Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 468. máls.
133. löggjafarþing 2006–2007.
Þskj. 689 — 468. mál.
til iðnaðarráðherra um orkuöflun til álvera.
1. Hver er heildaraflþörf og framleiðslugeta þeirra álvera sem hugmyndir hafa komið fram um, þ.e. álvers á Bakka við Húsavík, fyrirhugaðrar stækkunar í Straumsvík, álvers í Helguvík, álvers í Þorlákshöfn og frekari stækkunar á Grundartanga, skipt niður á þrep og ár, og hvaðan á orkan að koma?
2. Hver er núverandi staða á gufuöflun fyrir fyrrgreind verkefni, mælt í MW rafmagns fyrir hvert verkefni?
3. Á hvaða svæðum er fyrirhugað að afla þeirrar orku sem á vantar og hvernig háttar til um rannsóknar- og nýtingarleyfi?
4. Er búið að staðfesta með rannsóknarborunum tilvist háhitasvæða þar sem ekki eru nú þegar komnar vinnsluholur?
5. Hvenær má vænta þess að allrar orku hafi verið aflað fyrir hvert verkefni miðað við árangur borana sem hafa nú þegar verið framkvæmdar og tengjast þessu verkefni?
6. Hve margar háhitaholur þarf að bora á hverju svæði á ári til að uppfylla núverandi óskir um framkvæmdahraða?
7. Hvaða virkjanir og álver hafa verið sett í umhverfismat?
Skriflegt svar óskast.
133. löggjafarþing 2006–2007.
Þskj. 689 — 468. mál.
Fyrirspurn
til iðnaðarráðherra um orkuöflun til álvera.
Frá Kristjáni L. Möller.