Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 498. máls.
133. löggjafarþing 2006–2007.
Þskj. 828 — 498. mál.
dómsmálaráðherra við fyrirspurn Rannveigar Guðmundsdóttur og Ögmundar Jónassonar um söfnunarkassa og happdrættisvélar.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
1. Hverjar voru brúttótekjur Íslandsspila sf. og Happdrættis Háskóla Íslands af söfnunarkössum og happdrættisvélum árin 2004, 2005 og 2006?
2. Hver voru heildarrekstrargjöld hvors fyrirtækis á þessum árum?
3. Hverjar voru heildarvinningsfjárhæðir hvors fyrirtækis sömu ár?
4. Hverjar voru tekjur hvors fyrirtækis að frádregnum vinningum og kostnaði?
Leitað var eftir upplýsingum frá Íslandsspilum (sem hétu áður Íslenskir söfnunarkassar) og Happdrætti Háskóla Íslands vegna fyrirspurnarinnar. Byggjast meðfylgjandi tölur á upplýsingum frá þeim og sýna afkomu samkvæmt endurskoðuðum ársreikningum.
Ekki reyndist unnt að fá tölur fyrir árið 2006.
Vakin er athygli á að þeir peningar sem spilað er fyrir í vélum og kössum og eru greiddir út á staðnum, þ.e. úr tækjunum, eru ekki innleystir sem tekjur í bókhaldi, né eru vinningar gjaldfærðir. Því er ekki unnt að veita svar við 3. tölul. fyrirspurnarinnar um heildarvinningsfjárhæðir, nema hvað varðar greiðslu vinninga úr vélum Happdrættis Háskóla Íslands sem eru 50.000 kr. og hærri, þar með talinn gullpottur Gullnámunnar. Upplýsingarnar um Happdrætti Háskóla Íslands taka einungis til þess hluta starfseminnar sem lýtur að rekstri happdrættisvéla.
133. löggjafarþing 2006–2007.
Þskj. 828 — 498. mál.
Svar

| Íslandsspil | Happdrætti HHÍ | ||
| Tekjur: | |||
| 2004 | 1.278.000.000 kr. | 1.874.000.000 kr. | |
| 2005 | 1.392.000.000 kr. | 2.374.700.000 kr. | |
| Heildarrekstrargjöld: * | |||
| 2004 | 421.000.000 kr. | 841.200.000 kr. | |
| 2005 | 484.000.000 kr. | 1.146.700.000 kr. | |
| Vinningar: | |||
| 2004 | 504.600.000 kr. | ||
| 2005 | 590.600.000 kr. | ||
| Tekjur til ráðstöfunar: | |||
| 2004 | 857.000.000 kr. | 528.200.000 kr. | |
| 2005 | 908.000.000 kr. | 637.400.000 kr. | |
| *Einkaleyfisgjald meðtalið. | |||