Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 228. máls.
133. löggjafarþing 2006–2007.
Þskj. 726 — 228. mál.
utanríkisráðherra við fyrirspurn Rannveigar Guðmundsdóttur og Jóns Kristjánssonar um norðurskautsmál.
1. Hvaða aðgerðum hefur ríkisstjórnin beitt sér fyrir eða hyggst beita sér fyrir til að framfylgja ACIA-stefnuskjalinu um loftslagsbreytingar frá fundi Norðurskautsráðsins í Reykjavík í nóvember 2004?
Stefnuskjalið byggist á yfirgripsmikilli vísindaskýrslu um áhrif loftslagsbreytinga á norðurslóðum (ACIA), sem unnin var á vegum Norðurskautsráðsins þegar Ísland fór með formennsku í ráðinu á árunum 2002–2004. Ísland hafði þá forystu um samantekt stefnuskjalsins, en í því endurspeglast samstaða allra aðildarríkja Norðurskautsráðsins um aukna áherslu á loftslagsrannsóknir á norðurslóðum og mikilvægi aðlögunar að áhrifum loftslagsbreytinga, auk þess sem hvatt var til ráðstafana til að draga úr slíkum áhrifum.
Íslensk stjórnvöld hafa lagt sig fram um að framfylgja markmiðum ACIA-stefnuskjalsins. Þetta kemur m.a. fram í viðleitni stjórnvalda til að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda á grundvelli Kyoto-bókunarinnar við Loftlagssamning Sameinuðu þjóðanna. Nýting innlendra orkugjafa hefur verið aukin með það fyrir augum að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda, unnið er að bindingu gróðurhúsalofttegunda með landgræðslu og skógrækt, auk þess sem rannsakaðir hafa verið möguleikar á slíkri bindingu beint í jarðvegi með nýrri tækni.
Íslendingar eru í forystu við nýtingu endurnýjanlegra orkugjafa, sem sjá fyrir meira en 70 af hundraði allrar orkunotkunar landsmanna, langt umfram þær þjóðir sem næstar koma. Jarðhiti er notaður til að hita um 88% alls húsrýmis á Íslandi og reynslu Íslendinga á sviði jarðhitanýtingar er miðlað til annarra ríkja með starfi Jarðhitaskóla Sameinuðu þjóðanna og með þátttöku í jarðhitaverkefnum erlendis.
Áhersla hefur jafnframt verið lögð á að kanna leiðir til að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda með aðgerðum á sviði orkunýtingar og orkutækni, þar á meðal þróun vetnistækni, sem gera mundi Íslendingum kleift að nýta hreina innlenda frumorkugjafa í samgöngum. Ísland er stofnaðili að Alþjóðavetnisvettvangnum (IPHE) og frumkvöðlaverkefni á sviði vetnisnýtingar á Íslandi hafa vakið alþjóðlega athygli. Ísland hefur haft frumkvæði á alþjóðavettvangi að umfjöllum um þýðingu þessara tækninýjunga fyrir þróunarríki. Haldin var alþjóðaráðstefna um sjálfbæra orkunýtingu í þróunarríkjum með áherslu á jarðhita og vetnistækni í september 2006, sem utanríkisráðuneyti stóð að ásamt iðnaðarráðuneyti og umhverfisráðuneyti í samvinnu við efnahags- og félagsmálaskrifstofu Sameinuðu þjóðanna (DESA) og IPHE.
Aðlögun á Íslandi að áhrifum loftslagsbreytinga hefur fyrst og fremst falist í ströngum byggingarkröfum til hafnarmannvirkja sem hönnuð eru með tilliti til hugsanlegar hækkunar sjávarmáls og vaxandi óstöðugleika veðurfars sem kann að tengjast loftslagsbreytingum. Aðlögun útheimtir jafnframt frekari rannsóknir á líklegum afleiðingum loftslagsbreytinga í okkar heimshluta. Nokkur þeirra íslensku rannsóknaverkefna sem tengjast Alþjóðlega heimskautaárinu 2007–2008 snúa að loftslagsbreytingum, en utanríkisráðuneytið stýrir starfi hinnar íslensku undirbúningsnefndar ársins.
Umhverfisráðuneytið tók saman að beiðni Vísinda- og tækniráðs árið 2005 yfirlit um framkvæmd loftslagssamningsins, rannsóknir og möguleika sem í honum felast fyrir íslenskt þekkingarsamfélag. Þar kemur fram að íslenskir vísindamenn og háskólastofnanir taka þátt í fjölmörgum alþjóðlegum rannsóknar- og samstarfsverkefnum sem tengjast loftslagsbreytingum á norðurslóðum. Vestnorræn rannsókn á afleiðingum loftslagsbreytinga á endurnýjanlegar orkulindir er dæmi um slíkt rannsóknarverkefni, en niðurstöður hennar voru kynntar á ráðstefnu í Reykjavík sumarið 2006.
Rannsóknir þessar snúa ekki síst að nánasta umhverfi Íslendinga, þar sem talið er hugsanlegt að breytingar í straumakerfi kunni að valda tímabundinni kólnun. Haldin var ráðstefna í september 2006 um sambandið á milli loftslagsbreytinga og hafstauma í norðurhluta Norður-Atlantshafs og áhrif þeirra á vistkerfi hafsins, sem umhverfisráðuneytið stóð að í samvinnu við utanríkisráðuneytið, sjávarútvegsráðuneytið og menntamálaráðuneytið. Í kjölfar hennar var ákveðið að efna til norrænnar samvinnu um gerð loftslagslíkana sem byggi á þekkingu og rannsóknum á straumakerfinu í Norður-Atlantshafi.
Þá má nefna skýrslu sem utanríkisráðuneytið gaf út árið 2005 undir heitinu „Fyrir stafni haf“ um siglingaþróun á norðurslóðum í tengslum við loftslagsbreytingar og aukna sókn í auðlindir norðursins. Skýrslunni verður fylgt eftir með alþjóðlegri ráðstefnu á Akureyri í mars 2007. Ísland hefur jafnframt fylgt ACIA-stefnuskjalinu eftir á vettvangi Norðurskautsráðsins með þátttöku í fjölmörgum verkefnum á sviði loftslagsmála og stuðningi við skrifstofurekstur tveggja vinnuhópa ráðsins á Akureyri.
2. Hafa verið eða munu verða veittir fjármunir til að tryggja að fylgst verði áfram með loftslagsbreytingum og mengunaráhrifum á norðurslóðum?
Fylgst er með loftslagsbreytingum og mengunaráhrifum á norðurslóðum á margvíslegan hátt og er ógjörlegt að gera fulla grein fyrir fjárveitingum til rannsókna á þeim. Sé einungis litið til starfsemi á vettvangi Norðurskautsráðsins felst framlag Íslands m.a. í að leggja til aðstöðu og stóran hluta rekstrarfjár fyrir skrifstofur tveggja starfshópa, um vernd gróðurs og dýraríkis á norðlægum slóðum (CAFF) og vernd vistkerfis hafsins (PAME). Framlög til þessara skrifstofa nema í fjárlögum fyrir árið 2007 samtals 17,9 millj. kr. Að auki tekur Ísland þátt í starfsemi fleiri starfshópa Norðurskautsráðsins, sem allir vinna að meira eða minna leyti að verkefnum tengdum loftslagsbreytingum og mengunarvörnum á norðurslóðum. Kostnaður er vegna þátttöku Íslands í þessu starfi sem skiptist á ýmsar stofnanir og ráðuneyti og hefur því ekki verið sérstaklega tekinn saman.
Mengunarvöktun hefur verið stunduð í hafinu umhverfis Ísland um langt árabil, þótt ekki væri litið á hana sem sérstakt framlag til samstarfs á norðurslóðum. Hið sama er að segja um veðurrannsóknir og hafísvöktun sem er fastur liður í starfi Veðurstofunnar. Í raun snertir stór hluti allra rannsókna á Íslandi, sem tengjast legu landsins, náttúruskilyrðum, lífríki og öðrum umhverfisþáttum, loftslagsbreytingum á norðurslóðum með einum eða öðrum hætti. Ekki eru því forsendur til að áætla sérstaklega kostnað vegna rannsókna á áhrifum loftslagbreytinga eða mengunarvöktunar, enda eru þessi viðfangsefni óaðskiljanleg frá starfsemi stofnana á borð við Hafrannsóknastofnunina, Veðurstofu Íslands, Orkustofnun, Náttúrufræðistofnun Íslands, Geislavarnir ríkisins o.fl.
3. Hvað hefur ríkisstjórnin gert til að hrinda í framkvæmd „mati á siglingum á Norðurheimskautssvæðinu“ (The Arctic Marine Shipping Assessment) sem samþykkt var á fundi Norðurskautsráðsins í nóvember 2004?
Íslendingar voru meðal hvatamanna að ákvörðun Norðurskautsráðsins um siglingamat á norðurheimskautssvæðinu (AMSA). Siglingastofnun hefur annast þátttöku Íslands í starfshópi sem vinnur að AMSA á vegum starfshóps Norðurskautsráðsins um vernd vistkerfis hafsins (PAME). Markmið hans er m.a. að kanna þörf á endurskoðun á viðeigandi reglum og samþykktum til að auka öryggi siglinga á norðurslóðum.
Siglingamatið skiptist í átta verkhluta og á því að vera lokið fyrir næsta ráðherrafund Norðurskautsársins árið 2008. Þeir snúa m.a. að yfirliti yfir núverandi umfang siglinga á norðurskautssvæðinu, mati á framtíðarþróun næstu áratugi, umhverfisáhrifum þeirra og þýðingu fyrir efnahags- og félagslega þróun á svæðinu. Kostnaður vegna verkefnisins á árunum 2005–2006 er áætlaður um tvær milljónir króna.
Utanríkisráðuneytið stendur að alþjóðlegri ráðstefnu sem mun tengjast vinnu AMSA- hópsins dagana 27.–28. mars nk. á Akureyri. Viðfangsefni ráðstefnunnar verður siglingaþróun á norðurslóðum og möguleg opnun nýrrar flutningaleiðar þvert yfir Norður-Íshafið.
4. Hvaða alþjóðasamningar snerta málefni norðurskautsins? Hefur Ísland ekki skrifað undir eða fullgilt einhverja þeirra? Ef svo er, hvaða ástæður liggja þar til grundvallar?
Ólíkt því sem við á um suðurskautssvæðið mælir enginn einn alþjóðasamningur fyrir um starfsemi ríkja á norðurskautssvæðinu. Sameininlegur samráðsvettvangur, Norðurskautsráðið, samhæfir störf hlutaðeigandi ríkja og frumbyggjasamfélaga á svæðinu, en tekst ekki á hendur lagalega samningsgerð.
Fjöldi alþjóðasamninga snertir hins vegar málefni norðurskautsins á einn eða annan hátt, þar á meðal á sviði umhverfisvöktunar, náttúrufars og mengunarvarna. Starf Norðurskautsráðsins snýr m.a. að framkvæmd þessara samninga í því skyni að takmarka umhverfisspjöll af mannavöldum og efla viðbúnað gegn umhverfisslysum á norðurslóðum í tengslum við auðlindanýtingu og vaxandi umferð á sjó og landi.
Meðal þeirra alþjóðasamninga sem sérstaka þýðingu hafa fyrir norðurskautssvæðið má nefna: Samning um loftmengun sem berst langar leiðir (Long-Range Transboundary Air Pollution), Samning um verndun Norðaustur-Atlantshafsins (OSPAR), ýmsa samninga Alþjóðasiglingamálastofnunarinnar (IMO), sem snúa að losun spilliefna frá skipum, öryggisbúnaði skipa og hönnun, auk þess sem Hafréttarsamningur Sameinuðu þjóðanna hefur augljósa þýðingu fyrir norðurskautssvæðið í heild sinni.
Tekið er mið af mikilvægi samninga fyrir Ísland við forgangsröðun til staðfestingar og bíða nokkrir staðfestingar. Margir tvíhliða samningar eiga einnig við um málefni norðurslóða, m.a. samningar um skiptingu hafsvæða milli nágrannaríkja og um fiskveiðar.
5. Hvert er framlag Íslands til Alþjóðlega heimskautaársins 2007–2008 og hvaða fjármunum verður varið í það verkefni?
Þátttaka Íslendinga í Alþjóðlega heimskautaárinu 2007–2008 er með margvíslegum hætti. Íslenskir vísindamenn og fræðimenn eiga aðild að yfir sextíu verkefnatillögum eða verkefnaþáttum sem tengjast hartnær 230 verkefnum sem hlotið hafa viðurkenningu undirbúningsnefndar Alþjóðlega heimskautaársins.
Starfandi er íslensk heimskautaársnefnd undir forystu utanríkisráðuneytisins með fulltrúum menntamálaráðuneytisins, umhverfisráðuneytisins, Hafrannsóknastofnunarinnar, Orkustofnunar, Háskóla Íslands, RANNÍS og Stofnunar Vilhjálms Stefánssonar, jafnframt því sem fulltrúar Veðurstofunnar og Náttúrufræðistofnunar hafa sótt fundi nefndarinnar. Nefndin sér um að undirbúa og samhæfa þátttöku Íslendinga í heimskautaárinu, en veitir ekki fé til einstakra verkefna. Nefndin mun jafnframt sjá um að kynna Alþjóðlega heimskautaárið hér á landi og íslensk heimskautaársverkefni. Í því skyni hefur verið opnuð íslensk heimskautaárssíða á veraldarvefnum (www.ipy.is) í tengslum við norðurslóðagáttina (arcticportal.org) sem Íslendingar eru að þróa í samvinnu við Norðurskautsráðið, Háskóla norðursins og fleiri. Íslenska heimskautaársnefndin hefur jafnframt beint því til Vísinda- og tækniráðs að það beiti sér fyrir því að fjárveitingar til ráðsins taki m.a. mið af Alþjóðlega heimskautaárinu.
Ólíklegt er að öllum verkefnatillögunum sem Íslendingar eiga aðild að verði hrint í framkvæmd. Nokkur verkefni eru þó vel á veg komin, sérstaklega þau sem fela í sér rannsóknir eða starfsemi sem þegar hefur verið fjármögnuð sem liður í almennri rannsóknar- eða vöktunarstarfsemi viðkomandi stofnana. Mörg verkefnanna njóta einnig stuðnings að utan, enda er alþjóðleg samvinna skilyrði fyrir viðurkenningu þeirra sem verkefna Alþjóðlega heimskautaársins.
Stefnt er að kynningu íslenskra heimskautaársverkefna við formlegt upphaf heimskautaársins 1. mars 2007 með sérstakri heimskautaárskynningu á norðurslóðagáttinni, sem hlotið hefur viðurkenningu sem heimskautaársverkefni. Gerður hefur verið samstarfssamningur við skrifstofu Alþjóðlega heimskautaársins um að norðurslóðagáttin verði notuð sem vettvangur fyrir heimskautaárið og heimskautaársverkefni. Þar verði aðgangur að vinnusvæðum verkefnanna og þar verði niðurstöður þeirra kynntar. Utanríkisráðuneytið hefur veitt þriggja milljóna króna styrk til þess að norðurslóðagáttin geti gegnt þessu hlutverki, auk þess sem Vaxtarsamningur Eyjafjarðar og Akureyrarbær hafa styrkt þróun vefgáttarinnar sem vistuð er hjá Háskólanum á Akureyri. Til athugunar er að halda heimskautaársráðstefnu hér á landi árið 2008 þar sem heimskautaársverkefnin verði kynnt og niðurstöður þeirra ræddar.
6. Hvernig mun Ísland styðja Háskóla norðurslóða og árangursríkt starf hans til framtíðar?
Íslendingar hafa tekið þátt í starfi Háskóla norðurslóða, og styrkt það á margvíslegan hátt. Háskólinn á Akureyri og Stofnun Vilhjálms Stefánssonar tóku þátt í stofnun Háskóla norðurslóða árið 1998. Síðan hafa Kennaraháskóli Íslands, Háskólasetur Vestfjarða og Háskólinn á Bifröst gengið til liðs við þær hundrað háskóla- og rannsóknastofnanir í ellefu löndum sem nú eiga aðild að skólanum og aðild Háskóla Íslands er í undirbúningi.
Ísland hefur tekið þátt í nemendaskiptaáætlun Háskóla norðurslóða (N2N), sem Háskólinn á Akureyri hefur haft umsjón með. Menntamálaráðuneytið studdi hana með sérstakri fjárveitingu sem nam samtals 6 millj. kr. samkvæmt fjárlögum fyrir 2003–2005, þ.e. tveimur milljónum á ári. Kostnaður vegna þessara nemendaskipta árið 2006 var að hluta tekinn af rekstrarfé skólans og að hluta fjármagnaður með stuðningi frá útlöndum.
Unnið er að því fjölga námskeiðum og námsbrautum í norðurslóðafræðum á Íslandi í samvinnu við Háskóla norðurslóða. Þannig hefur ríkisstjórnin ákveðið að veita 8 millj. kr. til að koma á fót námi í heimskautarétti við Háskólann á Akreyri sem hefjist árið 2007 með áherslu á umhverfis-, auðlinda- og hafrétt, réttindi minnihluta og frumbyggjarétt sem og landsrétt þjóða á heimskautasvæðinu.
133. löggjafarþing 2006–2007.
Þskj. 726 — 228. mál.
Svar