Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 485. máls.
133. löggjafarþing 2006–2007.
Þskj. 878 — 485. mál.
umhverfisráðherra við fyrirspurn Marðar Árnasonar um losun gróðurhúslofttegunda frá stóriðju.
1. Hvað má ætla að útstreymi koldíoxíðs, umfram útstreymi í Straumsvík og á Grundartanga árið 1990, verði mikið
a. frá álverinu á Grundartanga miðað við 260 þús. tonna framleiðslu á ári annars vegar en 300 þús. tonna hins vegar (þar af 88 þús. tonn fyrir 1990),
b. frá álverinu í Reyðarfirði miðað við 346 þús. tonn á ári,
c. frá járnblendiverksmiðjunni á Grundartanga miðað við 114 þús. tonn á ári (þar af 72 þús. tonn fyrir 1990),
d. frá álverinu í Straumsvík miðað við 460 þús. tonn á ári (þar af 88 þús. tonn fyrir 1990),
e. samtals miðað við fyrrnefndar framleiðslutölur?
Meðfylgjandi tafla sýnir útstreymi koldíoxíðs (CO 2) og annarra gróðurhúsalofttegunda frá stóriðju sem talin er upp í liðum a–e samkvæmt útreikningum Umhverfisstofnunar miðað við gefnar forsendur. Framleiðsla er gefin upp í þúsundum tonna, útstreymi í þúsundum tonna af CO 2-ígildum
2. Hvert er leyfilegt árlegt hámark fyrir Ísland samkvæmt ákvörðun 14/CP.7 („íslenska ákvæðinu“) í tengslum við Kyoto-bókunina?
Samkvæmt ákvörðuninni má heildarútstreymi koldíoxíðs frá iðnaðarvinnslu ekki fara yfir 1.600 þús. tonn að meðaltali á ári á skuldbindingartímabili bókunarinnar (2008–2012) svo heimilt sé að telja það fram sérstaklega utan almennra skuldbindinga Íslands um takmörkun á losun. Samkvæmt töflunni í svari við 1. lið mundi losun frá fyrrgreindum fjórum stóriðjuverkefnum vera allt að 2.053 þús. tonn af CO 2 á ári þegar starfsemi væri komin í fullan gang en þar af mundu um 1.714 þús. tonn falla undir skilyrði ákvörðunar 14/CP.7. Þetta er heldur meira en fyrrgreind tala í ákvörðun 14/CP.7. Heimildin nær hins vegar til meðaltalslosunar á ári og þar sem möguleg stækkun Alcan kæmi t.d. ekki til framkvæmda fyrr en í fyrsta lagi á miðju skuldbindingartímabilinu, þá er ljóst að meðallosun á tímabilinu frá þessum fjórum stóriðjuverkefnum verður innan við þau mörk sem „íslenska ákvæðið“ setur. Þegar Kyoto- bókunin var staðfest á Alþingi árið 2002 kom fram að árlegt útstreymi frá fjórum starfandi og fyrirhuguðum stóriðjuverkefnum væri áætlað um 1.823 þús. tonn af CO 2-ígildum á ári, en þá var miðað við 420 þús. tonna verksmiðju Reyðaráls en ekki verksmiðju Fjarðaáls sem nú er í smíðum. Þá kom fram að áætluð meðallosun af CO 2 væri áætluð 1.539 tonn á tímabilinu, miðað við þær forsendur. Meðallosun miðað við verksmiðju Fjarðaáls, sem er nokkru minni en fyrirhuguð verksmiðja Reyðaráls, er heldur minni og munar þar rúmlega 100 þús. tonnum af CO 2-ígildum á ári. Það bendir því allt til þess að losun frá stóriðju verði innan marka „íslenska ákvæðisins“ á tímabilinu 2008–2012. Engu að síður telja stjórnvöld rétt að setja löggjöf sem skyldar stóriðjufyrirtæki að afla sér losunarheimilda, annaðhvort með úthlutun heimilda sem stjórnvöld hafa til umráða til þeirra eða með öðrum hætti, svo sem fjármögnun bindingar kolefnis í gróðri í jarðvegi eða kaupum á heimildum erlendis frá. Frumvarp þess efnis verður lagt fram fljótlega.
3. Hversu mikil yrði losun annarra gróðurhúslofttegunda en koldíoxíðs frá þessum stóriðjuverum miðað við fyrrgreinda framleiðslu?
Samkvæmt töflunni hér að ofan væri samanlögð losun annarra gróðurhúsalofttegunda en koldíoxíðs frá tilgreindum stóriðjuverum 149–155 þús. tonn miðað við að þau væru komin í fullan rekstur. Þarna er að langmestu um að ræða flúorkolefni (PFC) frá álframleiðslu. Árið 1990 var losun PFC frá málmframleiðslu ígildi 420 þús. tonna af CO 2. Mikill samdráttur hefur orðið í losun á PFC í álframleiðslu frá 1990, sem var ígildi 39 þús. tonna af CO 2 árið 2004, þ.e. aðeins um 10% af losuninni 1990 þrátt fyrir mikla aukningu í álframleiðslu. Í loftslagsstefnu stjórnvalda frá 2002 er miðað við að losun PFC verði 0,14 tonn af CO 2-ígildum á tonn af framleiddu áli og eru þau mörk ýmist bundin í starfsleyfum álvera eða verða sett þar inn. Þetta takmark hefur náðst í þeim tveimur álverum sem nú eru starfandi.
4. Hvert er áætlað útstreymi gróðurhúslofttegunda á Íslandi árlega tímabilið 2008–2012 í CO2-ígildum
a. frá öðrum uppsprettum en stóriðju,
b. frá stóriðju sem hafin var fyrir árið 1990?
Er rúm fyrir útstreymi koldíoxíðs frá nýrri stóriðju í almennu Kyoto-heimildinni samkvæmt þeirri áætlun?
Umhverfisstofnun hefur gert útstreymisspá, sem birt var árið 2006, þar sem gert er ráð fyrir útstreymi gróðurhúsalofttegunda frá öðrum uppsprettum en stóriðju eins og fram kemur í meðfylgjandi töflu. Hvað b-liðinn varðar eru eingöngu settar inn tölur um CO 2-losun frá álverinu í Straumsvík og Járnblendiverksmiðjunni árið 1990 sem fellur ekki undir íslenska ákvæðið og verður því að bókfærast til frádráttar frá almennum heimildum Íslands eins og a-liðurinn. Einnig þarf losun PFC frá álverum að rúmast innan almennra heimilda Íslands.
Útstreymi er gefið upp í þúsundum tonna af CO 2-ígildum.
Hvað síðustu spurninguna varðar, þá væri nokkurt rúm fyrir útstreymi koldíoxíðs (og annarra gróðurhúsalofttegunda) frá stóriðju í almennu Kyoto-heimildinni samkvæmt útstreymisspá fyrir tímabilið 2008–2012. Reyndar er meðferð „íslenska ákvæðisins“ með þeim hætti að losun frá nýrri stóriðju er fyrst tekin af almennum heimildum Íslands og eingöngu af hinni sérstöku heimild samkvæmt ákvörðun 14/CP.7 eftir að almennar heimildir eru fullnýttar. Gangi spár eftir má því búast við að Ísland teljist hafa fullnýtt almennar heimildir sínar (10% aukningu á losun frá 1990) á skuldbindingartímabilinu, eins þótt losun gróðurhúsalofttegunda sem ekki fellur undir 14/CP.7 sé undir þessum heimildum. Hins vegar telja stjórnvöld að litlar líkur séu á því að losun fari yfir heimildir Íslands og að væntanlegt frumvarp um losun gróðurhúsalofttegunda muni tryggja að ný stóriðjuverkefni leiði ekki til þess að Ísland fari yfir losunarheimildir sínar samkvæmt Kyoto-bókuninni.
133. löggjafarþing 2006–2007.
Þskj. 878 — 485. mál.
Svar

| 1990 | Útstreymi | |||
| Framleiðsla | CO2 | CO2 | Aðrar GHL | |
| Norðurál, 260 kt (300 kt) | 0 | 0 | 390 (450) | 36 (42) |
| Fjarðaál 346 kt | 0 | 0 | 519 | 48 |
| ÍJ 119 kt | 63 | 203 | 388 | 1 |
| Alcan 460 kt | 88 | 136 | 696 | 64 |
| Samtals | 339 | 1993 (2053) | 149 (155) | |

| 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | |
| Annað en stóriðja | 2802 | 2796 | 2796 | 2793 | 2798 |
| Stóriðja fyrir 1990 | 339 | 339 | 339 | 339 | 339 |