Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 647. máls.
133. löggjafarþing 2006–2007.
Þskj. 966 — 647. mál.
um samfélagsþjónustu.
Anna Kristín Gunnarsdóttir, Ásta R. Jóhannesdóttir,
Mörður Árnason, Katrín Júlíusdóttir, Þórunn Sveinbjarnardóttir.
Alþingi ályktar að fela dómsmálaráðherra að undirbúa lagabreytingar sem nauðsynlegar eru til að veita dómstólum heimild til að dæma mann til samfélagsþjónustu.
Ólíkt öllum öðrum ríkjum Evrópu geta dómstólar á Íslandi ekki dæmt einstakling til samfélagsþjónustu. Hér á landi er það stofnun á vegum stjórnvalda, Fangelsismálastofnun, sem fer með þetta úrræði.
Samkvæmt gildandi lögum er framkvæmdarvaldinu því þannig heimilt að taka upp refsiákvarðanir dómstóla og ákveða mönnum önnur viðurlög en dómstólar hafa gert. Komið hafa fram efasemdir, m.a. frá dómstólaráði, um það hvort núverandi fyrirkomulag standist stjórnarskrá og mannréttindasáttmála Evrópu.
Samfélagsþjónusta er viðurlög í eðli sínu og því er eðlilegt að um hana sé fjallað í almennum hegningarlögum, eins og um önnur refsiviðurlög. Það er ekki hlutverk stjórnvalda að ákveða viðurlög, refsingu, heldur dómstóla.
Fjölmargir hafa bent á að það sé óeðlilegt að ákvörðun um samfélagsþjónustu sé stjórnvaldsákvörðun en ekki á ákvörðunarvaldi dómstóla. Samfélagsþjónusta er hvarvetna í Evrópu hluti af viðurlagakerfi enda er það eitt megininntak dómsvaldsins að ákvarða mönnum refsingu.
Það eru að auki ýmis önnur rök fyrir því að samfélagsþjónusta eigi betur heima á valdsviði dómstóla en hjá stjórnvöldum. Dómstólar hefðu þá möguleika til þess að ákvarða mönnum aðra og vægari refsingu en fangelsi. Að sama skapi gæti komið til þess að dómstólar dæmi mann til samfélagsþjónustu sem ella hefði fengið skilorðsbundna refsingu.
Það viðbótarúrræði fyrir dómstóla að dæma í samfélagsþjónustu gæti nýst sérstaklega vel gagnvart ungum afbrotamönnum. Varðandi þann hóp afbrotamanna geta skilorðsbundnir dómar dregið úr varnaðaráhrifum á viðkomandi einstakling. Í sumum tilfellum getur samfélagsþjónusta verið heppilegri en óskilorðsbundinn fangelsisdómur fyrir unga afbrotamenn. Samfélagsþjónusta gæti því haft uppeldislegt gildi sé hún valkostur fyrir dómstóla landsins.
Hvað er samfélagsþjónusta?
Samfélagsþjónusta felur í sér tímabundið ólaunað starf í þágu samfélagsins, svo sem líknar- eða félagsstarf ýmiss konar, sem kemur í stað afplánunar fangelsisrefsingar í fangelsi. Starfið er unnið utan vinnutíma dómþola og getur hann því stundað atvinnu sína eða nám á meðan og verið virkur þjóðfélagsþegn. Fangelsismálastofnun getur ákveðið að hluti ólaunuðu samfélagsþjónustunnar skuli felast í viðtalsmeðferð.
Þeir sem dæmdir hafa verið í allt að sex mánaða óskilorðsbundið fangelsi geta sótt um samfélagsþjónustu. Þegar um er að ræða fangelsisrefsingu samkvæmt fleiri en einum dómi má samanlögð refsing ekki vera lengri en sex mánuðir. Sama gildir um blandaða dóma, þ.e. þegar hluti fangelsisrefsingar er skilorðsbundinn. Skilyrði þess að samfélagsþjónusta komi til álita eru að umsækjandi eigi ekki til meðferðar mál hjá lögreglu, ákæruvaldi eða dómstólum, þar sem hann er kærður fyrir refsiverðan verknað.
Hafi lögreglustjóri ákveðið að maður skuli afplána vararefsingu fésektar sem er 60.000 kr. eða hærri er heimilt, ef almannahagsmunir mæla ekki gegn því, að fullnusta vararefsingu með ólaunaðri samfélagsþjónustu, minnst 40 klst. og mest 480 klst. Hafi sektarþoli fengið fimm eða fleiri sektir fyrir sambærileg brot verður vararefsing að jafnaði ekki fullnustuð með samfélagsþjónustu. Að uppfylltum m.a. þessum skilyrðum getur sektarþoli sótt um samfélagsþjónustu.
Lögin takmarka ekki heimild til samfélagsþjónustu við ákveðna brotaflokka en mat á því hvort almannahagsmunir mæla gegn ólaunaðri samfélagsþjónustu tengist broti.
Fangelsismálastofnun sér um að útvega hentuga vinnustaði fyrir samfélagsþjónustu. Í viðauka má finna yfirlit yfir þá vinnustaði sem hafa haft dómþola í samfélagsþjónustu frá janúar 2004 og til janúar 2007. Aðallega er um að ræða líknar- og félagsstörf hjá félagasamtökum og opinberum stofnunum. Starf getur t.d. falist í þrifum, viðhaldi, umönnun og skrifstofustörfum. Val á starfi fer eftir því hvaða störf eru laus á hverjum tíma og hvað telst hæfa umsækjanda að mati Fangelsismálastofnunar.
Fulltrúi frá Fangelsimálastofnun fer jafnan á vinnustaðinn í fyrsta skipti þegar umsókn dómþola hefur verið samþykkt og kannar aðstæður. Síðan fylgir stofnunin reglulega með framvindu og er talsvert eftirlit með dómþola á meðan samfélagsþjónustan stendur. Almennt séð hefur gengið vel að finna vinnu fyrir viðkomandi dómþola.
Fjöldi þeirra sem hefja samfélagsþjónustu í stað óskilorðsbundinnar fangelsisrefsingar innan hvers árs:
Fjöldi þeirra sem hefja samfélagsþjónustu í stað vararefsingar innan hvers árs:
Samkvæmt ársskýrslu Fangelsismálastofnunar fyrir árið 2003 kemur í ljós að til þess árs höfðu alls 1.027 einstaklingar hafið samfélagsþjónustu, þar af um 600 í stað óskilorðsbundinnar fangelsisrefsingar. En frá byrjun ársins 2004 og til dagsins í dag hafa tæplega 700 dómþolar fengið heimild til að gegna samfélagsþjónustu. Samtals eru þeta um 1.700 manns.
Til að setja tölurnar í samhengi er rétt að benda á að í lok árs 2003 voru 120 fangar í afplánun en um 65 dómþolar að afplána refsingu með samfélagsþjónustu. 885 umsóknir um samfélagsþjónustu í stað óskilorðsbundinnar fangelsisrefsingar voru afgreiddar á árunum 1995–2003. Á þessu árabili hafa um 60 umsókn verið samþykktar, eða 68%, 253 umsóknum hefur verið synjað, eða um 29%, og 32 umsóknir, eða um 3%, dregnar til baka.
Samtals höfðu 849 umsóknir um samfélagsþjónustu í stað vararefsingar borist Fangelsismálastofnun frá árinu 2000 þegar lagaheimildin tók gildi og til loka ársins 2003. Af þessum umsóknum hafa verið samþykktar 495 umsóknir, eða rúmlega 58%, 255 umsóknum verið synjað, eða um 30%, og 94 umsóknir, eða 11%, dregnar til baka af umsækjendum. Ástæðan fyrir því að umsækjendur draga til baka umsókn sína er í flestum tilvikum sú að þeir greiða sektina/sektirnar.
Að jafnaði rjúfa 13% samfélagsþjónustu sem sinna henni í stað óskilorðsbundinna fangelsisrefsinga og um 18% sem eru í samfélagsþjónustu í stað vararefsinga. Þá greiða að jafnaði um 68% þeirra sem rjúfa samfélagsþjónustu í stað vararefsinga sektir sínar í stað þess að afplána eftirstöðvarnar í fangelsi.
Þótt flutningsmenn telji að samfélagsþjónusta eigi að vera úrræði dómstóla en ekki Fangelsismálastofnunar er rétt að taka fram að stofnunin hefur almennt séð staðið sig vel þegar kemur að samfélagsþjónustunni.
Upphaf samfélagsþjónustu á Íslandi.
Samfélagsþjónusta var fyrst lögfest með lögum nr. 55/1994, um samfélagsþjónustu. Um var að ræða tilraunatímabil með samfélagsþjónustu og var ákveðið að hafa ákvörðun um samfélagsþjónustu stjórnvaldsákvörðun. Gildistími laganna var ákvarðaður frá 1. júlí 1995 til 31. desember 1997.
Samkvæmt lögunum var heimilt að láta afplána allt að þriggja mánaða óskilorðsbundna refsivist með ólaunaðri samfélagsþjónustu, ef almannahagsmunir mæltu ekki gegn því, þannig að í stað refsivistar kæmi ólaunuð samfélagsþjónusta, minnst 40 klst. og mest 120 klst. Var sérstakri þriggja manna nefnd, samfélagsþjónustunefnd, sem dómsmálaráðherra skipaði, falið að taka ákvörðun um hvort orðið yrði við umsókn um samfélagsþjónustu.
Rökin fyrir því að hafa ákvörðun um samfélagsþjónustu stjórnvaldsákvörðun á tilraunatímabilinu voru m.a. þau að kostnaður við slíka framkvæmd væri lægri og góð stjórn yrði á tilrauninni og betur hægt að byggja upp, þróa og laga samfélagsþjónustu að aðstæðum hér á landi.
Í athugasemdum með frumvarpi til laga um samfélagsþjónustu kom hins vegar fram að ef ákveðið yrði að samfélagsþjónusta fengi varanlegan sess síðar kæmi vel til álita að fella ákvæði um hana inn í almenn hegningarlög og tekið fram að víðast erlendis væri dómstólaleiðin farin.
Einnig var hnykkt á því í nefndaráliti allsherjarnefndar að það kynni að vera eðlilegt að ákvæði um samfélagsþjónustu verði felld inn í almenn hegningarlög og dómstólum falið að ákveða hvort dæma beri mann, að fengu samþykki hans, til samfélagsþjónustu. Enn fremur kom fram að skipan samfélagsþjónustu væri sérstæð fyrir Ísland og undirstrikað að um tilraun væri að ræða.
Á þessu tilraunatímabili voru 40% dóma þar sem dæmd refsivist var þriggja mánaða fangelsi eða skemmra fullnustað sem samfélagsþjónusta. Fjörutíu klukkustunda samfélagsþjónusta jafngildir eins mánaðar fangelsisrefsingu.
En þar sem vel þótti til takast var ákveðið að halda áfram á sömu braut. Var þá farin sú leið árið 1997 að skjóta heimild til samfélagsþjónustu inn í frumvarp til breytinga á lögum um fangelsi og fangavist og hún skilgreind þar sem fullnustuúrræði. Jafnframt var lagt til að heimilt yrði að fullnusta allt að sex mánaða óskilorðsbundinn fangelsisdóm með samfélagsþjónustu í stað þriggja mánaða áður og að hámarksfjöldi klukkustunda í samfélagsþjónustu yrði 240 í stað120. Tóku ákvæðin um samfélagsþjónustu því gildi 1. janúar 1998.
Í frumvarpinu var tekið fram að samfélagsþjónusta yrði falin Fangelsismálastofnun til ákvörðunar í stað hinnar sérstöku samfélagsþjónustunefndar. Tekið var fram að samfélagsþjónustunefndin hafi í raun eingöngu metið það skilyrði hvort viðkomandi teljist hæfur til samfélagsþjónustu. Fangelsismálastofnun hafði undirbúið tillögur til nefndarinnar um afgreiðslu mála og hafði án undantekningar verið fallist á tillögur stofnunarinnar, bæði um það hvort veita eigi eða synja um samfélagsþjónustu og um vinnustað. Röksemd löggjafans voru því að um væri að ræða skilvirkari málsmeðferð að Fangelsismálastofnun taki þessar ákvarðanir og aukin réttavernd fælist í því að ákvarðanir um samfélagsþjónustu yrðu kæranlegar.
Með lögum nr. 49/2005, um fullnustu refsinga, voru lög um fangelsi og fangavist, nr. 48/1988, felld úr gildi og er nú fjallað um samfélagsþjónustu í ákvæðum 27.–31. gr. laga um fullnustu refsinga.
Núverandi fyrirkomulag.
Eins og fyrr segir er nú gert ráð fyrir að Fangelsismálastofnun ákveði hvort fangar fái að taka út refsingu sem samfélagsþjónustu. Í 29. gr. laga um fullnustu refsinga, nr. 49/2005, segir að Fangelsismálastofnun ákveði hvort fangelsisrefsing verði fullnustuð með samfélagsþjónustu og hvaða samfélagsþjónustu dómþoli sinni í hverju tilviki. Sama gildir um það á hve löngum tíma samfélagsþjónusta skuli innt af hendi en sá tími skal þó aldrei vera skemmri en tveir mánuðir.
En í 27. gr. sömu laga kemur enn fremur fram að þegar maður hefur verið dæmdur í allt að sex mánaða óskilorðsbundið fangelsi er heimilt, ef almannahagsmunir mæla ekki gegn því, að fullnusta refsinguna með ólaunaðri samfélagsþjónustu, minnst 40 klst. og mest 240 klst. Fangelsismálastofnun getur ákveðið að hluti ólaunuðu samfélagsþjónustunnar skuli felast í viðtalsmeðferð, enda nemi hún aldrei meira en einum fimmta hluta samfélagsþjónustunnar.
Í 28. gr. laga um fullnustu refsinga koma fram skilyrði fyrir samfélagsþjónustu. Þar segir m.a. að þegar fangelsisrefsing er fullnustuð með samfélagsþjónustu jafngildir 40 klst. samfélagsþjónusta eins mánaðar fangelsisrefsingu. Í 30. gr. koma fram þau skilyrði sem þarf að uppfylla á meðan viðkomandi er í samfélagsþjónustu. Í 31. gr. er fjallað um rof á skilyrðum samfélagsþjónustu.
Í 72. gr. laga um fullnustu refsinga kemur fram að hægt sé að fullnusta vararefsingar með samfélagsþjónustu.
Stjórnarskráin og mannréttindasáttmáli Evrópu.
Á það hefur verið bent, m.a. af dómstólaráði, að núverandi fyrirkomulag um ákvörðun samfélagsþjónustu stangist hugsanlega á við meginreglu íslenskrar stjórnskipunar um þrískiptingu ríkisvaldsins, í 2. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, nr. 33/1944. Dómstólaráð hefur nefnt nokkur atriði því til stuðnings.
Rökin eru m.a. þau að dómsvaldið hafi verið fært til framkvæmdarvaldsins þar sem því er heimilt að taka upp refsiákvarðanir dómstóla og ákveða mönnum önnur viðurlög en dómstólar hafa gert. Endanleg ákvörðun er því í fjölmörgum tilvikum á hendi framkvæmdarvaldsins. Málsmeðferð um ákvörðun viðurlaga er því endurtekin hjá framkvæmdarvaldinu og fer þar fram fyrir luktum dyrum og án þátttöku ákæruvalds.
Ef rof verða á skilyrðum samfélagsþjónustu skv. 31. gr. laga um fullnustu refsinga er Fangelsismálastofnun falið að taka margar matskenndar ákvarðanir. Stofnuninni er falið að ákvarða hvort skilyrðum samfélagsþjónustu skuli breytt, hvort tími hennar skuli lengdur, hvort refsing skuli afplánuð í fangelsi og hefur þá m.a. val um hvorri refsitegundinni, samfélagsþjónustu eða fangelsi, verði beitt.
Í 2. mgr. 31. gr. laganna er kveðið á um að hafi dómþoli verið kærður fyrir að hafa framið refsiverðan verknað eða hann teljist ekki hæfur til að gegna samfélagsþjónustu geti Fangelsismálastofnun ákveðið að ákvörðun um fullnustu refsingar með samfélagsþjónustu verði afturkölluð og að dómþoli afpláni refsinguna í fangelsi. Enn fremur segir í 3. mgr. að þegar rof á skilyrðum samfélagsþjónustu eða meint brot „er hvorki alvarlegt né ítrekað“ skuli veita áminningu áður en ákveðið er að fangelsisrefsing skuli afplánuð í fangelsi.
Dómstólaráð bendir á að þessi málsmeðferð sé í brýnni andstöðu við það sem á við um rof á skilyrðum reynslulausnar en þar er það í verkahring dómstóla að kveða á um hvort reynslulausn hafi verið rofin og hvaða afleiðingar það hefur.
Að mati flutningsmanna er réttaröryggi borgaranna betur tryggt með því að hafa framangreinda ákvörðun undir dómstólum, þrátt fyrir að ákvörðun stjórnvalda um samfélagsþjónustu sé nú ívilnandi fyrir dómþola geti hún einnig verið íþyngjandi fyrir hann t.d. að hann afpláni eftirstöðvar dómsins með fangelsisvist.
Dómstólaráð telur því að núverandi fyrirkomulag veki áleitnar spurningar um hvort sú málsmeðferð, sem gert er ráð fyrir í 31. gr., standist 70. gr. stjórnarskrárinnar og 6. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994.
En það er ekki einungis dómstólaráð sem hefur gagnrýnt núverandi ástand heldur má einnig benda á grein Ragnheiðar Bragadóttur lagaprófessors sem bar nafnið ,,Samfélagsþjónusta – á réttri leið?“ og birtist í Afmælisriti Þórs Vilhjálmssonar frá árinu 2000. Þá hefur Jón Þór Ólason lögfræðingur sömuleiðis skrifað um þetta álitamál í greininni ,,Samfélagsþjónusta í íslenskum rétti“ í Úlfljóti árið 2001. Hér er m.a. stuðst við báðar þessar greinar. Dómarafélag Íslands hefur sömuleiðis lýst yfir efasemdum um núverandi fyrirkomulag.
Að lokum má benda á dóm Hæstaréttar 1994:748 þar sem segir: „Samkvæmt 2. gr. stjórnarskrárinnar fara dómendur með dómsvaldið. Í því hlutverki felst meðal annars að ákvarða mönnum refsivist vegna ólögmætrar hegðunar, og eru ekki aðrir handhafara ríkisvaldsins bærir til þess.“
Frekari gagnrýni á núverandi fyrirkomulag.
Eins og áður hefur komið fram eru uppi efasemdir um hvort núverandi fyrirkomulag standist samkvæmt stjórnarskránni og mannréttindasáttmála Evrópu. En fleiri röksemdir eru gegn núverandi fyrirkomulagi.
Að hafa ákvörðunarvaldið um samfélagsþjónustu hjá framkvæmdarvaldinu hefur m.a. verið rökstutt á þá leið að framkvæmdarvaldið hafi nú þegar ýmis afskipti af dómum, sbr. t.d. reynslulausn og náðun. Þetta sjónarmið hefur hins vegar verið talsvert gagnrýnt, m.a. af hálfu dómstólaráðs, sem telur mikinn mun á því hvort um er að ræða reynslulausn eða náðun þar sem þau úrræði byggist á breyttum aðstæðum frá því að dómur var kveðinn upp en það eigi ekki við um samfélagsþjónustu.
Reynslulausn er veitt eftir að dómþoli hefur afplánað tiltekinn hluta refsingarinnar og er að vissu leyti umbun. Náðun er veitt í undantekningartilvikum og aðeins ef talið er að afplánun refsingar muni verða skaðleg fyrir velferð dómþola, svo sem heilsu hans. Samfélagsþjónusta er hins vegar annars eðlis en þar reynir ekkert á að dóminum sé framfylgt í samræmi við dómsorð hans.
Þá hefur það sjónarmið heyrst að með því að hafa ákvörðun um samfélagsþjónustu á einni hendi, þ.e. hjá Fangelsismálastofnun, fáist meiri samræmi á framkvæmdina. En með sömu rökum ætti einungis einn héraðsdómstóll að vera í landinu svo að tryggt væri fullkomið samræmi á milli dóma. Að sjálfstöðu styðjast dómstólar hver við annars fordæmi og ekki síst við fordæmi frá Hæstarétti. Þessi rök vega því ekki á móti þeim kosti og því grundvallaratriði sem felst í að heimila dómstólum að dæma í samfélagsþjónustu.
Varðandi þá röksemd, sem m.a. lá fyrir í athugasemdum með frumvarpi til laga um samfélagsþjónustu frá 1994, að kostnaðurinn yrði lægri væri ákvörðunin hjá stjórnvaldi í stað dómstóls þá telst hún í senn umdeilanleg og léttvæg að mati flutningsmanna.
Þá má benda á að í framkvæmd er samfélagsþjónusta talsvert notuð í óskilorðsbundnum dómum vegna ölvunaraksturs. Það er umhugsunarefni, sem m.a. Ragnheiður Bragadóttir lagaprófessor hefur bent á, hvort það sé rétt þróun í ljósi þeirra dómvenju að ölvunarakstur orsaki fangelsisdóm. Með því að beita samfélagsþjónustu við ölvunarbroti hefur Fangelsismálastofnun bæði dregið úr varnaðaráhrifum laga og þeim fordæmum sem dómstólar hafa ákveðið þegar kemur að ölvunarakstri. Slíkt á að vera á forræði dómstóla en ekki stjórnvalds.
Flutningsmenn telja að vel sé hægt að laga samfélagsþjónustu að aðstæðum hér á landi þó að dómstólar fari með ákvörðunarvaldið. Dómstólar mundu t.d. geta ákvarðað tímafjölda og afplánunartíma en öll atriði varðandi framkvæmd, uppbyggingu og nánara fyrirkomulag gæti verið á hendi Fangelsismálastofnunar sem fullnustuaðila.
Samfélagsþjónusta sem refsitegund og sem skilyrði fyrir skilorðsdómi.
Samkvæmt 31. gr. almennra hegningarlaga eru hegningar tvenns konar, fangelsi annars vegar og hins vegar fésektir. Til að ná fram markmiðum þessarar þingsályktunartillögu þyrfti að bæta við greinina samfélagsþjónustu sem úrræði fyrir dómstóla. Dómstólaráð vill að samfélagsþjónusta verði fest varanlega í sessi í almennum hegningarlögum sem ein tegund viðurlaga við afbrotum, svo sem tíðkast í öllum Evrópulöndum þar sem samfélagsþjónusta hefur verið lögtekin.
Flutningsmenn telja hins vegar að það ekki eigi eingöngu að hafa samfélagsþjónustu sem sjálfstæða refsitegund, sem dómstólar geta dæmt, heldur einnig að skoða hvort það eigi að gera mögulegt að samfélagsþjónusta geti verið eitt af skilyrðum fyrir skilorðsdómi, sbr. 57. gr. almennra hegningarlaga.
Viðauki.
Samfélagsþjónusta, vinnustaðaskrá frá janúar 2004 til janúar 2007.
Höfuðborgarsvæðið
ABC hjálparstarf
Alþjóðahúsið
Amnesty international
Áfangastaðurinn Ránargötu
Breiðholtskirkja
Búsetuþjónustan Bárugötu 19
Dvöl, athvarf fyrir geðfatlaða
Ekron, starfsþjálfun og endurhæfing
Fataflokkun RKÍ
Fjölskylduhjálp Íslands
Fjölsmiðjan
Foldabær – heimili fyrir alzheimersjúklinga
Fram
Fylkir
Geðhjálp
Góði hirðinn
Grensáskirkja
Hallgrímskirkja
Haukar – Ásvellir
Háteigskirkja
Hitt Húsið – Tipp Topp
Hjartaheill
Hjálparstofnun kirkjunnar
HK Digranesi
Húsdýragarðurinn
Hvítasunnukirkjan
Hæfingarstöðin
ÍR
Íþróttafélag Fatlaðra Reykjavík
Íþróttafélagið Valur
Kattholt
Klúbburinn Geysir
KR
Laugarneskirkja
Laugarnesprestakall
Líknarfélagið Takmarkið
Mannréttindaskrifstofa Íslands
Miklabraut 13 – Búsetuþjónusta
Mæðrastyrksnefnd
Norræna húsið
Omega / kristniboðskirkjan
Regnbogabörn
Sambýlið Árlandi 9
Sambýlið Fannafold
Sambýlið Grundarlandi 17
Sambýlið Hólmasundi
Sambýlið Hrauntungu
Sambýlið Hulduhlíð 32–34
Sambýlið Móaflöt 24
Samhjálp
SÁÁ
Seljakirkja
SEM
Skammtímavistunin Hólabergi
Svifflugfélag Íslands
Vernd, áfangaheimili
Verndaða heimilið
Vesturgarður
Vin – athvarf fyrir geðfatlaða
Vistheimili barna
Vímulaus æska
Væntumþykja, Hátúni
Akranes
Fjöliðjan
Gáma
Golfvöllurinn Akranesi
Sambýlið Einigrund
Svæðisskrifstofa málefna fatlaðra
Borgarnes
Fjöliðjan
Snæfellsnes
Fangelsið Kvíabryggju
Golfklúbburinn Jökull
Grundarfjarðarkirkja
Íþróttahús Snæfellsbæjar
Blönduós
Félagsheimilið Blönduósi
Skógræktarfélag Austur-Húnvetninga
Sauðárkrókur
Áhaldahús
RKÍ á Norðurlandi
Ísafjörður
Hafnarmálasvið
Skóla- og fjölskylduskrifstofa
Akureyri og nágrenni
Áhaldahúsið Grýtubakkahreppi
Dalvíkurbyggð
Glerárkirkja
Hestamannafélagið Léttir
KA
Laut – athvarf fyrir geðfatlaða
Sambýlið við Þrastalund
Sambýlið, Hafnarstræti 16
Skautafélag Akureyrar
Þór íþróttafélag
Húsavík
Sambýlið Pálsgarði 2
Setrið – Fjölskylduþjónusta Þingeyinga
Austurland / Austfirðir
Egilsstaðasókn
Félagsþjónustan Fjarðarbyggð, Eskifirði
Heilbrigðisstofnun Austurlands (Stöðvarfirði, Höfn, Fáskrúðsfirði)
Svæðisskrifstofa fatlaðra Egilsstöðum
Suðurland
Byggðarsafn Árnesinga
Félagsþjónusta Rangárvalla og Vestur-Skaftafellssýslu
Golfklúbbur Hveragerðis
Götusmiðjan, Gunnarsholti
Hestamannafélagið Sleipnir
Selfosskirkja
Skálholt
Sólheimar, Grímsnesi
Sundhöll Selfoss
Svæðisskrifstofa málefna fatlaðra, Selfossi
Vestmannaeyjar
Athvarfið
ÍBV
Kertaverksmiðjan Vestmannaeyjum
Suðurnes
Dagdvöl aldraðra
Golfklúbbur Suðurnesja
Íþróttafélag Keflavíkur
Keflavíkurkirkja
Njarðvíkurprestakall
Sambýlið Lyngmóa 17
Svæðisskrifstofa málefna fatlaðra, Reykjanesbæ
UMF Njarðvík
133. löggjafarþing 2006–2007.
Þskj. 966 — 647. mál.
Tillaga til þingsályktunar
um samfélagsþjónustu.
Flm.: Ágúst Ólafur Ágústsson, Margrét Frímannsdóttir, Björgvin G. Sigurðsson,
Anna Kristín Gunnarsdóttir, Ásta R. Jóhannesdóttir,
Mörður Árnason, Katrín Júlíusdóttir, Þórunn Sveinbjarnardóttir.
Alþingi ályktar að fela dómsmálaráðherra að undirbúa lagabreytingar sem nauðsynlegar eru til að veita dómstólum heimild til að dæma mann til samfélagsþjónustu.
Greinargerð.
Ólíkt öllum öðrum ríkjum Evrópu geta dómstólar á Íslandi ekki dæmt einstakling til samfélagsþjónustu. Hér á landi er það stofnun á vegum stjórnvalda, Fangelsismálastofnun, sem fer með þetta úrræði.
Samkvæmt gildandi lögum er framkvæmdarvaldinu því þannig heimilt að taka upp refsiákvarðanir dómstóla og ákveða mönnum önnur viðurlög en dómstólar hafa gert. Komið hafa fram efasemdir, m.a. frá dómstólaráði, um það hvort núverandi fyrirkomulag standist stjórnarskrá og mannréttindasáttmála Evrópu.
Samfélagsþjónusta er viðurlög í eðli sínu og því er eðlilegt að um hana sé fjallað í almennum hegningarlögum, eins og um önnur refsiviðurlög. Það er ekki hlutverk stjórnvalda að ákveða viðurlög, refsingu, heldur dómstóla.
Fjölmargir hafa bent á að það sé óeðlilegt að ákvörðun um samfélagsþjónustu sé stjórnvaldsákvörðun en ekki á ákvörðunarvaldi dómstóla. Samfélagsþjónusta er hvarvetna í Evrópu hluti af viðurlagakerfi enda er það eitt megininntak dómsvaldsins að ákvarða mönnum refsingu.
Það eru að auki ýmis önnur rök fyrir því að samfélagsþjónusta eigi betur heima á valdsviði dómstóla en hjá stjórnvöldum. Dómstólar hefðu þá möguleika til þess að ákvarða mönnum aðra og vægari refsingu en fangelsi. Að sama skapi gæti komið til þess að dómstólar dæmi mann til samfélagsþjónustu sem ella hefði fengið skilorðsbundna refsingu.
Það viðbótarúrræði fyrir dómstóla að dæma í samfélagsþjónustu gæti nýst sérstaklega vel gagnvart ungum afbrotamönnum. Varðandi þann hóp afbrotamanna geta skilorðsbundnir dómar dregið úr varnaðaráhrifum á viðkomandi einstakling. Í sumum tilfellum getur samfélagsþjónusta verið heppilegri en óskilorðsbundinn fangelsisdómur fyrir unga afbrotamenn. Samfélagsþjónusta gæti því haft uppeldislegt gildi sé hún valkostur fyrir dómstóla landsins.
Hvað er samfélagsþjónusta?
Samfélagsþjónusta felur í sér tímabundið ólaunað starf í þágu samfélagsins, svo sem líknar- eða félagsstarf ýmiss konar, sem kemur í stað afplánunar fangelsisrefsingar í fangelsi. Starfið er unnið utan vinnutíma dómþola og getur hann því stundað atvinnu sína eða nám á meðan og verið virkur þjóðfélagsþegn. Fangelsismálastofnun getur ákveðið að hluti ólaunuðu samfélagsþjónustunnar skuli felast í viðtalsmeðferð.
Þeir sem dæmdir hafa verið í allt að sex mánaða óskilorðsbundið fangelsi geta sótt um samfélagsþjónustu. Þegar um er að ræða fangelsisrefsingu samkvæmt fleiri en einum dómi má samanlögð refsing ekki vera lengri en sex mánuðir. Sama gildir um blandaða dóma, þ.e. þegar hluti fangelsisrefsingar er skilorðsbundinn. Skilyrði þess að samfélagsþjónusta komi til álita eru að umsækjandi eigi ekki til meðferðar mál hjá lögreglu, ákæruvaldi eða dómstólum, þar sem hann er kærður fyrir refsiverðan verknað.
Hafi lögreglustjóri ákveðið að maður skuli afplána vararefsingu fésektar sem er 60.000 kr. eða hærri er heimilt, ef almannahagsmunir mæla ekki gegn því, að fullnusta vararefsingu með ólaunaðri samfélagsþjónustu, minnst 40 klst. og mest 480 klst. Hafi sektarþoli fengið fimm eða fleiri sektir fyrir sambærileg brot verður vararefsing að jafnaði ekki fullnustuð með samfélagsþjónustu. Að uppfylltum m.a. þessum skilyrðum getur sektarþoli sótt um samfélagsþjónustu.
Lögin takmarka ekki heimild til samfélagsþjónustu við ákveðna brotaflokka en mat á því hvort almannahagsmunir mæla gegn ólaunaðri samfélagsþjónustu tengist broti.
Fangelsismálastofnun sér um að útvega hentuga vinnustaði fyrir samfélagsþjónustu. Í viðauka má finna yfirlit yfir þá vinnustaði sem hafa haft dómþola í samfélagsþjónustu frá janúar 2004 og til janúar 2007. Aðallega er um að ræða líknar- og félagsstörf hjá félagasamtökum og opinberum stofnunum. Starf getur t.d. falist í þrifum, viðhaldi, umönnun og skrifstofustörfum. Val á starfi fer eftir því hvaða störf eru laus á hverjum tíma og hvað telst hæfa umsækjanda að mati Fangelsismálastofnunar.
Fulltrúi frá Fangelsimálastofnun fer jafnan á vinnustaðinn í fyrsta skipti þegar umsókn dómþola hefur verið samþykkt og kannar aðstæður. Síðan fylgir stofnunin reglulega með framvindu og er talsvert eftirlit með dómþola á meðan samfélagsþjónustan stendur. Almennt séð hefur gengið vel að finna vinnu fyrir viðkomandi dómþola.
Fjöldi þeirra sem hefja samfélagsþjónustu í stað óskilorðsbundinnar fangelsisrefsingar innan hvers árs:
| 1995 | 1996 | 1997 | 1998 | 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 |
| 20 | 45 | 49 | 84 | 60 | 80 | 82 | 88 | 83 | 59 | 74 | 93 |
Fjöldi þeirra sem hefja samfélagsþjónustu í stað vararefsingar innan hvers árs:
| 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 |
| 52 | 60 | 118 | 206 | 196 | 131 | 103 |