Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 579. máls.
133. löggjafarþing 2006–2007.
Þskj. 861  —  579. mál.




Fyrirspurn



til iðnaðarráðherra um stuðning við atvinnurekstur kvenna.

Frá Önnu Kristínu Gunnarsdóttur.



     1.      Hvað hefur verið gert til að styðja atvinnurekstur kvenna, svo sem gera skal skv. 19. tölul. þingsályktunar um stefnumótandi byggðaáætlun fyrir árin 2006–2009?
     2.      Hvernig hljóðar framkvæmdaáætlun til að ná markmiðum þingsályktunarinnar og hverjum hefur verið falið að framfylgja henni?