Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 455. máls.
133. löggjafarþing 2006–2007.
Þskj. 596 — 455. mál.
til heilbrigðisráðherra um flutnings- og leigukostnað Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins.
1. Hvað kostaði flutningur Heilsuverndarstöðvarinnar og hvað er talið að sú truflun sem orðið hefur á starfseminni hafi kostað?
2. Hver greiðir kostnað við nauðsynlegar breytingar á nýja húsnæðinu? Hver var heildarkostnaður við þær breytingar, sem og kostnaður fasteignasala, kostnaður við vinnu arkitekts og allur annar kostnaður við nýtt húsnæði? Nákvæm sundurliðun á kostnaði óskast.
3. Hversu mikill verður kostnaður ríkisins við hið nýja húsnæði næstu tíu árin?
4. Hvert var upphaflegt tilboð leigusala og endanleg niðurstaða á leiguverði á hvern fermetra eftir endurbætur á húsnæðinu? Hver er árlegur leigukostnaður?
5. Hvaða áhrif hefur nýtilkominn leigukostnaður á fjárlagaramma Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, hefur hann verið aukinn sem leigukostnaði nemur eða er henni ætlað að borga leiguna að hluta eða öllu leyti innan fyrri fjárlagaramma, að teknu tilliti til verðbólgu? Nákvæmar fjárhæðir óskast tilgreindar.
6. Hversu langur er leigutíminn og er leigusamningurinn uppsegjanlegur?
Skriflegt svar óskast.
133. löggjafarþing 2006–2007.
Þskj. 596 — 455. mál.
Fyrirspurn
til heilbrigðisráðherra um flutnings- og leigukostnað Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins.
Frá Ástu R. Jóhannesdóttur og Þórunni Sveinbjarnardóttur.