Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 399. máls.
133. löggjafarþing 2006–2007.
Þskj. 443  —  399. mál.




Fyrirspurn



til sjávarútvegsráðherra um dragnótaveiðar.

Frá Jóhanni Ársælssyni.



     1.      Hvaða sjónarmið eru lögð til grundvallar banni og/eða takmörkunum á dragnótaveiðum? M.a. er óskað eftir upplýsingum um ástæður fyrir alfriðun svæða, árstíðabundnum takmörkunum, mismunandi takmörkunum á stærðum fiskiskipa og mismunandi kröfum um samsetningu afla.
     2.      Hver eru áhrif ,,heimamanna“, annars vegar útgerðarmanna og hins vegar sveitarstjórnarmanna, á ákvarðanir ráðuneytisins um takmarkanir á dragnótaveiðum?
     3.      Hvers vegna hefur ráðherra ekki orðið við eindregnum tilmælum útgerðarmanna, Byggðaráðs Skagafjarðar og sveitarstjórnarmanna í Skagafirði um friðun fyrir dragnótaveiðum?