Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 22. máls.
133. löggjafarþing 2006–2007.
Þskj. 464  —  22. mál.




Frumvarp til laga



um breyting á lögum nr. 90/2003, um tekjuskatt, með síðari breytingum.

(Eftir 2. umr., 24. nóv.)



1. gr.

    Í stað fjárhæðanna „3.721.542“ og „6.169.097“ í 4. mgr. B-liðar 68. gr. laganna kemur: 4.838.005 og 8.019.826.

2. gr.

    Við lögin bætist nýtt ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi:
    Endurákvarða skal vaxtabætur samkvæmt skattframtali ársins 2006 vegna vaxtagjalda á árinu 2005 í samræmi við B-lið 68. gr. Endurákvörðun vaxtabóta skal lokið eigi síðar en 31. desember 2006 og tilkynnt með auglýsingu í Lögbirtingablaðinu. Senda skal hverjum skattaðila sem öðlast við endurákvörðun vaxtabóta rétt til vaxtabóta, sbr. B-lið 68. gr., tilkynningu um endurákvörðunina.
    Endurákvörðun vaxtabóta samkvæmt grein þessari er kæranleg til skattstjóra innan 30 daga frá dagsetningu auglýsingar um að endurákvörðun vaxtabóta sé lokið.

3. gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi.