Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 270. máls.
133. löggjafarþing 2006–2007.
Þskj. 470 — 270. mál.
menntamálaráðherra við fyrirspurn Kolbrúnar Halldórsdóttur um nám í listdansi.
1. Hvernig verður fyrirkomulag náms í listdansi nú eftir að Listdansskóli Íslands hefur verið lagður niður? Óskað er eftir upplýsingum um öll námsstigin þrjú, þ.e. grunn-, mið- og framhaldsstig, og um samninga við einstaka skóla.
Menntamálaráðuneytið gaf út námskrá í listdansi í maí sl. Námskráin skiptist í tvo hluta. Aðalnámskrá listdansskóla tekur til grunnnáms í listdansi og skiptist það í sjö stig. Námið er skipulagt fyrir nemendur frá níu ára aldri til um það bil 16 ára aldurs. Námskrá fyrir listdanskjörsvið á listnámsbraut er hluti af aðalnámskrá framhaldsskóla og tekur til framhaldsnáms í listdansi. Nám á listdanskjörsviði er skipulagt eftir eininga- og áfangakerfi og ætlað nemendum sem komnir eru í framhaldsskóla.
Skólar sem bjóða upp á grunnnám samkvæmt aðalnámskrá listdansskóla geta sótt um viðurkenningu ráðuneytisins á því að þeir starfi og veiti kennslu í samræmi við aðalnámskrá grunnnáms í listdansi. Ráðuneytið gaf út viðmiðunarreglur um viðurkenningu fyrir listdansskóla á grunnstigi í ágúst 2006. Auglýst var eftir umsóknum um rekstrarstyrki í september 2006 og eru umsóknir nú til afgreiðslu í ráðuneytinu.
Skólar sem kenna listdans á framhaldsstigi samkvæmt aðalnámskrá framhaldsskóla geta sótt um viðurkenningu þeirrar kennslu. Viðurkenning ráðuneytisins er veitt á grundvelli reglugerðar um viðurkenningu einkaskóla á framhaldsskólastigi, nr. 108/1999. Tveir skólar hafa þegar hlotið slíka viðurkenningu, Listdansskóli Íslands/Dansmennt og Klassíski listdansskólinn. Umsókn frá þriðja skólanum er til meðferðar í ráðuneytinu.
Framhaldsskólum er heimilt að gera þjónustusamning við listdansskóla sem hlotið hafa viðurkenningu ráðuneytisins til að kenna nemendum listdans á framhaldsstigi samkvæmt aðalnámskrá. Greitt er fyrir þá kennslu eftir reiknilíkani framhaldsskóla og eru þeir milliliðir um greiðslur til dansskólanna. Menntaskólinn við Hamrahlíð er móðurskóli fyrir listdanskjörsvið á framhaldsskólastigi.
Til að tryggja samfellu í námi þeirra nemenda sem voru í Listdansskóla Íslands og að nýjum nemendum yrði tryggð skólavist gerði ráðuneytið samning við Dansmennt ehf. um að fyrirtækið byði upp á nám samkvæmt gildandi námskrá frá og með skólaárinu 2006–2007. Dansmennt ehf. var upphaflega stofnað af kennurum við Listdansskóla Íslands og hefur verið gert samkomulag milli stofnenda félagsins og Listaháskóla Íslands um yfirtöku Listaháskólans á félaginu. Samningurinn er til þriggja ára og gerir ráð fyrir greiðslum til skólans samkvæmt reiknilíkani framhaldsskóla vegna þeirra nemenda sem þar ljúka námi.
2. Hver voru framlög úr ríkissjóði til Listdansskóla Íslands á árunum 2000–2005 og hver eru áform stjórnvalda um fjárveitingar til náms á öllum þremur stigum listdansnámsins næstu fimm ár?
Framlög úr ríkissjóði til Listdansskólans árin 2000–2005, á verðlagi hvers árs koma fram í eftirfarandi töflu:
Í frumvarpi til fjárlaga 2007 er gert ráð fyrir að 83 millj. kr. verði veittar til listdansnáms á framhaldsskólastigi.
Samkvæmt horfum í efnahags- og ríkisfjármálum árin 2007–2010 mun árlegur vöxtur samneyslu að jafnaði ekki vera umfram 2% að raungildi. Þá er gert ráð fyrir að framlög til háskóla og rannsókna aukist um 3,5% á ári og framlög til framhaldsskólastigsins vaxi um 3% ári á tímabilinu. Að þessu gefnu má gera ráð fyrir að framlög til listdansnáms muni aukast með sama hætti.
Upphæð rekstrarstyrkja til skóla er kenna listdans á grunnstigi hefur ekki enn verið ákveðin en ráðuneytið áformar að veita slíka styrki eins og fram kemur í svari við fyrri spurningu. Þá hefur ráðuneytið átt í viðræðum við talsmenn sveitarfélaga um fjármögnun á listdanskennslu á grunnstigi en nokkur sveitarfélög greiða nú þegar iðkendastyrki sem nýtast til að greiða skólagjöld í listdansskólum á grunnstigi.
133. löggjafarþing 2006–2007.
Þskj. 470 — 270. mál.
Svar

| Ár | Framlag úr ríkissjóði, millj. kr. |
| 2000 | 30,4 |
| 2001 | 48,1 |
| 2002 | 49,7 |
| 2003 | 52,6 |
| 2004 | 56,2 |
| 2005 | 61,2 |
| Heimild: Ríkisreikningur | |