Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 421. máls.
133. löggjafarþing 2006–2007.
Þskj. 720 — 421. mál.
fjármálaráðherra við fyrirspurn Jóhönnu Sigurðardóttur um skatttekjur ríkis og sveitarfélaga.
1. Hver hefur verið hlutur ríkisins annars vegar og sveitarfélaga hins vegar af staðgreiðslu opinberra gjalda einstaklinga, þ.e. tekjuskatti, sérstökum tekjuskatti, fjármagnstekjuskatti og útsvari, sl. fimm ár miðað við verðlag 2006, sýnt bæði í milljörðum kr. og sem hlutfall af heildarskatttekjum af staðgreiðslunni?
Í töflu 1 er sýnd álagning umbeðinna skatta hjá ríkisskattstjóra fyrir viðkomandi álagningarár en það miðast við tekjur ársins á undan. Ekki er mögulegt að veita upplýsingar um þessa skatta í staðgreiðslu, eða sem hlutfall af henni, m.a. vegna þess að sérstakur tekjuskattur var ekki innheimtur í staðgreiðslu og fjármagnstekjuskattur er það ekki heldur. Hér er um að ræða upplýsingar um álagningu eins og hún kemur fram gagnvart einstaklingunum sjálfum en hluti persónuafsláttar nýtist til að greiða útsvar. Í þeim hluta töflunnar sem sýnir skatta á föstu verðlagi er reiknað á verðlagi ársins 2005 en upplýsingar um meðaltalsverðlag ársins 2006 liggja ekki fyrir.
2. Hverjar væru tekjur ríkis og sveitarfélaga af staðgreiðslu opinberra gjalda árið 2006 ef hlutfallsskipting væri sú sama og árið 2002?
Hlutfallsleg skipting milli stjórnsýslustiga sést í neðri hluta töflu 1. Ef hlutföllum álagningarársins 2002 er beitt á 153 milljarða álagða tekjuskatta ársins 2006 kæmi 71 milljarður kr. í hlut ríkisins en 82 milljarðar kr. í hlut sveitarfélaga.
3. Hvert er hlutfall fjármagnstekjuskatts einstaklinga af staðgreiðslu opinberra gjalda sl. fimm ár og hver eru hlutföllin í öðrum löndum OECD?
Tafla 2: Hlutfall fjármagnstekjuskatts af tekjusköttum einstaklinga eftir álagningarárum.
Fjármagnstekjur eru skattlagðar með mjög mismunandi hætti í aðildarríkjum OECD. Yfirleitt skiptir uppruni fjármagnsteknanna máli, hvort um er að ræða leigutekjur, vexti, arð eða hagnað af sölu eigna svo sem verðbréfa, hlutabréfa og annarra eigna. Ekki eru tiltækar sambærilegar upplýsingar fyrir aðildarríki OECD um skattlagningu þeirra þátta sem mynda skattstofn fjármagnstekjuskatts hér á landi og raunar takmarkaðar upplýsingar um skattlagningu þeirra fjármagnstekna sem hægt er að greina frá öðrum tekjum.
4. Hve háir skattar eru greiddir af fjármagnstekjum í öðrum löndum OECD? Óskað er eftir upplýsingum um eftirfarandi:
a. skatta einstaklings með
1. launatekjur 2.500.000 kr. og fjármagnstekjur 100.000 kr.,
2. launatekjur 100.000 kr. og fjármagnstekjur 2.500.000 kr.,
3. launatekjur 5.000.000 kr. og fjármagnstekjur 250.000 kr.,
4. launatekjur 250.000 kr. og fjármagnstekjur 5.000.000 kr.,
b. skatta hjóna með
1. launatekjur 7.500.000 kr. og fjármagnstekjur 750.000 kr.,
2. launatekjur 750.000 kr. og fjármagnstekjur 7.500.000 kr.,
3. launatekjur 100.000 kr. og fjármagnstekjur 10.000.000 kr.,
4. launatekjur 10.000.000 kr. og fjármagnstekjur 100.000 kr.
Eins og kemur fram í svari við 3. lið fyrirspurnarinnar eru mjög mismunandi reglur um skattlagningu fjármagnstekna einstaklinga í aðildarríkjum OECD. Hið sama gildir um skattlagningu annarra tekna. Þá er almennt launastig mjög mismunandi. Því er ógerlegt að reikna út skatta fyrir mismunandi aðildarríki samtakanna og niðurstaðan væri algerlega ósambærileg milli landa þótt hún lægi fyrir.
5. Hver er skoðun ráðherra á því að sveitarfélögin fái hlutdeild í fjármagnstekjuskatti?
Sveitarfélög fá nú þegar hlutdeild í fjármagnstekjuskatti, svo og öðrum skattstofnum ríkisins, í gegnum framlög ríkisins til Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga en til hans rennur lögákveðið hlutfall af öllum skatttekjum ríkisins.
133. löggjafarþing 2006–2007.
Þskj. 720 — 421. mál.
Svar

Tafla 1: Álagning tekjuskatts, sérstaks tekjuskatts, fjármagnstekjuskatts
og útsvars á einstaklinga álagningarárin 2002–2006 í millj. kr.
| 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | ||
| Til ríkisins | 48.437 | 51.186 | 55.899 | 65.910 | 75.347 | |
| Til sveitarfélaga | 56.046 | 59.995 | 63.043 | 69.048 | 77.707 | |
| 104.483 | 111.181 | 118.941 | 134.957 | 153.053 | ||
| Hlutfallsleg skipting | ||||||
| Ríki | 46,4% | 46,0% | 47,0% | 48,8% | 49,2% | |
| Sveitarfélög | 53,6% | 54,0% | 53,0% | 51,2% | 50,8% | |
| Samtals | 100,0% | 100,0% | 100,0% | 100,0% | 100,0% | |
| Á verðlagi 2005 miðað við tekjuár | ||||||
| Til ríkisins | 55.666 | 56.130 | 60.030 | 68.579 | 75.347 | |
| Til sveitarfélaga | 64.411 | 65.789 | 67.702 | 71.844 | 77.707 | |
| Vísitala (VNV) fyrir tekljuár | 212,4 | 222,6 | 227,3 | 234,6 | 244,1 | |
2. Hverjar væru tekjur ríkis og sveitarfélaga af staðgreiðslu opinberra gjalda árið 2006 ef hlutfallsskipting væri sú sama og árið 2002?
Hlutfallsleg skipting milli stjórnsýslustiga sést í neðri hluta töflu 1. Ef hlutföllum álagningarársins 2002 er beitt á 153 milljarða álagða tekjuskatta ársins 2006 kæmi 71 milljarður kr. í hlut ríkisins en 82 milljarðar kr. í hlut sveitarfélaga.
3. Hvert er hlutfall fjármagnstekjuskatts einstaklinga af staðgreiðslu opinberra gjalda sl. fimm ár og hver eru hlutföllin í öðrum löndum OECD?
Tafla 2: Hlutfall fjármagnstekjuskatts af tekjusköttum einstaklinga eftir álagningarárum.
| 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | |
| Hlutfall fjármagnstekjuskatts af tekjusköttum | 4,0% | 4,1% | 5,4% | 5,6% | 8,0% |