Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 634. máls.
133. löggjafarþing 2006–2007.
Þskj. 942 — 634. mál.
um útboð jarðganga í Norðausturkjördæmi.
Alþingi ályktar að fela samgönguráðherra að láta fara fram hagkvæmnisathugun á því að gera langtímaáætlun um jarðgangagerð í Norðausturkjördæmi og bjóða í einu lagi út verkefni þar til langs tíma.
Forsendur fyrir áframhaldandi mannsæmandi nútímalífi í dreifðum byggðum landsins eru traustar samgöngur. Tillaga þessi gerir ráð fyrir að röð jarðgangaframkvæmda í Norðausturkjördæmi verði boðin út í einu lagi og miðað við að framkvæmdatíminn verði langur, e.t.v. 15–17 ár. Röð jarðganga verði ákveðin áður en framkvæmdir hefjast.
Það er nauðsynlegt fyrir íbúa þeirra staða sem munu njóta góðs af jarðgöngunum að vita hvenær þeir verði komnir í samband við vegakerfi landsins á viðunandi hátt. Mörg aðkallandi jarðgangaverkefni blasa við á Norður- og Austurlandi. Má þar nefna:
– Lónsheiði,
– undir Berufjörð,
– milli Breiðdalsvíkur og Stöðvarfjarðar,
– milli Stöðvarfjarðar og Fáskrúðsfjarðar,
– milli Eskifjarðar og Norðfjarðar,
– milli Norðfjarðar og Mjóafjarðar,
– milli Mjóafjarðar og Seyðisfjarðar,
– milli Reyðarfjarðar/Eskifjarðar og Héraðs,
– milli Héraðs og Vopnafjarðar,
– Vaðlaheiðargöng.
Næststærsta útflutningshöfn landsins verður Mjóeyrarhöfn í Reyðarfirði og til að hún geti blómstrað og kjördæmið notið þeirra kosta sem hún býður upp á verður að byggja upp vegakerfið. Jarðgöng munu stytta leiðir á milli staða með ólíkindum. Þá benda berglög á Austurlandi til þess að jarðgangagerð sé tiltölulega auðveld þar.
133. löggjafarþing 2006–2007.
Þskj. 942 — 634. mál.
Tillaga til þingsályktunar
um útboð jarðganga í Norðausturkjördæmi.
Flm.: Ólafur Níels Eiríksson.
Alþingi ályktar að fela samgönguráðherra að láta fara fram hagkvæmnisathugun á því að gera langtímaáætlun um jarðgangagerð í Norðausturkjördæmi og bjóða í einu lagi út verkefni þar til langs tíma.
Greinargerð.