Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 394. máls.
133. löggjafarþing 2006–2007.
Þskj. 877 — 394. mál.
dómsmálaráðherra við fyrirspurn Magnúsar Þórs Hafsteinssonar um ólöglega atvinnustarfsemi.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
1. Hversu oft frá 1998 til 1. nóvember 2006 hefur lögregla farið á vinnustaði og athugað hvort ólögleg atvinnustarfsemi er stunduð?
2. Hve oft varð uppvíst um ólöglega atvinnustarfsemi?
3. Hve oft hefur verið dæmt í málum sem tengdust ólöglegri atvinnustarfsemi á tímabilinu?
4. Hvernig skiptast tilfelli þar sem uppvíst varð um ólöglega atvinnustarfsemi niður á einstakar atvinnugreinar?
Í fyrirspurninni er ekki tekið fram hvers konar atvinnustarfsemi átt er við eða á grundvelli hvaða laga hún teljist ólögmæt.
Í svari sem ráðuneytið fékk frá embætti ríkislögreglustjóra kemur fram að ferðir lögreglunnar á vinnustaði eru ekki skráðar með þeim hætti að tölur um einstakar atvinnugreinar liggi fyrir heldur er skráningin miðuð við lög sem ætluð brot falla undir eða brotaflokka sem vísa til ákvæða laga.
Í svari sem ráðuneytið fékk frá dómstólaráði kemur fram að ráðið telur sér ekki fært að gefa upplýsingar um þau atriði sem spurt er um, þar sem í málaskrá dómstóla séu sakamál skráð eftir þeim lagagreinum sem ákæra byggist á.
Miðað við framangreint og með vísan til 49. gr. þingskapalaga telur ráðuneytið því þörf á frekari skilgreiningum á ólöglegri atvinnustarfsemi í fyrirspurninni svo unnt sé að veita fullnægjandi upplýsingar.
133. löggjafarþing 2006–2007.
Þskj. 877 — 394. mál.
Svar