Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 376. máls.
133. löggjafarþing 2006–2007.
Þskj. 660  —  376. mál.




Breytingartillaga



við frv. til l. um breyt. á l. nr. 133/2005, um ráðstöfun á söluandvirði Landssíma Íslands hf.

Frá minni hluta fjárlaganefndar (JBjarn, EMS, GAK).



    C- og d-liður 1. gr. falli brott.

Greinargerð.


    Lagt er til að fallið verði frá frestun á 500 millj. kr. fjárframlagi til vega á Vestfjörðum og Norðausturlandi, þ.e. á Tröllatunguvegi um Arnkötludal og á Norðausturvegi, og peningarnir lánaðir til annarra vegaframkvæmda á þeim landsvæðum sé ekki hægt að nýta þá fjármuni beint til þeirra verkefna sem það er eyrnamerkt til á árinu 2007.