litið. Þá er einnig nauðsynlegt að skoða hvernig hægt er að hvetja til aukinnar samvinnu þvert á atvinnugreinar og styrkja rannsóknar- og fræðslustarf með það að markmiði að koma betur til móts við þarfir fyrirtækja og frumkvöðla. Flutningsmenn telja þess vegna mikilvægt að mótuð verði heildarstefna og tekin saman sú vinna sem fram hefur farið á þessu sviði. Þá telja þeir mikilvægt að litið verði til þess hvernig aðrar þjóðir sem eru ofarlega á listanum styðja við nýsköpun og þróun og hvernig það hefur reynst. Sviss er t.d. í fyrsta sæti á listanum yfir samkeppnishæfustu þjóðir heims en þar hefur tekist að byggja upp öruggt stofnanakerfi, styrkja innviði og skilvirka markaði, tækninýsköpun er á afar háu stigi og fyrirtæki þar verja miklum fjármunum í þróunarkostnað. Finnland er í öðru sæti en á sl. sjö árum hefur það verið fimm sinnum í efsta sæti. Finnar lögðu á sínum tíma áherslu á menntun vinnuafls og nýsköpun og komust út úr kreppu. Hagkerfi þeirra breyttist frá því að vera hráefnadrifið yfir í að vera þekkingadrifið og frá árinu 1990 til ársins 2006 fór útflutningur hátæknivara frá því að vera 6% yfir í 20%.
    Flutningsmenn telja mikilvægt að stjórnvöld, opinberar stofnanir, fyrirtæki, frumkvöðlar og háskólar taki höndum saman til að virkja þá hugmyndaauðgi og áræðni sem býr í nýsköpun með því að styðja við hana með virkum hætti og leggja fram í formi skýrslu raunhæfar tillögur um langtímaaðgerðir til þess að auka samkeppnisforskot þjóðarinnar og breyta úr hráefnadrifnu hagkerfi í að vera þekkingadrifið.