Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 416. máls.
133. löggjafarþing 2006–2007.
Þskj. 629  —  416. mál.




Breytingartillaga



við frv. til l. um breyt. á l. nr. 97/1987, um vörugjald, lögum nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, og lögum nr. 96/1995, um gjald af áfengi og tóbaki, með síðari breytingum.

Frá Ágústi Ólafi Ágústssyni, Jóhönnu Sigurðardóttur, Lúðvík Bergvinssyni,
Ögmundi Jónassyni, Guðjóni A. Kristjánssyni.


    Við bætist ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi:
    Fram að gildistöku laga þessara skal tryggja fjármagn til að framkvæma öflugt eftirlit með verði á matvöru. Eftir gildistöku laga þessara skal svo kannað hvort þær lækkanir opinberra gjalda sem í lögum þessum felast hafi skilað sér til neytenda í formi lægra matvöruverðs.