Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 498. máls.
133. löggjafarþing 2006–2007.
Þskj. 753  —  498. mál.




Fyrirspurn



til dómsmálaráðherra um söfnunarkassa og happdrættisvélar.

Frá Rannveigu Guðmundsdóttur og Ögmundi Jónassyni.



     1.      Hverjar voru brúttótekjur Íslandsspila sf. og Happdrættis Háskóla Íslands af söfnunarkössum og happdrættisvélum árin 2004, 2005 og 2006?
     2.      Hver voru heildarrekstrargjöld hvors fyrirtækis á þessum árum?
     3.      Hverjar voru heildarvinningsfjárhæðir hvors fyrirtækis sömu ár?
     4.      Hverjar voru tekjur hvors fyrirtækis að frádregnum vinningum og kostnaði?


Skriflegt svar óskast.