Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 540. máls.
133. löggjafarþing 2006–2007.
Þskj. 926 — 540. mál.
fjármálaráðherra við fyrirspurn Jóhönnu Sigurðardóttur um samkeppnisrekstur og virðisaukaskatt.
1. Hvernig hefur því verið framfylgt að aðili í samkeppnisrekstri sem undanþeginn er virðisaukaskatti aðskilji samkeppnisrekstur frá annarri starfsemi eða leggi virðisaukaskatt á þjónustuna?
Samkvæmt 2. mgr. 18. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, skal aðili sem er virðisaukaskattskyldur samkvæmt lögunum og rekur margþætta starfsemi, þannig að sumir þættir hennar eru skattskyldir en aðrir undanþegnir skattskyldu, hafa hin skattskyldu og undanþegnu viðskipti greinilega aðgreind bæði í bókhaldi sínu og á virðisaukaskattskýrslu. Það er í höndum skattyfirvalda að framfylgja ákvæðinu og hefur það verið gert með almennu eftirliti.
2. Hefur það verið sérstaklega kannað í hve miklum mæli bankar sem undanþegnir eru virðisaukaskattsgreiðslum og einnig eru í óskyldri starfsemi séu í samkeppni við einkaaðila sem greiða virðisaukaskatt, eins og t.d. greiningardeildir bankanna og lögfræðideildir, sem eru í samkeppni við sjálfstæð ráðgjafar- og innheimtufyrirtæki? Ef svo er, hver var þá niðurstaðan? Ef svo er ekki, telur ráðherra ástæðu til að kanna málið?
Samkvæmt 10. tölul. 3. mgr. 2. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, er þjónusta banka, sparisjóða og annarra lánastofnana svo og verðbréfamiðlun undanþegin virðisaukaskatti. Undanþágan tekur til þjónustu sem bönkum, sparisjóðum og öðrum lánastofnunum er ætlað að veita lögum samkvæmt, óháð því hver veitir þá þjónustu eða hverjum hún er veitt. Undanþágan tekur aðeins til eiginlegrar, skilgreindrar þjónustu banka, sparisjóða og annarra lánastofnana, en ekki til annarrar þjónustu sem þær stofnanir kunna að veita. Skilgreiningu á þjónustunni verður að sækja til löggjafar um þessar stofnanir hverju sinni, sbr. nú IV. kafla laga nr. 161/2002, um fjármálafyrirtæki. Varðandi virðisaukaskattskyldu banka af eigin þjónustu er kveðið á um í 2. mgr. 3. gr. laga nr. 50/1988 og reglugerð nr. 562/1989, um virðisaukaskatt af eigin þjónustu og úttekt til eigin nota innan óskattskyldra fyrirtækja og stofnana, að þeir sem hafi með höndum starfsemi sem er undanþegin virðisaukaskatti skv. 3. mgr. 2. gr. laganna, skuli greiða virðisaukaskatt af skattskyldum vörum og þjónustu þegar vara er framleidd eða þjónusta innt af hendi eingöngu til eigin nota og í samkeppni við skattskylda aðila. Slík skattskylda tekur meðal annars til tiltekinnar sérfræðiþjónustu. Í 2. gr. reglugerðarinnar er talin upp sú starfsemi sem er skattskyld samkvæmt reglugerðinni að svo miklu leyti sem hún er í samkeppni við atvinnufyrirtæki og í 5. tölul. er meðal annars tiltekin þjónusta verkfræðinga, tæknifræðinga, arkitekta, lögfræðinga, löggiltra endurskoðenda og tölvunarfræðinga. Þetta hefur þá þýðingu að aðilum sem stunda undanþegna starfsemi, þar á meðal bönkum, ber að greiða virðisaukaskatt af þessari starfsemi ef skilyrði ákvæðisins eru uppfyllt. Við skýringu ákvæðis 2. gr. reglugerðarinnar þarf að hafa í huga tilgang þess sem er að virðisaukaskattur raski ekki samkeppnisstöðu atvinnufyrirtækja er eiga í viðskiptum við óskattskylda aðila sem geta þjónustað sig sjálfir. Í 3. mgr. 2. gr. reglugerðarinnar er sett fram svohljóðandi skilgreining á samkeppnishugtakinu: „Starfsemi telst vera rekin í samkeppni við atvinnufyrirtæki samkvæmt reglugerð þessari þegar viðkomandi vara eða þjónusta er almennt í boði hjá atvinnufyrirtækjum og skiptir ekki máli í því sambandi hvort eða hve mikið aðili selur af slíkum vörum eða þjónustu til annarra.“ Samkvæmt upplýsingum frá embætti ríkisskattstjóra hefur starfsemi bankanna ekki verið skoðuð sérstaklega. Hins vegar hafa einstök tilvik verið skoðuð þegar tilefni hefur verið til. Fjármálaráðuneytið hefur hvorki í þessum málum né öðrum afskipti af því hvaða starfsemi skattyfirvöld taka til skoðunar. Þá hefur ráðuneytið ekki undir höndum upplýsingar um niðurstöður skattyfirvalda í einstökum eftirlitsmálum.
133. löggjafarþing 2006–2007.
Þskj. 926 — 540. mál.
Svar