Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 348. máls.
133. löggjafarþing 2006–2007.
Þskj. 480 — 348. mál.
um till. til þál. um staðfestingu ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 65/2005, um breytingu á IX. viðauka (Fjármálaþjónusta) við EES-samninginn.
Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Berglindi Ásgeirsdóttur, Ólöfu Hrefnu Kristjánsdóttur og Sesselju Sigurðardóttur frá utanríkisráðuneyti og Harald Örn Ólafsson og Hrein Hrafnkelsson frá iðnaðar- og viðskiptaráðuneyti.
Með tillögunni er leitað heimildar Alþingis til að staðfesta ákvörðun sameiginlegu EES- nefndarinnar nr. 65/2005 frá 29. apríl 2005, um breytingu á IX. viðauka (Fjármálaþjónusta) við EES-samninginn frá 2. maí 1992, og til að fella inn í samninginn tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2004/39/EB frá 21. apríl 2004 um markaði fyrir fjármálagerninga og um breytingu á tilskipunum ráðsins 85/611/EBE og 93/6/EBE og tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2000/12/EB og um niðurfellingu á tilskipun ráðsins 93/22/EBE.
Tilskipun 2004/39/EB er rammatilskipun sem tekur á helstu grunnþáttum verðbréfamarkaða, hún miðar m.a. að því að styrkja innri markaði ESB á sviði fjárfestingarþjónustu og kveður á um meginreglur um starfsemi fjármálafyritækja sem stunda verðbréfaviðskipti, sem og um skipulega verðbréfamarkaði. Tilskipunin nemur úr gildi og kemur í stað tilskipunar ráðsins 93/22/EBE um fjárfestingarþjónustu á sviði verðbréfaviðskipta.
Innleiðing tilskipunarinnar kallar á lagabreytingar hér á landi.
Nefndin leggur til að tillagan verði samþykkt.
133. löggjafarþing 2006–2007.
Þskj. 480 — 348. mál.
Nefndarálit
um till. til þál. um staðfestingu ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 65/2005, um breytingu á IX. viðauka (Fjármálaþjónusta) við EES-samninginn.
Frá utanríkismálanefnd.
Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Berglindi Ásgeirsdóttur, Ólöfu Hrefnu Kristjánsdóttur og Sesselju Sigurðardóttur frá utanríkisráðuneyti og Harald Örn Ólafsson og Hrein Hrafnkelsson frá iðnaðar- og viðskiptaráðuneyti.
Með tillögunni er leitað heimildar Alþingis til að staðfesta ákvörðun sameiginlegu EES- nefndarinnar nr. 65/2005 frá 29. apríl 2005, um breytingu á IX. viðauka (Fjármálaþjónusta) við EES-samninginn frá 2. maí 1992, og til að fella inn í samninginn tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2004/39/EB frá 21. apríl 2004 um markaði fyrir fjármálagerninga og um breytingu á tilskipunum ráðsins 85/611/EBE og 93/6/EBE og tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2000/12/EB og um niðurfellingu á tilskipun ráðsins 93/22/EBE.
Tilskipun 2004/39/EB er rammatilskipun sem tekur á helstu grunnþáttum verðbréfamarkaða, hún miðar m.a. að því að styrkja innri markaði ESB á sviði fjárfestingarþjónustu og kveður á um meginreglur um starfsemi fjármálafyritækja sem stunda verðbréfaviðskipti, sem og um skipulega verðbréfamarkaði. Tilskipunin nemur úr gildi og kemur í stað tilskipunar ráðsins 93/22/EBE um fjárfestingarþjónustu á sviði verðbréfaviðskipta.
Innleiðing tilskipunarinnar kallar á lagabreytingar hér á landi.
Nefndin leggur til að tillagan verði samþykkt.
Alþingi, 28. nóv. 2006.
Halldór Blöndal,
form., frsm.
Össur Skarphéðinsson.
Jón Kristjánsson.
Drífa Hjartardóttir.
Jón Gunnarsson.