Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 529. máls.
til félagsmálaráðherra um stöðu miðaldra og eldra fólks á vinnumarkaði, uppsagnir og sveigjanleg starfslok.
1. Hvernig metur ráðherra stöðu miðaldra og eldra fólks á vinnumarkaði með sérstöku tilliti til atvinnuöryggis, samkeppnishæfni og möguleika á sí- og endurmenntun?
2. Er langtímaatvinnuleysi algengara hjá miðaldra og eldra fólki en þeim sem yngri eru og ef svo er, hvaða úrræði sér ráðherra til að bæta úr því?
3. Hver er afstaða ráðherra til þess að ætíð sé skylt að rökstyðja uppsögn starfsmanns?
4. Hvað hefur ríkisstjórnin aðhafst til að auðvelda sveigjanleg starfslok?
Skriflegt svar óskast.
Rannsóknir erlendis hafa sýnt fram á að þeir sem missa vinnu eftir miðjan aldur eiga á hættu að vera þar með útilokaðir frá vinnumarkaði. Á sama þróun sér stað hér á landi í stöðugt harðnandi samkeppni á vinnumarkaði, þar sem sterk krafa margra fyrirtækja í ímyndarsköpun er að tefla fram ungu fólki og eldra fólk með langan starfsaldur fær uppsögn í starfi án rökstuðnings? Í samþykkt Alþjóðavinnumálastofnunarinnar frá 2. júní 1982 segir: „Eigi skal starfsmanni sagt upp starfi nema til uppsagnar sé gild ástæða í sambandi við hæfni eða hegðun starfsmanns, eða hún sé byggð á rekstrarlegum ástæðum fyrirtækisins, stofnunarinnar eða þjónustunnar.“
Verkalýðshreyfingin hefur án árangurs reynt að fá þessa samþykkt innleidda í íslenska vinnulöggjöf. Nauðsynlegt er að stjórnvöld og aðilar vinnumarkaðarins komi hér að stefnumótun þar sem áhersla verði lögð á að styrkja samkeppnisstöðu eldra fólks á vinnumarkaði og auka möguleika á sveigjanlegum starfslokum. Mikilvægt er að meira fé verði veitt til starfs- og endurmenntunarsjóða og að í boði verði endurmenntun á vinnutíma og sveigjalegur vinnutími. Aldurssamsetning þjóðarinnar er að breytast og færri standa undir rekstri þjóðarbúsins, svo mikilvægt er að eldra fólki sé gert kleift að vera á vinnumarkaði sem lengst og það fái tækifæri til aðlagast breytingum í atvinnulífinu til jafns við yngra fólk.
133. löggjafarþing 2006–2007.
Prentað upp.
Þskj. 798 — 529. mál.
Skriflegt svar.
Fyrirspurn
til félagsmálaráðherra um stöðu miðaldra og eldra fólks á vinnumarkaði, uppsagnir og sveigjanleg starfslok.
Frá Lilju Rafneyju Magnúsdóttur.
1. Hvernig metur ráðherra stöðu miðaldra og eldra fólks á vinnumarkaði með sérstöku tilliti til atvinnuöryggis, samkeppnishæfni og möguleika á sí- og endurmenntun?
2. Er langtímaatvinnuleysi algengara hjá miðaldra og eldra fólki en þeim sem yngri eru og ef svo er, hvaða úrræði sér ráðherra til að bæta úr því?
3. Hver er afstaða ráðherra til þess að ætíð sé skylt að rökstyðja uppsögn starfsmanns?
4. Hvað hefur ríkisstjórnin aðhafst til að auðvelda sveigjanleg starfslok?
Skriflegt svar óskast.
Greinargerð.