Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 412. máls.
133. löggjafarþing 2006–2007.
Þskj. 467  —  412. mál.




Frumvarp til laga



um breyting á lögum nr. 90/2003, um tekjuskatt.

Flm.: Ellert B. Schram, Sæunn Stefánsdóttir.



1. gr

    Í stað hlutfallstölunnar „0,5%“ í 2. tölul. 31 gr. laganna kemur: 2%.

2. gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi.

Greinargerð.


    Miklar breytingar hafa orðið í íslensku samfélagi á undanförnum missirum og árum. Umsvif fyrirtækja og fjármálastofnana, rekstur og velta hafa stóraukist. Arður og ágóði að sama skapi. Í vaxandi mæli hafa fyrirtæki, eignarhaldsfélög og sjálfseignastofnanir, í krafti arðseminnar, haft tök á því að veita styrki og stuðning til margvíslegra málefna og verkefna, á sviði menningar, líknarmála, vísinda, rekstur skóla o.s.frv. Það er vel.
    Björgólfur Guðmundsson, formaður bankaráðs Landsbankans, ítrekaði í grein sem birtist í Morgunblaðinu í þessum mánuði hina samfélagslegu ábyrgð fyrirtækja og stofnana af þessu tagi.
    Það er auðvitað gagnlegt og ánægjulegt að lesa og heyra um rausnarskap einkafyrirtækja, enda þótt það sé áfram hlutverk stjórnvalda að standa vörð um samtök og starfsemi í þágu góðra mála. Það er hins vegar alkunna að framlög opinberra aðila til margvíslegra góðra mála eru jafnan og oftast minni en til þarf.
    Þess vegna er gjarnan leitað á náðir fyrirtækja til að hlaupa undir bagga. Mörg velferðarmál, hugsjónamál og önnur samfélagslega þýðingarmikil starfsemi er beinlínis háð því að slíkir styrkir fáist.
    Heimilt er skv. 31 gr. laga um tekjuskatt, nr. 90/2003, að draga frá tekjum af atvinnurekstri einstakar gjafir og framlög til tiltekinna málaflokka þegar talið er fram til skatts „þó ekki yfir 0,5% af tekjum skv. B-lið 7 gr.“.
    Þessi lagagrein er komin til ára sinna. Það er mat flutningsmanna, með hliðsjón af þeirri þróun sem að framan greinir varðandi hag fyrirtækja, eignarhaldsfélaga og sjálfseignarstofnana, að þeim eigi að gefa aukið ráðrúm til að láta fé af hendi rakna til þeirra málaflokka sem upp eru taldir í 16. gr. reglugerðar nr. 483/1994, um frádrátt frá tekjum af atvinnurekstri eða sjálfstæðri starfsemi. Það má gera með einfaldri lagabreytingu, hækka úr 0,5% í 2% það hlutfall sem draga má frá tekjum sem stafa af atvinnurekstri eða sjálfstæðri starfsemi.
    Hér er gerð tillaga um slíka breytingu. Hún kæmi til góða fyrir hvers konar menningarmálastarfsemi fyrir almenning, byggingar skólahúsa og íþróttamannvirkja, rekstur skóla, íþróttastarfsemi, fræðiritaútgáfu, fræðslukvikmyndagerð, bóka-, skjala-, lista- og minjasöfnun, bókmennta- og listastarfsemi, verndun fornra mannvirkja og sérstæðra náttúrufyrirbrigða, skóggræðslu, sandgræðslu, verndun fiskimiða, viðukennda vísinda- og rannsóknarstarfsemi, viðurkennda líknarstarfsemi, sjúkrahús, heilsugæslustöðvar, elliheimili, vöggustofur, barnaheimili, stofnana fyrir drykkjusjúklinga og lamaða og fatlaða, slysavarnir og starfsemi þjóðkirkjunnar og annarra trúfélaga, sem og stjórnmálaflokka.
    Flutningsmaður er þess fullviss að þingheimur og stjórnvöld munu styðja þá viðleitni sem í þessu frumvarpi felst, að greiða fyrir því að fyrrnefnd starfsemi og málefni njóti í auknum mæli góðs af góðri afkomu atvinnu og fjármálafyrirtækja, með því að hækka þá viðmiðun sem nú er í lögum varðandi frádrátt á skatti vegna slíkra framlaga.