Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 375. máls.
133. löggjafarþing 2006–2007.
Þskj. 409  —  375. mál.




Fyrirspurn



til menntamálaráðherra um kostnað við íþróttaefni Ríkisútvarpsins.

Frá Birni Inga Hrafnssyni.



     1.      Hvert hefur framlag Ríkisútvarpsins til íþróttadeildar RÚV verið árin 2004, 2005 og 2006 og hver er áætlunin í þeim efnum fyrir árið 2007?
     2.      Hvað greiðir Ríkisútvarpið árlega fyrir sýningarrétt frá Formúlu-kappaksturskeppninni?
     3.      Hver er áætlaður kostnaður Ríkisútvarpsins vegna sýningarréttar frá Evrópukeppni landsliða í knattspyrnu 2008?
     4.      Hefur kostnaður við sýningarrétt frá þessum viðburðum verið fjármagnaður með stuðningi kostunaraðila að einhverju eða öllu leyti?


Skriflegt svar óskast.