Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 354. máls.
133. löggjafarþing 2006–2007.
Þskj. 384  —  354. mál.




Fyrirspurn



til iðnaðarráðherra um olíuleit og rannsóknir á landgrunni Íslands.

Frá Guðmundi Hallvarðssyni.



     1.      Hafa félög eða fyrirtæki sótt um leyfi til olíu- og gasleitar í íslenskri lögsögu sl. tvö ár?
     2.      Ef svo er, hvaða aðilar eru það og hver eru áform þeirra? Hafa íslenskum stjórnvöldum borist niðurstöður rannsókna eða áfangaskýrsla?
     3.      Hafa erlendir aðilar leitað upplýsinga til ráðuneytisins án þess að sækja formlega um leyfi til leitar?
     4.      Hvað líður rannsóknum á landgrunni Norðurlands þ.e. frá Öxarfirði yfir í Eyjafjarðarál? Hvaða vísbendingar hafa rannsóknir gefið um möguleika á olíu eða gasi og hverjar eru líkurnar á að olía eða gas finnist?
     5.      Er fyrirhugað eða talin þörf á að bora rannsóknarholur í Flatey á Skjálfanda eða í Grímsey til frekari rannsóknar setlaga?
     6.      Að hvaða málum er nú unnið að af hálfu samráðsnefndar um landgrunns- og olíuleitarmál?


Skriflegt svar óskast.