Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 467. máls.
133. löggjafarþing 2006–2007.
Þskj. 855 — 467. mál.
heilbrigðisráðherra við fyrirspurn Þuríðar Backman um tóbaksvarnir.
1. Hver var fjárhæð sérstaks tóbaksgjalds skv. 9. gr. laga nr. 18/2003, sem Lýðheilsustöð fékk frá stofnun hennar árið 2003 til ársins 2006, skipt eftir árum?
Umfang tóbaksvarna takmarkast af fjárheimildum, sem samkvæmt lögum eru 0,9% af brúttósölu tóbaks. Í töflunni hér á eftir má sjá brúttósölu tóbaks, upphæð til tóbaksvarna samkvæmt lögum um tóbaksvarnir, upphæð til tóbaksvarna í fjárlögum hvers árs, leiðréttingu í fjáraukalögum og að lokum leiðrétta upphæð til tóbaksvarna. Í töflunni er tekið tillit til þess að tóbaksvarnir voru í höndum Lýðheilsustöðvar hálft árið 2003.
2. Hvernig var því fé varið, sundurliðað eftir framlögum á hvern lið í
a. verkefni í tóbaksvörnum og
b. rekstur Lýðheilsustöðvar?
Í töflunni hér á eftir er sýnd upphafsstaða fjárheimilda til tóbaksvarna, fjárheimildir eftir árum, ráðstöfun fjár til tóbaksvarna, hlutdeild tóbaksvarna í sameiginlegum rekstri Lýðheilsustöðvar og að lokum staða tóbaksvarna. Sem fyrr segir fluttust tóbaksvarnir til Lýðheilsustöðvar á miðju ári 2003 og er tekið tillit til þess í útreikningum.
Í desember 2006 greiddi ríkissjóður 12,1 millj. kr. inn á reikning Lýðheilsustöðvar sem er leiðrétting á greiðslu lögbundins tóbaksvarnafjár síðastliðin þrjú ár. Sú upphæð skýrir 37% af ónýttu tóbaksvarnafé í árslok 2006. Ónýtt lögbundið tóbaksvarnafé verður nýtt á næstu þremur árum samhliða því fé sem fæst greitt árlega á sama tíma.
133. löggjafarþing 2006–2007.
Þskj. 855 — 467. mál.
Svar

Tafla 1: Fjárheimildir Lýðheilsustöðvar til tóbaksvarna (allar tölur í millj. kr.).
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
2. Hvernig var því fé varið, sundurliðað eftir framlögum á hvern lið í
a. verkefni í tóbaksvörnum og
b. rekstur Lýðheilsustöðvar?
Í töflunni hér á eftir er sýnd upphafsstaða fjárheimilda til tóbaksvarna, fjárheimildir eftir árum, ráðstöfun fjár til tóbaksvarna, hlutdeild tóbaksvarna í sameiginlegum rekstri Lýðheilsustöðvar og að lokum staða tóbaksvarna. Sem fyrr segir fluttust tóbaksvarnir til Lýðheilsustöðvar á miðju ári 2003 og er tekið tillit til þess í útreikningum.
Tafla 2: Kostnaður við verkefni í tóbaksvörnum, árið 2007 er áætlað
(allar tölur í millj. kr.).