Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 276. máls.
133. löggjafarþing 2006–2007.
Þskj. 691  —  276. mál.




Frumvarp til laga



um breyting á lögum nr. 90/2003, um tekjuskatt, og lögum nr. 94/1996, um staðgreiðslu skatts á fjármagnstekjur, með síðari breytingum.

(Eftir 2. umr., 9. des.)



I. KAFLI
Breyting á lögum nr. 90/2003, um tekjuskatt, með síðari breytingum.
1. gr.

    Við 6. tölul. 3. gr. laganna bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Ákvæði þetta tekur þó ekki til tekna af leigu loftfara og skipa sem notuð eru til flutninga á alþjóðaleiðum.

2. gr.

    Við 2. tölul. A-liðar 7. gr. laganna bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Styrkir sem foreldrar eða forráðamenn barns fá frá sveitarfélagi til að annast barn heima, frá lokum fæðingarorlofs fram til þess að það hefur leikskólavistun eða grunnskólanám, teljast ekki til tekna hjá móttakanda.

3. gr.

     Við 1. tölul. A-liðar 1. mgr. 30. gr. laganna bætist nýr málsliður er hljóðar svo: Útgjöld að hámarki móttekinni fjárhæð ættleiðingarstyrks samkvæmt lögum um ættleiðingarstyrki og má frádráttur þessi aldrei vera hærri en fjárhæð styrksins.

4. gr.

    Við 3. málsl. 9. tölul. 31. gr. laganna bætist: eða aðildarríkja Evrópska efnahagssvæðisins.

5. gr.

    Í stað hlutfallstölunnar „21,75%“ í 1. tölul. 1. mgr. 66. gr. laganna kemur: 22,75%.

6. gr.

    Eftirfarandi breytingar verða á A-lið 67. gr. laganna:
     a.      Í stað fjárhæðarinnar „356.180“ í 1. mgr. kemur: 385.800.
     b.      Við 1. mgr. bætast tveir nýir málsliðir er orðast svo: Persónuafsláttur skal í upphafi hvers árs taka breytingu í réttu hlutfalli við mismun á vísitölu neysluverðs við upphaf og lok næstliðins tólf mánaða tímabils. Fjárhæð persónuafsláttar skal birta með auglýsingu fjármálaráðherra fyrir upphaf staðgreiðsluárs.

7. gr.

    Í stað fjárhæðarinnar „787“ í 1. málsl. 4. mgr. B-liðar 67. gr. laganna kemur: 834.

8. gr.

    Eftirfarandi breytingar verða á 68. gr. laganna:
     a.      Í stað tölunnar „16“ í 1. málsl. 1. mgr. og 1. málsl. 4. mgr. A-liðar kemur: 18.
     b.      Í stað fjárhæðanna „494.782“, „649.544“ og „804.304“ í 3. málsl. 3. mgr. B-liðar kemur: 524.469; 688.517; og: 852.562.
     c.      Í stað fjárhæðanna „ 4.838.005 “, „ 8.019.826 “, „169.541“, „218.042“, „280.372“ og „618“ í 4. mgr. B-liðar kemur: 4.931.043; 8.174.053; 179.713; 231.125; 297.194; og: 655.

II. KAFLI
Breyting á lögum nr. 94/1996, um staðgreiðslu skatts á fjármagnstekjur,
með síðari breytingum.

9. gr.

    Við 3. mgr. 4. gr. laganna bætist: að undanteknum arði sem úthlutað er á milli aðila sem samskattaðir eru skv. 55. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, með síðari breytingum.

III. KAFLI
Gildistaka.
10. gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi.
    Ákvæði 1. gr., 4. gr., 5. gr., a-liðar 6. gr., 7. gr., b- og c-liðar 8. gr. og 9. gr. öðlast gildi 1. janúar 2007 og koma til framkvæmda við staðgreiðslu á árinu 2007 og álagningu tekjuskatts á árinu 2008 vegna tekna ársins 2007.
    Ákvæði b-liðar 6. gr. öðlast gildi 1. janúar 2008.
     A-liður 8. gr. kemur til framkvæmda við ákvörðun barnabóta og álagningu gjalda á árinu 2007.