Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 426. máls.
133. löggjafarþing 2006–2007.
Þskj. 504  —  426. mál.




Fyrirspurn


til sjávarútvegsráðherra um styrki AVS-rannsóknasjóðs í sjávarútvegi.

Frá Sigurjóni Þórðarsyni.


    Hversu mikið af öllum styrkjum AVS-rannsóknasjóðs í sjávarútvegi fór beint eða óbeint aftur sem greiðslur til Rannsóknastofnunar fiskiðnaðarins, til að greiða ferðalög stjórnar AVS, sem greiðslur til starfsmanna AVS eða til fyrirtækja sem tengjast stjórnendum AVS? Í svarinu óskast þessar greiðslur sundurliðaðar þau ár sem sjóðurinn hefur starfað.


Skriflegt svar óskast.