Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 262. máls.
133. löggjafarþing 2006–2007.
Þskj. 341 — 262. mál.
sjávarútvegsráðherra við fyrirspurn Marðar Árnasonar um hrefnuveiðar.
Fyrirspurnin hljóðar svo;
1. Hvaða afurðir féllu til við hrefnuveiðar árin 2003–2006, sundurliðað eftir árum? Óskað er upplýsinga um magn kjöts, rengis o.s.frv.
2. Hversu margir hvalir voru veiddir hvert ár?
3. Hver hefur kostnaður Hafrannsóknastofnunarinnar verið af veiðunum á hverju ári og hve mikill hluti hans hafa laun til áhafna á hvalveiðibátunum verið?
1. Upplýsingar liggja ekki fyrir. Samkvæmt samningi Hafrannsóknastofnunarinnar við Félag hrefnuveiðimanna annast félagið vinnslu, markaðssetningu og sölu á afurðum. Allar ákvarðanir varðandi þau málefni eru í höndum Félags hrefnuveiðimanna og Hafrannsóknastofnuninni óviðkomandi.
2. Árið 2006 voru veidd 60 dýr, árið 2005 39 dýr, árið 2004 25 dýr og árið 2003 36 dýr 3. Á árinu 2003 gerði sjávarútvegsráðuneytið samning við Félag hrefnuveiðimanna um veiðar á hrefnu í vísindaskyni. Frá árinu 2004 hefur Hafrannsóknastofnunin gert slíkan samning. Félagið skuldbindur sig til að veiða hrefnur undir yfirstjórn Hafrannsóknastofnunarinnar og í samræmi við rannsókna- og framkvæmdaáætlanir stofnunarinnar. Kostnaður Félags hrefnuveiðimanna vegna launa áhafna er ekki sundurliðaður í samningi félagsins og stjórnvalda.
133. löggjafarþing 2006–2007.
Þskj. 341 — 262. mál.
Svar

| 2003 | |
| Hafrannsóknastofnunin – hrefnurannsóknir | 20,7 millj. kr. |
| Sjávarútvegsráðuneyti vegna samnings um veiðarnar við Félag hrefnuveiðimanna | 8,5 millj. kr. |
| Samtals: | 29,2 millj. kr. |
| 2004 | |
| Hafrannsóknastofnunin – hrefnurannsóknir | 41,8 millj. kr. |
| þar af 10,3 millj. kr. vegna flugtalningar | |
| Hafrannsóknastofnunin vegna samnings um veiðarnar við Félag hrefnuveiðimanna | 15,1 millj. kr. |
| Samtals: | 56,9 millj. kr. |
| 2005 | |
| Hafrannsóknastofnunin – hrefnurannsóknir | 29,1 millj. kr. |
| Hafrannsóknastofnunin vegna samnings um veiðarnar við Félag hrefnuveiðimanna | 26,5 millj. kr. |
| Samtals: | 55,6 millj. kr. |
| 2006 * | |
| Hafrannsóknastofnunin – hrefnurannsóknir | 35,0 millj. kr. |
| Hafrannsóknastofnunin vegna samnings um veiðarnar við Félag hrefnuveiðimanna | 43,9 millj. kr. |
| Samtals: | 78,9 millj. kr. |
| * Áætlun. | |