Þskj. 430 — 388. mál.
Frumvarp til laga
um breytingu á umferðarlögum, nr. 50/1987, með síðari breytingum.
(Lagt fyrir Alþingi á 133. löggjafarþingi 2006–2007.)
1. gr.
Ökuskírteini eru tvenns konar, bráðabirgðaskírteini og fullnaðarskírteini.
Bráðabirgðaskírteini er gefið út til byrjanda og gildir í þrjú ár.
Fullnaðarskírteini gildir þar til hlutaðeigandi er fullra 70 ára. Ráðherra getur ákveðið að ökuskírteini til að mega stjórna ökutækjum skv. 50. gr. skuli gilda skemur.
Ráðherra setur reglur um gildistíma ökuskírteinis sem gefið er út til þess sem er fullra 70 ára. Ráðherra getur enn fremur ákveðið að ökuskírteini skuli, ef aðstæður mæla með því, gilda skemur en ákveðið er í 3. mgr.
Endurnýja má ökuskírteini að loknum gildistíma enda fullnægi hlutaðeigandi enn skilyrðum til að fá ökuskírteini útgefið. Ráðherra getur sett reglur um að próf skuli tekið að nýju.
Fullnaðarskírteini til byrjanda má gefa út, fullnægi hann eftirtöldum skilyrðum:
a. hafi haft bráðabirgðaskírteini samfellt í eitt ár, farið í akstursmat og fengið að því loknu staðfestingu ökukennara þar að lútandi,
b. hafi ekki á síðustu 12 mánuðum fengið punkt í punktakerfi vegna umferðarlagabrots eða á sama tíma verið án ökuréttar vegna akstursbanns eða sviptingar.
Fullnægi byrjandi ekki skilyrðum b-liðar 6. mgr. má endurnýja bráðabirgðaskírteini að loknum gildistíma þess. Fullnægi hann hins vegar skilyrðum b-liðar 6. mgr. og fari í akstursmat, sbr. a-lið 6. mgr., má gefa út fullnaðarskírteini.
Hafi bráðabirgðaskírteini byrjanda verið endurnýjað, sbr. 7. mgr., getur hann fengið fullnaðarskírteini, fullnægi hann skilyrðum a- og b-liða 6. mgr.
Ráðherra getur sett reglur um takmörkun á heimild byrjanda til að mega stjórna ökutæki, sem ökuskírteini þarf til að stjórna, á tilteknum tíma sólarhringsins, takmörkun á fjölda farþega yngri en 20 ára og um takmörkun á afli hreyfils ökutækis. Ráðherra getur ákveðið að slíkar takmarkanir taki til byrjanda á gildistíma bráðabirgðaskírteinis allt þar til hann verður fullra 20 ára. Ráherra getur einnig ákveðið að takmarkanir séu þá aðeins settar hafi byrjandi sætt akstursbanni skv.106. gr. a eða verið sviptur ökurétti skv. 101. eða 102. gr.
2. gr.
Á eftir 2. mgr. 53. gr. laganna kemur ný málsgrein sem orðast svo:Byrjandi, sem hefur fengið bráðabirgðaskírteini í fyrsta sinn skv. 51. gr. og sviptur er ökurétti, öðlast eigi ökurétt að nýju að loknum sviptingartíma fyrr en hann hefur sótt sérstakt námskeið skv. 106. gr. a og staðist ökupróf að nýju.
3. gr.
Við 72. gr. laganna bætist ný málsgrein sem orðast svo:Ráðherra getur sett reglur um flokkun og notkun viðurkennds hlífðarbúnaðar ökumanna og farþega bifhjóla.
4. gr.
Á eftir 4. mgr. 100. gr. laganna koma fjórar nýjar málsgreinar sem orðast svo:Við ákvörðun sektar vegna brots gegn 37. og 38. gr. skal höfð hliðsjón af aukinni áhættu sem hraðabrotið hefur í för með sér. Á vegi þar sem hámarkshraði má vera 80 km á klst. eða meiri skal sekt ákveðin hærri en ella. Sama gildir um ákvörðun sektar vegna hraðabrota við akstur:
a. bifreiðar innan við 3.500 kg að heildarþyngd með eftirvagn eða tengitæki, þ.m.t. tjaldvagn og hjólhýsi,
b. vörubifreiðar,
c. hópbifreiðar,
d. vagnlestar þar sem eru ökutæki sem falla undir b- eða c-lið með skráningarskyldan eftirvagn eða tengitæki,
e. liðvagns og
f. bifhjóls með hliðarvagni eða skráningarskyldum eftirvagni eða tengitæki.
Við ákvörðun sektar vegna brota gegn 37. og 38. gr., sbr. 5. mgr., skal sekt ákveðin hærri en ella þegar hraðinn er 140 km á klst. eða meiri.
Við ákvörðun sektar vegna brota gegn 37. og 38. gr., sbr. 5. mgr., skal sekt ákveðin mun hærri en ella þegar ekið er meira en tvöfalt hraðar en heimilt er.
Við ákvörðun sektar vegna brota gegn 37. og 38. gr., sbr. 5. mgr., skal sekt ákveðin mun hærri en ella á vegi þar sem hámarkshraði er takmarkaður við minni hraða en 80 km á klst. ef hraðinn er 30% meiri en heimilt er.
5. gr.
Á eftir 3. mgr. 101. gr. laganna kemur ný málsgrein sem orðast svo:Þegar ekið er meira en tvöfalt hraðar en heimilt er skal svipting ökuréttar eigi ákvörðuð skemur en í sex mánuði.
6. gr.
a. Á eftir 106. gr. laganna kemur ný grein, 106. gr. a, sem orðast svo:Lögreglustjóri skal banna byrjanda, sem hefur fengið bráðabirgðaskírteini í fyrsta sinn, að aka hafi hann fengið fjóra eða fleiri punkta samkvæmt punktakerfi vegna umferðarlagabrota. Akstursbanni skal eingöngu beitt einu sinni á gildistíma bráðabirgðaskírteinis.
Með akstursbanni eru afturkölluð ökuréttindin sem bráðabirgðaskírteinið veitir. Akstursbannið gildir þar til byrjandinn hefur sótt sérstakt námskeið og staðist ökupróf að nýju. Ráðherra setur reglur um tilhögun námskeiðs.
Þegar skilyrði akstursbanns eru fyrir hendi skal svo fljótt sem unnt er banna byrjanda að aka. Ákvörðun um akstursbann má bera undir dómstóla samkvæmt reglum um meðferð opinberra mála og skal lögreglustjóri leiðbeina byrjanda um þann rétt þegar ákvörðun er birt.
b. Fyrirsögn á undan greininni orðast svo: Akstursbann.
7. gr.
a. Á eftir 107. gr. laganna kemur ný grein, 107. gr. a, sem orðast svo:Þegar um er að ræða gróf eða endurtekin brot á umferðarlögum má gera upptækt vélknúið ökutæki, sem ökuskírteini þarf til að stjórna og notað var við brot, ef það er talið nauðsynlegt til þess að fyrirbyggja frekari brot á umferðarlögum eða öðrum lögum. Með sama skilyrði má gera upptækt vélknúið ökutæki, sem ökuskírteini þarf til að stjórna og er eign þess sem hefur framið brot, enda þótt ökutækið hafi ekki verið notað þegar brotið var framið.
Gera skal ökutæki upptækt þegar eigandi þess er fundinn sekur um akstur undir áhrifum áfengis og áfengismagn í blóði er meira en 1,20, sem hefur í för með sér sviptingu ökuréttar, og viðkomandi hefur tvisvar síðustu þrjú árin fyrir brotið gerst sekur um akstur undir áhrifum áfengis þar sem áfengismagn í blóði hefur mælst meira en 1,20 og þess vegna verið sviptur ökurétti. Gera skal ökutæki upptækt enda þótt það hafi ekki verið notað þegar brotið var framið.
Víkja má frá ákvæði 2. mgr. í undantekningartilvikum þegar sérstakar ástæður mæla með því.
Að öðru leyti gilda ákvæði hegningarlaga um upptöku eigna.
b. Fyrirsögn á undan greininni orðast svo: Upptaka ökutækja.
8. gr.
Lög þessi öðlast gildi 27. apríl 2007.Athugasemdir við lagafrumvarp þetta.
Þingsályktun um fjögurra ára samgönguáætlun fyrir árin 2005–2008 var samþykkt á 131. löggjafarþingi 2004–2005, en þá var umferðaröryggisáætlun í fyrsta sinn sérstakur hluti hennar fyrir sama tímabil.
Markmið stjórnvalda um aukið umferðaröryggi til ársins 2016 eru að fjöldi látinna í umferð á hverja 100.000 íbúa verði ekki meiri en það sem minnst gerist hjá öðrum þjóðum. Einnig að fjöldi látinna og alvarlega slasaðra í umferð lækki að jafnaði um 5% á ári til ársins 2016. Á árinu 2004 voru bein útgjöld vegna umferðarslysa hér á landi talin nema um 12 milljörðum kr. á ári en kostnaður þessi er að stórum hluta breytilegur. Með frumvarpi þessu stefnt að því meginmarkmiði að umferðarslysum fækki og að þjóðhagslegur kostnaður af þeim lækki samsvarandi.
Við framkvæmd umferðaröryggisáætlunar er samþættingu lagasetningar, eftirlits, áróðurs og vegabóta beitt til að ná hámarksárangri í baráttunni gegn umferðarslysum. Til að framfylgja núgildandi umferðaröryggisáætlun voru á síðasta löggjafarþingi gerðar breytingar á umferðarlögum, m.a. vegna ölvunar- og fíkniefniaksturs. Ýmis atriði hafa komið fram við framkvæmd umferðarlaga sem valda því að efni þykja til að gera breytingu á lögunum í því skyni að ná þeim markmiðum sem sett eru í umferðaröryggisáætlun. Athyglin beinist einkum að hertum viðurlögum við brotum varðandi of hraðan akstur og að auknum kröfum til ungra ökumanna með bráðabirgðaskírteini.
Frumvarp þetta er samið í samgönguráðuneytinu í samráði við Umferðarstofu. Við undirbúning þess var leitað álits ýmissa aðila, svo sem ríkislögreglustjóra, ríkissaksóknara og lögreglustjórans í Reykjavík
Helstu breytingar sem felast í frumvarpinu.
I. Ungir ökumenn.
Eins og meðfylgjandi tölur fyrir árin 1998–2005 bera með sér valda ungir ökumenn tiltölulega flestum banaslysum í umferðinni (28%) og er þessu frumvarpi ætlað að ná til þessa hóps, sérstaklega hvað varðar hertar reglur um bráðabirgðaskírteini og beitingu akstursbanns.
Aldur orsakavalda banaslysa í umferðinni 1998–2005.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
(Heimild: Skýrsla rannsóknarnefndar umferðarslysa 2005).
Með breytingu á umferðarlögum árið 2002 voru sett inn í umferðarlög ákvæði um akstursmat fyrir unga ökumenn. Fullyrða má að kerfi þetta hafi gefist vel og er því í þessu frumvarpi lagt til að það verði þróað áfram og að bráðabirgðaskírteini gildi í þrjú ár í stað tveggja. Enn fremur er lagt til að tekið verði upp að lögreglustjóri skuli að ákveðnum skilyrðum uppfylltum beita byrjanda með bráðabirgðaskírteini akstursbanni, en þetta nýmæli á sér fyrirmynd í dönskum rétti.
II. Hert viðurlög við umferðarlagabrotum.
Að undanförnu hafa verið uppi háværar raddir í þjóðfélaginu um að taka þurfi harðar á hvers kyns umferðarlagabrotum og stuðla þannig að auknu öryggi og festu í umferðinni. Þetta á ekki síst við hrað- og ofsaakstur en annars staðar á Norðurlöndum, og reyndar hvarvetna í Evrópu, hefur mikil umræða átt sér stað um hraðakstur og afleiðingar slíkrar hegðunar. Hafa þessi lönd tekið upp hert viðurlög við slíkum brotum og sýnir reynslan að slíkar ráðstafanir hafi undantekningarlaust leitt til aukins umferðaröryggis. Í frumvarpinu er lagt til að sama verði gert hér á landi og tekið verði sérstaklega hart á hraðakstursbrotum þegar ekið er á og yfir tvöföldum hámarkshraða jafnframt því að settar verði reglur um hærri sektir þegar í hlut eiga ökumenn sem stjórna ökutækjum sem um gilda sérstakar reglur. Við samningu frumvarpsins var einnig höfð hliðsjón af ákvæðum dönsku umferðarlaganna um heimild lögreglu til upptöku ökutækja vegna grófra og ítrekaðra umferðarlagabrota.
Að öðru leyti er vísað til athugasemda við einstakar greinar frumvarpsins.
Athugasemdir við einstakar greinar frumvarpsins.
Um 1. gr.
Lagt er til að bráðabirgðaskírteini gildi í þrjú ár í stað tveggja. Byrjandi eigi þess kost að fá fullnaðarskírteini þegar eitt ár er liðið af gildistímanum hafi hann ekki á síðustu 12 mánuðum fengið punkt í punktakerfi fyrir umferðarlagabrot eða á sama tíma verið án ökuréttar vegna akstursbanns eða sviptingar ökuréttar.
Þannig fer akstursþjálfun byrjandans (áður en hann fær fullnaðarskírteini) fram samfellt í a.m.k. tvö ár (eitt ár æfingarakstur á námstíma, akstur á gildistíma bráðabirgðaskírteinis í eitt ár eða þar til byrjandinn á fyrst kost á að fá fullnaðarskírteini). Séu ekki skilyrði til þess að byrjandi fái fullnaðarskírteini eftir eitt ár, fær hann tækifæri eftir annað eða þriðja árið. Fullnægi hann ekki skilyrðunum eftir þrjú ár má endurnýja bráðabirgðaskírteini að loknum gildistíma þess.
Lagt er til að staðfesting ökukennara á því að byrjandi hafi farið í akstursmat komi í stað umsagnar ökukennara um árangur þar sem hann, eftir atvikum, annað hvort mælir með eða gegn því að byrjandi fái fullnaðarskírteini. Tillagan er gerð í ljósi þeirrar reynslu sem fengist hefur af akstursmati og þess að akstursmat er kennslustund en ekki prófraun.
Þegar akstursmat fer fram fylgist ökukennari með akstri ökumanns (byrjanda) sem að akstri loknum lýsir fyrir ökukennaranum hvernig honum finnst að sér hafi til tekist og hvað hefði betur mátt fara. Ökukennarinn ber lýsingu ökumannsins saman við sínar niðurstöður og ræðir misræmi sem kann að vera þar á við ökumanninn.
Byrjandi með bráðabirgðaskírteini, útgefið í fyrsta sinn, þarf að þjálfa aksturshæfni sína og temja sér aðgát í umferðinni og þá ögun og sjálfsgagnrýni sem nauðsynleg er. Því er æskilegt á að gildistíma bráðabirgðaskírteinisins sé ökuréttur hans takmarkaður.
Í ljósi þess er gerð tillaga um heimild fyrir ráðherra til að setja takmörkun á heimild byrjanda til að mega stjórna ökutæki, sem ökuskírteini þarf til að stjórna, á tilteknum tíma sólarhringsins, takmörkun á fjölda farþega yngri en 20 ára og um takmörkun á afli hreyfils ökutækis.
Um 2. gr.
Gerð er tillaga um að sett verði hliðstætt ákvæði varðandi byrjanda sem sviptur er ökurétti og varðandi þann sem sviptur er ökurétti í lengri tíma en eitt ár, sbr. 2. mgr. 53. gr. Samkvæmt því þarf byrjandinn að sækja sérstakt námskeið og fara í próf áður en hann öðlast ökurétt að nýju.
Um. 3. gr.
Mikil umræða hefur átt sér stað um málefni ökumanna bifhjóla og öryggi þeirra í umferðinni. Reynslan sýnir að réttur hlífðarbúnaður getur skipt sköpum þegar ökumenn bifhjóla og eftir atvikum farþegar á bifhjóli lenda í umferðarslysum. Því þykir rétt að leggja til að ráðherra geti sett frekari reglur um flokkun og notkun á viðurkenndum hlífðarbúnaði bifhjólamanna.
Um 4. gr.
Tillaga um breytingu á 100. gr. lýtur að því að stemma stigu við of hröðum akstri jafnt í dreifbýli sem í þéttbýli. Lagt er til að við ákvörðun sekta fyrir of hraðan akstur verði höfð hliðsjón af aukinni áhættu sem hraðabrot hefur í för með sér og hærri sektum beitt en ella þegar hraðinn fer yfir tiltekin mörk eða hraðabrot er framið við akstur stórra ökutækja og vagnlesta.
Síðustu áratugi hefur umferð þyngst verulega hér á landi. Bifreiðin hefur fest sig í sessi sem aðalsamgöngutækið innan lands. Strandflutningar hafa að mestu lagst af og vörur eru nú fluttar milli landshluta á vörubílum. Bætt þjóðvegakerfi og greiðari akstur í þéttbýli sýnast vera einn þeirra þátta sem hefur leitt til þess að hraðinn á vegum hefur aukist þrátt fyrir að heimil hraðamörk séu óbreytt. Of hraður akstur er ein aðalorsök alvarlegra umferðarslysa. Því þarf að herða viðurlög við slíkum brotum.
Um 5. gr.
Tillaga um breytingu á 101. gr. er á því byggð að jafnan sé um alvarlegt brot á umferðarlögum að ræða, þegar ekið er tvöfalt hraðar en heimilt er. Gæta verður þess þó þar sem hraðamörk eru mjög lág, t.d. 30 km á klst. í íbúðahverfum og við skóla, að skipulag umferðar á svæðinu taki mið af hinum lágu hraðamörkum, göturnar séu hannaðar þannig að ekki sé með góðu móti unnt að aka hraðar en tilskilið er.
Um 6. gr.
Reynslan sýnir að flestir ungir ökumenn standa sig vel í umferðinni. Sumum þeirra verður ýmislegt á, þeir gæta sín ekki nægilega vel, hættir til að líta á ökutækið sem leiktæki í umferðinni, aka glannalega og skortir reynslu og yfirvegun. Þeim verður að veita aðhald. Tillaga að reglum um akstursbann er liður í þeirri viðleitni.
Þegar akstursbanni er beitt verður byrjandi, ökumaður með bráðabirgðaskírteini í fyrsta sinn, í sömu stöðu og sá sem ekki hefur lokið ökunámi. Byrjandinn hefur misst ökuréttinn og verður að fara i sérstakt ökunám og taka ökupróf til þess að öðlast hann á ný.
Það er mikilvægt að akstursbann taki gildi strax og skilyrði þess eru fyrir hendi, þ.e. þegar fyrir liggur að byrjandi hefur fengið fjóra eða fleiri refsipunkta, sbr. 106. gr. a. Því er sett hliðstætt ákvæði varðandi akstursbann og er í 103. gr. varðandi sviptingu ökuréttar til bráðabirgða.
Tillaga að reglum um akstursbann er samin með hliðsjón af 127. gr. dönsku umferðarlaganna.
Um 7. gr.
Tillaga um upptöku er byggð á því að það aðhald, sem ökumönnum er veitt með því að beita refsingu og sviptingu ökuréttar vegna brota á umferðarlögum og reglum settum samkvæmt þeim, dugi ekki alls kostar gagnvart tilteknum hópi ökumanna, tiltölulega litlum hópi þó. Þar sýnist meira þurfa að koma til, einkum og sér í lagi með tilliti til þeirrar viðleitni að koma í veg fyrir ítrekuð brot. Því er gerð tillaga um að ákvæði verði sett í umferðarlög þess efnis að vélknúið ökutæki brotamanns verði gert upptækt, annars vegar með heimild þegar um er að ræða gróf eða ítrekuð brot á umferðarlögum en hins vegar að skylt sé að beita upptöku þegar um er að ræða tiltekin ítrekuð ölvunarakstursbrot.
Ákvæði um upptöku eru í almennum hegningarlögum, nr. 19/1940, en þess munu vart dæmi að þeim hafi verið beitt vegna brota á umferðarlögum. Tillaga um að setja ákvæði um upptöku í umferðarlög er sett fram í þeim tilgangi að stuðla að því að upptöku verði oftar beitt vegna umferðarlagabrota en verið hefur.
Tillagan gerir ráð fyrir að upptöku megi beita vegna hvers konar brota á umferðarlögum, sé um gróf eða ítrekuð brot að ræða. Einkum er í því efni um að ræða gróf eða ítrekuð brot vegna ölvunaraksturs, ítrekaðan akstur þess sem sviptur er ökurétti eða þess sem ekki hefur öðlast ökuréttindi eða mjög vítaverðan akstur.
Aukin heimild til að gera ökutæki upptæk er til þess fallin að hafa fyrirbyggjandi áhrif, ekki eingöngu vegna fjárhagslegra sjónarmiða heldur einnig þannig að upptakan hafi bein áhrif á möguleika til þess að nota upptökuandlagið, ökutækið sem notað var þegar brotið var framið, á ný við brot. Upptaka er liður í því að koma í veg fyrir frekari brot.
Tillaga að reglum um upptöku er mótuð af efni 133. gr. a dönsku umferðarlaganna sem lögfest var með lögum nr. 278 frá 8. maí 1991 og breytt var árið 2005.
Um 8. gr.
Rétt þykir að frumvarp þetta, ef af lögum verður, gangi í gildi hinn 27. apríl 2007.
Fylgiskjal.
Fjármálaráðuneyti,
fjárlagaskrifstofa:
Umsögn um frumvarp til breytingar á umferðarlögum, nr. 50/1987.
Helstu breytingar sem lagðar eru til í frumvarpinu eru m.a. harðari viðurlög þegar ekið er hraðar en heimilt er og aukið aðhald varðandi akstur byrjanda sem fær bráðabirgðaskírteini í fyrsta sinn. Þá er lagt til að í að vissum tilvikum verði hægt að gera vélknúið ökutæki upptækt við gróf brot á umferðarlögum.
Verði frumvarpið óbreytt að lögum verður ekki séð að það hafi í för með sér aukin útgjöld fyrir ríkissjóð.