Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 609. máls.
133. löggjafarþing 2006–2007.
Prentað upp.

Þskj. 909  —  609. mál.
Skriflegt svar.




Fyrirspurn



til samgönguráðherra um vegagerð í Hrútafjarðarbotni.

Frá Önnu Kristínu Gunnarsdóttur.


     1.      Hefur náðst samkomulag við eigendur lands undir nýjan veg í Hrútafjarðarbotni og ef svo er, hvenær er fyrirhugað að bjóða framkvæmdir við vegagerðina út?
     2.      Ef svo er ekki, hvaða land hefur ekki náðst samkomulag um og af hvaða ástæðum? Verður óskað heimildar til eignarnáms á því landi sem um er deilt?


Skriflegt svar óskast.