Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 313. máls.
133. löggjafarþing 2006–2007.
Þskj. 335  —  313. mál.




Frumvarp til laga



um breyting á lögum nr. 141/2003, um eftirlaun forseta Íslands, ráðherra, alþingismanna og hæstaréttardómara.

Flm.: Margrét Frímannsdóttir, Jóhanna Sigurðardóttir.



1. gr.

    19. gr. laganna orðast svo:
    Nú tekur sá sem nýtur eftirlauna samkvæmt lögum þessum við nýju föstu starfi sem er hálft starf eða meira, og koma þá launagreiðslur fyrir það starf til frádráttar eftirlaununum fram til 65 ára aldurs. Sama skerðing verður á eftirlaunum þess sem er í starfi er hann öðlast rétt til eftirlauna samkvæmt lögum þessum. Sama gildir þótt eftirlaunin séu greidd samkvæmt eldri lögum, sbr. 1. mgr. 22. gr. Skerðing greiðslna samkvæmt þessari grein fellur þó niður þegar látið er af starfi.
    

2. gr.

    Við lögin bætist svofellt ákvæði til bráðabirgða:
    Skerðing sú sem ákveðin er með 19. gr. gildir um þá sem hafa hafið töku eftirlauna samkvæmt lögum þessum eða eldri lögum og eru í starfi sem er fast starf, að hálfu eða meira.
    

3. gr.

    Lög þessi öðlast gildi 1. janúar 2007. Þó skal ákvæði til bráðabirgða skv. 2 gr. taka gildi 1. júní 2007.

Greinargerð.


    Með frumvarpi þessu er lagt til að réttur þingmanna og ráðherra til þess að njóta eftirlaunagreiðslna fyrir 65 ára aldur lækki ef þeir gegna starfi sem er fast starf að hálfu eða meira, hvort sem það er hjá hinu opinbera eða einkaaðila. Lagt er til að laungreiðslurnar komi þá til frádráttar þeim eftirlaunum sem ákvörðuð eru samkvæmt lögunum og eldri lögum til 65 ára aldurs. Sama gildi um þá sem taka við nýju starfi á meðan þeir njóta lífeyrisgreiðslna og hafa ekki náð 65 ára aldri.
    Með breytingunum sem voru gerðar í lok árs 2003 er fyrrverandi þingmönnum og ráðherrum unnt að hefja töku lífeyris enn fyrr en áður, eða allt frá 55 ára aldri hafi þeir setið á Alþingi í sextán ár eða gegnt ráðherraembætti í sex ár. Ólíklegt verður að telja að ætlunin hafi verið að gera þeim unnt að tvöfalda jafnvel fjárhæð launa sinna eftir að hafa setið á þingi með því að fara t.d. í launað starf hjá hinu opinbera og njóta jafnframt greiðslna úr lífeyrissjóði eða ríkissjóði, eins og gildandi lög gera ráð fyrir allt frá 55 ára aldri. Flutningsmenn draga í efa að sú breyting hafi í raun verið að vilja Alþingis. Miklu líklegra er að þegar aldur til töku lífeyris var lækkaður niður fyrir 61 árs aldur eins og reglan var áður, en tilgangur laganna var að auðvelda þingmönnum að hætta fyrr í stjórnmálum, þá hafi þingheimi yfirsést að um leið öðluðust þingmenn rétt til eftirlaunagreiðslna samhliða launagreiðslum en það var réttur sem þeir höfðu notið frá 61 árs aldri. Tvöfalt kerfi á borð við þetta telja flutningsmenn að geti ekki samrýmst tilgangi laganna.
    Almennt gildir sú regla að opinberir starfsmenn eiga rétt á að taka ellilífeyri frá 65 ára aldri en þeir geta verið í föstu starfi og áunnið sér frekari rétt til lífeyrisgreiðslna sem eru þá endurreiknaðar við 70 ára aldur eða þegar starfstíma lýkur. Sama gildir um eftirlaun á almenna markaðnum. Með frumvarpinu er því lagt til að sama regla gildi um þingmenn til þess að samræmis sé gætt. Þannig geti þeir ekki verið launþegar fyrir 65 ára aldur í hálfu föstu starfi eða meira og jafnframt verið á eftirlaunum samkvæmt lögunum, nema launin skerði eftirlaunin.
    Flutningsmenn telja mikilvægt að jafnræðis sé gætt á meðal þegna landsins varðandi rétt til lífeyrisgreiðslna og leggja því til að reglan verði afturvirk, þ.e. gildi einnig um þá sem þegar hafa hafið töku eftirlauna samkvæmt lögunum eða eldri lögum en gera jafnframt ráð fyrir ákveðnum aðlögunartíma þannig að sú regla taki gildi 1. júní 2007, þ.e. fimm mánuðum eftir gildistöku laganna samkvæmt frumvarpinu sem miðast við 1. janúar 2007. Eftirlaunagreiðslur til þeirra lækka því eða falla niður eftir gildistöku laganna. Þau sjónarmið hafa komið fram að ekki væri ótvírætt heimilt að lögum að skerða virk réttindi þeirra aðila sem þegar hefðu hafið töku eftirlauna á grundvelli laganna frá 2003. Flutningsmenn telja hins vegar svo þýðingarmikið að afnema kerfi tvöfaldra greiðslna til fyrrverandi þingmanna og ráðherra að réttlætanlegt sé eins og á stendur að láta reyna á þetta atriði. Sú skoðun hefur einnig að nokkru stoð í dómi Hæstaréttar frá 25. október 2005 í máli nr. 105/2005 en af honum má ráða að heimilt sé að breyta greiðslum lífeyrisþega svo framarlega sem áunnin réttindi séu ekki skert og breytingarnar séu gerðar eftir almennum efnislegum mælikvarða. Flutningsmenn líta svo á að greiðslurnar gangi gegn velsæmi og jafnræðisvitund þjóðarinnar og þeim verði því að linna.
    Flutningsmenn eru einnig þeirrar skoðunar að við meðferð málsins á Alþingi eigi að skoða hvort rétt sé að samkvæmt lögum geti tvöfalt launakerfi orðið virkt við 65 ára aldurinn. Rökin með því eru að opinberir starfsmenn geta þegið eftirlaun samhliða fullum launum við 65 ára aldur. Á móti vegur að réttindi þingmanna og ráðherra eru mun betri og vafasamt af þeim sökum að tvöfalt launakerfi kjörinna fulltrúa þjóðarinnar verði virkt við 65 ára aldurinn.

Athugasemdir við einstakar greinar frumvarpsins.


Um 1. gr.

    Í 19. gr. laganna, sem frumvarpinu er ætlað að breyta, er kveðið á um reglur um frádrátt frá eftirlaunum ráðherra og þingmanna sem gilda ef viðkomandi eftirlaunaþegi er í fullu starfi samhliða töku eftirlauna. Í frumvarpsgreininni eru lagðar til frekari frádráttarreglur vegna launagreiðslna þeirra sem eru í föstu starfi að hálfu eða meira og njóta eftirlauna samkvæmt lögunum fyrir 65 ára aldur. Með starfi er átt við fast starf sem föst mánaðarlaun koma fyrir. Í skýringum sem fylgdu frumvarpinu er varð að lögum þeim sem frumvarpi þessu er ætlað að breyta kemur fram að með starfi sé átt við aðalstarf sem jöfn mánaðarlaun koma fyrir og með nýju starfi sé ekki gerður munur á hvort starfið er opinbert eða á einkamarkaði. Þannig falla utan þeirrar skilgreiningar tekjur af setu í stjórnum, nefndum og ráðum, auk tilfallandi kennslu eða fyrirlestra, ritstarfa, annarrar listrænnar starfsemi eða þess háttar. Hér er lagt til að eftirlaun lækki sem nemur launagreiðslum ef starfið er fast starf að hálfu eða meira.
    Frádráttarreglurnar skulu gilda sem áður til 65 ára aldurs þingmanna og ráðherra en eftir að þeim aldri er náð geta þeir notið greiðslna úr lífeyrissjóði samhliða launagreiðslum eins og launþegar á almennum markaði og í A-deild Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins.
    Í 22. gr. laganna er kveðið á um lagaskil en við setningu laga nr. 141/2003 var lagaákvæðum um eftirlaun æðstu handhafa þriggja þátta ríkisvaldsins, framkvæmdarvalds, löggjafarvalds og dómsvalds steypt saman í einn lagabálk og eftirlaunagreiðslur fyrir þessi æðstu störf koma beint úr ríkissjóði í stað Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins. Iðgjaldagreiðslur voru hækkaðar og réttindaávinnslu breytt. Þannig er hugsanlegt að einhverjir hefðu átt betri rétt samkvæmt eldri lögum og var með lögunum tryggt að þeir sem svo væri ástatt um gætu notið hans ef þeir kysu það en jafnframt tryggt að þeir sem þegar hefðu hafið töku samkvæmt eldri lögum gætu ekki tekið lífeyri samkvæmt lögum nr. 141/2003 þó að þeir ættu hugsanlega betri rétt samkvæmt þeim. Í greininni er því lagt til að sama skerðingarregla eigi við þó að eftirlaun séu greidd samkvæmt eldri lögum, þ.e. samsteypulögunum fyrrnefndu, sbr. 1. mgr. 22. gr. þeirra.
    Þá er þeirri reglu haldið óbreyttri að skerðing eftirlaunagreiðslna samkvæmt greininni falli niður þegar látið er af starfi.

Um 2. gr.

         Í greininni er lagt til að við lögin bætist ákvæði til bráðabirgða sem kveður á um að breyting sú á 19. gr. laganna sem 1. gr. frumvarpsins kveður á um og skerðir eftirlaunarétt gildi einnig um þá sem þegar hafa hafið töku eftirlauna samkvæmt lögunum eða eldri lögum og eru í starfi sem er fast starf að hálfu eða meira.

Um 3. gr.

    Í greininni er kveðið á um gildistöku og lagt til að lögin öðlist gildi 1. janúar 2007. Enn fremur er lagt til að ákvæði til bráðabirgða skv. 2. gr. taki gildi 1. júní 2007. Með því er talið að þeim sem ákvæðið á við sé gefið sé nægilegt svigrúm til þess að verða viðbúnir breytingunni.