Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 260. máls.
133. löggjafarþing 2006–2007.
Þskj. 786  —  260. mál.




Svar



viðskiptaráðherra við fyrirspurn Katrínar Júlíusdóttur um líf- og sjúkdómatryggingar.

    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     1.      Hversu mörgum var synjað um líf- og/eða sjúkdómatryggingu hjá íslenskum tryggingafélögum á árunum 2000–2005, sundurliðað eftir árum og tegund trygginga?
     2.      Hversu mörgum, sundurliðað á sama hátt, hefur verið gert að greiða álag á iðgjöld líf- og/eða sjúkdómatrygginga hjá íslenskum tryggingafélögum vegna:
                  a.      heilsufarssögu tryggingataka,
                  b.      metinnar áhættu vegna heilsufarsupplýsinga um nána fjölskyldumeðlimi tryggingataka?


    Upplýsingar til grundvallar svari við fyrirspurninni liggja ekki hjá viðskiptaráðuneytinu og því var leitað til þeirra fjögurra innlendu líftryggingafélaga sem hafa starfsleyfi hafa samkvæmt lögum um vátryggingastarfsemi eftir þeim.
    Svör bárust frá þremur félaganna. Í svari eins þeirra kom fram að félagið ætti ekki á tölvutæku formi sundurgreindar upplýsingar um þau atriði sem fyrirspurnin varðar. Einungis tvö fyrirtæki gáfu því umbeðnar upplýsingar.
    Í svari annars þeirra kemur fram varðandi 1. lið fyrirspurnarinnar að þótt upplýsingar um fjölda synjana sé að finna í tölvukerfum félagsins sé ekki hægt að gefa upp hinar margvíslegu ástæður höfnunar þar sem þær upplýsingar séu ekki skráðar með rekjanlegum hætti. Mat félagsins er að því sé hvorki heimilt að gefa slíkar upplýsingar né hafi þær gildi nema hægt sé að greina ástæður synjunar. Einnig er álitamál, að mati félagsins, hvort slíkar tölur, væru þær greinanlegar, hefðu eitthvert gildi einar og sér og hvort ekki þyrfti að tengja þær fjölda umsókna á sama tímabili.
    Varðandi 2. lið fyrirspurnarinnar kemur fram að í kerfum félagsins sé hægt að sjá hve margir vátryggingartakar hafa í gildi vátryggingar með iðgjaldshækkun. Rekjanleiki sé hins vegar ekki fyrir hendi þannig að ekki sé hægt að sjá ástæður hækkunarinnar, þ.e. hvort hún er vegna heilsufarssögu, álags vegna séráhættu, svo sem fjallaklifurs, svifflugs, lífsmáta eða þyngdar, eða af öðrum orsökum. Þá sé heldur ekki til skrá um það hjá félaginu hve margir hafa fengið tilboð um vátryggingu með iðgjaldshækkun en ekki þegið.
    Í niðurlagi svarsins eru áréttuð þau meginsjónarmið sem liggja að baki þess vinnulags, verkferla og skráningar á upplýsingum sem félaginu berast. Kemur þar fram að ástæða þess að upplýsingum sem aflað er við tryggingatöku sé ekki haldið til haga sé tvíþætt. Annars vegar sú að erfitt sé að sjá hvernig slík skráning ætti að nýtast félaginu, hver umsókn fái einstaklingsbundna meðferð og afgreiðsla félagsins miðist við vinnureglur og upplýsingar sem gefnar séu á umsókn. Hin ástæðan sé sú að félagið telji sig ekki hafa heimild til að skrá slíkar upplýsingar þannig að byggja megi upp gagnagrunn um fjölskyldusögu sem nýta mætti við áhættumat. Þessu til áréttingar tekur félagið fram að þegar spurt er um heilsufar fjölskyldumeðlima sé ekki spurt þannig að rekjanlegt sé, t.d. með skráningu nafna eða kennitalna, heldur er því treyst að vátryggingartaki veiti réttar upplýsingar.
    Svar hins félagsins var í töfluformi en þar kemur fram að fyrsta heila árið sem félagið hefur aðgengilegar upplýsingar um sé 2005 og því er það eina árið sem upplýsingarnar miðast við. Enn fremur kemur fram að félagið hafi ekki skráðar upplýsingar um ástæðu fyrir álagi á iðgjöld. Í svari félagsins koma fram eftirfarandi upplýsingar um hlutfall þeirra sem synjað var líftryggingar og hlutfall þeirra sem eru með tryggingu í gildi 29.11.2006, með álag á iðgjaldið:
     –      Hlutfall þeirra sem var synjað um líftryggingu af þeim umsóknum sem mótteknar voru af félaginu árið 2005 var 4,3%;
     –      hlutfall þeirra sem var synjað um sjúkdómatryggingu af þeim umsóknum sem mótteknar voru af félaginu árið 2005 var 5,6%;
     –      hlutfall þeirra sem eru með líftryggingu í gildi 29.11.2006 og eru með álag á iðgjaldið er 8%;
     –      hlutfall þeirra sem eru með sjúkdómatryggingu í gildi 29.11.2006 og eru með álag á iðgjaldið er 7,24%.