Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 320. máls.
133. löggjafarþing 2006–2007.
Þskj. 542  —  320. mál.




Svar


dómsmálaráðherra við fyrirspurn Guðjóns Ólafs Jónssonar um agaviðurlög í fangelsum.

    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     1.      Hversu margir fangar sættu agaviðurlögum í fangelsum hér á landi árin 2003–2006, sundurliðað eftir árum og fangelsum?
     2.      Hvert var tilefni þess að agaviðurlögum var beitt í hvert skipti?
     3.      Hvaða agarviðurlögum var beitt í hvert skipti?


    Til að svara fyrirspurninni óskaði ráðuneytið eftir upplýsingum hjá Fangelsismálastofnun ríkisins, sem safnaði saman upplýsingum frá hverju fangelsi fyrir sig og voru þær samræmdar eins og kostur var. Umbeðnar upplýsingar koma fram í eftirfarandi töflum.

1. Fangar sem sættu agaviðurlögum hér á landi árin 2003–2006, fjöldi.

2003 2004 2005 2006
Fangelsið á Litla-Hrauni 62 64 53 53
Fangelsið Kópavogsbraut 17 2 8 9 12
Hegningarhúsið 8 21 8 9
Fangelsið Akureyri 0 5 3 4
Fangelsið á Kvíabryggju 0 0 0 2


2. Tilefni agaviðurlaga.*

2003 2004 2005 2006
Fangelsið á Litla-Hrauni
Neysla/varsla fíkniefna 69 62 64 49
Lyfjavarsla/neysla 14 9 29 11
Neitað að gefa þvagsýni 35 26 20 29
Ósæmileg hegðun 22 12 2 8
Árás/hótanir við fangvörð 7 10 8 6
Árás/hótanir við samfanga 10 7 9 8
Strok 0 2 1 2
Fangelsið Kópavogsbraut 17
Neysla/varsla fíkniefna 2 9 10 11
Ósæmileg hegðun 0 0 1 0
Skemmdarverk 0 1 0 0
Árás/hótanir við samfanga 0 1 0 0
Strok 0 0 0 1
Hegningarhúsið
Neysla/varsla fíkniefna 6 20 8 6
Ósæmileg hegðun 1 1 0 1
Árás/hótanir við samfanga 0 0 0 1
Strok 1 0 0 1
Fangelsið Akureyri
Neysla/varsla fíkniefna 0 2 2 3
Neysla/varsla fíkniefna/varsla gsm-síma 0 3 0 0
Lyfjavarsla/neysla 0 0 0 1
Skemmdarverk 0 0 1 0
Fangelsið á Kvíabryggju
Notkun gsm-síma 0 0 0 2
*Það athugist að fleiri en einni tegund agaviðurlaga getur verið beitt í hvert skipti.


3. Agaviðurlög.

2003 2004 2005 2006
Fangelsið Litla-Hrauni
Áminning 14 17 14 22
Svipting vinnuþóknunar að hálfu 116 56 74 58
Svipting aukabúnaðar 87 111 111 90
Símabann 53 0 0 0
Takmarkanir á heimsóknum 139 110 109 90
Einangrun 14 19 7 13
Fangelsið Kópavogsbraut 17
Áminning 1 8 11 9
Svipting vinnuþóknunar 0 1 0 0
Svipting dagpeninga/vinnuþóknunar að 1/2 0 1 0 2
Símabann 0 8 0 0
Bréfabann 1 5 2 6
Sendingarbann 1 5 6 10
Svipting aukabúnaðar 0 1 0 0
Takmarkanir á heimsóknum 1 8 7 10
Einangrun 0 0 0 2
Hegningarhúsið
Áminning 7 20 8 5
Svipting dagpeninga/vinnuþóknunar að 1/2 1 0 0 0
Símabann 1 17 1 3
Bréfabann 7 7 4 1
Sendingarbann 7 12 7 7
Svipting aukabúnaðar 1 1 0 2
Takmarkanir á heimsóknum 8 18 6 9
Einangrun 1 2 0 4
Fangelsið Akureyri
Áminning 0 1 3 2
Sviptingdagpeninga 0 1 0 0
Símabann 0 1 2 2
Bréfabann 0 0 0 2
Sendingarbann 0 0 3 3
Svipting aukabúnaðar 0 0 0 0
Takmarkanir á heimsóknum 0 2 1 3
Frestað ákvörðun 0 1 0 0
Einangrun 0 0 0 0
Fangelsið á Kvíabryggju
Áminning 0 0 0 2