Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 346. máls.
133. löggjafarþing 2006–2007.
Þskj. 820  —  346. mál.




Svar



fjármálaráðherra við fyrirspurn Sigurjóns Þórðarsonar um tekjur af olíu- og kílómetragjaldi.

    Fyrirspurnin hljóðar svo:
    Hvað er áætlað að olíu- og kílómetragjald á bifreiðar sem vega meira en 10.000 kg skapi ríkissjóði miklar tekjur á árinu 2005 og hverjar eru tekjurnar áætlaðar á árinu 2006?

    Olíu- og kílómetragjald er lagt á samkvæmt lögum nr. 87/2004 sem komu til framkvæmda í júlí 2005. Kílómetragjald er lagt á eftirfarandi ökutæki:
     1.      Bifreiðar sem skráðar eru hér á landi sem eru 10.000 kg eða meira að leyfðri heildarþyngd, þó ekki af bifreiðum sem ætlaðar eru til fólksflutninga.
     2.      Eftirvagna sem skráðir eru hér á landi og eru 10.000 kg eða meira að leyfðri heildarþyngd.
     3.      Bifreiðar og eftirvagna, sem skráð eru erlendis og flutt hingað til lands.
    Kílómetragjaldið fer eftir leyfðri heildarþyngd ökutækisins og er frá 0,29 kr./km til 12,89 kr./km. Eins og nafnið bendir til er gjaldið í réttu hlutfalli við akstursvegalengd, enda er tilgangur gjaldsins aðallega að greiða fyrir það slit á vegakerfi landsins sem þessi ökutæki valda.
    Samkvæmt upplýsingum frá ríkisskattstjóra námu tekjur ríkissjóðs af kílómetragjaldi á bifreiðar 473,8 millj. kr. árið 2005 en gjaldtaka þess hófst á miðju því ári. Árið 2006 er áætlað að tekjurnar af kílómetragjaldi á bifreiðar nemi 1.029,0 millj. kr. Báðar tölurnar eru á rekstrargrunni.
    Olíugjald er hluti af útsöluverði ólitaðrar dísilolíu og nemur 41 kr. á hvern lítra. Ekki er haldið sérstaklega utan um sölu á dísilolíu til bifreiða sem vega meira en 10.000 kg.