Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 592. máls.
133. löggjafarþing 2006–2007.
Þskj. 881 — 592. mál.
til dómsmálaráðherra um öryggisráðstafanir vegna barnaníðinga.
1. Hvað hyggst ráðherra gera til að bæta öryggi borgaranna gagnvart barnaníðingum, t.d. þegar þeir afplána hluta dóms utan veggja fangelsis?
2. Telur ráðherra rétt að lögregla fái heimildir til að fylgjast með mönnum sem hafa afplánað dóm fyrir kynferðisbrot og til að nota tálbeitur til að koma upp um barnaníðinga?
3. Hefur ákvæði 67. gr. hegningarlaga um öryggisráðstafanir verið beitt gegn dæmdum kynferðisbrotamönnum eftir að afplánun lýkur og telur ráðherra ástæðu til að endurskoða og styrkja þau ákvæði?
4. Telur ráðherra koma til greina að taka upp rafræna vöktun með barnaníðingum með því að nota ökklaband sem skráir ferðir viðkomandi og gerir viðvart í eftirlitsstöð ef reglur um útivist eru brotnar, eins og gert er í nágrannalöndum, t.d. Bretlandi, Danmörku og Svíþjóð?
5. Hefur verið skoðað, t.d. í samráði við Barnaverndarstofu og aðra sérfróða aðila, hvort setja eigi ákvæði í hegningarlög um að dæma megi barnaníðinga til meðferðar, sbr. svar við fyrirspurn á 130. löggjafarþingi (843. mál)?
Skriflegt svar óskast.
133. löggjafarþing 2006–2007.
Þskj. 881 — 592. mál.
Fyrirspurn
til dómsmálaráðherra um öryggisráðstafanir vegna barnaníðinga.
Frá Jóhönnu Sigurðardóttur.