Þskj. 971 — 652. mál.
Tillaga til þingsályktunar
um staðfestingu samninga milli Evrópusambandsins og lýðveldisins Íslands og konungsríkisins Noregs um málsmeðferð við afhendingu
milli aðildarríkja Evrópusambandsins og Íslands og Noregs og gagnkvæma réttaraðstoð og staðfestingu ákvörðunar ráðherraráðs Evrópusambandsins nr. 2003/169/JHA.
(Lögð fyrir Alþingi á 133. löggjafarþingi 2006–2007.)
Alþingi ályktar að heimila ríkisstjórninni:
1) að staðfesta fyrir Íslands hönd samning milli Evrópusambandsins og lýðveldisins Íslands og konungsríkisins Noregs um málsmeðferð við afhendingu milli aðildarríkja Evrópusambandsins og Íslands og Noregs, sem undirritaður var í Vín 28. júní 2006;
2) að staðfesta samning milli Evrópusambandsins og lýðveldisins Íslands og konungsríkisins Noregs um beitingu tiltekinna ákvæða samningsins frá 29. maí 2000 um gagnkvæma réttaraðstoð í sakamálum milli aðildarríkja Evrópusambandsins og bókunar við hann frá 16. október 2001, sem undirritaður var í Brussel 19. desember 2003;
3) að samþykkja ákvörðun ráðherraráðs Evrópusambandsins nr. 2003/169/JHA um það hvaða ákvæði samningsins frá 1995 um einfaldaða málsmeðferð við framsal milli aðildarríkja Evrópusambandsins og samningsins frá 1996 um framsal milli aðildarríkja Evrópusambandsins teljist vera þróun á Schengen-gerðunum samkvæmt samningnum um þátttöku lýðveldisins Íslands og konungsríkisins Noregs í framkvæmd, beitingu og þróun Schengen-gerðanna.
Athugasemdir við þingsályktunartillögu þessa.
A. Inngangur.
Með þingsályktunartillögu þessari er leitað eftir heimild Alþingis til að staðfesta tvo samninga milli Íslands, Noregs og ríkja Evrópusambandsins um málsmeðferð við afhendingu milli aðildarríkja Evrópusambandsins og Íslands og Noregs og gagnkvæma réttaraðstoð í sakamálum. Enn fremur er leitað heimildar Alþingis til að samþykkja ákvörðun ráðherraráðs Evrópusambandsins nr. 2003/169/JHA um það hvaða ákvæði samningsins frá 1995 um einfaldaða málsmeðferð við framsal milli aðildarríkja Evrópusambandsins og samningsins frá 1996 um framsal milli aðildarríkja Evrópusambandsins teljist vera þróun á Schengen- gerðunum samkvæmt samningnum um þátttöku lýðveldisins Íslands og konungsríkisins Noregs í framkvæmd, beitingu og þróun Schengen-gerðanna.
Undanfarinn áratug hefur samstarf aðildarríkja Evrópusambandsins á sviði dóms- og innanríkismála stóraukist. Eitt þeirra sviða sem áhersla hefur verið lögð á í þeim efnum er aukin samvinna á sviði réttaraðstoðar í sakamálum, þ.m.t. framsal sakamanna. Samvinna milli aðildarríkja Evrópusambandsins á þessu sviði fellur að mestu leyti undir svonefnda þriðju stoð þess og ber af þeim sökum einkenni hefðbundins milliríkjasamstarfs.
Árið 1995 gerðu aðildarríki Evrópusambandsins samning sín á milli um einfaldaða málsmeðferð við framsal sín á milli og ári síðar gerðu þau samning um framsal sakamanna. Er markmið þessara tveggja samninga að einfalda og hraða framkvæmd framsalsmála. Nánar verður vikið að efni þessara samninga hér að neðan. Árið 2000 gerðu aðildarríki Evrópusambandsins sín á milli samning um gagnkvæma réttaraðstoð í sakamálum. Er markmið samningsins að bæta og auka réttaraðstoð milli ríkjanna í sakamálum á grundvelli fyrirliggjandi samvinnu, þ.e. ákvæða Evrópusamnings um gagnkvæma aðstoð í sakamálum frá 20. apríl 1959 ásamt síðari viðbótarbókun við þann samning, auk ákvæða Schengen-samningsins um þetta efni.
Þá samþykkti ráðherraráð Evrópusambandsins í júní 2002 rammaákvörðun nr. 2002/584/ JHA um evrópsku handtökuskipunina. Ákvörðunin felur í sér ákveðnar grundvallarbreytingar á framkvæmd framsalsmála milli aðildarríkja Evrópusambandsins þar sem rammaákvörðunin gerir ráð fyrir því að gefi dómstóll í einu aðildarríkja Evrópusambandsins út handtökuskipun á hendur sakamanni vegna tilgreindra alvarlegra brota, þá beri yfirvöldum í því landi sem maðurinn dvelst að handtaka viðkomandi og framselja hann til þess ríkis þar sem handtökuskipunin var gefin út, án frekari atbeina ráðuneyta eða dómstóla í því landi sem sakamaður dvelst. Jafnframt er fallið frá þeirri meginreglu að sakamaður skuli ekki framseldur úr landi vegna verknaðar sem ekki er refsiverður þar sem hann dvelst (svonefnt skilyrði um tvöfalt refsinæmi) og jafnframt þeirri reglu að ríki sé ekki skylt að framselja eigin ríkisborgara.
Schengen-samningurinn frá 1990 hafði að geyma ákvæði um gagnkvæma réttaraðstoð í sakamálum og framsal sakamanna. Hefur þróun samstarfs á meðal aðildarríkja Evrópusambandsins á þessu sviði því bein áhrif á framkvæmd Schengen-samstarfsins. Eigi að síður hefur það verið afstaða Evrópusambandsins að samstarf aðildarríkjanna á þessu sviði falli aðeins að hluta til undir Schengen-samstarfið. Með ákvörðun ráðherraráðs Evrópusambandsins nr. 2003/169/JHA var mælt fyrir um hvaða ákvæði framsalssamninganna frá 1995 og 1996 teldust vera þróun á Schengen-gerðunum samkvæmt samningnum um þátttöku lýðveldisins Íslands og konungsríkisins Noregs í framkvæmd, beitingu og þróun Schengen- gerðanna. Gerir ákvörðunin ráð fyrir að hluti ákvæða framangreindra samninga teljist vera þróun á Schengen-gerðunum og skuli af þeim sökum gilda einnig gagnvart Íslandi og Noregi. Í 2. gr. samnings aðildarríkja Evrópusambandsins frá 2000 um gagnkvæma réttaraðstoð í sakamálum er jafnframt mælt fyrir um hvaða ákvæði samningsins teljist tengjast Schengen- gerðunum. 1 Afstaða Evrópusambandsins hefur hins vegar verið sú að rammaákvörðun ráðherraráðsins nr. 2002/584/JHA um evrópsku handtökuskipunina teldist í engu tengjast Schengen-gerðunum.
Þessi niðurstaða leiðir því til þess að aðeins hluti af þeim reglum sem gilda meðal aðildarríkja Evrópusambandsins um réttaraðstoð í sakamálum og framsal sakamanna telst falla undir Schengen-samstarfið og þar af leiðandi gildir aðeins sá hluti þeirra gagnvart þeim Schengen-ríkjum sem standa utan Evrópusambandsins (þ.e. Íslandi og Noregi og síðar Sviss). Eigi að síður gera hin nánu tengsl á milli Schengen-ríkjanna á sviði landamæravörslu það að verkum að þessi ríki eiga talsverða hagsmuni af samvinnu í baráttunni gegn afbrotum. Aukið samstarf á milli Schengen-ríkjanna á sviði réttaraðstoðar í sakamálum og framsals sakamanna er þannig til þess fallið að styrkja aðgerðir stjórnvalda í þessum ríkjum gegn skipulagðri afbrotastarfsemi og jafnframt einfalda til mikilla muna samstarf yfirvalda við rannsókn og meðferð sakamála og framkvæmd framsalsmála á milli þessara ríkja. Af þessum sökum var það sameiginleg niðurstaða Evrópusambandsins, aðildarríkja þess og Íslands og Noregs að hefja samningaviðræður um nánara samstarf á milli þessara ríkja á þessu sviði. Þessum samningaviðræðum lauk með gerð tveggja samninga. Annars vegar er um að ræða samning milli Evrópusambandsins, Íslands og Noregs um beitingu þeirra ákvæða samnings aðildarríkja Evrópusambandsins um gagnkvæma réttaraðstoð í sakamálum sem töldust ekki varða Schengen-gerðirnar skv. 2. gr. samningsins, en sá samningur var undirritaður í Brussel 19. desember 2003. Hins vegar liggur fyrir samningur um málsmeðferð við afhendingu milli aðildarríkja Evrópusambandsins og Íslands og Noregs sem var undirritaður í Vín 28. júní 2006.
B. Samningur um málsmeðferð við afhendingu.
Hinn 2. september 2003 samþykkti ríkisstjórnin umboð til að samið yrði við ESB um framsalsmál með vísan til evrópsku handtökuskipunarinnar. Samningaviðræður hófust fljótlega í kjölfarið og var samningur undirritaður af Sveini Björnssyni, sendiherra í Vín, þann 28. júní 2006. Samningurinn kallar á breytingu á lögum um framsal sakamanna og aðra aðstoð í sakamálum og vinnur dóms- og kirkjumálaráðuneytið að undirbúningi frumvarps af þeim sökum.
Efni samningsins er á flestum sviðum hliðstætt rammaákvörðun Evrópusambandsins um hina evrópsku handtökuskipun. Felur það m.a. í sér að leitast er við að einfalda það ferli sem viðhaft verður vegna meðferðar beiðna um afhendingu sakamanna. Samningurinn tekur til nánar tilgreindra brota sem afmarkast m.a. af refsiþyngd brotanna. Skilyrðinu um tvöfalt refsinæmi er framfylgt í samningnum, en fulltrúar Íslands höfðu frá upphafi viðræðna lagt áherslu á það skilyrði. Brot sem stendur að baki afhendingarbeiðni verður því að vera refsivert í báðum þeim ríkjum sem hlut eiga að máli, en heimilt er að hverfa frá þessu með sérstakri yfirlýsingu. Gert er ráð fyrir að slík yfirlýsing verði ekki gefin af hálfu Íslands. Þó má taka fram að samningurinn gerir ráð fyrir því að afhendingar verði ekki synjað vegna tiltekinna alvarlegra brota sem teljast til hryðjuverka, þegar þau eru framin af samtökum manna í þeim tilgangi sem getið er um í Evrópusamningi um varnir gegn hryðjuverkum og rammaákvörðun ráðherraráðs Evrópusambandsins frá 13. júní 2002. Í samningnum er gert ráð fyrir þeirri meginreglu að afhendingar eigin ríkisborgara verði ekki synjað, en frá þeirri meginreglu má víkja með sérstakri yfirlýsingu. Ætla má að slík yfirlýsing verði gefin af hálfu Íslands. Í samningnum eru að öðru leyti ákvæði um form og efni afhendingarbeiðna, málsmeðferð þeirra og fresti til ákvörðunartöku, en áhersla er lögð á að slíkt dragist ekki úr hófi fram. Einnig er mælt fyrir um hvernig staðið skuli að afhendingu viðkomandi einstaklings og innan hvaða tímamarka afhending skuli fara fram.
Ísland er aðili að samningi Evrópuráðsins um framsal sakamanna, frá 13. desember 1957, og tveimur viðbótarsamningum við hann, en allir samningarnir voru fullgiltir 20. júní 1984 og öðluðust gildi 18. september 1984. Samningur sá sem hér er til umfjöllunar er til fyllingar samningum Evrópuráðsins, en í einstökum tilvikum gengur hann lengra en fyrri samningar. Samningurinn mun koma í stað ákvæða Schengen-samningsins um framsal og annarra samninga Evrópusambandsins um framsal sem teljast tengjast Schengen-samstarfinu. Samningar á norrænum vettvangi, sem Ísland er aðili að, halda gildi sínu ef þeir samræmast markmiðum þessa samnings og verður því sérstakt norrænt fyrirkomulag áfram við lýði.
Nánar um samning um málsmeðferð við afhendingu.
Í inngangsorðum og í 1. gr. samningsins kemur fram það markmið hans að bæta réttaraðstoð í sakamálum milli aðildarríkja Evrópusambandsins og Íslands og Noregs. Þetta skal þó gert með hliðsjón af ákvæðum um verndun einstaklingsfrelsis. Lögð er áhersla á að grundvallarmannréttindi skuli virt og þess jafnframt getið að þær persónuupplýsingar sem unnar eru í tengslum við framkvæmd samningsins njóti verndar í samræmi við meginreglur samnings Evrópuráðsins frá 28. janúar 1981 um vernd einstaklinga varðandi vélræna vinnslu persónuupplýsinga, en öll ríkin hafa fullgilt þann samning.
Í 2. gr. er að finna skilgreiningar.
Í 3. gr. er að finna heimild til útgáfu handtökuskipunar, vegna verknaða sem refsiverðir eru samkvæmt lögum útgáfuríkis. Það skilyrði er sett að hámarkstímabil þeirrar refsivistar eða öryggisráðstöfunar sem liggi við broti séu 12 mánuðir hið minnsta, en þegar refsing eða öryggisráðstöfun hefur þegar verið ákveðin skal hún vera fjórir mánuðir hið minnsta.
Í 4. gr. er mælt fyrir um þrjú tilvik sem leggja þá skyldu á dómsmálayfirvald framkvæmdarríkis að synja um framkvæmd handtökuskipunar vegna verknaðar hins eftirlýsta. Í fyrsta lagi á það við ef afbrotið fellur undir almenna sakaruppgjöf í framkvæmdarríkinu, hafi það ríki lögsögu til að sækja til saka fyrir afbrotið, í öðru lagi ef fullnaðardómur ríkis yfir hinum eftirlýsta hefur gengið vegna sama verknaðar (hafi refsing verið ákvörðuð, afplánun lokið eða standi yfir eða ekki sé lengur heimilt að fullnusta dóminn samkvæmt lögum dómsríkisins) og í þriðja lagi ef óheimilt er sakir aldurs þess eftirlýsta að láta hann sæta refsiábyrgð samkvæmt lögum framkvæmdarríkisins.
Samkvæmt 5. gr. samningsins hafa aðildarríki heimild til að skylda eða heimila dómsmálayfirvaldi framkvæmdarríkis að synja um framkvæmd handtökuskipunar í ákveðnum tilvikum, s.s. ef verið er að sækja manninn til saka í framkvæmdarríkinu fyrir sama verknað eða ef saksókn eða refsing er fyrnd.
Samkvæmt 6. gr. er óheimilt að synja um framkvæmd handtökuskipunar á grundvelli þess að framkvæmdarríkið kunni að líta á afbrotið sem stjórnmálaafbrot, afbrot tengt stjórnmálaafbroti eða afbrot sem sprottið er af stjórnmálaástæðum.
Samkvæmt 7. gr. er óheimilt að synja um framkvæmd handtökuskipunar á þeim grundvelli að hinn eftirlýsti sé ríkisborgari framkvæmdarríkisins. Í ákvæðinu er samningsaðilum þó veitt heimild til að leggja fram yfirlýsingu um að þeir muni ekki afhenda eigin ríkisborgara eða afhendi þá einungis við sérstakar tilgreindar aðstæður. Sé slík yfirlýsing gefin af útgáfuríki handtökuskipunar er framkvæmdarríki heimilt að beita gagnkvæmni við framkvæmd handtökuskipunar.
Ákvæði 8. gr. veitir heimild til þess að setja skilyrði fyrir framkvæmd á handtökuskipun í ákveðnum tilvikum, s.s. ef handtökuskipun er gefin út til að framfylgja refsidómi eða öryggisráðstöfun á grundvelli ákvörðunar sem tekin var í fjarveru þess sem hún beinist gegn og viðkomandi hefur ekki fengið fullnægjandi upplýsingar við þá framkvæmd.
Í 9. gr. er að finna ákvæði um hvaða dómsmálayfirvald telst vera lögbært til að gefa út handtökuskipun.
Samkvæmt 10. gr. er samningsaðilum heimilt að senda hverjum öðrum tilkynningar um það hvaða miðlæg yfirvöld, eitt eða fleiri, skuli samkvæmt réttarkerfi viðkomandi ríkis vera lögbærum dómsmálayfirvöldum til aðstoðar.
Í 11. gr. er að finna ákvæði um efni og framsetningu handtökuskipunar.
Samkvæmt 12. gr. getur dómsmálayfirvald útgáfuríkis sent handtökuskipun beint til dómsmálayfirvalds framkvæmdarríkis, sé dvalarstaður eftirlýsts manns ljós. Dómsmálayfirvaldi útgáfuríkis er enn fremur heimilt að skrá eftirlýstan mann í Schengen-upplýsingakerfið.
Samkvæmt 13. gr. skal dómsmálayfirvald útgáfuríkis senda fyrirspurnir til að afla upplýsinga frá framkvæmdarríki, sé óljóst hvaða dómsmálayfirvald skuli annast framkvæmdina. Sé ekki unnt að nýta þjónustu Schengen-upplýsingakerfisins er því dómsmálayfirvaldi sem óskar afhendingar heimilt að leita til Alþjóðasambands sakamálalögreglu (interpol).
Samkvæmt 14. gr. hefur eftirlýstur maður þann skýlausa rétt að vera upplýstur um handtökuskipunina og efni hennar í samræmi við landslög og jafnframt um að hann eigi þess kost að samþykkja afhendinguna. Hinn handtekni á rétt til aðstoðar lögfræðings og túlks í samræmi við landslög framkvæmdarríkis.
Samkvæmt 15. gr. skal dómsmálayfirvald framkvæmdarríkis ákveða hvort handteknum manni (á grundvelli handtökuskipunar) verði haldið í gæsluvarðhaldi í samræmi við lög þess. Heimilt er að sleppa manni til bráðabirgða (í samræmi við landslög framkvæmdarríkis) að því tilskildu að allar ráðstafanir séu gerðar sem nauðsynlegar teljast til þess að koma í veg fyrir að hann komist undan.
Í 16. gr. kemur fram að í samræmi við landslög framkvæmdarríkis skal samþykki hins handtekna fyrir afhendingu og eftir atvikum afsal réttar til að verða ekki sóttur til saka í útgáfuríki fyrir annað brot en það sem er grundvöllur handtökuskipunarinnar gefið frammi fyrir dómsmálayfirvaldi þess. Sérhverjum samningsaðila ber að tryggja ráðstafanir sem stuðla að því að slíkt samþykki og afsal sé gefið af fúsum og frjálsum vilja, þeim sem í hlut á sé kunnugt um afleiðingarnar, en í því skyni skal eftirlýstur maður eiga rétt á ráðgjöf lögfræðings. Meginreglan er að samþykki þetta er óafturkallanlegt en hvert ríki getur þó kveðið á um annað í samræmi við landslög.
Samkvæmt 17. gr. á hinn handtekni rétt á því að skýrsla sé tekin af honum fyrir dómsmálayfirvaldi framkvæmdarríkis í samræmi við lög þess, samþykki hann ekki afhendingu.
Samkvæmt 18. gr. ber dómsmálayfirvaldi framkvæmdarríkis að ákveða hvort maður skuli afhentur. Teljist upplýsingar sem útgáfuríkið sendir með handtökuskipun ekki nægja til að mögulegt sé að taka ákvörðun þar um skal biðja um viðbótarupplýsingar og setja má frest fyrir móttöku þeirra.
Í 19. gr. kemur fram að ef tvö eða fleiri ríki hafa gefið út handtökuskipun á hendur sama manni skuli dómsmálayfirvald framkvæmdarríkisins taka ákvörðun um það hvor þeirra skuli koma til framkvæmda. Dómsmálayfirvaldið má leita ráða hjá Evrópsku réttaraðstoðinni (Eurojust) vegna þessarar ákvörðunar. Rísi ágreiningur um hvort handtökuskipun og framsalsbeiðni þriðja ríkis gangi framar skal lögbært yfirvald í framkvæmdarríkinu taka ákvörðun um það hvort skuli hafa forgang.
Í 20. gr. kemur fram sú meginregla að fjalla skuli um og framkvæma handtökuskipun eins fljótt og auðið er. Hafi eftirlýstur maður samþykkt afhendingu skal endanleg ákvörðun framkvæmd innan 10 daga frá samþykki. Liggi samþykki hins vegar ekki fyrir er frestur til ákvörðunartöku 60 dagar eftir handtöku mannsins. Verði töf ber að tilkynna það dómsmálayfirvaldi þess ríkis sem óskar afhendingar og er þá heimilt að framlengja frestinn um 30 daga.
Í 21. gr. er kveðið á um að dómsmálayfirvaldi sem annast framkvæmd handtökuskipunar vegna saksóknar beri annaðhvort að samþykkja að eftirlýstur maður fái að gefa skýrslu eða samþykkja tímabundinn flutning hans.
Samkvæmt 22. gr. skal dómsmálayfirvald framkvæmdarríkis taka skýrslu af hinum eftirlýsta og njóta til þess aðstoðar einstaklings sem er tilnefndur í samræmi við lög þess ríkis sem afhendingar óskar. Skýrslutakan skal vera í samræmi við lög framkvæmdarríkisins og með þeim skilyrðum sem hlutaðeigandi dómsmálayfirvöld beggja ríkja komast að gagnkvæmu samkomulagi um.
Í 23. gr. kemur fram að ef ákvörðun um afhendingu varðar eftirlýstan mann sem nýtur sérréttinda eða friðhelgi varðandi lögsögu eða fullnustu í framkvæmdarríkinu hefjist fresturinn ekki fyrr en tilkynnt hefur verið að þau hafi verið felld niður.
Í 24. gr. er tekið fram að samningurinn hafi ekki áhrif á skuldbindingar framkvæmdarríkisins þegar þriðja ríki framselur eftirlýstan mann til þess og hinn eftirlýsti nýtur verndar samkvæmt sérreglum í fyrirkomulagi því sem afhendingin er grundvölluð á.
Samkvæmt 25. gr. skal dómsmálayfirvald framkvæmdarríkis tilkynna dómsmálayfirvaldi útgáfuríkis þegar í stað þegar ákvörðun hefur verið tekin um hvort handtökuskipun komi til framkvæmdar.
Samkvæmt 26. gr. skal afhenda eftirlýstan mann við fyrsta tækifæri á þeim degi sem hlutaðeigandi yfirvöld koma sér saman um, en veittur er 10 daga frestur til afhendingar eftir að endanleg ákvörðun um framkvæmd handtökuskipunar liggur fyrir. Í undantekningartilvikum, s.s. þegar upp koma aðstæður sem ríkin ráða ekki við eða fresta þarf afhendingu af brýnum mannúðarástæðum, geta ríkin komið sér saman um annan afhendingardag. Sé eftirlýstur maður enn í haldi þegar framangreindir frestir renna út skal láta hann lausan.
Samkvæmt 27. gr. er dómsmálayfirvaldi því sem framkvæmdina annast heimilt að fresta afhendingu eftirlýsts manns eftir að ákvörðun um að framkvæma handtökuskipunina hefur verið tekin. Þannig er unnt að sækja hinn eftirlýsta til saka í framkvæmdarríkinu eða ef ákvörðun um refsingu hefur verið tekin láta hann afplána dóm á yfirráðasvæði þess fyrir annan verknað en þann sem um getur í handtökuskipuninni.
Í 28. gr. er kveðið á um skyldu hvers aðildarríkis samningsins til að heimila gegnumflutning eftirlýsts manns, sem er sendur til afhendingar um yfirráðasvæði sitt, að því tilskildu að það fái nánar tilgreindar upplýsingar varðandi flutninginn.
Samkvæmt 29. gr. ber útgáfuríki að draga þann gæsluvarðhaldstíma sem rekja má til framkvæmdar handtökuskipunarinnar frá þeim heildartíma refsingar sem viðkomandi ber að afplána í útgáfuríkinu á grundvelli úrskurðar um refsivist eða öryggisráðstöfun.
Í 2. mgr. 30. gr. kemur fram sú meginregla að óheimilt er að sækja mann sem afhentur er til saka, dæma hann til refsingar eða svipta hann að öðru leyti frelsi sínu fyrir annað afbrot en það sem hann var afhentur fyrir og var framið áður en til afhendingar kom. Undantekningar á þessari meginreglu er að finna í 1. og 3. mgr. ákvæðisins. Annars vegar er samningsaðilum heimilt að tilkynna um þá afstöðu að samþykki liggi fyrir brotum sem framin voru áður en afhending á sér stað. Hins vegar eru tilteknar ákveðnar aðstæður þar sem meginreglan gildir ekki, s.s. þegar afbrotið leiðir hvorki til fangelsisvistar né öryggisráðstöfunar eða ef viðkomandi hefur gefið samþykki sitt fyrir afhendingu.
Í 31. gr. eru talin upp tilvik sem heimila að maður, sem afhentur hefur verið útgáfuríki samkvæmt handtökuskipun, geti fengið sig afhentan öðru ríki en framkvæmdarríkinu samkvæmt handtökuskipun vegna afbrots sem framið var áður en til afhendingar kom, án samþykkis framkvæmdarríkisins.
Í 32. gr. kemur fram að því dómsmálayfirvaldi sem annast framkvæmd handtökuskipunar er skylt að leggja hald á og afhenda hluti sem gæti þurft sem sönnunargögn eða hinn eftirlýsti hefur aflað með afbroti sínu, að beiðni þess dómsmálayfirvalds sem gefur handtökuskipun út eða að eigin frumkvæði samkvæmt landslögum.
Samkvæmt 33. gr. samningsins greiðir framkvæmdarríkið allan kostnað við framkvæmd handtökuskipunar sem til fellur á yfirráðasvæði þess, en útgáfuríkið ber allan annan kostnað.
Samkvæmt 34. gr. skal samningurinn koma í stað samsvarandi ákvæða í tilgreindum samningum sem gilda um framsal milli Noregs og Íslands annars vegar og aðildarríkja ESB hins vegar. Samningsaðilum er heimilt að beita áfram tví- eða marghliða samningum sem í gildi eru þegar gerð samningsins lýkur, að því marki sem slíkur samningur er víðtækari en markmið þessa samnings og greiðir fyrir eða einfaldar málsmeðferð við afhendingu manna sem handtökuskipun hefur verið gefin út á. Samningsaðilum er jafnframt heimilt að gera tví- eða marghliða samning eftir gildistöku samningsins ef slíkur samningur útvíkkar eða eykur við efni þessa samnings og stuðlar að því að einfalda eða greiða fyrir ofangreindri málsmeðferð.
C. Samningur Íslands og Noregs við Evrópusambandið frá 2003 um beitingu tiltekinna ákvæða samnings aðildarríkja ESB um gagnkvæma réttaraðstoð í sakamálum.
Samningur Íslands og Noregs við Evrópusambandið um réttaraðstoð í sakamálum mælir fyrir um að þau efnisákvæði samnings aðildarríkja ESB um gagnkvæma réttaraðstoð í sakamálum frá 2000, sem ekki töldust vera þróun á Schengen-gerðunum skv. 2. gr. hans, skuli gilda í samskiptum Íslands og Noregs við aðildarríki Evrópusambandsins, sem og í gagnkvæmum samskiptum milli þessara tveggja ríkja. Þá mælir samningurinn fyrir um að tiltekin ákvæði bókunar við samning Evrópusambandsríkjanna frá 2001 skuli einnig gilda gagnvart Íslandi og Noregi. Enn fremur hefur samningurinn að geyma ákvæði um hvernig tryggja skuli samræmda beitingu og túlkun samningsins og hvernig leysa skuli úr ágreiningi varðandi túlkun og beitingu hans. Þá má vekja athygli á 3. gr. samningsins sem mælir fyrir um að í þeim tilfellum sem aðildarríki ESB kann að hafna beiðni frá Íslandi eða Noregi um aðstoð á grundvelli samningsins sé síðarnefndu ríkjunum heimilt að fara fram á það við viðkomandi aðildarríki að það greini Evrópsku réttaraðstoðinni (Eurojust) í Haag frá þeim vandamálum sem upp koma varðandi framkvæmd beiðninnar með það í huga að leita raunhæfra lausna. Þess má geta í þessu samhengi að Ísland gerði samstarfssamning við Eurojust þann 2. desember 2005.
Nánar um samning aðildarríkja Evrópusambandsins um gagnkvæma réttaraðstoð í sakamálum.
Eins og áður er getið um hefur ofangreindur samningur Íslands og Noregs við Evrópusambandið fyrst og fremst að geyma tilvísanir til ákvæða samnings aðildarríkja Evrópusambandsins um gagnkvæma réttaraðstoð frá árinu 2000. Nánar tiltekið gerir samningurinn ráð fyrir því að ákvæði 4., 8., 9., 10., 11., 13., 14., 15., 16., 17., 18., 19., 20., 21., 22., 25., og 26. gr. samnings aðildarríkja ESB, sem og 1. gr. og 24. gr. hans að því marki sem þær greinar varða framangreindar greinar samningsins, skuli gilda í samskiptum Íslands og Noregs sín á milli og við aðildarríki ESB. Er því rétt að gera nánar grein fyrir efni samnings aðildarríkja ESB og helstu ákvæðum hans sem vísað er til í samningi Íslands og Noregs við Evrópusambandið frá 2003.
Markmið samnings ESB um gagnkvæma réttaraðstoð er að bæta og auka réttaraðstoð milli ríkjanna í sakamálum á þeim grundvelli sem þegar er fyrir hendi, en sú samvinna hvílir einkum á Evrópusamningi um gagnkvæma aðstoð í sakamálum frá 20. apríl 1959, ásamt viðbótarbókun frá 17. mars 1978, og samningi frá 19. júní 1990 um framkvæmd Schengen- samkomulagsins frá 15. júní 1985 (Schengen-samningnum). Samningur ríkja Evrópusambandsins um gagnkvæma réttaraðstoð í sakamálum felur meðal annars í sér breytingu á Schengen-reglum sem gilda á þessu sviði og getið er um í viðauka A við samninginn sem ráð Evrópusambandsins og lýðveldið Ísland og konungsríkið Noregur gerðu með sér um þátttöku hinna síðarnefndu í framkvæmd, beitingu og þróun Schengen-gerðanna.
Samkvæmt 4. gr. samningsins skal, þegar gagnkvæm réttaraðstoð er veitt, það aðildarríki sem beiðni er beint til uppfylla þau formlegu skilyrði og fylgja þeirri málsmeðferð sem aðildarríkið sem leggur fram beiðni tilgreinir sérstaklega.
Samkvæmt 8. gr. samningsins um skil getur aðildarríki orðið við beiðni um að afhenda öðru aðildarríki hluti til umráða sem fengnir voru með ólögmætum hætti með það í huga að þeim verði skilað til réttmætra eigenda, með fyrirvara um réttindi þriðja aðila í góðri trú. Þá geta aðildarríki gert með sér samning um tímabundinn flutning manna sem eru í varðhaldi vegna rannsóknar, sbr. 9. gr. samningsins. Samningnum er ætlað að taka mið af þeim miklu tæknibreytingum sem orðið hafa á síðustu árum og er samningsaðilum gert kleift að nýta sér þá þróun. Þannig getur réttaraðstoðar verið óskað og hún veitt með yfirheyrslu á myndfundi, sbr. 10. gr. samningsins. Þá getur yfirheyrsla vitna og sérfræðinga farið fram á símafundi með þeirra samþykki, sbr. 11. gr. Samningnum er einnig ætlað að taka mið af nýjum aðstæðum sem skapast hafa við afnám eftirlits á sameiginlegum landamærum í kjölfar Schengen-samningsins. Frjáls för fólks milli ríkja samningsaðila hefur leitt til breyttrar brotastarfsemi og sú þróun kallar á nýjar reglur sem gera yfirvöldum kleift að takast á við breyttar aðstæður. Ákvæði 12. gr. samningsins um afhendingu undir eftirliti við rannsókn sakamála vegna brota sem leitt geta til framsals hefur þegar verið innleitt, með lögum nr. 45/2001, um breyting á lögum um framsal sakamanna og aðra aðstoð í sakamálum, nr. 13/1984. Þá heimilar samningurinn aðildarríkjum, með gagnkvæmu samkomulagi, að koma á fót sérstökum sameiginlegum rannsóknarhópum, sbr. 13. gr. Aðildarríki geta einnig komið sér saman um að aðstoða hvert annað við rannsókn sakamáls með því að nota lögreglumenn sem starfa leynilega eða undir fölsku nafni (rannsókn með aðstoð flugumanna), sbr. 14. gr. samningsins. Um réttarstöðu slíkra rannsóknarmanna er fjallað í 15. og 16. gr. samningsins.
III. bálkur samningsins (17.–22. gr.) hefur að geyma ítarleg ákvæði um hlerun fjarskipta, sem taka tillit til þeirra miklu tæknibreytinga sem orðið hafa á því sviði, og er réttaraðstoð gerð skilvirkari og um leið árangursríkari hvað hleranir varðar. Ákvæði 1. mgr. 1. gr. Evrópusamnings um gagnkvæma aðstoð í sakamálum frá 1959 hefur hingað til legið til grundvallar réttaraðstoð milli ríkja, en þær skuldbindingar voru ekki taldar fullnægjandi í mörgum tilvikum. Sérstaklega var talin þörf á frekari skuldbindingu ríkja hvað varðar hleranir á sviði farsímakerfa. Á sviði farsíma hafa orðið hvað mestar tæknibreytingar á síðustu árum og að sama skapi eru farsímafjarskipti mikið notuð við framkvæmd refsiverðs athæfis. Skv. 17. gr. samningsins skal, að því er tekur til beitingar 18., 19. og 20. gr., þar til bært yfirvald merkja dómsmálayfirvald eða, þegar dómsmálayfirvöld hafa ekki lögsögu á því sviði sem ákvæðin ná yfir, sambærilegt þar til bært yfirvald sem tilgreint hefur verið af ríki og vinnur að rannsókn sakamáls. Hér á landi væri þar til bært yfirvald dómsmálaráðuneytið, nema annað sé ákveðið með samningi við annað ríki. Ákvæði 18. gr. samningsins fjallar um beiðnir um hlerun fjarskipta í þágu rannsóknar sakamáls í öðru ríki, 19. gr. fjallar um hlerun fjarskipta á eigin yfirráðasvæði með aðstoð þjónustuveitenda og 20. gr. fjallar um tilkynningar um hlerun fjarskipta án tæknilegrar aðstoðar annars aðildarríkis. Skv. 21. gr. skal það aðildarríki sem leggur fram beiðni bera kostnað sem fjarskiptafyrirtæki eða þjónustuveitendur stofna til þegar orðið er við beiðnum skv. 18. gr. samningsins. Í 22. gr. er tekið fram að framangreind ákvæði komi ekki í veg fyrir tvíhliða eða fjölþjóðlega samninga milli aðildarríkjanna til þess að auðvelda að tæknilegir möguleikar séu nýttir í nútíð og framtíð að því er varðar löglega hlerun fjarskipta.
Bókun við samninginn er viðbótarráðstöfun á sviði gagnkvæmrar réttaraðstoðar í sakamálum til að berjast gegn afbrotum. Bókuninni er sérstaklega ætlað að taka til skipulagðrar brotastarfsemi, peningaþvættis og efnahagsbrota. Ákvæði 1. gr. bókunarinnar fjallar um beiðni um upplýsingar um bankareikninga og skyldu aðildarríkja til að gera nauðsynlegar ráðstafanir til að geta veitt aðildarríki slíkar upplýsingar, að vissum skilyrðum uppfylltum. Þá fjallar 2. gr. bókunar um beiðni um upplýsingar um bankaviðskipti, 3. gr. um beiðni um eftirlit með bankaviðskiptum, 4. gr. um trúnaðarkvöð, 5. gr. um upplýsingaskyldu og 6. gr. um viðbótarbeiðnir um gagnkvæma réttaraðstoð. Skv. 7. gr. skal aðildarríki ekki skírskota til bankaleyndar sem ástæðu til að synja um samvinnu þegar beiðni berst um gagnkvæma réttaraðstoð frá öðru aðildarríki. Þá er aðildarríki ekki heimilt að synja um samvinnu á grundvelli þeirrar ástæðu að um sé að ræða rannsókn á skattabroti, sbr. 8. gr., eða að um sé að ræða stjórnmálaafbrot, sbr. 9. gr.
Dómsmálaráðherra flutti frumvarp til laga á síðasta löggjafarþingi um þær breytingar á lögum um framsal sakamanna og aðra aðstoð í sakamálum sem samningur þessi kallar á. Varð frumvarpið að lögum nr. 71/2006.
D. Ákvörðun ráðherraráðs Evrópusambandsins nr. 2003/169/JHA.
Samkvæmt ákvörðun ráðherraráðs Evrópusambandsins nr. 2003/169/JHA frá 27. febrúar 2003 skal samningur frá 1995 um einfaldaða málsmeðferð við framsal milli aðildarríkja Evrópusambandsins teljast vera þróun á Schengen-gerðunum samkvæmt Brussel-samningnum. Enn fremur mælir ákvörðunin fyrir um að nánar tilgreind ákvæði samningsins frá 1996 um framsal milli aðildarríkja Evrópusambandsins skuli einnig teljast vera þróun á Schengen- gerðunum samkvæmt Brussel-samningnum. Í ákvörðuninni felst því að það fyrirkomulag á framsali sakamanna sem mælt er fyrir um í þessum samningum er útfært til þeirra Schengen- ríkja sem standa fyrir utan Evrópusambandið. Sökum þess að Schengen-samningurinn mælir fyrir um afnám persónueftirlits innan Schengen-svæðisins er brýnt að auðvelda og hraða meðferð framsalsbeiðna milli allra Schengen-ríkjanna, þ.m.t. Íslands og Noregs.
Ákvörðun nr. 2003/169/JHA og framsalsamningarnir tveir kalla á breytingu á lögum nr. 13/1984, um framsal sakamanna og aðra aðstoð í sakamálum. Vinnur dómsmálaráðuneytið nú að undirbúningi nauðsynlegs lagafrumvarps.
Meginefni samningsins frá 1995 um einfaldaða málsmeðferð við framsal.
Með framsalssamningnum frá 1995 er stefnt að einfaldaðri málsmeðferð við framsal að því marki sem slíkt samrýmist meginreglum laga, þ.m.t. meginreglum Evrópusamningsins um verndun mannréttinda og mannfrelsis. Er markmið samningsins að greiða fyrir beitingu samnings Evrópuráðsins um framsal sakamanna frá 1957. Samningurinn kom til af því, að samkvæmt athugun á framsalsbeiðnum milli aðildarríkja Evrópusambandsins hafði sá sem framsals var óskað á í mörgum tilvikum samþykkt beiðnina. Þrátt fyrir að slíkt samþykki lægi fyrir gat málsmeðferðin og framsalið tekið óheyrilega langan tíma. Í ljósi þessa taldi ráð Evrópusambandsins að samþykkja þyrfti reglur sem tryggðu hraða málsmeðferð í þeim tilvikum þegar viðkomandi samþykkir framsal sitt. Hröð málsmeðferð var einnig talin nauðsynleg til að vernda mannréttindi og mannfrelsi viðkomandi einstaklings.
Meginatriði samningsins er að í þeim tilvikum sem fyrir liggur samþykki viðkomandi aðila. og þess ríkis sem beiðni beinist til, þá er viðkomandi afhentur án þess að til þurfi að koma beiðni um framsal og formleg málsmeðferð vegna framsals. Aðildarríki samningsins skuldbinda sig til að afhenda hvert öðru einstaklinga, sem óskast framseldir, í samræmi við einfölduðu málsmeðferðina, ef viðkomandi maður veitir til þess samþykki sitt og ríkið, sem beiðni er beint til, fellst á það í samræmi við samninginn. Það ríki sem leggur fram beiðni um framsal skal láta fylgja fullnægjandi upplýsingar með beiðni sinni, þ.m.t. upplýsingar um deili á þeim einstaklingi sem óskað er að verði framseldur, hvort fyrir liggi handtökuskipun eða annað skjal sem hefur sama lagagildi eða aðfararhæfur dómur, eðli afbrotsins og lýsing á því samkvæmt lögum sem og afleiðingar afbrotsins.
Meginefni samningsins frá 1996 um framsal.
Meginmarkmið samnings Evrópusambandsríkjanna frá 1996 um framsal er að auðvelda framkvæmd á framsali sakamanna milli Evrópusambandsríkjanna. Samningurinn byggist m.a. á Evrópusamningnum um framsal sakamanna frá 1957, en felur þó í sér gagngera breytingu á því fyrirkomulagi sem þar er mælt fyrir um. Fyrst ber að nefna framsal á eigin ríkisborgurum. Evrópusambandsríkin töldu hinar nýju reglur sérstaklega nauðsynlegar vegna samstarfs í baráttunni gegn alvarlegum afbrotum, s.s. vegna hryðjuverka og skipulagðrar glæpastarfsemi, þá sérstaklega til auðvelda beitingu Evrópusamnings um varnir gegn hryðjuverkum, sem og ákvæða Schengen-samkomulagsins um afnám í áföngum á eftirliti á sameiginlegum landamærum. Aðildarríkin töldu sig geta fallist á slíkar breytingar í ljósi trúar sinnar á réttarkerfi aðildarríkjanna og getu þeirra til að tryggja sanngjörn réttarhöld, sérstaklega í ljósi þess að þau eru öll aðilar að samningnum um verndun mannréttinda og mannfrelsis frá 1950.
Rétt er að leggja áherslu á að samkvæmt ákvörðun nr. 2003/169/JHA skulu aðeins nánar tilgreind ákvæði samningsins gilda um Ísland, þ.e. ákvæði 2., 6., 8., 9. og 13 gr., fallist Ísland á efni ákvörðunarinnar. Þannig munu ákvæði samningsins um framsal eigin ríkisborgara ekki gilda gagnvart Íslandi. Að því er Ísland varðar, þá felur samningurinn í sér styttingu þeirrar frjálsræðissviptingar eða öryggisráðstöfunar sem afbrotið getur varðað. Einungis er heimilt að óska eftir framsali varði brotið, sem er ástæðan fyrir framsalsbeiðninni, a.m.k. 12 mánaða frelsissviptingu eða öryggisráðstöfun samkvæmt lögum þess ríkis sem leggur fram framsalsbeiðnina og frelsissviptingu eða öryggisráðstöfun í a.m.k. sex mánuði í því ríki sem beiðninni er beint til. Í þessu felst að Ísland gæti ekki óskað eftir framsali einstaklings nema á grundvelli afbrots sem samkvæmt íslenskum lögum varðaði a.m.k. 12 mánaða fangelsi. Þá mætti ekki óska eftir því við íslensk stjórnvöld að héðan yrði framseldur einstaklingur nema á grundvelli afbrots sem varðaði a.m.k. 6 mánaða fangelsi samkvæmt íslenskum lögum (var áður 12 mánuðir).
Ekki er heimilt samkvæmt samningnum að synja um framsal á þeim forsendum að brot eða fullnusta refsingar viðkomandi aðila sé fyrnd samkvæmt lögum aðildarríkisins sem beiðni er beint til. Hins vegar skal ekki verða við framsalsbeiðni vegna brots sem veitt er sakaruppgjöf fyrir í aðildarríkinu sem beiðni er beint til, hafi það ríki verið til þess bært að lögsækja fyrir brotið samkvæmt eigin hegningarlögum.
Fylgiskjal I.
SAMNINGUR
MILLI EVRÓPUSAMBANDSINS OG LÝÐVELDISINS ÍSLANDS OG KONUNGSRÍKISINS NOREGS UM MÁLSMEÐFERÐ VIÐ AFHENDINGU MILLI AÐILDARRÍKJA EVRÓPUSAMBANDSINS OG ÍSLANDS OG NOREGS
EVRÓPUSAMBANDIÐ
annars vegar og
LÝÐVELDIÐ ÍSLAND
og
KONUNGSRÍKIÐ NOREGUR
hins vegar,
sem nefnast hér á eftir „samningsaðilar“,
HAFA HUG Á að bæta réttaraðstoð í sakamálum milli aðildarríkja Evrópusambandsins og Íslands og Noregs, sbr. þó ákvæði um verndun einstaklingsfrelsis.
HAFA Í HUGA að núverandi tengsl samningsaðilanna gera það að verkum að nauðsynlegt er að vinna náið saman að því að berjast gegn afbrotum.
LÁTA Í LJÓS gagnkvæma trú sína á skipulagi og starfsemi réttarkerfa sinna og getu allra samningsaðila til að tryggja sanngjörn réttarhöld.
HAFA Í HUGA að Ísland og Noregur hafa lagt fram ósk um að gerður verði samningur er geri þeim kleift að hraða fyrirkomulagi við afhendingu grunaðra og sakfelldra manna gagnvart aðildarríkjum Evrópusambandsins og að beita megi málsmeðferð við afhendingu gagnvart þeim.
HAFA Í HUGA að Evrópusambandið lítur einnig svo á að æskilegt sé að gera slíkan samning.
HAFA Í HUGA að af þeim sökum er rétt að koma á fót fyrirkomulagi fyrir málsmeðferð við afhendingu.
HAFA Í HUGA að öll aðildarríkin og Konungsríkið Noregur og lýðveldið Ísland eiga aðild að nokkrum samningum er varða framsal, þ.m.t. Evrópusamningur um framsal sakamanna frá 13. desember 1957 og Evrópusamningur um varnir gegn hryðjuverkum frá 27. janúar 1977. Á Norðurlöndum gilda samræmd lög um framsal sakamanna þar sem sami skilningur ríkir um það sem felst í hugtakinu „framsal sakamanns“.
HAFA Í HUGA að halda ber áfram samstarfi samkvæmt samningi ESB frá 10. mars 1995 um einfaldaða málsmeðferð við framsal og samningi ESB frá 27. september 1996 um framsal, ef ekki er unnt að auka það.
HAFA Í HUGA að fullnægjandi eftirlit skal haft með ákvörðunum um framkvæmd handtökuskipunar, eins og hún er skilgreind í þessum samningi, sem merkir að dómsmálayfirvald í ríkinu, þar sem eftirlýstur maður hefur verið handtekinn, verður að taka ákvörðun um afhendingu hans.
HAFA Í HUGA að hlutverk miðlægra yfirvalda við framkvæmd handtökuskipunar, eins og hún er skilgreind í þessum samningi, skal takmarkað við hagnýta og stjórnsýslulega aðstoð.
HAFA Í HUGA að í þessum samningi eru grundvallarréttindi virt, einkum Evrópusáttmálinn um verndun mannréttinda og mannfrelsis.
Þessi samningur kemur ekki í veg fyrir að ríki beiti stjórnarskrárákvæðum sínum um tilhlýðilega málsmeðferð, félagafrelsi, prentfrelsi, tjáningarfrelsi í öðrum miðlum og frelsisbaráttumenn.
HAFA Í HUGA að ekki ætti að afhenda ríki mann ef veruleg hætta er á að hann verði látinn sæta dauðarefsingu, pyntingum eða annarri ómannúðlegri eða niðurlægjandi meðferð eða refsingu.
HAFA Í HUGA að þar sem öll ríkin hafa fullgilt samning Evrópuráðsins frá 28. janúar 1981 um vernd einstaklinga varðandi vélræna vinnslu persónuupplýsinga, skulu þær persónuupplýsingar sem eru unnar í tengslum við framkvæmd þessa samnings njóta verndar í samræmi við meginreglur þess samnings.
HAFA ORÐIÐ ÁSÁTTIR UM EFTIRFARANDI:
1. KAFLI
ALMENNAR MEGINREGLUR
1. gr.
Markmið og tilgangur.
2. Samningsaðilar skuldbinda sig, í samræmi við ákvæði þessa samnings, til að sjá til þess að framsalskerfi milli aðildarríkjanna annars vegar og Konungsríkisins Noregs og lýðveldisins Íslands hins vegar sé byggt á fyrirkomulagi við afhendingu samkvæmt handtökuskipun í samræmi við skilmála þessa samnings.
3. Þessi samningur hefur ekki áhrif til breytingar á skuldbindingu um að virða grundvallarréttindi og meginreglur laga eins og þær birtast í Evrópusáttmálanum um verndun mannréttinda og mannfrelsis eða, að því er varðar framkvæmd dómsvalds í aðildarríki, meginreglunum sem um getur í 6. gr. sáttmála Evrópusambandsins.
4. Ekkert í þessum samningi skal túlkað á þann veg að óheimilt sé að synja um afhendingu manns sem handtökuskipun, eins og hún er skilgreind í þessum samningi, hefur verið gefin út á ef ástæða er til að ætla, á grundvelli hlutlægra þátta, að handtökuskipunin hafi verið gefin út í þeim tilgangi að sækja til saka eða refsa manni á grundvelli kyns, kynþáttar, trúar, þjóðernis, ríkisfangs, tungumáls, stjórnmálaskoðana eða kynhneigðar, eða að stöðu hans kunni að vera stefnt í hættu af einhverri þessara ástæðna.
2. gr.
Skilgreiningar.
1. „Samningsaðilar“: Evrópusambandið og Konungsríkið Noregur og lýðveldið Ísland.
2. „Aðildarríki“: aðildarríki Evrópusambandsins.
3. „Ríki“: aðildarríki, Konungsríkið Noregur eða lýðveldið Ísland.
4. „Þriðja ríki“: hvert það ríki annað en ríki sem er skilgreint í 3. mgr.
5. „Handtökuskipun“: dómsúrskurður sem ríki gefur út með það fyrir augum að annað ríki handtaki eða afhendi eftirlýstan mann svo að unnt sé að sækja hann til saka eða framfylgja úrskurði um refsivist eða öryggisráðstöfun.
3. gr.
Gildissvið.
1. Heimilt er að gefa út handtökuskipun vegna verknaða, sem eru refsiverðir samkvæmt lögum útgáfuríkisins, þar sem hámarkstímabil refsivistar eða öryggisráðstöfunar er a.m.k. 12 mánuðir eða, ef refsing hefur verið ákvörðuð eða úrskurður um öryggisráðstöfun liggur fyrir, ekki styttra en fjórir mánuðir.
2. Afhending skal, með fyrirvara um 3. og 4. mgr., fara fram með því skilyrði að þeir verknaðir, sem handtökuskipunin grundvallast á, feli í sér brot á lögum framkvæmdarríkisins, hver sem málsatvik eru eða hvernig sem því er lýst.
3. Með fyrirvara um 4. gr., 5. gr. (b- til g-liður 1. mgr.), 6. gr., 7. gr. og 8. gr. skal ríki í engu tilviki synja um framkvæmd handtökuskipunar sem gefin er út í tengslum við framferði manns, sem tekur þátt í athæfi hóps manna sem í sameiningu hyggjast fremja eitt eða fleiri afbrot er teljast til hryðjuverka og um getur í 1. og 2. gr. Evrópusamnings um varnir gegn hryðjuverkum og 1., 2., 3. og 4. gr. rammaákvörðunar frá 13. júní 2002 um baráttuna gegn hryðjuverkum, til ólöglegra viðskipta með fíkniefni og geðvirk efni eða morðs, alvarlegra líkamsmeiðinga, mannráns, ólöglegs halds, gíslatöku og nauðgunar, sem varðar frelsissviptingu eða öryggisráðstöfun og skal hámarktímabil þessa vera a.m.k. 12 mánuðir, og gildir þá einu hvort viðkomandi hafi tekið þátt í raunverulegri framkvæmd afbrotsins eða afbrotanna enda hafi aðild hans verið með ásetningi og framkvæmd á grundvelli þeirrar vitneskju að þátttaka hans stuðli að því að samtökin nái markmiði afbrotastarfsemi sinnar.
4. Noregur og Ísland annars vegar og ESB hvaða aðildarríkja sinna sem er hins vegar geta lagt fram yfirlýsingu um að á grundvelli gagnkvæmni verði skilyrðinu um tvöfalt refsinæmi, sem um getur í 2. mgr., ekki beitt við þær aðstæður sem lýst er hér á eftir. Eftirtalin afbrot skulu, ef þau varða að hámarki a.m.k. þriggja ára refsivist eða öryggisráðstöfun í útgáfuríkinu og eins og þau eru skilgreind í lögum útgáfuríkisins, samkvæmt skilmálum þessa samnings og án þess að tvöfalt refsinæmi verknaðarins hafi verið sannreynt, vera tilefni afhendingar samkvæmt handtökuskipun:
– þátttaka í glæpasamtökum,
– hryðjuverk,
– mansal,
– kynlífsnotkun á börnum og barnaklám,
– ólögleg viðskipti með fíkniefni og geðvirk efni,
– ólögleg viðskipti með vopn, skotfæri og sprengiefni,
– spilling,
– svik, þ.m.t. svik sem hafa áhrif á fjárhagslega hagsmuni Evrópubandalaganna í skilningi samningsins frá 26. júlí 1995 um verndun fjárhagslegra hagsmuna Evrópubandalaganna,
– þvætti ávinnings af afbrotum,
– peningafölsun, þ.m.t. á evrum,
– afbrot tengd tölvum,
– umhverfisafbrot, þ.m.t. ólögleg viðskipti með dýr, plöntur og yrki í útrýmingarhættu,
– aðstoð við óheimila komu til lands og búsetu,
– morð, alvarlegar líkamsmeiðingar,
– ólögleg viðskipti með líffæri og vefi úr mönnum,
– mannrán, ólöglegt hald og gíslataka,
– kynþátta- og útlendingahatur,
– skipulagt eða vopnað rán,
– ólögleg viðskipti með menningarverðmæti, þ.m.t. forngripi og listaverk,
– svindl,
– fjárglæfrar og fjárkúgun,
– eftirlíkingar og ólögleg nýting á vörum,
– fölsun opinberra skjala og viðskipti með þau,
– fölsun greiðslumiðla,
– ólögleg viðskipti með hormónaefni og aðra vaxtarhvata,
– ólögleg viðskipti með kjarnakleyf eða geislavirk efni,
– viðskipti með stolin ökutæki,
– nauðgun,
– íkveikja,
– afbrot sem heyra undir lögsögu Alþjóðlega sakamáladómstólsins,
– ólögmæt taka loftfars/skips,
– skemmdarverk.
4. gr.
Ástæður fyrir því að framkvæma ekki handtökuskipun.
Ríkin skulu leggja þá skyldu á herðar dómsmálayfirvaldinu sem annast framkvæmdina að synja um framkvæmd handtökuskipunar í eftirtöldum tilvikum:
1) ef afbrotið, sem handtökuskipunin er grundvölluð á, fellur undir almenna sakaruppgjöf í framkvæmdarríkinu, hafi þetta ríki lögsögu til að sækja til saka fyrir afbrotið samkvæmt refsilöggjöf sinni,
2) ef dómsmálayfirvaldið, sem annast framkvæmdina, fær upplýsingar um að fullnaðardómur ríkis yfir hinum eftirlýsta vegna sama verknaðar hafi gengið, að því tilskildu, hafi refsing verið ákvörðuð, að afplánun sé lokið eða standi yfir eða ekki sé lengur heimilt að fullnusta dóminn samkvæmt lögum dómsríkisins,
3) ef óheimilt er samkvæmt lögum framkvæmdarríkisins að láta þann sem handtökuskipunin er gefin út á sæta refsiábyrgð vegna verknaðarins, sem handtökuskipunin er grundvölluð á, sakir aldurs hans.
5. gr.
Aðrar ástæður fyrir því að framkvæma ekki handtökuskipun.
1. Ríki geta lagt þá skyldu á herðar dómsmálayfirvaldinu, sem annast framkvæmdina, eða heimilað því þann valkost að synja um framkvæmd handtökuskipunar í eftirtöldum tilvikum:
a) ef verknaðurinn, sem handtökuskipunin er grundvölluð á, telst ekki vera afbrot samkvæmt lögum framkvæmdarríkisins í öðru þeirra tilvika sem um getur í 2. mgr. 3. gr.; ekki skal þó synja um framkvæmd handtökuskipunar í tengslum við skatta eða gjöld, tolla og gjaldeyrisviðskipti af þeirri ástæðu að lög framkvæmdarríkisins kveða ekki á um sams konar skatta eða gjöld eða það hefur ekki sams konar reglur varðandi skatta og gjöld, tolla og gjaldeyrisviðskipti og er að finna í lögum útgáfuríkisins,
b) ef verið er að sækja manninn, sem handtökuskipunin er gefin út á, til saka í framkvæmdarríkinu fyrir sama verknað og handtökuskipunin er grundvölluð á,
c) ef dómsmálayfirvöld í framkvæmdarríkinu hafa ákveðið annaðhvort að sækja ekki til saka fyrir afbrotið sem handtökuskipunin er grundvölluð á eða stöðva saksókn, eða fullnaðardómur hafi verið kveðinn upp í ríki gagnvart hinum eftirlýsta vegna sömu verknaða sem kemur í veg fyrir frekari málsmeðferð,
d) ef saksókn eða refsing gagnvart eftirlýsta manninum er fyrnd samkvæmt lögum framkvæmdarríkisins og verknaðirnir falla undir lögsögu þess ríkis samkvæmt refsilöggjöf þess,
e) ef dómsmálayfirvaldið, sem annast framkvæmdina, fær upplýsingar um að fullnaðardómur þriðja ríkis yfir hinum eftirlýsta hafi gengið vegna sama verknaðar, að því tilskildu, hafi refsing verið ákvörðuð, að afplánun sé lokið eða standi yfir eða ekki sé lengur heimilt að fullnusta dóminn samkvæmt lögum dómsríkisins,
f) ef handtökuskipun hefur verið gefin út í þeim tilgangi að framfylgja úrskurði um refsivist eða öryggisráðstöfun og eftirlýstur maður dvelur, er ríkisborgari eða er búsettur í framkvæmdarríkinu og það ríki tekur að sér að framfylgja refsidóminum eða öryggisráðstöfuninni í samræmi við landslög sín,
g) ef handtökuskipunin varðar afbrot:
i) sem litið er svo á samkvæmt lögum framkvæmdarríkisins að hafi verið framin í heild eða að hluta til á yfirráðasvæði þess ríkis eða á stað sem litið er á sem slíkan
eða
ii) sem voru framin utan yfirráðasvæðis útgáfuríkisins og óheimilt er samkvæmt lögum framkvæmdarríkisins að sækja til saka fyrir þau sömu afbrot þegar þau eru framin utan yfirráðasvæðis þess.
2. Sérhvert ríki skal upplýsa aðalskrifstofu ráðsins um það af hvaða ástæðum í 1. mgr., sem leiða til þess að handtökuskipun er ekki framkvæmd, það skyldar eigin dómsmálayfirvöld, sem annast framkvæmdina, að synja um framkvæmd handtökuskipunar. Aðalskrifstofan skal sjá til þess að öll ríkin og framkvæmdastjórnin fái þessar upplýsingar.
6. gr.
Undantekning vegna stjórnmálaafbrota.
1. Óheimilt er að synja um framkvæmd handtökuskipunar á grundvelli þess að framkvæmdarríkið kunni að líta á afbrotið sem stjórnmálaafbrot, afbrot tengt stjórnmálaafbroti eða afbrot sem sprottið er af stjórnmálaástæðum.
2. Noregur og Ísland annars vegar og Evrópusambandið hvaða aðildarríkja sinna sem er hins vegar geta lagt fram yfirlýsingu um að 1. mgr. gildi einungis í tengslum við:
a) afbrotin sem um getur í 1. og 2. gr. Evrópusamningsins um varnir gegn hryðjuverkum,
b) afbrot sem felast í samsæri eða samanteknum ráðum, sem svara til lýsingarinnar á því framferði sem um getur í 3. mgr. 3. gr., að fremja eitt eða fleiri þeirra afbrota sem um getur í 1. og 2. gr. Evrópusamningsins um varnir gegn hryðjuverkum
og
c) 1., 2., 3. og 4. gr. rammaákvörðunar frá 13. júní 2002 um baráttuna gegn hryðjuverkum.
3. Ef ríki, sem hefur gefið út yfirlýsingu sem um getur í 2. mgr., eða ríki, þar sem aðrir hafa annast útgáfu slíkrar yfirlýsingar fyrir þess hönd, gefur út handtökuskipun er framkvæmdarríkinu heimilt að beita gagnkvæmni.
7. gr.
Undantekning vegna ríkisfangs.
1. Óheimilt er að synja um framkvæmd handtökuskipunar á grundvelli þess að maðurinn, sem óskað er eftir, er ríkisborgari í framkvæmdarríkinu.
2. Noregur og Ísland annars vegar og Evrópusambandið hvaða aðildarríkja sinna sem er hins vegar geta lagt fram yfirlýsingu um að þau muni ekki afhenda eigin ríkisborgara eða afhenda þá einungis við sérstakar, tilgreindar kringumstæður.
3. Ef ríki, sem hefur gefið út yfirlýsingu sem um getur í 2. mgr., eða ríki, þar sem aðrir hafa annast útgáfu slíkrar yfirlýsingar fyrir þess hönd, gefur út handtökuskipun er hverju hinna ríkjanna sem er heimilt að beita gagnkvæmni við framkvæmd handtökuskipunar.
8. gr.
Tryggingar sem útgáfuríki ber að veita í vissum tilvikum.
Heimilt er að setja eftirfarandi skilyrði fyrir framkvæmd dómsmálayfirvalds á handtökuskipun:
1) ef handtökuskipunin er gefin út til að framfylgja refsidómi eða öryggisráðstöfun á grundvelli ákvörðunar sem er tekin í fjarveru þess sem hún beinist gegn og hafi hlutaðeigandi ekki verið stefnt persónulega eða á annan hátt fengið upplýsingar um hvaða dag og hvar skýrslutakan, sem leiddi til ákvörðunar í fjarveru hans, skyldi fara fram er heimilt að setja það skilyrði fyrir afhendingu að dómsyfirvaldið, sem gefur handtökuskipunina út, veiti fullnægjandi tryggingu fyrir því að sá sem handtökuskipunin varðar fái tækifæri til að óska eftir því að réttað verði í málinu að nýju í útgáfuríkinu og úrskurður felldur í viðurvist hans,
2) ef afbrotið, sem handtökuskipunin er gefin út fyrir, varðar ævilangri refsivist eða ævilangri öryggisráðstöfun er heimilt að binda framkvæmd handtökuskipunarinnar því skilyrði að útgáfuríkið veiti fullnægjandi tryggingu fyrir því, að mati framkvæmdarríkisins, að það muni endurskoða uppkveðna refsingu eða ráðstöfun komi fram beiðni þar um eða eigi síðar en eftir 20 ár eða hvetja til beitingar vægari ráðstafana sem viðkomandi á rétt á samkvæmt lögum eða venjum útgáfuríkisins sem miða að því að slík refsing eða ráðstöfun komi ekki til framkvæmda,
3) ef maður, sem handtökuskipun vegna saksóknar varðar, er ríkisborgari eða búsettur í framkvæmdarríkinu er heimilt að setja það skilyrði fyrir afhendingu að hann skuli sendur aftur til framkvæmdarríkisins að lokinni skýrslutöku til að afplána þar refsivist eða sæta öryggisráðstöfun sem kveðin var upp gegn honum í útgáfuríkinu.
9. gr.
Ákvörðun um hvaða dómsmálayfirvald telst vera lögbært.
1. Dómsmálayfirvaldið, sem gefur handtökuskipunina út, skal vera það dómsmálayfirvald í útgáfuríkinu sem er til þess bært að gefa út handtökuskipun samkvæmt lögum þess ríkis.
2. Dómsmálayfirvaldið, sem annast framkvæmdina, skal vera það dómsmálayfirvald í framkvæmdarríkinu sem er til þess bært að annast framkvæmd handtökuskipana samkvæmt lögum þess ríkis. Þegar tilkynningin, sem um getur í 1. mgr. 39. gr., er lögð fram er heimilt að tilnefna dómsmálaráðherra sem lögbært yfirvald við framkvæmd handtökuskipunar hvort sem hann telst vera dómsmálayfirvald samkvæmt lögum þess ríkis eða ekki.
3. Samningsaðilar skulu tilkynna hver öðrum um lögbær yfirvöld sín.
10. gr.
Leitað til miðlægs yfirvalds.
1. Samningsaðilum er heimilt að senda hver öðrum tilkynningar um miðlægt yfirvald hvers ríkis, hafi það verið tilnefnt, eða, ef gert er ráð fyrir því samkvæmt réttarkerfi viðkomandi ríkis, um fleiri en eitt miðlægt yfirvald sem skal vera lögbærum dómsmálayfirvöldum til aðstoðar.
2. Jafnframt er samningsaðilum heimilt að greina frá því að á grundvelli skipulags dómskerfis í viðkomandi ríkjum beri miðlæga yfirvaldið eða yfirvöldin ábyrgð á sendingu og móttöku stjórnsýslunnar á handtökuskipunum og öll önnur opinber bréfaskipti þar að lútandi. Þessar upplýsingar eru bindandi fyrir öll yfirvöldin í útgáfuríkinu.
11. gr.
Efni og framsetning handtökuskipunar.
1. Í handtökuskipun skulu koma fram eftirfarandi upplýsingar sem eru settar fram í samræmi við framsetningu í viðaukanum við þennan samning:
a) deili á hinum eftirlýsta og ríkisfang hans,
b) nafn, heimilisfang, síma- og bréfsímanúmer og netfang dómsmálayfirvaldsins sem gefur handtökuskipunina út,
c) sönnun þess að aðfararhæfur dómur hafi verið kveðinn upp, handtökuskipun gefin út eða að fyrir hendi sé önnur aðfararhæf dómsniðurstaða sem hefur sömu áhrif og fellur undir gildissvið 2. og 3. gr.,
d) eðli afbrots og vísun til refsiákvæða, einkum að því er varðar 3. gr.,
e) lýsing á því við hvaða aðstæður afbrotið var framið, þ.m.t. hvenær og hvar það var framið og hversu stóran þátt hinn eftirlýsti átti í því,
f) ákvörðun refsingar ef fullnaðardómur hefur gengið eða hvaða refsiramma mælt er fyrir um vegna afbrotsins samkvæmt lögum útgáfuríkisins,
g) aðrar afleiðingar afbrotsins, ef unnt er.
2. Þýða verður handtökuskipunina á opinbert tungumál eða eitt af opinberum tungumálum framkvæmdarríkisins. Samningsaðila er heimilt, við gerð þessa samnings eða síðar, að gefa út yfirlýsingu um að hann muni samþykkja þýðingu á eitt eða fleiri opinber tungumál ríkis.
2. KAFLI
MÁLSMEÐFERÐ VIÐ AFHENDINGU
12. gr.
Sending handtökuskipunar.
1. Þegar dvalarstaður eftirlýsts manns er kunnur getur dómsmálayfirvaldið, sem gefur handtökuskipunina út, sent hana beint til dómsmálayfirvaldsins sem annast framkvæmdina.
2. Dómsmálayfirvaldinu, sem gefur handtökuskipunina út, er í öllum tilvikum heimilt að skrá eftirlýstan mann í Schengen-upplýsingakerfið (SIS).
Færa skal slíka skráningu í samræmi við viðeigandi ákvæði laga Evrópusambandsins um skráningu einstaklinga vegna afhendingar í Schengen-upplýsingakerfið. Skráning í Schengen-upplýsingakerfið skal jafngilda handtökuskipun með þeim upplýsingum sem eru settar fram í 1. mgr. 11. gr.
3. Skráningin skal á aðlögunartímabili, þar til Schengen-upplýsingakerfið getur sent allar þær upplýsingar sem lýst er í 11. gr., jafngilda handtökuskipun þar til dómsmálayfirvaldinu, sem annast framkvæmdina, berst frumritið með tilhlýðilegum og viðeigandi hætti.
13. gr.
Ítarleg málsmeðferð við sendingu handtökuskipunar.
1. Ef dómsmálayfirvaldið, sem gefur handtökuskipunina út, hefur ekki upplýsingar um það hvaða lögbært dómsmálayfirvald skuli annast framkvæmdina skal það senda nauðsynlegar fyrirspurnir til að afla upplýsinga um það frá framkvæmdarríkinu.
2. Ef ekki reynist unnt að nýta þjónustu Schengen-upplýsingakerfisins er dómsmálayfirvaldinu, sem gefur handtökuskipunina út, heimilt að leita til Alþjóðasambands sakamálalögreglu (Interpol) um sendingu handtökuskipunarinnar.
3. Dómsmálayfirvaldinu, sem gefur handtökuskipunina út, er heimilt að senda hana skriflega eftir hverri þeirri leið sem telst örugg og gerir framkvæmdarríkinu kleift að ganga úr skugga um áreiðanleika handtökuskipunarinnar.
4. Öll vandamál varðandi sendingu eða áreiðanleika hvers konar skjala sem þarf til að framkvæma handtökuskipunina skal leysa beint milli hlutaðeigandi dómsmálayfirvalda eða, ef við á, með aðkomu miðlægra yfirvalda ríkjanna.
5. Ef það yfirvald sem fær handtökuskipun í hendur er ekki til þess bært að framkvæma hana skal það þegar í stað senda handtökuskipunina til lögbærs yfirvalds í eigin ríki og tilkynna dómsmálayfirvaldinu, sem gef handtökuskipunina út, um það.
14. gr.
Réttur eftirlýsts manns.
1. Þegar eftirlýstur maður er handtekinn skal dómsmálayfirvaldið, sem annast framkvæmdina, upplýsa hann, í samræmi við landslög, um handtökuskipunina og efni hennar og að hann eigi þess kost að samþykkja að vera afhentur dómsmálayfirvaldinu sem gefur handtökuskipunina út.
2. Eftirlýstur maður, sem er handtekinn vegna framkvæmdar handtökuskipunar, hefur rétt til aðstoðar lögfræðings og túlks í samræmi við landslög framkvæmdarríkisins.
15. gr.
Gæsluvarðhald.
Þegar maður er handtekinn á grundvelli handtökuskipunar skal dómsmálayfirvaldið, sem annast framkvæmdina, ákveða hvort honum skuli haldið í gæsluvarðhaldi í samræmi við lög framkvæmdarríkisins. Heimilt er að sleppa manninum hvenær sem er til bráðabirgða í samræmi við landslög framkvæmdaríkisins, að því tilskildu að lögbært yfirvald í því ríki geri allar ráðstafanir sem það telur nauðsynlegar til að koma í veg fyrir hann komist undan.
16. gr.
Samþykki fyrir afhendingu.
1. Ef hinn handtekni gefur til kynna samþykki sitt fyrir afhendingu skal slíkt samþykki og, ef við á, skýlaust afsal á réttinum til að nýta sér sérregluna sem um getur í 2. mgr. 30. gr. gefið frammi fyrir dómsmálayfirvaldinu, sem annast framkvæmdina, í samræmi við landslög framkvæmdarríkisins.
2. Hvert ríki skal gera nauðsynlegar ráðstafanir til að tryggja að samþykki og, eftir atvikum, afsal, eins og um getur í 1. mgr., sé gefið með þeim hætti að ljóst sé að sá sem í hlut á hafi gert það af fúsum og frjálsum vilja og verið kunnugt um afleiðingarnar. Eftirlýstur maður skal, í því skyni, eiga rétt á ráðgjöf lögfræðings.
3. Bóka skal formlega samþykkið og, eftir atvikum, afsalið sem um getur í 1. mgr. í samræmi við málsmeðferðina sem mælt er fyrir um í landslögum framkvæmdarríkisins.
4. Að meginreglu til er samþykkið óafturkallanlegt. Hvert ríki getur kveðið á um að samþykki og, eftir atvikum, afsal megi afturkalla í samræmi við landslög. Í því tilviki er tímabilið frá því að tilkynnt er um samþykki til þess að tilkynnt er um afturköllun þess ekki talið með þegar frestir, sem mælt er fyrir um í 20. gr., eru ákveðnir. Noregur og Ísland annars vegar og Evrópusambandið fyrir hönd hvaða aðildarríkja sinna sem er hins vegar geta lagt fram yfirlýsingu, á sama tíma og tilkynninguna sem kveðið er á um í 1. mgr. 38. gr., um að þau óski eftir því að geta nýtt sér þennan möguleika og skulu þau tilgreina hvaða málsmeðferð skuli gilda um slíka afturköllun samþykkis og hvers kyns breytingar á þeirri málsmeðferð.
17. gr.
Skýrslutaka af eftirlýstum manni.
Ef hinn handtekni samþykkir ekki afhendingu, eins og um getur í 16. gr., skal hann eiga rétt á að tekin sé af honum skýrsla fyrir dómsmálayfirvaldinu sem annast framkvæmdina, í samræmi við lög framkvæmdarríkisins.
18. gr.
Ákvörðun um afhendingu.
1. Dómsmálayfirvaldið, sem annast framkvæmdina, skal ákveða, innan þess frests og með þeim skilyrðum sem skilgreind eru í þessum samningi, hvort maður skuli afhentur.
2. Telji dómsmálayfirvaldið, sem annast framkvæmdina, þær upplýsingar sem útgáfuríkið sendi ekki nægja til að það geti tekið ákvörðun um afhendingu skal það biðja um að nauðsynlegar viðbótarupplýsingar, einkum að því er varðar 4.–6. gr., 8. gr. og 11. gr., verði látnar í té hið bráðasta og getur það sett frest fyrir móttöku þeirra, þar sem tillit er tekið til þess að virða beri frestinn í 20. gr.
3. Dómsmálayfirvaldið, sem gefur handtökuskipunina út, getur hvenær sem er framsent hverjar þær viðbótarupplýsingar til dómsmálayfirvaldsins, sem annast framkvæmdina, sem komið geta að gagni.
19. gr.
Ákvörðun þegar margar beiðnir eru lagðar fram.
1. Ef tvö ríki eða fleiri hafa gefið út evrópska handtökuskipun eða handtökuskipun á hendur sama manni skal dómsmálayfirvaldið, sem annast framkvæmdina, taka ákvörðun um hver þeirra skuli koma til framkvæmda og að teknu tilhlýðilegu tilliti til allra aðstæðna og þá einkum alvarleika afbrots og hvar það var framið, hvenær hver handtökuskipun var gefin út og hvort handtökuskipun hafi verið gefin út vegna saksóknar eða til að framfylgja úrskurði um refsivist eða öryggisráðstöfun.
2. Dómsmálayfirvald aðildarríkis, sem annast framkvæmdina, getur leitað ráða hjá Evrópsku réttaraðstoðinni (Eurojust) vegna ákvörðunarinnar sem um getur í 1. mgr.
3. Ef ágreiningur er um hvort handtökuskipun og framsalsbeiðni þriðja ríkis gangi framar skal lögbært yfirvald í framkvæmdarríkinu taka ákvörðun um það hvort skuli hafa forgang að teknu tilhlýðilegu tilliti til allra aðstæðna, einkum þeirra sem um getur í 1. mgr. og þeirra sem getið er í viðeigandi samningi.
4. Þessi grein er með fyrirvara um skuldbindingar ríkja samkvæmt samþykkt Alþjóðlega sakamáladómstólsins.
20. gr.
Frestir og málsmeðferð við töku ákvörðunar um að framkvæma handtökuskipun.
1. Fjalla skal um og framkvæma handtökuskipun eins fljótt og auðið er.
2. Ef eftirlýstur maður hefur samþykkt afhendingu sína skal endanleg ákvörðun um framkvæmd handtökuskipunar tekin innan 10 daga frá því að samþykki liggur fyrir.
3. Í öðrum tilvikum skal endanleg ákvörðun um framkvæmd handtökuskipunar tekin innan 60 daga frá því að eftirlýstur maður er handtekinn.
4. Ef ekki er unnt, í sérstökum tilvikum, að framkvæma handtökuskipun innan þess frests sem mælt er fyrir um í 2. eða 3. mgr. skal dómsmálayfirvaldið, sem annast framkvæmdina, þegar í stað tilkynna það dómsmálayfirvaldinu, sem gefur handtökuskipunina út, og tilgreina ástæður fyrir töfinni. Í því tilviki er heimilt að framlengja frestinn um 30 daga.
5. Evrópusambandinu, fyrir hönd hvaða aðildarríkis síns sem er, er heimilt að leggja fram, á sama tíma og tilkynninguna sem kveðið er á um í 1. mgr. 38. gr., yfirlýsingu þar sem fram kemur í hvaða tilvikum 3. og 4. mgr. eigi ekki við. Noregi og Íslandi er heimilt að beita gagnkvæmni í tengslum við hlutaðeigandi aðildarríki.
6. Dómsmálayfirvaldið, sem annast framkvæmdina, skal sjá til þess að nauðsynlegum efnislegum skilyrðum varðandi afhendingu sé áfram fullnægt þar til það tekur endanlega ákvörðun um handtökuskipunina.
7. Færa skal rök fyrir synjun um framkvæmd handtökuskipunar.
21. gr.
Ákvörðunar beðið.
1. Hafi handtökuskipun verið gefin út vegna saksóknar verður dómsmálayfirvaldið sem annast framkvæmdina:
a) annaðhvort að samþykkja að eftirlýstur maður fái að gefa skýrslu í samræmi við 22. gr.,
b) eða samþykkja tímabundinn flutning hins eftirlýsta.
2. Dómsmálayfirvaldið, sem gefur handtökuskipunina út, og dómsmálayfirvaldið, sem annast framkvæmdina, skulu komast að gagnkvæmu samkomulagi um það hvaða skilyrði skulu gilda um tímabundinn flutning og í hversu langan tíma hann má standa.
3. Ef maðurinn er fluttur annað tímabundið verður að gera honum kleift að snúa aftur til framkvæmdarríkisins til að vera við skýrslutökur sem hann varða og eru hluti af málsmeðferð við afhendingu.
22. gr.
Skýrslutaka af manni á meðan ákvörðunar er beðið.
1. Dómsmálayfirvald skal taka skýrslu af hinum eftirlýsa og njóta til þess aðstoðar annars einstaklings sem er tilnefndur í samræmi við lög ríkisins þar sem dómstóllinn, sem fer fram á afhendinguna, er staðsettur.
2. Taka skal skýrslu af hinum eftirlýsta í samræmi við lög framkvæmdarríkisins og með þeim skilyrðum sem dómsmálayfirvaldið sem gefur handtökuskipunina út og dómsmálayfirvaldið sem annast framkvæmdina komast að gagnkvæmu samkomulagi um.
3. Lögbæra dómsmálayfirvaldinu, sem annast framkvæmdina, er heimilt að tilnefna annað dómsmálayfirvald í sama ríki til að taka þátt í skýrslutöku af hinum eftirlýsta í því skyni að tryggja rétta beitingu þessarar greinar og þeirra skilyrða sem mælt er fyrir um.
23. gr.
Sérréttindi og friðhelgi.
1. Ef eftirlýstur maður nýtur sérréttinda eða friðhelgi að því er varðar lögsögu eða fullnustu í framkvæmdarríkinu hefst fresturinn, sem um getur í 20. gr., ekki fyrr en þann dag sem dómsmálayfirvaldinu, sem annast framkvæmdina, er tilkynnt um að sérréttindi og friðhelgi hafi verið felld niður.
2. Framkvæmdarríkið skal sjá til þess nauðsynlegum efnislegum skilyrðum varðandi afhendingu sé fullnægt þegar eftirlýstur maður nýtur ekki lengur sérréttinda eða friðhelgi.
3. Ef yfirvald í framkvæmdarríkinu hefur vald til að fella niður sérréttindi eða friðhelgi skal dómsmálayfirvaldið, sem annast framkvæmdina, fara fram á að það nýti sér það vald þegar í stað. Ef yfirvald í öðru ríki eða alþjóðastofnun hefur vald til að fella niður sérréttindi eða friðhelgi skal dómsmálayfirvaldið, sem gefur handtökuskipunina út, fara fram á að það nýti sér það.
24. gr.
Árekstur milli alþjóðlegra skuldbindinga.
Þessi samningur hefur ekki áhrif á skuldbindingar framkvæmdarríkisins þegar þriðja ríki framselur eftirlýstan mann til þess ríkis og viðkomandi nýtur verndar samkvæmt sérreglum í því fyrirkomulagi sem framsalið er grundvallað á. Framkvæmdarríkið skal gera allar nauðsynlegar ráðstafanir til að fá þegar í stað samþykki ríkisins sem framselur hinn eftirlýsta þannig að afhenda megi hann ríkinu sem gaf handtökuskipunina út. Fresturinn, sem um getur í 20. gr., hefst ekki fyrr en daginn sem beitingu þessara sérreglna er hætt.
Framkvæmdarríkið skal sjá til þess að nauðsynlegum efnislegum skilyrðum fyrir afhendingu sé áfram fullnægt á meðan beðið er ákvörðunar ríkisins sem framselur hinn eftirlýsta.
25. gr.
Tilkynning um ákvörðun.
Dómsmálayfirvaldið, sem annast framkvæmdina, skal tilkynna dómsmálayfirvaldinu, sem gefur handtökuskipunina út, þegar í stað um það þegar ákvörðun hefur verið tekin um hvort handtökuskipun kemur til framkvæmdar.
26. gr.
Frestur til að afhenda eftirlýstan mann.
1. Afhenda skal eftirlýstan mann við fyrsta tækifæri á degi sem hlutaðeigandi yfirvöld koma sér saman um.
2. Afhending hans skal fara fram eigi síðar en 10 dögum eftir að endanleg ákvörðun um framkvæmd handtökuskipunar liggur fyrir.
3. Ef aðstæður, sem ríkin ráða ekki við, leiða til þess að ekki er unnt að afhenda eftirlýstan mann innan þess frests sem mælt er fyrir um í 2. mgr. skal dómsmálayfirvaldið, sem annast framkvæmdina, og dómsmálayfirvaldið, sem gefur handtökuskipunina út, þegar í stað hafa samband hvort við annað og koma sér saman um annan afhendingardag. Í því tilviki skal afhending fara fram innan 10 daga frá nýju dagsetningunni sem ákveðin er.
4. Í undantekningartilvikum er heimilt að fresta afhendingu tímabundið af brýnum mannúðarástæðum, t.d. ef veruleg ástæða er til að líta svo á að afhending myndi augljóslega stofna lífi eða heilsu hins eftirlýsta í hættu. Handtökuskipun skal koma til framkvæmdar um leið og þessar ástæður er ekki lengur fyrir hendi. Dómsmálayfirvaldið, sem annast framkvæmdina, skal þegar í stað upplýsa dómsmálayfirvaldið, sem gefur handtökuskipunina út, um það og skulu þau koma sér saman um annan afhendingardag. Í því tilviki skal afhending fara fram innan 10 daga frá nýju dagsetningunni sem ákveðin er.
5. Ef eftirlýstur maður er enn í haldi þegar fresturinn, sem um getur í 2.–4. mgr., rennur út skal láta hann lausan.
27. gr.
Afhendingu frestað eða hún bundin skilyrðum.
1. Dómsmálayfirvaldi, sem annast framkvæmdina, er heimilt að fresta afhendingu eftirlýsts manns eftir að ákvörðun um að framkvæma handtökuskipunina hefur verið tekin þannig að unnt sé að sækja hinn eftirlýsta til saka í framkvæmdarríkinu eða, ef refsing hefur þegar verið ákvörðuð, hann geti afplánað dóm á yfirráðasvæði þess fyrir annan verknað en þann sem um getur í handtökuskipuninni.
2. Dómsmálayfirvaldinu, sem annast framkvæmdina, er heimilt, í stað þess að fresta afhendingu, að afhenda eftirlýstan mann tímabundið til útgáfuríkisins samkvæmt skilyrðum sem dómsmálayfirvaldið sem annast framkvæmdina og dómsmálayfirvaldið sem gefur handtökuskipunina út komast að gagnkvæmu samkomulagi um. Samkomulagið skal vera skriflegt og skilyrði þess bindandi fyrir öll yfirvöldin í útgáfuríkinu.
28. gr.
Gegnumflutningur.
1. Hvert ríki skal heimila gegnumflutning eftirlýsts manns, sem er sendur til afhendingar, um yfirráðasvæði sitt, að því tilskildu að það fái upplýsingar um:
a) deili á þeim sem handtökuskipunin er gefin út á og ríkisfang hans,
b) að fyrir liggi handtökuskipun,
c) eðli afbrots og vísun til refsiákvæða,
d) lýsing á því við hvaða aðstæður afbrotið var framið, þ.m.t. hvenær og hvar það var framið.
Ríki, sem yfirlýsing er gefin út fyrir í samræmi við 2. mgr. 7. gr. um að ríkisborgarar þess verði ekki afhentir eða einungis afhentir undir sérstökum, tilgreindum kringumstæðum, getur á sama hátt synjað um gegnumflutning eigin ríkisborgara um yfirráðasvæði sitt eða sett sömu skilyrði um sérstakar, tilgreindar kringumstæður.
2. Samningsaðilar skulu tilkynna hver öðrum um það hvaða yfirvald hvert ríki hefur tilnefnt til að taka við beiðnum um gegnumflutning og nauðsynlegum skjölum þar að lútandi og annast önnur opinber samskipti sem varða beiðnir um gegnumflutning.
3. Heimilt er að beina beiðni um gegnumflutning og upplýsingunum, sem getið er í 1. mgr., til yfirvalds, sem er tilnefnt skv. 2. mgr., skriflega eftir hvaða leið sem er og skilur eftir sig staðfestingu. Gegnumflutningsríkið skal tilkynna um ákvörðun sína eftir sömu málsmeðferð.
4. Þessi samningur á ekki við um flutninga í lofti án áætlaðrar millilendingar. Ef lent er engu að síður utan áætlunar skal útgáfuríkið láta yfirvaldinu, sem er tilnefnt skv. 2. mgr., í té þær upplýsingar sem kveðið er á um í 1. mgr.
5. Ef gegnumflutningur varðar mann sem framselja á frá þriðja ríki til ríkis gildir þessi grein að breyttu breytanda. Þannig skal litið svo á að í stað orðsins „handtökuskipun“, eins og það er skilgreint í þessum samningi, komi „framsalsbeiðni“.
3. KAFLI
ÁHRIF AFHENDINGAR
29. gr.
Gæsluvarðhaldstími í framkvæmdarríkinu dreginn frá.
1. Útgáfuríkið skal draga frá allan gæsluvarðhaldstíma sem rekja má til framkvæmdar handtökuskipunar frá þeim heildartíma refsingar sem viðkomandi ber að afplána í útgáfuríkinu á grundvelli úrskurðar um refsivist eða öryggisráðstöfun.
2. Í þessu skyni skal dómsmálayfirvaldið, sem annast framkvæmdina, eða miðlæga yfirvaldið, sem er tilnefnt skv. 10. gr., senda dómsmálayfirvaldinu, sem gefur handtökuskipunina út, við afhendingu allar upplýsingar um tímalengd gæsluvarðhalds eftirlýsts manns á grundvelli handtökuskipunar.
30. gr.
Möguleg saksókn vegna annarra afbrota.
1. Noregi og Íslandi annars vegar og Evrópusambandinu hvaða aðildarríkja sinna sem hins vegar er heimilt að tilkynna hverju öðru um að litið sé svo á að í samskiptum ríkjanna við önnur ríki, sem sama tilkynning tekur til, liggi fyrir samþykki um saksókn, ákvörðun refsingar eða varðhalds með það í huga að framfylgja úrskurði um refsivist eða öryggisráðstöfun fyrir afbrot, annað en það sem leiddi til afhendingar viðkomandi, sem er framið áður en afhending á sér stað, nema dómsmálayfirvaldið, sem annast framkvæmdina, taki annað fram, í tilteknu tilviki, í ákvörðun sinni um afhendingu.
2. Óheimilt er að sækja mann, sem er afhentur, til saka, dæma hann til refsingar eða svipta hann að öðru leyti frelsi sínu fyrir afbrot, annað en það sem hann var afhentur fyrir, sem var framið áður en til afhendingar kom, nema í þeim tilvikum sem um getur í 1. og 3. mgr.
3. Ákvæði 2. mgr. á ekki við í eftirfarandi tilvikum:
a) ef viðkomandi hefur haft tækifæri til að fara frá yfirráðasvæði ríkisins, þangað sem hann hefur verið afhentur, en hefur ekki gert það innan 45 daga frá því hann var endanlega látinn laus eða ef hann hefur komið aftur á yfirráðasvæðið eftir að hafa yfirgefið það,
b) ef afbrotið leiðir hvorki til refsivistar né öryggisráðstöfunar,
c) ef meðferð sakamáls gefur ekki tilefni til að beita ráðstöfunum til að skerða persónulegt frelsi hans,
d) ef honum er gert að sæta viðurlögum eða ráðstöfun sem felur ekki í sér frjálsræðissviptingu, þ.m.t. fésektir eða ráðstafanir í þeirra stað, jafnvel þótt þær kunni að skerða persónulegt frelsi hans,
e) ef viðkomandi hefur gefið samþykki sitt fyrir afhendingu og, eftir atvikum, afsalað sér réttinum til að nýta sér sérregluna í samræmi við 16. gr.,
f) ef hann hefur, eftir að hafa verið afhentur, skýlaust afsalað sér réttinum til að nýta sér sérregluna að því er varðar tiltekin afbrot sem hann framdi áður en hann var afhentur. Viðkomandi skal afsala sér þessum rétti frammi fyrir lögbærum dómsmálayfirvöldum í útgáfuríkinu og skal það skráð í samræmi við landslög í því ríki. Afsalið skal skráð með þeim hætti að ljóst sé að viðkomandi hafi gefið það af fúsum og frjálsum vilja og sé kunnugt um afleiðingarnar. Einstaklingurinn skal, í því skyni, eiga rétt á ráðgjöf lögfræðings,
g) ef dómsmálayfirvaldið, sem annast framkvæmdina og afhendir einstaklinginn, gefur samþykki sitt í samræmi við 4. mgr.
4. Leggja skal beiðni um samþykki fyrir dómsmálayfirvaldið, sem annast framkvæmdina, ásamt þeim upplýsingum sem um getur í 1. mgr. 11. gr. og þýðingu eins og um getur í 2. mgr. 11. gr. Veita skal samþykki ef afbrotið, sem beiðni um samþykki varðar, leiðir sjálft til afhendingar í samræmi við ákvæði þessa samnings. Synja skal um samþykki af þeim ástæðum sem um getur í 4. gr. en að öðru leyti má einungis synja um það af þeim ástæðum sem um getur í 5. gr., 6. gr. (2. mgr.) og 7. gr. (2. mgr.). Ákvörðun skal tekin eigi síðar en 30 dögum eftir móttöku beiðninnar. Við þær aðstæður sem getið er í 8. gr. verður útgáfuríkið að veita þær tryggingar sem kveðið er á um þar.
31. gr.
Afhending eða framsal síðar.
1. Noregi og Íslandi annars vegar og Evrópusambandinu hvaða aðildarríkja sinna sem er hins vegar er heimilt að greina hvert öðru frá því, að því er varðar samskipti ríkjanna við önnur ríki sem sama tilkynning á við um, að fyrir liggi samþykki um afhendingu manns til ríkis, annars en framkvæmdarríkisins, samkvæmt handtökuskipun sem er gefin út vegna annars afbrots en þess sem afhending varðar, nema dómsmálayfirvaldið, sem annast framkvæmdina, taki annað fram, í tilteknu tilviki, í ákvörðun sinni um afhendingu.
2. Í öllu falli getur maður, sem hefur verið afhentur útgáfuríkinu samkvæmt handtökuskipun, í eftirfarandi tilvikum fengið sig afhentan öðru ríki en framkvæmdarríkinu, án samþykkis framkvæmdarríkisins, samkvæmt handtökuskipun sem er gefin út vegna afbrots sem framið var áður en til afhendingar kom:
a) ef hinn eftirlýsti hefur haft tækifæri til að fara frá yfirráðasvæði ríkisins, þangað sem hann var afhentur, en hefur ekki gert það innan 45 daga frá því hann var endanlega látinn laus eða ef hann hefur komið aftur á yfirráðasvæðið eftir að hafa yfirgefið það,
b) ef hinn eftirlýsti samþykkir að vera afhentur til annars ríkis en framkvæmdarríkisins samkvæmt handtökuskipun. Viðkomandi skal gefa samþykki sitt frammi fyrir lögbærum dómsmálayfirvöldum í útgáfuríkinu og skal það skráð í samræmi við landslög í því ríki. Það skal vera skráð með þeim hætti að ljóst sé að hann hafi gefið það af fúsum og frjálsum vilja og sé kunnugt um afleiðingarnar. Hinn eftirlýsti skal, í því skyni, eiga rétt á ráðgjöf lögfræðings,
c) ef hinn eftirlýsti fellur ekki undir sérregluna í samræmi við a-, e-, f- og g-lið 3. mgr. 30. gr.
3. Dómsmálayfirvaldið, sem annast framkvæmdina, samþykkir afhendingu til annars ríkis í samræmi við eftirfarandi reglur:
a) beiðni um samþykki skal lögð fram í samræmi við 12. gr., ásamt þeim upplýsingum sem um getur í 1. mgr. 11. gr. og þýðingu eins og um getur í 2. mgr. 11. gr.,
b) veita skal samþykki ef afbrotið, sem beiðni um samþykki varðar, leiðir sjálft til afhendingar í samræmi við ákvæði þessa samnings,
c) ákvörðun skal tekin eigi síðar en 30 dögum eftir móttöku beiðninnar,
d) synja skal um samþykki af þeim ástæðum sem um getur í 4. gr. en að öðru leyti má einungis synja um það af þeim ástæðum sem um getur í 5. gr. eða 6. gr. (2. mgr.) og 7. gr. (2. mgr.).
Við þær aðstæður sem getið er í 8. gr. skal útgáfuríkið veita þær tryggingar sem kveðið er á um þar.
4. Þrátt fyrir 1. mgr. skal ekki framselja mann, sem búið er að afhenda samkvæmt handtökuskipun, þriðja ríki án samþykkis lögbærs yfirvalds í ríkinu sem afhenti hann. Gefa skal slíkt samþykki í samræmi við þá samninga sem það ríki er bundið af og landslög þess.
32. gr.
Afhending hluta.
1. Dómsmálayfirvaldið, sem annast framkvæmdina, skal, að beiðni dómsmálayfirvaldsins, sem gefur handtökuskipunina út, eða að eigin frumkvæði, í samræmi við landslög, leggja hald á og afhenda hluti sem:
a) gæti þurft sem sönnunargögn eða
b) hinn eftirlýsti hefur aflað með afbroti sínu.
2. Hlutur, sem um getur í 1. mgr., skal afhentur enda þótt handtökuskipun verði ekki framkvæmd vegna andláts eða flótta hins eftirlýsta.
3. Ef heimilt er að leggja hald á hlutina sem um getur í 1. mgr. eða gera þá upptæka á yfirráðasvæði framkvæmdarríkisins getur það, ef nota þarf hlutina vegna sakamáls sem er til meðferðar, haldið þeim tímabundið eða afhent þá útgáfuríkinu með því skilyrði að þeim verði skilað.
4. Haldast skulu sérhver réttindi sem framkvæmdarríkið eða þriðju aðilar kunna að hafa öðlast í hlutunum sem um getur í 1. mgr. Þegar um slík réttindi er að ræða skal útgáfuríkið skila hlutunum til framkvæmdarríkisins um leið og meðferð sakamáls lýkur og án endurgjalds.
33. gr.
Kostnaður.
1. Framkvæmdarríkið skal greiða allan kostnað við framkvæmd handtökuskipunar sem til fellur á yfirráðasvæði þess.
2. Útgáfuríkið ber allan annan kostnað.
4. KAFLI
ALMENN ÁKVÆÐI OG LOKAÁKVÆÐI
34. gr.
Tengsl við aðra lagagerninga.
1. Við gildistöku þessa samnings skal hann koma í stað samsvarandi ákvæða eftirtalinna samninga sem gilda um framsal milli Noregs og Íslands annars vegar og aðildarríkjanna hins vegar, með fyrirvara um beitingu þeirra í samskiptum ríkjanna og þriðju ríkja:
a) ákvæða Evrópusamnings um framsal sakamanna frá 13. desember 1957, viðbótarsamnings við hann frá 15. október 1975, annars viðbótarsamnings við hann frá 17. mars 1978 og Evrópusamnings um varnir gegn hryðjuverkum frá 27. janúar 1977, að því er varðar framsal, eins og honum var breytt með bókun frá 2003 þegar hún öðlast gildi,
b) ákvæða 4. kafla III. bálks samningsins frá 19. júní 1990 um framkvæmd Schengen-samkomulagsins frá 14. júní 1985 um afnám í áföngum á eftirliti á sameiginlegum landamærum,
c) ákvæða er varða Schengen í framsalssamningum ESB frá 1995 og 1996 að því marki sem þeir eru í gildi.
2. Ríkjunum er heimilt að beita áfram tvíhliða eða marghliða samningum eða samkomulagi sem eru í gildi við gerð þessa samnings að því marki sem slíkir samningar eða samkomulag er víðtækari en markmið þessa samnings og stuðla að því að einfalda eða greiða fyrir málsmeðferð við afhendingu manna sem handtökuskipun hefur verið gefin út á. Samningsaðilar skulu tilkynna hver öðrum um slíka samninga eða samkomulag.
3. Ríkjunum er heimilt að gera tvíhliða eða marghliða samninga eða samkomulag eftir gildistöku þessa samnings ef slíkir samningar eða samkomulag víkka út eða auka við efni þessa samnings og stuðlar að því að einfalda eða greiða fyrir málsmeðferð við afhendingu manna sem handtökuskipun hefur verið gefin út á, einkum með því að setja styttri fresti en þá sem um getur í 20. gr., bæta við skrána yfir afbrot sem mælt er fyrir um í 4. mgr. 3. gr., takmarka enn frekar möguleika á synjun sem eru settir fram í 4. og 5. gr. eða með því að lækka refsirammann sem kveðið er á um í 1. eða 4. mgr. 3. gr.
Í engu tilviki mega samningar og samkomulag, sem um getur í fyrstu undirgrein, hafa áhrif á samskipti við ríki sem eiga ekki aðild að þeim.
Samningsaðilar skulu enn fremur tilkynna hver öðrum um nýjan slíkan samning eða samkomulag sem um getur í fyrstu undirgrein innan þriggja mánaða frá undirritun.
4. Ef þeir samningar, sem um getur í 1. mgr., taka til yfirráðasvæða ríkjanna eða yfirráðasvæða sem ríki annast utanríkismál fyrir og þessi samningur tekur ekki til skulu þessir gerningar gilda áfram um samskipti milli þessara yfirráðasvæða og hinna ríkjanna.
35. gr.
Bráðabirgðaákvæði.
2. Noregi og Íslandi annars vegar og Evrópusambandinu hvaða aðildarríkja sinna sem er hins vegar er heimilt að leggja fram, á sama tíma og tilkynninguna sem kveðið er á um í 1. mgr. 38. gr., yfirlýsingu þar sem greint er frá því að ríkið muni, sem framkvæmdarríki, halda áfram að beita, í tengslum við verknaði sem framdir voru fyrir þann dag sem þau tilgreina, því framsalskerfi sem gilti fyrir gildistöku þessa samnings. Þennan dag má ekki bera upp eftir gildistöku þessa samnings. Heimilt er að draga yfirlýsinguna til baka hvenær sem er.
36. gr.
Lausn deilumála.
Deiluaðila er heimilt að vísa sérhverjum ágreiningi, sem rís milli Íslands eða Noregs og aðildarríkis Evrópusambandsins varðandi túlkun eða beitingu samnings þessa, til fundar fulltrúa ríkisstjórna aðildarríkja Evrópusambandsins og Íslands og Noregs með það fyrir augum að leysa deiluna innan sex mánaða.
37. gr.
Dómaframkvæmd.
Til að ná því markmiði að ná eins samræmdri beitingu og túlkun og unnt er á ákvæðum þessa samnings skulu samningsaðilar fylgjast stöðugt með dómaframkvæmd Dómstóls Evrópubandalaganna og einnig dómaframkvæmd þar til bærra dómstóla Íslands og Noregs varðandi slík ákvæði og ákvæði svipaðra samninga um afhendingu. Í þessu skyni skal koma á sérstöku fyrirkomulagi til að tryggja reglubundna og gagnkvæma miðlun slíkrar dómaframkvæmdar.
38. gr.
Tilkynningar, yfirlýsingar, gildistaka.
1. Samningsaðilar skulu tilkynna hver öðrum þegar nauðsynlegri málsmeðferð er lokið um að þeir samþykki að vera bundnir af þessum samningi.
2. Við afhendingu tilkynninga sinna skv. 1. mgr. skulu samningsaðilar leggja fram þær tilkynningar eða yfirlýsingar sem kveðið er á um í 5. gr. (2. mgr.), 9. gr. (3. mgr.), 28. gr. (2. mgr.) og 34. gr. (2. mgr.) þessa samnings og geta einnig lagt fram þær tilkynningar eða yfirlýsingar sem kveðið er á um í 3. gr. (4. mgr.), 6. gr. (2. mgr.), 7. gr. (2. mgr.), 10. gr. (1. mgr.), 11. gr. (2. mgr.), 16. gr. (4. mgr.), 20. gr. (5. mgr.), 30. gr. (1. mgr.), 31. gr. (1. mgr.), og 35. gr. (2. mgr.) þessa samnings. Heimilt er að leggja fram þær yfirlýsingar eða tilkynningar sem um getur í 3. gr. (4. mgr.), 10. gr. (1. mgr.) og 11. gr. (2. mgr.) hvenær sem er. Heimilt er að breyta þeim yfirlýsingum eða tilkynningum sem um getur í 3. mgr. 9. gr. og 2. mgr. 28. gr. og draga til baka þær sem um getur í 5. gr. (2. mgr.), 6. gr. (2. mgr.), 7. gr. (2. mgr.), 10. gr. (1. mgr.), 16. gr. (4. mgr.), 20. gr. (5. mgr.), 34. gr. (2. mgr.) og 35. gr. (2. mgr.) hvenær sem er.
3. Ef Evrópusambandið leggur fram slíkar yfirlýsingar eða tilkynningar skal það gera grein fyrir því til hvaða aðildarríkja þess yfirlýsingin tekur.
4. Samningur þessi öðlast gildi á fyrsta degi þriðja mánaðar eftir þann dag sem aðalframkvæmdastjóri ráðs Evrópusambandsins staðfestir að öllum formkröfum um samþykki af hálfu aðila að þessum samningi hefur verið fullnægt.
39. gr.
Aðild.
Aðild nýrra aðildarríkja Evrópusambandsins felur í sér réttindi og skyldur samkvæmt þessum samningi milli þeirra ríkja og Íslands og Noregs.
40. gr.
Sameiginleg endurskoðun.
Samningsaðilar samþykkja að endurskoða þennan samning sameiginlega eigi síðar en 5 árum eftir gildistöku hans og þá einkum yfirlýsingarnar sem gefnar eru skv. 3. gr. (4. mgr.), 6. gr. (2. mgr.), 7. gr. (2. mgr.) og 20. gr. (5. mgr.) þessa samnings. Ef yfirlýsingarnar, sem um getur í 2. mgr. 7. gr., eru ekki endurnýjaðar falla þær úr gildi 5 árum eftir gildistöku þessa samnings. Endurskoðunin skal einkum taka á hagnýtri framkvæmd, túlkun og þróun samningsins og getur einnig varðað málefni á borð við afleiðingar af frekari þróun Evrópusambandsins fyrir efni þessa samnings.
41. gr.
Uppsögn.
1. Samningsaðilum er heimilt að segja samningi þessum upp. Segi annaðhvort Ísland eða Noregur samningi þessum upp gildir hann áfram milli Evrópusambandsins og samningsaðilans sem hefur ekki sagt honum upp.
2. Uppsögn samningsins skv. 1. mgr. öðlast gildi sex mánuðum eftir að tilkynning um uppsögn er lögð fram. Hver sú málsmeðferð vegna beiðna um afhendingu sem bíður úrlausnar á þeim degi skal lokið í samræmi við ákvæði þessa samnings.
42. gr.
Vörsluaðili.
1. Aðalframkvæmdastjóri ráðs Evrópusambandsins skal vera vörsluaðili samnings þessa.
2. Vörsluaðili skal birta opinberlega upplýsingar um hverja þá tilkynningu eða yfirlýsingu sem varðar samning þennan.
Gjört í Vín hinn 28. júní 2006 í einu eintaki á íslensku, norsku, dönsku, eistnesku, ensku, finnsku, frönsku, grísku, hollensku, írsku, ítölsku, lettnesku, litháísku, maltnesku, portúgölsku, pólsku, slóvakísku, slóvensku, spænsku, sænsku, tékknesku, ungversku og þýsku og eru allir textarnir jafngildir.
FYRIR HÖND EVRÓPUSAMBANDSINS
FYRIR HÖND LÝÐVELDISINS ÍSLANDS
FYRIR HÖND KONUNGSRÍKISINS NOREGS
HANDTÖKUSKIPUN
1
Lögbært dómsmálayfirvald gefur þessa handtökuskipun út. Farið er fram á að sá einstaklingur, sem getið er hér á eftir, verði handtekinn og afhentur til að unnt sé að sækja hann til saka eða vegna fullnustu dóms um refsivist eða öryggisráðstöfun 2 .
| a)
Upplýsingar um hinn eftirlýsta: Kenninafn: Eiginnafn/-nöfn: Meyjarnafn, ef við á: Dulnefni, ef við á: Kyn: Ríkisfang: Fæðingardagur og –ár: Fæðingarstaður: Búsetustaður og/eða þekkt heimilisfang: Tungumál, eitt eða fleiri, sem hinn eftirlýsti skilur (ef það er vitað): Sérkenni/lýsing á hinum eftirlýsta: Ljósmynd og fingraför af hinum eftirlýsta ef þau liggja fyrir og unnt er að senda þau eða upplýsingar um hvernig hafa má samband við þann sem getur útvegað þessi gögn eða gögn um DNA-eiginleika (ef unnt er að leggja þessi gögn fram hafi þau ekki fylgt) |
| b)
Ákvörðun sem handtökuskipun grundvallast á: 1. Handtökuskipun eða dómsúrskurður sem hefur sömu áhrif: Tegund: 2. Aðfararhæfur dómur: Tilvísun: |
| c)
Upplýsingar um lengd refsingar: 1. Leyfileg hámarkslengd refsivistar eða öryggisráðstöfunar fyrir afbrotið/afbrotin: 2. Uppkveðin lengd refsivistar eða öryggisráðstöfunar: Refsing sem enn á eftir að afplána: |
| d)
Úrskurður var kveðinn upp í fjarveru viðkomandi einstaklings og: – hann tók sjálfur við stefnu eða fékk með öðrum hætti upplýsingar um hvaða dag og hvar skýrslutaka skyldi fara fram sem leiddi til þess að úrskurður var kveðinn upp í fjarveru hans eða – hann tók hvorki sjálfur við stefnu né fékk með öðrum hætti upplýsingar um hvaða dag og hvar skýrslutaka skyldi fara fram sem leiddi til þess að úrskurður var kveðinn upp í fjarveru hans en fékk eftirfarandi lagalegar tryggingar að lokinni afhendingu (hægt er að veita slíkar tryggingar fyrir fram) Tilgreinið lagalegar tryggingar |
| e) Afbrot: Þessi handtökuskipun varðar alls: .................. Afbrot. Lýsing á því við hvaða aðstæður afbrotið eða afbrotin voru framin, þ.m.t. hvenær og hvar þau voru framin og hversu stóran þátt hinn eftirlýsti átti í þeim Eðli afbrots og vísun til refsiákvæða og viðeigandi lagaákvæði/-reglur: |
| I. Eftirfarandi gildir einungis ef bæði útgáfuríki og framkvæmdarríki hafa lagt fram yfirlýsingu skv. 4. mgr. 3. gr. samningsins: Ef við á skal merkja við eitt eða fleiri afbrot sem varða, í útgáfuríkinu, að hámarki a.m.k. 3 ára refsivist eða öryggisráðstöfun eins og skilgreint er í lögum þess ríkis: 0 þátttaka í glæpasamtökum, 0 hryðjuverk, 0 mansal, 0 kynlífsnotkun á börnum og barnaklám, 0 ólögleg viðskipti með fíkniefni og geðvirk efni, 0 ólögleg viðskipti með vopn, skotfæri og sprengiefni, 0 spilling, 0 svik, þ.m.t. svik sem hafa áhrif á fjárhagslega hagmuni Evrópubandalaganna í skilningi samningsins frá 26. júlí 1995 um verndun fjárhagslegra hagsmuna Evrópubandalaganna, 0 þvætti ávinnings af afbrotum, 0 peningafölsun, þ.m.t. á evrum, 0 afbrot tengd tölvum, 0 umhverfisafbrot, þ.m.t. ólögleg viðskipti með dýr, plöntur og yrki í útrýmingarhættu, 0 aðstoð við óheimila komu til lands og búsetu, 0 morð, alvarlegar líkamsmeiðingar, 0 ólögleg viðskipti með líffæri og vefi úr mönnum, 0 mannrán, ólöglegt hald og gíslataka, 0 kynþátta- og útlendingahatur, 0 skipulagt eða vopnað rán, 0 ólögleg viðskipti með menningarverðmæti, þ.m.t. forngripi og listaverk, 0 svindl, 0 fjárglæfrar og fjárkúgun, 0 eftirlíkingar og ólögleg nýting á vörum, 0 fölsun opinberra skjala og viðskipti með þau, 0 fölsun greiðslumiðla, 0 ólögleg viðskipti með hormónaefni og aðra vaxtarhvata, 0 ólögleg viðskipti með kjarnakleyf eða geislavirk efni, 0 viðskipti með stolin ökutæki, 0 nauðgun, 0 íkveikja, 0 afbrot sem heyra undir lögsögu Alþjóðlega sakamáladómstólsins, 0 ólögmæt taka loftfars/skips, 0 skemmdarverk. |
| II. Ítarleg lýsing á afbroti eða afbrotum sem falla ekki undir I. hluta hér að framan: |
| f) Aðrar kringumstæður sem varða málið (valkvæðar upplýsingar): (ATH.: Þetta gætu verið athugasemdir um úrlendisrétt, rof á tímafrestum og aðrar afleiðingar brots) |
| g) Þessi handtökuskipun tekur einnig til halds og afhendingar á eignum sem kunna að vera nauðsynlegar sem sönnunargögn: Þessi handtökuskipun tekur einnig til halds og afhendingar á eignum sem hinn eftirlýsti hefur aflað með afbroti sínu. Lýsing á eigninni (og staðsetningu hennar) (ef það er vitað): |
| h) Ef afbrot, eitt eða fleiri, sem handtökuskipunin er gefin út fyrir, varðar ævilanga refsivist eða ævilanga öryggisráðstöfun eða úrskurður um slíkt þegar fallinn: veitir útgáfuríkið, að beiðni framkvæmdarríkisins, tryggingu fyrir því að það muni: – endurskoða uppkveðna refsingu eða ráðstöfun komi fram beiðni þar um eða eigi síðar en eftir 20 ár, og/eða – hvetja til beitingar vægari ráðstafana sem viðkomandi á rétt á samkvæmt lögum eða venjum útgáfuríkisins sem miða að því að slík refsing eða ráðstöfun komi ekki til framkvæmda. |
| i) Dómsmálayfirvaldið sem gaf handtökuskipunina út: Opinbert heiti: Nafn fulltrúa þess1: Staða (titill/röðun): Tilvísun í skjal: Heimilisfang: Símanúmer: (landsnúmer) (svæðis-/borgarnúmer)(...) Bréfsímanúmer (landsnúmer) (svæðis-/borgarnúmer)() Tölvupóstur: Leiðir til að ná sambandi við tengilið varðandi nauðsynlegar ráðstafanir við afhendingu: |
| Ef miðlægt yfirvald ber ábyrgð á sendingum og móttöku stjórnsýslunnar á handtökuskipunum: Heiti miðlægs yfirvalds: Tengiliður ef við á (titill, röðun og nafn): Heimilisfang: Símanúmer: (landsnúmer) (svæðis-/borgarnúmer)(...) Bréfsímanúmer: (landsnúmer)(svæðis-/borgarnúmer)(...) Tölvupóstur: |
| Undirritun dómsmálayfirvaldsins sem gefur handtökuskipunina út og/eða fulltrúa þess: Nafn: Staða (titill/röðun): Dagsetning: Opinber stimpill (ef hann er til) |
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
1 Í annarri tungumálaútgáfu fylgir með tilvísun í hver er handhafi dómsmálayfirvaldsins. Yfirlýsing aðila að þessum samningi milli Evrópusambandsins og lýðveldisins Íslands og Konungsríkisins Noregs um málsmeðferð við afhendingu milli aðildarríkja Evrópusambandsins og Noregs og Íslands:
„Samningsaðilar eru sammála um að hafa með sér samráð, eftir því sem við á, ef Lýðveldið Ísland eða Konungsríkið Noregur eða eitthvert aðildarríkja Evrópusambandsins lítur svo á að tilefni hafi gefist til þess, þannig að þessi samningur sé nýttur á eins skilvirkan hátt og kostur er, einnig með það í huga að koma í veg fyrir að ágreiningur rísi um virka framkvæmd og túlkun þessa samnings.“ Samráði skal hagað eins og hentugast þykir og með hliðsjón af núverandi tilhögun samvinnunnar.“
Yfirlýsing Evrópusambandsins:
„Evrópusambandið lýsir því yfir að einungis Sambandslýðveldið Þýskaland, Konungsríkið Danmörk, Lýðveldið Slóvakía og Konungsríkið Holland munu nýta sér þann möguleika samkvæmt öðrum málslið 2. mgr. 9. gr. að tilnefna dómsmálaráðherra sem lögbært yfirvald við framkvæmd handtökuskipunar.“
„Evrópusambandið lýsir því yfir að aðildarríkin muni beita 3. og 4. mgr. 20. gr. í samræmi við innlend lög sín um svipuð tilvik“.
Við samþykkt ákvörðunar ráðsins um að heimila undirritun þessara samningsdraga setja eftirtaldar tvær sendinefndir fram yfirlýsingu sem verður færð í fundargerð fundar ráðsins.
– Kýpur leggur fram eftirfarandi yfirlýsingu: „Lýðveldið Kýpur lýsir því yfir að það samþykki, einungis að því er þennan samning varðar, ákvæðin um rétt til synjunar á afhendingu vegna stjórnmálaafbrota, afbrota tengdum stjórnmálaafbrotum eða afbrota sem sprottin eru af stjórnmálaástæðum (6. gr.).“
– Grikkland leggur fram eftirfarandi yfirlýsingu: „Grikkland lýsir því yfir að það muni beita 6. gr. með stjórnarskrárákvæði sín í huga sem leggja bann við afhendingu manna sem eru sóttir til saka fyrir að vera frelsisbaráttumenn.“
Á sama tíma verða eftirfarandi tvær yfirlýsingar ráðsins færðar í fundargerð fundar ráðsins:
– „Ráðið vekur athygli á því að ekki beri að líta á þennan samning sem fyrirmynd annarra samninga og hann skuli því ekki vera fordæmi fyrir önnur tilvik síðar“.
– „Ráðið lýsir því yfir að ekki er heimilt að skírskota til neinna ákvæða samningsins milli Evrópusambandsins og lýðveldisins Íslands og Konungsríkisins Noregs um málsmeðferð við afhendingu milli aðildarríkja Evrópusambandsins og Íslands og Noregs við túlkun gildandi eða síðari gerninga Evrópusambandsins um samstarf aðildarríkjanna í sakamálum.“
Fylgiskjal II.
SAMNINGUR
MILLI EVRÓPUSAMBANDSINS OG LÝÐVELDISINS ÍSLANDS OG KONUNGSRÍKISINS NOREGS UM BEITINGU TILTEKINNA ÁKVÆÐA SAMNINGSINS FRÁ 29. MAÍ 2000 UM GAGNKVÆMA RÉTTARAÐSTOÐ Í SAKAMÁLUM MILLI AÐILDARRÍKJA EVRÓPUSAMBANDSINS OG BÓKUNAR VIÐ HANN FRÁ 2001
EVRÓPUSAMBANDIÐ
annars vegar, og
LÝÐVELDIÐ ÍSLAND
og
KONUNGSRÍKIÐ NOREGUR
hins vegar,
sem nefnast hér á eftir „samningsaðilar“,
HAFA HUG Á að bæta réttaraðstoð í sakamálum milli aðildarríkja Evrópusambandsins og Íslands og Noregs, sbr. þó ákvæði um verndun einstaklingsfrelsis,
LÍTA SVO Á að núverandi tengsl samningsaðilanna geri það að verkum að nauðsynlegt sé að vinna náið saman að því að berjast gegn afbrotum,
BENDA Á þá sameiginlegu hagsmuni samningsaðila að tryggja að gagnkvæm réttaraðstoð milli aðildarríkja Evrópusambandsins og Íslands og Noregs sé veitt fljótt og með skilvirkum hætti, sem samrýmist grundvallarreglum landslaga þeirra og í samræmi við rétt einstaklinga og meginreglur Evrópusáttmálans um verndun mannréttinda og mannfrelsis sem var undirritaður í Róm 4. nóvember 1950,
LÁTA Í LJÓS gagnkvæma trú sína á skipulagi og starfsemi réttarkerfa sinna og getu allra samningsaðila til að tryggja sanngjörn réttarhöld,
HAFA EINSETT SÉR að láta samning milli Evrópusambandsins og Íslands og Noregs koma til viðbótar Evrópusamningi um gagnkvæma aðstoð í sakamálum frá 20. apríl 1959 og öðrum gildandi samningum á þessu sviði,
VIÐURKENNA að ákvæði þessara samninga gilda áfram í öllum málum sem ekki er fjallað um í samningi þessum,
HAFA HUGFAST að í þessum samningi, þ.m.t. í I. viðauka hans, eru settar reglur um gagnkvæma réttaraðstoð í sakamálum sem byggjast á meginreglum samningsins frá 20. apríl 1959,
HAFA Í HUGA að í 1. mgr. 2. gr. samningsins frá 29. maí 2000 um gagnkvæma réttaraðstoð í sakamálum milli aðildarríkja Evrópusambandsins og í 15. gr. bókunarinnar við hann frá 16. október 2001 eru tilgreind ákvæði sem fela í sér þróun Schengen-gerðanna og Ísland og Noregur hafa þar með samþykkt á grundvelli skuldbindinga sinna samkvæmt samningnum frá 18. maí 1999 sem ráð Evrópusambandsins, Lýðveldið Ísland og Konungsríkið Noregur gerðu með sér um þátttöku hinna síðarnefndu í framkvæmd, beitingu og þróun Schengen- gerðanna,
HAFA Í HUGA að Ísland og Noregur hafa látið í ljós óskir um að gera samning sem gerir þeim kleift að beita einnig öðrum ákvæðum samningsins um gagnkvæma réttaraðstoð frá 2000 og ákvæðum bókunarinnar frá 2001 í samskiptum sínum við aðildarríki Evrópusambandsins,
HAFA Í HUGA að Evrópusambandið lítur einnig svo á að nauðsynlegt sé að gera slíkan samning,
HAFA ORÐIÐ ÁSÁTT UM EFTIRFARANDI:
1. gr.
1. Með fyrirvara um ákvæði þessa samnings skulu eftirfarandi ákvæði samningsins frá 29. maí 2000, sem ráð Evrópusambandsins gerði í samræmi við 34. gr. sáttmála Evrópusambandsins, um gagnkvæma réttaraðstoð í sakamálum milli aðildarríkja Evrópusambandsins, hér á eftir nefndur „samningur ESB um gagnkvæma réttaraðstoð“, gilda í samskiptum Lýðveldisins Íslands og Konungsríkisins Noregs og í gagnkvæmum samskiptum milli þessara ríkja hvors um sig og aðildarríkja Evrópusambandsins:
ákvæði 4., 8., 9., 10., 11., 13., 14., 15., 16., 17., 18., 19., 20., 21., 22., 25. og 26. gr., svo og ákvæði 1. og 24. gr. að því marki sem þær greinar varða hinar greinarnar.
2. Með fyrirvara um ákvæði þessa samnings skulu eftirfarandi ákvæði bókunarinnar frá 16. október 2001, sem ráð Evrópusambandsins gerði í samræmi við 34. gr. sáttmála Evrópusambandsins, um gagnkvæma réttaraðstoð í sakamálum milli aðildarríkja Evrópusambandsins, hér á eftir nefnd „bókun ESB um gagnkvæma réttaraðstoð“, gilda í samskiptum Lýðveldisins Íslands og Konungsríkisins Noregs og í gagnkvæmum samskiptum milli þessara ríkja hvors um sig og aðildarríkja Evrópusambandsins:
ákvæði 1. (1. til 5. mgr.), 2., 3., 4., 5., 6., 7., 9., 11. og 12. gr.
3. Yfirlýsingar aðildarríkjanna skv. 9. gr. (6. mgr.), 10. gr. (9. mgr.), 14. gr. (4. mgr.), 18. gr. (7. mgr.) og 20. gr. (7. mgr.) samnings ESB um gagnkvæma réttaraðstoð og 2. mgr. 9. gr. bókunar ESB um gagnkvæma réttaraðstoð skulu einnig gilda í samskiptum við Lýðveldið Ísland og Konungsríkið Noreg.
2. gr.
1. Til að ná því markmiði að ná eins samræmdri beitingu og túlkun og unnt er á ákvæðunum, sem um getur í 1. gr., skulu samningsaðilar fylgjast stöðugt með dómaframkvæmd Dómstóls Evrópubandalaganna og einnig dómaframkvæmd þar til bærra dómstóla Íslands og Noregs varðandi slík ákvæði. Í þessu skyni skal koma á sérstöku fyrirkomulagi til að tryggja reglubundna og gagnkvæma miðlun þessarar dómaframkvæmdar.
2. Íslandi og Noregi er heimilt að leggja greinargerðir eða skriflegar athugasemdir fyrir dómstólinn í málum sem dómstóll aðildarríkis hefur beint til dómstólsins með beiðni um forúrskurð varðandi túlkun á ákvæði sem um getur í 1. gr.
3. gr.
Ef beiðni er hafnað er Noregi eða Íslandi heimilt að fara fram á það við aðildarríkið, sem beiðninni er beint til, að það greini Evrópsku réttaraðstoðinni (Eurojust) frá þeim vandamálum sem upp koma varðandi framkvæmd beiðninnar með það í huga að leita raunhæfrar lausnar.
4. gr.
Deiluaðila er heimilt að vísa sérhverjum ágreiningi, sem rís milli Íslands eða Noregs og aðildarríkis Evrópusambandsins varðandi túlkun eða beitingu samnings þessa eða einhverra þeirra ákvæða sem um getur í 1. gr. þessa samnings, til fundar fulltrúa ríkisstjórna aðildarríkja Evrópusambandsins og Íslands og Noregs með það fyrir augum að leysa deiluna innan sex mánaða.
5. gr.
Samningsaðilar samþykkja að endurskoða þennan samning sameiginlega eigi síðar en fimm árum eftir gildistöku hans. Endurskoðunin skal einkum taka til framkvæmdar samningsins í reynd, túlkunar hans og þróunar og getur einnig varðað málefni á borð við afleiðingar frekari þróunar Evrópusambandsins fyrir efni þessa samnings.
6. gr.
1. Samningsaðilar skulu tilkynna hver öðrum þegar nauðsynlegri málsmeðferð er lokið um að þeir samþykki að vera bundnir af þessum samningi.
2. Ísland og Noregur geta gefið hverja þá yfirlýsingu sem kveðið er á um í 9. gr. (6. mgr.), 10. gr. (9. mgr.), 14. gr. (4. mgr.), 18. gr. (7. mgr.) og 20. gr. (7. mgr.) samnings ESB um gagnkvæma réttaraðstoð og 2. mgr. 9. gr. bókunar ESB um gagnkvæma réttaraðstoð þegar þau afhenda tilkynningar sínar skv. 1. mgr. eða, sé gert ráð fyrir því, hvenær sem er eftir það.
3. Að því er viðeigandi ákvæðum samnings ESB um gagnkvæma réttaraðstoð viðvíkur öðlast samningurinn gildi á fyrsta degi þriðja mánaðar eftir þann dag sem aðalframkvæmdastjóri ráðs Evrópusambandsins staðfestir að öllum formkröfum, er varða samþykki af hálfu eða fyrir hönd aðila að þessum samningi hefur verið fullnægt, eða á þeim degi sem samningur ESB um gagnkvæma réttaraðstoð öðlast gildi í samræmi við 3. mgr. 27. gr. þess samnings, ef það er síðar. Að því er viðeigandi ákvæðum samnings ESB um gagnkvæma réttaraðstoð viðvíkur felur gildistaka þessa samnings í sér gagnkvæm réttindi og skyldur Íslands og Noregs og Íslands, Noregs og þeirra aðildarríkja ESB sem eru bundin af samningi ESB um gagnkvæma réttaraðstoð.
4. Að því er viðeigandi ákvæðum bókunar ESB um gagnkvæma réttaraðstoð viðvíkur öðlast samningurinn gildi á fyrsta degi þriðja mánaðar eftir þann dag sem aðalframkvæmdastjóri ráðs Evrópusambandsins staðfestir að öllum formkröfum, er varða samþykki af hálfu eða fyrir hönd aðila að þessum samningi hefur verið fullnægt, eða á þeim degi sem bókun ESB um gagnkvæma réttaraðstoð öðlast gildi í samræmi við 3. mgr. 13. gr. þess samnings, ef það er síðar. Að því er viðeigandi ákvæðum bókunar ESB um gagnkvæma réttaraðstoð viðvíkur felur gildistaka þessa samnings í sér gagnkvæm réttindi og skyldur Íslands og Noregs og Íslands, Noregs og þeirra aðildarríkja ESB sem eru bundin af bókun ESB um gagnkvæma réttaraðstoð.
5. Síðar munu slík réttindi og skyldur taka gildi milli Noregs, Íslands og annarra aðildarríkja ESB þegar samningur ESB um gagnkvæma réttaraðstoð og/eða bókun ESB um gagnkvæma réttaraðstoð öðlast gildi gagnvart öðrum aðildarríkjum ESB.
6. Þessi samningur gildir einungis um málsmeðferð við gagnkvæma réttaraðstoð sem hefst eftir að réttindi og skyldur samkvæmt honum hafa öðlast gildi á grundvelli 3. og 4. mgr.
7. gr.
Aðild nýrra aðildarríkja Evrópusambandsins að samningi ESB um gagnkvæma réttaraðstoð og/eða bókun ESB um gagnkvæma réttaraðstoð felur í sér réttindi og skyldur samkvæmt þessum samningi milli þeirra og Íslands og Noregs.
8. gr.
1. Samningsaðilum er heimilt að segja samningi þessum upp. Segi annaðhvort Ísland eða Noregur samningi þessum upp gildir hann áfram milli Evrópusambandsins og þess ríkis sem hefur ekki sagt honum upp.
2. Uppsögn samnings þessa skv. 1. mgr. öðlast gildi sex mánuðum eftir að tilkynning um uppsögn er lögð fram. Hverri þeirri málsmeðferð, er varðar beiðni um gagnkvæma réttaraðstoð, sem bíður úrlausnar á þeim degi, skal lokið í samræmi við ákvæði samnings þessa.
3. Samningur þessi fellur úr gildi ef samningnum frá 18. maí 1999 milli ráðs Evrópusambandsins, Lýðveldisins Íslands og Konungsríkisins Noregs um þátttöku hinna síðarnefndu í framkvæmd, beitingu og þróun Schengen-gerðanna er sagt upp.
4. Ef samningnum frá 18. maí 1999, sem um getur í 3. mgr., er sagt upp fellur samningur þessi úr gildi skv. 3. mgr. gagnvart þeim sama eða sömu aðilum og frá sama degi.
9. gr.
1. Aðalframkvæmdastjóri ráðs Evrópusambandsins skal vera vörsluaðili samnings þessa.
2. Vörsluaðili skal birta opinberlega upplýsingar um hverja þá tilkynningu sem varðar samning þennan.
10. gr.
Samningur þessi skal gerður í einu eintaki á dönsku, ensku, finnsku, frönsku, grísku, hollensku, íslensku, írsku, ítölsku, norsku, portúgölsku, spænsku, sænsku og þýsku og eru allir textarnir jafngildir.
Gjört í …………………….
Fyrir hönd Fyrir hönd Fyrir hönd
Evrópusambandsins Lýðveldisins Íslands Konungsríkisins Noregs
BEITING AÐ ÞVÍ ER GÍBRALTAR VARÐAR
Hið sameinaða konungsríki Stóra-Bretlands og Norður-Írlands staðfestir, sem það aðildarríki sem annast málefni Gíbraltar, þ.m.t. utanríkismál þess, að þessi samningur muni öðlast gildi á yfirráðasvæðinu þegar samningur ESB um gagnkvæma réttaraðstoð frá 2000 og bókun frá 2001 verða látin taka til Gíbraltar sem byggist á því að samningur Evrópuráðsins um gagnkvæma aðstoð frá 1959 hafi einnig verið látinn taka til Gíbraltar. Breska konungsríkið mun, þegar þar að kemur, tilnefna viðeigandi lögbært yfirvald á Gíbraltar að því er þennan samning varðar. Formleg samskipti við þetta yfirvald skulu fara fram í samræmi við fyrirkomulag sem Breska konungsríkið og Konungsríkið Spánn hafa samþykkt varðandi yfirvöld á Gíbraltar í tengslum við gerninga ESB og EB og tengda sáttmála sem tilkynnt hafði verið um til aðildarríkjanna og stofnana Evrópusambandsins 19. apríl 2000.
Yfirlýsing aðila að samningi milli Evrópusambandsins og Lýðveldisins Íslands og Konungsríkisins Noregs um beitingu tiltekinna ákvæða samningsins um gagnkvæma réttaraðstoð í sakamálum milli aðildarríkja Evrópusambandsins og bókun við hann frá 2001.
Samningsaðilar eru sammála um að hafa með sér samráð, eftir því sem við á, ef Lýðveldið Ísland eða Konungsríkið Noregur eða eitthvert aðildarríkja Evrópusambandsins lítur svo á að tilefni hafi gefist til þess, þannig að þessi samningur sé nýttur á eins skilvirkan hátt og kostur er, einnig með það í huga að koma í veg fyrir að ágreiningur rísi um framkvæmd samningsins í reynd og túlkun hans. Samráði skal hagað eins og hentugast þykir og með hliðsjón af núverandi tilhögun samvinnunnar.
Yfirlýsing Lýðveldisins Íslands og Konungsríkisins Noregs
Lýðveldið Ísland og Konungsríkið Noregur lýsa því yfir að þar til bær dómsmálayfirvöld þeirra muni, með hliðsjón af ákvæðum samningsins um gagnkvæma réttaraðstoð í sakamálum frá 29. maí 2000 þar sem dómsmálayfirvöld hafa samskipti milliliðalaust, óska, ef við á, eftir því að senda nauðsynlegar fyrirspurnir til tengiliða hjá Evrópuneti dómstóla (European Judicial Network) í því skyni að fá staðfest hvaða dómsmálayfirvald í aðildarríki Evrópusambandsins er til þess bært á því svæði að leggja fram og verða við beiðnum um gagnkvæma réttaraðstoð.
Fylgiskjal III.
ÁKVÖRÐUN RÁÐSINS 2003/169/JHA
frá 27. febrúar 2003
um það hvaða ákvæði samningsins frá 1995 um einfaldaða málsmeðferð við framsal milli aðildarríkja Evrópusambandsins og samningsins frá 1996 um framsal milli aðildarríkja Evrópusambandsins teljast vera þróun á Schengen-gerðunum samkvæmt samningnum um þátttöku Lýðveldisins Íslands og Konungsríkisins Noregs í framkvæmd, beitingu og þróun Schengen-gerðanna
RÁÐ EVRÓPUSAMBANDSINS HEFUR,
með hliðsjón af sáttmálanum um Evrópusambandið, einkum b-lið 31. gr. og c-lið 2. mgr. 34. gr.,
með hliðsjón af frumkvæði Konungsríkisins Svíþjóðar ( 1 ),
með hliðsjón af áliti Evrópuþingsins ( 2 ),
og að teknu tilliti til eftirfarandi:
1) Til að ná markmiðum Evrópusambandsins gerði ráðið samning um einfaldaða málsmeðferð við framsal milli aðildarríkja Evrópusambandsins ( 3 ) (hér á eftir nefndur „samningurinn um einfaldaða málsmeðferð við framsal“) og samning um framsal milli aðildarríkja Evrópusambandsins ( 4 ) (hér á eftir nefndur „framsalssamningurinn“).
2) Til að tryggja skýra og ótvíræða réttarstöðu er brýnt að ákvarða tengslin milli ákvæða framangreindra samninga og ákvæða 4. kafla III. bálks samningsins frá 19. júní 1990 um framkvæmd Schengen-samkomulagsins frá 14. júní 1985 um afnám í áföngum á eftirliti á sameiginlegum landamærum ( 5 ) (hér á eftir nefndur „Schengen- samningurinn“), sem felld voru inn í ramma Evrópusambandsins með gildistöku Amsterdam-sáttmálans 1. maí 1999.
3) Einnig er nauðsynlegt að Lýðveldið Ísland og Konungsríkið Noregur taki þátt í beitingu ákvæða samningsins um einfaldaða málsmeðferð við framsal og sumra ákvæða framsalssamningsins sem teljast vera þróun á Schengen-gerðunum og falla undir gildissvið 1. gr. ákvörðunar ráðsins 1999/437/EB frá 17. maí 1999 um sérstakt fyrirkomulag um beitingu samningsins sem ráð Evrópusambandsins og Lýðveldið Ísland og Konungsríkið Noregur gerðu með sér um þátttöku þessara tveggja ríkja í framkvæmd, beitingu og þróun Schengen-gerðanna ( 6 ).
4) Málsmeðferðin, sem lýst er í samningnum sem ráð Evrópusambandsins og Lýðveldið Ísland og Konungsríkið Noregur gerðu með sér um þátttöku hinna síðarnefndu í framkvæmd, beitingu og þróun Schengen-gerðanna ( 7 ) (hér á eftir nefndur „samstarfssamningurinn“) hefur verið virt með tilliti til þessarar ákvörðunar.
5) Þegar Lýðveldið Ísland og Konungsríkið Noregur fá tilkynningu um samþykkt þessarar ákvörðunar í samræmi við a-lið 2. mgr. 8. gr. samstarfssamningsins verður farið fram á það við þessi tvö ríki, þegar þau tilkynna ráðinu og framkvæmdastjórninni að þau hafi uppfyllt stjórnskipuleg skilyrði, að þau leggi fram viðeigandi yfirlýsingar og sendi viðeigandi tilkynningar skv. 7. gr. (4. mgr.), 9. gr., 12. gr. (3. mgr.) og 15. gr. samningsins um einfaldaða málsmeðferð við framsal og skv. 3. mgr. 6. gr. og 2. mgr. 13. gr. framsalssamningsins.
ÁKVEÐIÐ EFTIRFARANDI:
1. gr.
2. gr.
3. gr.
2. Áður en samningurinn um einfaldaða málsmeðferð við framsal öðlast gildi, að því er Ísland eða Noreg varðar, er Íslandi og Noregi heimilt, þegar þau tilkynna um að þau hafi uppfyllt stjórnskipuleg skilyrði í samræmi við 2. mgr. 8. gr. samstarfssamningsins, að lýsa því yfir að ákvæði samningsins muni gilda, að því er þau varðar, í samskiptum við aðildarríki sem hafa gefið sams konar yfirlýsingu. Þessar yfirlýsingar öðlast gildi 90 dögum eftir að þær eru afhentar til vörslu.
3. Með fyrirvara um 8. gr. samstarfssamningsins öðlast 2., 6., 8., 9. og 13. gr. framsalssamningsins gildi, að því er Ísland og Noreg varðar, daginn sem framsalssamningurinn öðlast gildi í samræmi við 3. mgr. 18. gr. hans eða, ef sá dagur er fyrir 1. júlí 2002, þá á þeim degi.
4. Áður en ákvæði framsalssamningsins, sem um getur í 3. mgr., öðlast gildi, að því er Ísland eða Noreg varðar, er Íslandi og Noregi heimilt, þegar þau tilkynna um að þau hafi uppfyllt stjórnskipuleg skilyrði í samræmi við 2. mgr. 8. gr. samstarfssamningsins, að lýsa því yfir að þessi ákvæði muni gilda, að því er þau varðar, í samskiptum við ríki sem hafa gefið sams konar yfirlýsingu. Þessar yfirlýsingar öðlast gildi 90 dögum eftir að þær eru afhentar til vörslu.
4. gr.
2. Ákvæði 61. gr., 62. gr. (1. og 2. mgr.), 63. og 65. gr. Schengen-samningsins falli niður frá og með þeim degi er framsalssamningurinn öðlast gildi skv. 3. mgr. 18. gr. hans. Engu að síður gilda þau ákvæði áfram um framsalsbeiðnir sem lagðar voru fram fyrir þann dag, nema aðildarríkin, sem í hlut eiga, hafi þegar hafið beitingu framsalssamningsins sín á milli samkvæmt yfirlýsingum sem lagðar eru fram í samræmi við 4. mgr. 18. gr. hans.
5. gr.
Gjört í Brussel 27. febrúar 2003.
| Fyrir hönd ráðsins, |
| M. CHRISTOCHOÏDIS |
| forseti. |
Fylgiskjal IV.
SAMNINGUR
um einfaldaða málsmeðferð við framsal milli aðildarríkja Evrópusambandsins, gerður á grundvelli greinar K.3 í sáttmálanum um Evrópusambandið
HINIR HÁU SAMNINGSAÐILAR samnings þessa, aðildarríki Evrópusambandsins,
VÍSA TIL gerðar ráðsins frá 9. mars 1995,
HAFA HUG Á að bæta dómsmálasamstarf í sakamálum milli aðildarríkjanna, bæði að því er snertir málsmeðferð og fullnustu dóma,
VIÐURKENNA mikilvægi framsals í dómsmálasamstarfi til að ná þessum markmiðum,
ERU SANNFÆRÐIR UM þörfina á að einfalda málsmeðferð við framsal að því marki sem slíkt samrýmist meginreglum laga þeirra, þ.m.t. meginreglur Evrópusamningsins um verndun mannréttinda og mannfrelsis,
BENDA Á að í fjölmörgum tilfellum um málsmeðferð við framsal samþykkir viðkomandi að vera afhentur,
BENDA Á að í slíkum tilvikum sé æskilegt að stytta, eins og unnt er, þann tíma sem málsmeðferð við framsal tekur sem og varðhaldstímann vegna framsals í hverju tilviki,
LÍTA SVO Á að því sé rétt að greiða fyrir beitingu Evrópusamningsins um framsal sakamanna frá 13. desember 1957 með því að einfalda og bæta málsmeðferð við framsal,
LÍTA SVO Á að ákvæði Evrópusamningsins um framsal gildi áfram á öllum þeim sviðum sem ekki er fjallað um í samningi þessum, og
HAFA KOMIÐ SÉR SAMAN UM EFTIRFARANDI ÁKVÆÐI:
1. gr.
Almenn ákvæði
1. Markmiðið með þessum samningi er að greiða fyrir beitingu Evrópusamningsins um framsal sakamanna milli aðildarríkja Evrópusambandsins með því að bæta við ákvæði hans.
2. Ákvæði 1. mgr. hafa ekki áhrif á beitingu hagstæðari ákvæða tvíhliða og marghliða samninga sem í gildi eru milli aðildarríkjanna.
2. gr.
Skylda til að afhenda einstaklinga
Aðildarríkin skuldbinda sig til að afhenda hvert öðru einstaklinga, sem óskast framseldir, í samræmi við einfölduðu málsmeðferðina sem kveðið er á um í þessum samningi, að því tilskildu að viðkomandi maður veiti til þess samþykki sitt og ríkið, sem beiðni er beint til, fallist á það í samræmi við þennan samning.
3. gr.
Skilyrði fyrir afhendingu
1. Í samræmi við ákvæði 2. gr. skal hver sá sem óskað er eftir að sé handtekinn og settur í gæslu, í samræmi við 16. gr. Evrópusamningsins um framsal sakamanna, afhentur í samræmi við 4.–11. gr. og 1. mgr. 12. gr. þessa samnings.
2. Afhendingin, sem um getur í 1. mgr., er ekki háð framlagningu framsalsbeiðni eða skjala sem krafist er skv. 12. gr. Evrópusamningsins um framsal sakamanna.
4. gr.
Upplýsingar sem leggja skal fram
1. Eftirfarandi upplýsingar frá ríkinu, sem leggur fram beiðni, skulu teljast fullnægjandi upplýsingar um hinn handtekna með þeim hætti, sem segir í 6. og 7. gr., svo og um lögbæra yfirvaldið sem um getur í 2. mgr. 5. gr.:
a) deili á þeim sem óskað er eftir,
b) hvaða yfirvald fer fram á handtökuna,
c) að fyrir liggi handtökuskipun eða annað skjal sem hefur sama lagagildi eða aðfararhæfur dómur,
d) eðli afbrotsins og lýsing á því samkvæmt lögum,
e) lýsing á aðstæðum þegar afbrotið var framið, þ.m.t. tími, staður og hversu stóran þátt sá, sem óskað er eftir, átti í því,
f) afleiðingar afbrotsins, að því marki sem unnt er.
2. Þrátt fyrir 1. mgr. er heimilt að óska frekari upplýsinga ef upplýsingarnar, sem kveðið er á um í fyrrgreindri málsgrein, eru ekki fullnægjandi til að lögbæra yfirvaldið í ríkinu, sem beiðni er beint til, geti fallist á afhendinguna.
5. gr.
Samþykki og leyfi
1. Hinn handtekni skal gefa samþykki sitt í samræmi við 6. og 7. gr.
2. Lögbært yfirvald ríkisins, sem beiðni er beint til, skal gefa leyfi sitt í samræmi við innlenda málsmeðferð sína.
6. gr.
Upplýsingar sem ber að veita þeim sem hlut á að máli
Ef maður, sem óskast framseldur, er handtekinn á yfirráðasvæði annars aðildarríkis skal lögbært yfirvald upplýsa hann, í samræmi við landslög, um beiðnina um framsal hans og að hann eigi þess kost að samþykkja að vera afhentur ríkinu, sem leggur fram beiðnina, samkvæmt einfaldaðri málsmeðferð.
7. gr.
Samþykki fengið
1. Hinn handtekni skal gefa samþykki sitt og, eftir atvikum, afsala sér skýlaust réttinum til að nýta sér sérregluna frammi fyrir lögbæru dómsmálayfirvaldi ríkisins, sem beiðni er beint til, í samræmi við landslög þess ríkis.
2. Hvert aðildarríki skal gera nauðsynlegar ráðstafanir til að tryggja að samþykki og, eftir atvikum, afsal, eins og um getur í 1. mgr., sé gefið með þeim hætti að ljóst sé að sá sem í hlut á hafi gert það af fúsum og frjálsum vilja og verið kunnugt um afleiðingarnar. Hinn handtekni skal, í því skyni, eiga rétt á ráðgjöf lögfræðings.
3. Bóka skal samþykki og, eftir atvikum, afsalið sem um getur í 1. mgr.; skal um málsmeðferð bókunarinnar fara að landslögum ríkisins sem beiðni er beint til.
4. Samþykki og, eftir atvikum, afsal, eins og um getur í 1. mgr., er óafturkallanlegt. Þegar skjal um fullgildingu, staðfestingu, samþykki eða aðild er afhent til vörslu er aðildarríkjunum gefinn kostur á að láta þess getið í yfirlýsingu að samþykki, og eftir atvikum, afsal megi afturkalla í samræmi við landslög. Í því tilviki er tímabilið frá því að tilkynnt er um samþykki til þess að tilkynnt er um afturköllun þess ekki talið með þegar frestir, sem kveðið er á um í 4. mgr. 16. gr. Evrópusamningsins um framsal sakamanna, eru ákveðnir.
8. gr.
Tilkynning um samþykki
1. Ríkið, sem beiðni er beint til, skal þegar í stað tilkynna ríkinu, sem leggur fram beiðni, um samþykki viðkomandi manns. Til að gera ríkinu, sem leggur fram beiðni, kleift að leggja fram framsalsbeiðni, eftir atvikum, skal ríkið, sem beiðni er beint til, tilkynna því, eigi síðar en 10 dögum eftir að viðkomandi hefur verið handtekinn og settur í gæslu, hvort hann hafi gefið samþykki sitt.
2. Tilkynningin, sem um getur í 1. mgr., skal send beint á milli lögbærra yfirvalda.
9. gr.
Afsal réttar til að nýta sérregluna
Hverju aðildarríki er heimilt að lýsa því yfir, þegar það afhendir skjal um fullgildingu, staðfestingu, samþykki eða aðild til vörslu, eða hvenær sem er, að reglurnar, sem mælt er fyrir um í 14. gr. Evrópusamningsins um framsal sakamanna, gildi ekki ef maðurinn, í samræmi við 7. gr. þessa samnings, annaðhvort:
a) samþykkir framsal, eða
b) samþykkir framsal og afsalar sér skýlaust rétti sínum til að nýta sér sérregluna.
10. gr.
Ákvörðun um framsal tilkynnt
1. Þrátt fyrir reglurnar, sem mælt er fyrir um í 1. mgr. 18. gr. Evrópusamningsins um framsal sakamanna, skal tilkynna ákvörðun um framsal samkvæmt einfaldaðri málsmeðferð og senda upplýsingar um einfaldaða málsmeðferð við framsal beint frá lögbæru yfirvaldi ríkisins, sem beiðni er beint til, til yfirvalds ríkisins, sem lagði fram beiðnina um handtöku og gæslu.
2. Tilkynna skal um ákvörðunina, sem um getur í 1. mgr., innan 20 daga frá því að maðurinn gaf samþykki sitt.
11. gr.
Afhendingarfrestur
1. Afhending skal fara fram innan 20 daga frá þeim degi þegar tilkynnt var um ákvörðun um framsal samkvæmt þeim skilyrðum sem mælt er fyrir um í 2. mgr. 10. gr.
2. Þegar fresturinn, sem mælt er fyrir um í 1. mgr., er liðinn skal maðurinn látinn laus, ef hann er í haldi, á yfirráðasvæði ríkisins sem beiðni er beint til.
3. Hafi maðurinn ekki verið afhentur innan frestsins, sem mælt er fyrir um í 1. mgr., sökum atvika sem ekki eru á valdi þess yfirvalds er um getur í 1. mgr. 10. gr., skal það tilkynna hinu yfirvaldinu um það. Yfirvöldin skulu koma sér saman um nýjan afhendingardag. Ef svo er skal afhending fara fram innan 20 daga frá nýrri dagsetningu sem þannig er ákveðin. Ef maðurinn er enn í haldi þegar sá frestur er liðinn skal hann látinn laus.
4. Ef ríkið, sem beiðni er beint til, óskar þess að beita 19. gr. Evrópusamningsins um framsal sakamanna gilda ekki ákvæði 1., 2. og 3. mgr. þessarar greinar.
12. gr.
Samþykki gefið eftir að fresturinn, sem mælt er fyrir um í 8. gr., rennur út eða við aðrar aðstæður
1. Ef handtekinn maður gefur samþykki sitt eftir að 10 daga fresturinn, sem mælt er fyrir um í 8. gr., er útrunninn skal ríkið, sem beiðni er beint til:
— framfylgja einfölduðu málsmeðferðinni, eins og kveðið er á um í þessum samningi, ef því hefur ekki borist framsalsbeiðni í skilningi 12. gr. Evrópusamningsins um framsal sakamanna,
— geta beitt einfölduðu málsmeðferðinni hafi því, í millitíðinni, borist framsalsbeiðni, í skilningi 12. gr. Evrópusamningsins um framsal sakamanna.
2. Hafi ekki verið lögð fram beiðni um handtöku og gæslu og samþykki gefið eftir að framsalsbeiðni berst er ríkinu, sem beiðni er beint til, heimilt að beita einfölduðu málsmeðferðinni eins og kveðið er á um í þessum samningi.
3. Hvert aðildarríki skal, þegar það afhendir skjal um fullgildingu, staðfestingu, samþykki eða aðild til vörslu, láta þess getið hvort það hafi í hyggju að beita öðrum undirlið 1. mgr. og 2. mgr. og, ef svo er, með hvaða skilyrðum.
13. gr.
Endurframsal til annars aðildarríkis
Hafi hinn framseldi ekki nýtt sér sérregluna samkvæmt yfirlýsingu aðildarríkisins, sem kveðið er á um í 9. gr. þessa samnings, gildir 15. gr. Evrópusamningsins um framsal sakamanna ekki um endurframsal hans til annars aðildarríkis nema kveðið sé á um annað í fyrrnefndri yfirlýsingu.
14. gr.
Gegnumflutningur
Þegar um er að ræða gegnumflutning samkvæmt skilyrðunum sem mælt er fyrir um í 21. gr. Evrópusamningsins um framsal sakamanna, og um er að ræða framsal samkvæmt einfaldaðri málsmeðferð, gilda eftirfarandi ákvæði:
a) í neyðartilviki má senda aðildarríkinu, sem farið er í gegnum, skriflega beiðni í hvaða formi sem er ásamt upplýsingunum sem kveðið er á um í 4. gr. Ríkið, sem farið er í gegnum, getur tilkynnt ákvörðun sína með sama hætti,
b) upplýsingarnar, sem kveðið er á um í 4. gr., skulu vera nægar til að lögbært yfirvald ríkisins, sem farið er í gegnum, geti gengið úr skugga um að um sé að ræða framsal samkvæmt einfaldaðri málsmeðferð og gert þær takmarkandi ráðstafanir gagnvart þeim sem framseldur er sem þarf til að gegnumflutningurinn geti átt sér stað.
15. gr.
Ákvörðun um lögbær yfirvöld
Þegar skjal um fullgildingu, staðfestingu, samþykki eða aðild er afhent til vörslu skal hvert aðildarríki tilgreina í yfirlýsingu hvaða yfirvöld eru lögbær í skilningi 4.–8. , 10. og 14. gr.
16. gr.
Gildistaka
1. Samningur þessi er með fyrirvara um fullgildingu, staðfestingu eða samþykki. Skjöl um fullgildingu, staðfestingu eða samþykki skulu afhent aðalskrifstofu ráðs Evrópusambandsins til vörslu. Framkvæmdastjóri ráðsins tilkynnir öllum aðildarríkjunum um slíka afhendingu.
2. Samningur þessi öðlast gildi 90 dögum eftir að það aðildarríki, sem síðast verður til að uppfylla þessa formkröfu, hefur afhent skjal sitt um fullgildingu, staðfestingu eða samþykki til vörslu.
3. Þangað til samningurinn öðlast gildi getur aðildarríki, þegar það afhendir skjal sitt um fullgildingu, staðfestingu eða samþykki til vörslu eða hvenær sem er, lýst því yfir að þessi samningur gildi, að því er það varðar, í samskiptum við aðildarríki sem hafa gefið sams konar yfirlýsingu, 90 dögum eftir að það afhendir yfirlýsinguna til vörslu.
4. Yfirlýsing, gerð skv. 9. gr., öðlast gildi 30 dögum eftir að hún er afhent til vörslu, þó eigi fyrr en þann dag sem samningur þessi öðlast gildi eða honum er beittí viðkomandi aðildarríki.
5. Samningur þessi gildir einungis um beiðnir sem lagðar eru fram eftir þann dag sem hann öðlast gildi eða honum er beitt í samskiptum ríkisins, sem beiðni er beint til og ríkisins, sem leggur fram beiðni.
17. gr.
Aðild
1. Öllum ríkjum, sem gerast aðilar að Evrópusambandinu, er heimilt að gerast aðilar að samningi þessum.
2. Aðalskrifstofa ráðs Evrópusambandsins gerir texta samnings þessa á tungumáli ríkisins sem fær aðild að samningnum og er hann samþykktur af öllum aðildarríkjunum og jafngildur öðrum gildum textum. Aðalframkvæmdastjórinn lætur hverju aðildarríki um sig í té staðfest endurrit.
3. Aðildarskjöl skulu afhent aðalskrifstofu ráðs Evrópusambandsins til vörslu.
4. Samningur þessi öðlast gildi, fyrir hvert ríki sem fær aðild að honum, 90 dögum eftir að það hefur afhent aðildarskjöl sín til vörslu eða þann dag sem samningur þessi öðlast gildi ef hann hefur ekki þegar öðlast gildi að áðurnefndum 90 dögum liðnum.
5. Ef samningur þessi hefur ekki enn öðlast gildi þegar þau aðildarríki, sem fá aðild að samningnum, afhenda aðildarskjöl sín til vörslu gildir 3. mgr. 16. gr. um þau ríki.
En fe de lo cual los plenipotenciarios abajo firmantes suscriben el presente Convenio.
Til bekræftelse heraf har undertegnede befuldmægtigede underskrevet denne konvention.
Zu Urkund dessen haben die unterzeichneten Bevollmächtigten ihre Unterschriften unter dieses Übereinkommen gesetzt.
.. ....... ... ......., .. ............ ............ ...... ... ........ .... .... ... ... ....... ..µ.....
In witness whereof, the undersigned Plenipotentiaries have hereunto set their hands.
En foi de quoi, les plénipotentiaires soussignés ont apposé leurs signatures au bas de la présente convention.
Dá fhianú sin, chuir na Lánchumhachtaigh thíos-sínithe a lámh leis an gCoinbhinsiún seo.
In fede di che, i plenipotenziari sottoscritti hanno apposto le loro firme in calce alla presente convenzione.
Ten blijke waarvan de ondergetekende gevolmachtigden hun handtekening onder deze Overeenkomst hebben gesteld.
Em fé do que, os plenipotenciários abaixo-assinados apuseram as suas assinaturas no final da presente convenção.
Tämän vakuudeksi alla mainitut täysivaltaiset edustajat ovat allekirjoittaneet tämän yleissopimuksen.
Till bekräftelse haerav har undertecknade befullmäktigade ombud undertecknat denna konvention.
Hecho en Bruselas, el diez de marzo de mil novecientos noventa y cinco, en un ejemplar único, en lenguas alemana, inglesa, danesa, española, finlandesa, francesa, griega, irlandesa, italiana, neerlandesa, portuguesa y sueca, cuyos textos son igualmente auténticos y que será depositado en los archivos de la Secretaría General del Consejo de la Unión Europea. El Secretario General remitirá a cada Estado miembro una copia autenticada de dicho texto.
Udfærdiget i Bruxelles, den tiende marts nitten hundrede og femoghalvfems, i ét eksemplar på dansk, engelsk, finsk, fransk, græsk, irsk, italiensk, nederlandsk, portugisisk, spansk, svensk og tysk, hvilke tekster alle har samme gyldighed, og er deponeret i arkiverne i Generalsekretariatet for Rådet for Den Europæiske Union. Generalsekretæren fremsender en bekræftet genpart til hver medlemsstat.
Geschehen zu Brüssel am zehnten März neunzehnhundertfünfundneunzig in einer Urschrift in dänischer, deutscher, englischer, finnischer, französischer, griechischer, irischer, italienischer, niederländischer, portugiesischer, schwedischer und spanischer Sprache, wobei jeder Wortlaut gleichermaßen verbindlich ist; die Urschrift wird im Archiv des Generalsekretariats des Rates der Europäischen Union hinterlegt. Der Generalsekretär uebermittelt jedem Mitgliedstaat eine beglaubigte Abschrift dieser Urschrift.
..... .... ........., .... .... ....... ..... .......... ........ ....., .. ... µ.... ........, .... ......., ......., ...µ....., ......, ........, ........., ........, ......., ........., ..........., ........ ... .......... ......, ... .. .. ..µ... ..... ...... ......... ... ............ ... ...... ... ....... ...µµ...... ... ..µ....... ... .......... ....... . ....... ...µµ..... .......... .......µ... ......... .. .... ..... µ.....
Done at Brussels this tenth day of March in the year one thousand nine hundred and ninety-five in a single original, in the Danish, Dutch, English, Finnish, French, German, Greek, Irish, Italian, Portuguese, Spanish and Swedish languages, each text being equally authentic, such original remaining deposited in the archives of the General Secretariat of the Council of the European Union, which shall transmit a certified copy to each of the Member States.
Fait à Bruxelles, le dix mars mil neuf cent quatre-vingt-quinze, en un exemplaire unique, en langues allemande, anglaise, danoise, espagnole, finnoise, française, grecque, irlandaise, italienne, néerlandaise, portugaise et suédoise, tous ces textes faisant également foi, exemplaire qui est déposé dans les archives du Secrétariat général du Conseil de l'Union européenne. Le Secrétaire général en transmet une copie certifiée conforme à chaque État membre.
Arna dhéanamh sa Bhruiséil, an deichiú lá de Mhárta míle naoi gcéad nócha a cúig, i scríbhinn bhunaidh amháin sa Bhéarla, sa Danmhairgis, san Fhionlainnis, sa Fhraincis, sa Ghaeilge, sa Ghearmáinis, sa Ghréigis, san Iodáilis, san Ollainnis, sa Phortaingéilis, sa Spáinnis agus sa tSualainnis agus comhúdarás ag na téacsanna i ngach ceann de na teangacha sin; déanfar an scríbhinn bhunaidh sin a thaisceadh i gcartlann Ardrúnaíocht Chomhairle an Aontais Eorpaigh. Cuirfidh an tArdrúnaí cóip dhílis dheimhnithe chuig gach Ballstát.
Fatto a Bruxelles, il dieci marzo millenovecentonovantacinque, in un unico esemplare in lingua danese, finlandese, francese, greca, inglese, irlandese, italiana, olandese, portoghese, spagnola, svedese e tedesca, i testi di ciascuna di queste lingue facenti ugualmente fede, esemplare depositato negli archivi del Segretariato generale dell'Unione europea, che ne trasmette copia certificata conforme a ciascuno Stato membro.
Gedaan te Brussel, de tiende maart negentienhonderdvijfennegentig, in één exemplaar, in de Deense, de Duitse, de Engelse, de Finse, de Franse, de Griekse, de Ierse, de Italiaanse, de Nederlandse, de Portugese, de Spaanse en de Zweedse taal, zijnde alle teksten gelijkelijk authentiek, dat wordt neergelegd in het archief van het Secretariaat-Generaal van de Raad van de Europese Unie. De Secretaris- Generaal zendt een voor eensluidend gewaarmerkt afschrift daarvan toe aan elke Lid-Staat.
Feito em Bruxelas, em dez de Março de mil novecentos e noventa e cinco, em exemplar único, nas línguas alemã, dinamarquesa, espanhola, finlandesa, francesa, grega, inglesa, irlandesa, italiana, neerlandesa, portuguesa e sueca, fazendo igualmente fé todos os textos, depositado nos arquivos do Secretariado-Geral do Conselho da União Europeia. O Secretário-Geral remeterá uma cópia autenticada a cada Estado-membro.
Tehty Brysselissä kymmenentenä päivänä maaliskuuta vuonna tuhatyhdeksänsataayhdeksän-kymmentäviisi yhtenä ainoana kappaleena englannin, espanjan, hollannin, iirin, italian, kreikan, portugalin, ranskan, ruotsin, saksan, suomen ja tanskan kielellä kaikkien näiden tekstien ollessa yhtä todistusvoimaiset, ja se talletetaan Euroopan unionin neuvoston pääsihteeristön arkistoon. Pääsihteeristö toimittaa oikeaksi todistetun jäljennöksen siitä kaikille jäsenvaltioille.
Utfärdad i Bryssel den tionde mars år nittonhundranittiofem i ett enda exemplar, på danska, engelska, finska, franska, grekiska, irländska, italienska, nederländska, portugisiska, spanska, svenska och tyska, varvid alla texter är lika giltiga, och deponerad i arkiven vid generalsekretariatet för Europeiska unionens råd. Generalsekreteraren skall vidarebefordra en bestyrkt kopia till varje medlemsstat.
Pour le gouvernement du royaume de Belgique
Voor de Regering van het Koninkrijk België
Für die Regierung des Königreichs Belgien
For regeringen for Kongeriget Danmark
Für die Regierung der Bundesrepublik Deutschland
... ... ......... ... ......... ..µ........
Por el Gobierno del Reino de España
Pour le gouvernement de la République française
Thar ceann Rialtas na hÉireann
For the Government of Ireland
Per il governo della Repubblica italiana
Pour le gouvernement du grand-duché de Luxembourg
Voor de Regering van het Koninkrijk der Nederlanden
Für die Regierung der Republik Österreich
Pelo Governo da República Portuguesa
Suomen hallituksen puolesta
På svenska regeringens vägnar
For the Government of the United Kingdom of Great Britain and Northern Ireland
Fylgiskjal V.
SAMNINGUR
um framsal milli aðildarríkja Evrópusambandsins gerður á grundvelli greinar K.3 í sáttmálanum um Evrópusambandið
HINIR HÁU SAMNINGSAÐILAR samnings þessa, aðildarríki Evrópusambandsins,
VÍSA TIL gerðar ráðs Evrópusambandsins frá 27. september 1996,
HAFA HUG Á að bæta dómsmálasamstarf í sakamálum milli aðildarríkjanna, bæði að því er snertir lögsókn og fullnustu dóma,
VIÐURKENNA mikilvægi framsals í dómsmálasamstarfi til að ná þessum markmiðum,
LEGGJA ÁHERSLU Á að það er aðildarríkjunum í hag að tryggja að málsmeðferð við framsal sé skilvirk og gangi hratt fyrir sig að því marki sem stjórnskipun þeirra byggist á meginreglum um lýðræði og aðildarríkin uppfylli þær skyldur sem mælt er fyrir um í samningnum um verndun mannréttinda og mannfrelsis sem var undirritaður í Róm 4. nóvember 1950,
LÁTA Í LJÓS trú sína á skipulagi og starfsemi réttarkerfa sinna og getu allra aðildarríkjanna til að tryggja sanngjörn réttarhöld,
HAFA Í HUGA að með gerð frá 10. mars 1995 gerði ráðið samning um einfaldaða málsmeðferð við framsal milli aðildarríkja Evrópusambandsins.
TAKA TILLIT TIL ÞESS að það er aðildarríkjum Evrópusambandsins í hag að gera með sér samning er komi til viðbótar Evrópusamningnum um framsal sakamanna frá 13. desember 1957 og öðrum gildandi samningum á þessu sviði,
LÍTA SVO Á að ákvæði þessara samninga gildi áfram á öllum þeim sviðum sem ekki er fjallað um í samningi þessum og
HAFA ORÐIÐ ÁSÁTTIR UM EFTIRFARANDI:
1. gr.
Almenn ákvæði
1. Markmiðið með þessum samningi er að bæta við eftirfarandi ákvæði og auðvelda beitingu þeirra í aðildarríkjum Evrópusambandsins:
— ákvæði Evrópusamnings um framsal sakamanna frá 13..desember 1957 (hér á eftir nefndur „Evrópusamningur um framsal sakamanna“)
— ákvæði Evrópusamnings um varnir gegn hryðjuverkum frá 27..janúar 1977 (hér á eftir nefndur „Evrópusamningur um varnir gegn hryðjuverkum“),
— ákvæði samningsins frá 19. júní 1990 um framkvæmd Schengen-samkomulagsins frá 14. júní 1985 um afnám í áföngum á eftirliti á sameiginlegum landamærum í samskiptum þeirra aðildarríkja sem eru aðilar að þeim samningi, og
— ákvæði fyrsta kafla sáttmálans um framsal og gagnkvæma aðstoð í sakamálum milli Konungsríkisins Belgíu, Stórhertogadæmisins Lúxemborgar og Konungsríkisins Hollands frá 27. júní 1962, eins og honum var breytt með bókun frá 11. maí 1974 (hér á eftir nefndur „Benelúx-sáttmálinn“) í samskiptum aðildarríkja Benelúx-efnahagssambandsins.
2. Ákvæði 1. mgr. hafa hvorki áhrif á beitingu hagstæðari ákvæða tvíhliða eða marghliða samninga milli aðildarríkja né heldur, eins og kveðið er á um í 3. mgr. 28. gr. Evrópusamningsins um framsal sakamanna, samkomulag um framsal á grundvelli samræmdra eða gagnkvæmra laga um fullnustu handtökuheimilda, sem gefnar eru út á yfirráðasvæði eins aðildarríkis, á yfirráðasvæði annars aðildarríkis.
2. gr.
Brot sem varðað geta framsali
1. Heimila skal framsal þegar um er að ræða brot sem að lögum aðildarríkisins, sem leggur fram beiðni, varða frjálsræðissviptingu eða öryggisráðstöfun í a.m.k. tólf mánuði og að lögum aðildarríkisins, sem beiðni er beint til, frjálsræðissviptingu eða öryggisráðstöfun í a.m.k. sex mánuði.
2. Óheimilt er að synja um framsal á þeim forsendum að lög aðildarríkisins, sem beiðni er beint til, kveði ekki á um samskonar öryggisráðstöfun og lög aðildarríkisins sem leggur fram beiðni.
3. Ákvæði 2. mgr. 2. gr. Evrópusamningsins um framsal sakamanna og ákvæði 2. mgr. 2. gr. Benelúx-sáttmálans gilda einnig um tiltekin brot sem varða fésektum.
3. gr.
Samsæri og samantekin ráð um að fremja brot
1. Ef brotið, sem er ástæðan fyrir framsalsbeiðninni, samkvæmt lögum aðildarríkisins sem leggur fram beiðni, er flokkað sem samsæri eða samantekin ráð um að fremja brot og varðar a.m.k. tólf mánaða frjálsræðissviptingu eða öryggisráðstöfun, skal ekki synjað um framsal á grundvelli þess að samkvæmt lögum aðildarríkisins, sem beiðni er beint til, teljist sami verknaður ekki brot, ef tilgangurinn með samsærinu eða samanteknu ráðunum er að fremja:
a) eitt eða fleiri af þeim brotum sem um getur í 1. og 2..gr. Evrópusamningsins um varnir gegn hryðjuverkum;
eða
b) hvert það brot annað, sem varðar frjálsræðissviptingu eða öryggisráðstöfun í a.m.k. tólf mánuði sem tengist ólöglegum viðskiptum með fíkniefni svo og aðra skipulagða brotastarfsemi eða önnur ofbeldisverk sem beinast gegn lífi, limum eða frelsi manna eða stofna fjölda fólks í hættu.
2. Í því skyni að ákvarða hvort samsærið eða samanteknu ráðin snúist um að fremja eitt af brotunum sem tilgreind eru í a- eða b-lið 1. mgr. þessarar greinar skal aðildarríkið, sem beiðni er beint til, taka tillit til upplýsinganna sem fram koma í handtökuskipun eða annarri skipun sem hefur sama lagagildi eða í dómsúrskurði yfir einstaklingnum sem farið er fram á að sé framseldur, sem og í greinargerð um brot, sem tilgreind voru í b-lið 2. mgr. 12. gr. Evrópusamningsins um framsal sakamanna eða í b-lið 2. mgr. 11. gr. Benelúx-sáttmálans.
3. Hvert aðildarríki getur, þegar það sendir tilkynninguna sem um getur í 2. mgr. 18. gr., lýst því yfir að það áskilji sér rétt til að beita ekki 1. mgr. eða að beita henni með ákveðnum skilyrðum.
4. Hvert aðildarríki, sem gert hefur fyrirvara skv. 3. mgr. skal, skv. 1. mgr. 2. gr., láta varða framsali hegðun sérhvers einstaklings sem leggur sitt af mörkum til verknaðar hóps manna, sem fremja sameiginlega eitt eða fleiri brot á sviði hryðjuverka, eins og um getur í 1. og 2..gr. Evrópusamningsins um varnir gegn hryðjuverkum, ólöglegra viðskipta með fíkniefni og annarrar skipulagðrar brotastarfsemi eða annarra ofbeldisverka sem beinast gegn lífi, limum eða frelsi manna eða sem stofna fjölda fólks í hættu, sem varða frjálsræðissviptingu eða öryggisráðstöfun í a.m.k. tólf mánuði, jafnvel þótt viðkomandi taki ekki þátt í sjálfri framkvæmd brotsins eða brotanna sem um ræðir; viðkomandi skal hafa lagt sitt af mörkum af ásettu ráði og með vitneskju um annað hvort markmið og almenna brotastarfsemi hópsins eða um ásetning hópsins að fremja umrætt eða umrædd brot.
4. gr.
Ákvörðun um frjálsræðissviptingu, sem kemur til fullnustu annars staðar en í fangelsisstofnun
Eigi skal synja um framsal vegna lögsóknar á grundvelli þess að beiðnin sé, í samræmi við a-lið 2. mgr. 12. gr. Evrópusamningsins um framsal sakamanna eða a-lið 2. mgr. 11. gr. Benelúx-sáttmálans, studd ákvörðun dómsmálayfirvalda aðildarríkisins, sem leggur fram beiðni, um frjálsræðissviptingu sem kæmi til fullnustu annars staðar en í fangelsisstofnun.
5. gr.
Stjórnmálaafbrot
1. Við beitingu þessa samnings má aðildarríkið, sem beiðni er beint til, ekki líta á neitt brot sem stjórnmálabrot, brot tengt stjórnmálabroti eða brot sem sprottið er af stjórnmálaástæðum.
2. Hvert aðildarríki getur, þegar það sendir tilkynninguna sem um getur í 2. mgr. 18. gr., lýst því yfir að það muni aðeins beita 1. mgr. í tengslum við:
a) brotin sem um getur í 1. og 2..gr. Evrópusamningsins um varnir gegn hryðjuverkum;
og
b) brotum sem felast í samsæri eða samanteknum ráðum, sem svara til þeirrar hegðunar sem lýst er í 4..mgr. 3. gr., í þeim tilgangi að fremja eitt eða fleiri af brotunum sem um getur í 1. og 2. gr. Evrópusamningsins um varnir gegn hryðjuverkum.
3. Ákvæði 2. mgr. 3. gr. Evrópusamningsins um framsal sakamanna og 5. gr. Evrópusamningsins um varnir gegn hryðjuverkum haldast óbreytt.
4. Fyrirvarar, sem gerðir eru skv. 13. gr. Evrópusamningsins um varnir gegn hryðjuverkum, gilda ekki um framsal milli aðildarríkja.
6. gr.
Brot er varða skatta
1. Að því er varðar skatta og gjöld, tolla og gjaldeyrisviðskipti skal einnig samþykkja framsal samkvæmt þessum samningi, Evrópusamningnum um framsal sakamanna og Benelúx- sáttmálanum þegar um er að ræða brot sem svarar til svipaðs brots samkvæmt lögum aðildarríkisins sem beiðni er beint til.
2. Óheimilt er að synja um framsal á þeim forsendum að í lögum aðildarríkisins, sem beiðni er beint til, sé ekki kveðið á um samskonar skatta eða gjöld eða að í þeim séu ekki sams konar ákvæði varðandi skatta, gjöld, tolla og gjaldeyrisviðskipti og í lögum aðildarríkisins sem leggur fram beiðni.
3. Hvert aðildarríki getur, þegar það sendir tilkynninguna sem um getur í 2. mgr. 18. gr., lýst því yfir að það muni einungis verða við framsalsbeiðni þegar um er að ræða brot er varða skatta ef um er að ræða verknað eða vanrækslu sem teljast til brota sem tengjast vörugjaldi, virðisaukaskatti eða tollum.
7. gr.
Framsal á eigin ríkisborgurum
1. Óheimilt er að synja um framsal á þeim grundvelli að viðkomandi sé ríkisborgari aðildarríkisins, sem beiðni er beint til, í skilningi 6. gr. Evrópusamningsins um framsal sakamanna.
2. Hvert aðildarríki getur, þegar það sendir tilkynninguna sem um getur í 2. mgr. 18. gr., lýst því yfir að það muni ekki verða við beiðni um framsal ríkisborgara sinna eða einungis með ákveðnum, tilteknum skilyrðum.
3. Fyrirvararnir, sem um getur í 2. mgr., gilda í fimm ár frá fyrsta degi beitingar þessa samnings í hlutaðeigandi aðildarríki. Þó má endurnýja slíka fyrirvara til fimm ára í senn.
Tólf mánuðum áður en fyrirvararnir falla úr gildi skal vörsluaðili senda hlutaðeigandi aðildarríki tilkynningu þar að lútandi.
Eigi síðar en þremur mánuðum áður en fimm ára tímabilið rennur út skal aðildarríkið tilkynna vörsluaðila hvort það ætlar að halda fyrirvörum sínum, breyta þeim til að einfalda skilyrði fyrir framsali eða draga þá til baka.
Sé tilkynningin, sem um getur í undirgreininni hér á undan, ekki send skal vörsluaðili tilkynna hlutaðeigandi aðildarríki að fyrirvarar þess teljist hafa verið framlengdir sjálfvirkt til sex mánaða en aðildarríkið sendi tilkynningu fyrir lok þess tímabils. Hafi tilkynning ekki borist áður en það tímabil rennur út, fellur fyrirvarinn úr gildi.
8. gr.
Fyrning
1. Óheimilt er að synja um framsal á þeim forsendum að brot eða fullnusta refsingar viðkomandi manns sé fyrnd samkvæmt lögum aðildarríkisins sem beiðni er beint til.
2. Aðildarríkið, sem beiðni er beint til, skal eiga kost á að beita ekki 1. mgr. ef framsalsbeiðni byggist á brotum sem heyra undir lögsögu þess aðildarríkis samkvæmt hegningarlögum þess.
9. gr.
Sakaruppgjöf
Ekki skal verða við framsalsbeiðni vegna brots sem veitt er sakaruppgjöf fyrir í aðildarríkinu sem beiðni er beint til og það ríki var til þess bært að lögsækja fyrir brotið samkvæmt eigin hegningarlögum.
10. gr.
Önnur brot en þau sem framsalsbeiðni byggist á
1. Fyrir önnur brot en þau sem framsalsbeiðni byggist á, sem framin voru áður en hinn framseldi var afhentur, þarf ekki að fá samþykki aðildarríkisins, sem beiðni er beint til, til að:
a) lögsækja hann eða kveða upp dóm yfir honum ef brotin varða ekki frjálsræðissviptingu;
b) ákæra hann eða dæma ef meðferð sakamáls gefur ekki tilefni til að beita ráðstöfunum til að takmarka persónufrelsi hans;
c) gera honum að sæta viðurlögum eða ráðstöfun sem ekki felur í sér frjálsræðissviptingu, þ.m.t. fésektir/-víti (?), eða ráðstafanir í stað þeirra, jafnvel þótt þær kunni að takmarka persónulegt frelsi hans;
d) ákæra hann, dæma eða hafa í haldi með það fyrir augum að fullnusta dóm eða öryggisráðstöfun eða láta hann sæta annarri takmörkun á persónufrelsi sínu ef hann hefur, eftir að hafa verið afhentur, skýlaust fallið frá því að nýta sérregluna að því er varðar tiltekin brot sem hann framdi áður en hann var afhentur.
2. Þegar hinn framseldi fellur frá því að nýta sérregluna, sem um getur í d-lið 1. mgr., skal hann lýsa því yfir frammi fyrir lögbærum dómsmálayfirvöldum aðildarríkisins, sem leggur fram beiðni, og skal yfirlýsingin bókuð í samræmi við landslög þess aðildarríkis.
3. Hvert aðildarríki skal sjá til þess að þegar sá sem í hlut á fellur frá því að nýta sérregluna, sem um getur í d-lið 1. mgr., séu aðstæður augljóslega þannig að ljóst sé að hann hafi gert það af fúsum og frjálsum vilja og verið kunnugt um afleiðingarnar. Hinn framseldi skal, í því skyni, eiga rétt á að fá lögfræðiaðstoð.
4. Þegar aðildarríkið, sem beiðni er beint til, hefur gefið út yfirlýsingu skv. 3. mgr. 6. gr. gilda a-, b- og c-liður 1..mgr. þessarar greinar ekki um brot er varða skatta önnur en þau sem um getur í 3. mgr. 6. gr.
11. gr.
Gert ráð fyrir samþykki aðildarríkisins sem beiðni er beint til
Hvert aðildarríki getur, þegar það sendir tilkynninguna sem um getur í 2. mgr. 18. gr. eða hvenær sem er, lýst því yfir að í samskiptum við önnur aðildarríki, sem hafa gefið út sömu yfirlýsingu, sé gert ráð fyrir því að gefið hafi verið samþykki skv. a-lið 1. mgr. 14..gr. Evrópusamningsins um framsal sakamanna og a-lið 1. mgr. 13. gr. Benelúx-sáttmálans, nema annað sé tekið fram þegar orðið er við framsalsbeiðni í tilteknu tilviki.
Hafi aðildarríki í tilteknu tilviki tilkynnt að ekki megi gera ráð fyrir samþykki þess gildir 1. mgr. 10. gr. engu að síður.
12. gr.
Endurframsal til annars aðildarríkis
1. Ákvæði 15. gr. Evrópusamningsins um framsal sakamanna og ákvæði 1. mgr. 14. gr. Benelúx-sáttmálans gilda ekki um beiðnir um endurframsal frá einu aðildarríki til annars.
2. Hvert aðildarríki getur, þegar það sendir tilkynninguna sem um getur í 2. mgr. 18. gr., lýst því yfir að 15. gr. Evrópusamningsins um framsal sakamanna og 1..mgr. 14. gr. Benelúx- sáttmálans gildi áfram, nema kveðið sé á um annað í 13. gr. samningsins um einfaldaða málsmeðferð við framsal milli aðildarríkja Evrópusambandsins.( 1 ) eða sá sem í hlut á, samþykki að vera endurframseldur til annars aðildarríkis.
13. gr.
Miðlægt yfirvald og sending skjala um bréfasíma
1. Hvert aðildarríki skal tilnefna miðlægt yfirvald eða, ef stjórnskipun þess krefst þess, miðlæg yfirvöld sem bera ábyrgð á að senda og taka við framsalsbeiðnum og nauðsynlegum fylgiskjölum, sem og öðrum opinberum bréfaskiptum í tengslum við framsalsbeiðnir, nema kveðið sé á um annað í þessum samningi.
2. Hvert aðildarríki skal tilgreina, þegar það sendir tilkynninguna sem um getur í 2. mgr. 18. gr., hvaða stjórnvald eða stjórnvöld það hefur útnefnt skv. 1. mgr. þessarar greinar. Verði breyting á útnefningu skal hún tilkynnt vörsluaðila .
3. Heimilt er að senda framsalsbeiðnina og skjölin, sem um getur í 1. mgr., um bréfasíma. Sérhvert miðlægt yfirvald skal hafa yfir að ráða bréfasíma til að senda og taka við slíkum skjölum og skal tryggja að hann sé ætíð í nothæfu ástandi.
4. Til að tryggja að skjölin, sem send eru, séu ósvikin og til að uppfylla trúnaðarkvaðir skal dulmálsbúnaður, sem tengdur er við bréfasíma miðlæga yfirvaldsins, vera í gangi þegar tækið er notað við beitingu þessarar greinar.
Aðildarríkin skulu hafa samráð sín á milli um tilhögun við beitingu þessarar greinar.
5. Til að tryggja að framsalsskjölin séu ósvikin skal miðlægt yfirvald aðildarríkisins, sem leggur fram beiðni, staðfesta í beiðninni að fylgiskjölin, sem send eru með þeirri beiðni, svari til frumritanna og tiltaka blaðsíðunúmer. Ef aðildarríkið, sem beiðni er beint til, dregur í efa að skjölin svari til frumritanna, á miðlægt yfirvald þess rétt á að krefjast þess að miðlægt yfirvald aðildarríkisins, sem leggur fram beiðni, leggi fram frumritin eða staðfest afrit af þeim innan hæfilegs frests, annaðhvort eftir diplómatískum leiðum eða eftir öðrum leiðum sem báðir aðilar hafa samþykkt.
14. gr.
Viðbótarupplýsingar
Hvert aðildarríki getur, þegar það sendir tilkynninguna sem um getur í 2. mgr. 18. gr., eða hvenær sem er, lýst því yfir að í samskiptum við önnur aðildarríki, sem gefið hafa út sömu yfirlýsingu, sé dómsmálayfirvöldum eða öðrum lögbærum yfirvöldum þessara aðildarríkja er heimilt, þegar við á, að snúa sér beint til dómsmálayfirvalda eða annarra lögbærra yfirvalda, sem bera ábyrgð á meðferð sakamáls á hendur þeim sem óskast framseldur, með beiðni um viðbótarupplýsingar í samræmi við 13. gr. Evrópusamningsins um framsal sakamanna eða 12. gr. Benelúx-sáttmálans.
Þegar slík yfirlýsing er gefin skal aðildarríkið tilgreina dómsmálayfirvöld eða önnur lögbær yfirvöld sem hafa heimild til að senda og taka við slíkum viðbótarupplýsingum.
15. gr.
Staðfesting um að skjöl séu ósvikin
Skjöl eða afrit skjala, sem send eru vegna framsals, skulu undanþegin staðfestingu um að þau séu ósvikin eða öðrum formsatriðum nema þess sé sérstaklega krafist í ákvæðum þessa samnings, Evrópusamningsins um framsal sakamanna eða Benelúx-sáttmálans. Í síðara tilvikinu skulu afrit af skjölum talin staðfest þegar dómsmálayfirvöldin, sem gáfu út frumritið, eða miðlæga yfirvaldið, sem um getur í 13. gr., hefur vottað að um sé að ræða staðfest afrit.
16. gr.
Gegnumferð
Þegar um er að ræða gegnumferð, samkvæmt skilyrðunum sem mælt er fyrir um í 21. gr. Evrópusamningsins um framsal sakamanna og 21. gr. Benelúx-sáttmálans, um yfirráðasvæði eins aðildarríkis á leið til annars aðildarríkis gilda eftirfarandi ákvæði:
a) í hverri beiðni um gegnumferð skulu vera fullnægjandi upplýsingar til að aðildarríkið, sem farið er um, geti metið beiðnina og beitt þeim takmarkandi ráðstöfunum gagnvart hinum framselda sem nauðsynlegar eru fyrir gegnumferðina.
Í þeim tilgangi teljast eftirfarandi upplýsingar fullnægjandi:
— hver hinn framseldi er,
— að fyrirliggjandi sé handtökuskipun, eða annað skjal sem hefur sama lagagildi, eða aðfararhæfur dómur,
— lýsing á því í hverju brotið felst og hvers konar lögbrot er um að ræða,
— lýsing á því við hvaða aðstæður brotið var framið, þar með talið hvenær og hvar það var framið;
b) senda má aðildarríkinu, sem farið er um, skriflega beiðni í hvaða formi sem er um gegnumferð og upplýsingarnar, sem kveðið er á um í a-lið. Aðildarríkið, sem farið er um, skal tilkynna ákvörðun sína með sama hætti.
c) þegar um er að ræða flutninga í lofti án áætlaðrar millilendingar, en þó er lent, skal aðildarríkið, sem leggur fram beiðni, veita aðildarríkinu, sem farið er um, upplýsingarnar sem kveðið er á um í a-lið;
d) Ákvæði 1., 2., 5. og 6. mgr. 21. gr. Evrópusamningsins um framsal sakamanna og 1. mgr. 21. gr. Benelúx-sáttmálans skulu gilda áfram með fyrirvara um ákvæði þessa samnings, einkum 3., 5. og 7..gr.
17. gr.
Fyrirvarar
Ekki er unnt að gera aðra fyrirvara við samning þennan en þá sem skýrt er kveðið á um í honum.
18. gr.
Gildistaka
1. Samningur þessi er háður samþykki aðildarríkjanna í samræmi við stjórnskipuleg skilyrði þeirra hvers um sig.
2. Aðildarríkin skulu tilkynna það til aðalframkvæmdastjóra ráðs Evrópusambandsins þegar stjórnskipuleg skilyrði þeirra fyrir samþykkt samnings þessa hafa verið uppfyllt.
3. Samningur þessi öðlast gildi 90 dögum eftir að það aðildarríki af þeim ríkjum sem eru í Sambandinu þegar ráð Sambandsins samþykkir gerðina um að koma samningi þessum á verður síðast til þess að uppfylla formkröfuna um að senda tilkynninguna, sem um getur í 2. mgr.
4. Þar til samningur þessi öðlast gildi getur hvert aðildarríki, þegar það birtir tilkynninguna sem um getur í 2. mgr. eða hvenær sem er eftir það, lýst því yfir að þessi samningur muni gilda, af þess hálfu, í samskiptum við aðildarríki sem hafa birt sams konar yfirlýsingu. Slíkar yfirlýsingar skulu koma til framkvæmda 90 dögum eftir að þær eru afhentar til vörslu.
5. Samningur þessi gildir einungis um beiðnir sem lagðar eru fram eftir þann dag sem hann öðlast gildi eða er beitt í samskiptum aðildarríkisins, sem beiðni er beint til, og aðildarríkisins sem leggur fram beiðnina.
19. gr.
Aðild nýrra ríkja
1. Hverju ríki, sem gerist aðili að Evrópusambandinu, er heimilt að gerast aðili að samningi þessum.
2. Ráð Evrópusambandsins gerir texta samnings þessa á tungumáli ríkisins sem fær aðild að samningnum og er hann jafngildur öðrum textum.
3. Aðildarskjölin skulu afhent vörsluaðila.
4. Samningur þessi öðlast gildi, að því er varðar hvert ríki sem fær aðild að honum, 90 dögum eftir að það hefur afhent aðildarskjöl sín til vörslu eða þann dag sem samningur þessi öðlast gildi ef hann hefur ekki þegar öðlast gildi að 90 dögum liðnum.
5. Ef samningur þessi hefur ekki enn öðlast gildi þegar þau aðildarríki, sem fá aðild að samningnum, afhenda aðildarskjöl sín til vörslu gildir 4. mgr. 18. gr. um þau ríki.
20. gr.
Vörsluaðili
1. Aðalframkvæmdastjóri ráðs Evrópusambandsins skal vera vörsluaðili samnings þessa
2. Vörsluaðilinn skal birta upplýsingar um framgang samþykkta og aðildar, yfirlýsingar og fyrirvara og allar aðrar tilkynningar sem varða samning þennan í Stjórnartíðindum Evrópubandalaganna.
Þessu til staðfestu hafa undirritaðir fulltrúar, sem til þess hafa fullt umboð, undirritað samning þennan.
Gjört í einu frumriti á dönsku, ensku, finnsku, frönsku, grísku, hollensku, írsku, ítölsku, portúgölsku, spænsku, sænsku og þýsku og eru allir textarnir jafngildir en frumritið verður afhent til vörslu í skjalasafni aðalskrifstofu ráðs Evrópusambandsins. Aðalframkvæmdastjórinn lætur hverju aðildarríki um sig í té staðfest afrit.
Pour le gouvernement du Royaume de Belgique
Voor de Regering van het Koninkrijk België
Für die Regierung des Königreichs Belgien
For regeringen for Kongeriget Danmark
Für die Regierung der Bundesrepublik Deutschland
... ... ......... ... ......... ..µ........
Por el Gobierno del Reino de España
Pour le gouvernement de la République française
Thar ceann Rialtas na hÉireann
For the Government of Ireland
Per il Governo della Repubblica italiana
Pour le gouvernement du Grand-Duché de Luxembourg
Voor de Regering van het Koninkrijk der Nederlanden
Für die Regierung der Republik Österreich
Pelo Governo da República Portuguesa
Suomen hallituksen puolesta
På finska regeringens vägn
På svenska regeringens vägnar
For the Government of the United Kingdom of Great Britain and Northern Ireland
VIÐAUKI
Sameiginleg yfirlýsing um rétt til hælis
Aðildarríkin lýsa því yfir að samningur þessi hefur hvorki áhrif á rétt til hælis, að því marki sem hann er viðurkenndur í stjórnarskrám viðkomandi ríkja, né á beitingu aðildarríkjanna á ákvæði samningsins um réttarstöðu flóttamanna frá 28. júlí 1951, eins og við hann var bætt með samningnum um réttarstöðu ríkisfangslausra manna frá 28. september 1954 og með bókun um réttarstöðu flóttamanna frá 31. janúar 1967.
Yfirlýsing Danmerkur, Finnlands og Svíþjóðar varðandi 7. gr. þessa samnings
Danmörk, Finnland og Svíþjóð staðfesta að . eins og fram kom í samningaviðræðum þeirra um aðild að Schengen-samningnum . þau muni ekki, í samskiptum við önnur aðildarríki sem ábyrgjast samskonar málsmeðferð, bera fyrir sig yfirlýsingar sínar, skv. 1. mgr. 6. gr. Evrópusamningsins um framsal sakamanna, sem ástæðu þess að synja um framsal á þeim sem þar eru búsettir en hafa ríkisfang annarra ríkja en Norðurlandanna.
Yfirlýsing um hugtakið „ríkisborgari“
Ráðið tekur tillit til þess að aðildarríkin skuldbinda sig til að beita samningi Evrópuráðsins frá 21. mars 1983 um flutning dæmdra manna gagnvart ríkisborgurum allra aðildarríkja í skilningi 4. mgr. 3. gr. téðs samnings.
Skuldbinding aðildarríkjanna, sem getið er í fyrstu málsgrein, hefur ekki áhrif á beitingu 2. mgr. 7. gr. þessa samnings.
Yfirlýsing Grikklands varðandi 5. gr.
Grikkland túlkar 5. gr. út frá 3. mgr. hennar. Þessi túlkun tryggir að skilyrðum grísku stjórnarskrárinnar sé hlítt, en hún:
— kveður skýrt á um bann við framsali útlendings sem eftirlýstur er fyrir baráttu fyrir frelsi,
og
— greinir á milli stjórnmálaafbrota og svokallaðra blandaðra brota en um þau gilda aðrar reglur en um stjórnmálaafbrot.
Yfirlýsing Portúgals um framsal sem krafist er vegna brots sem varðar ævilangri fangelsisvist eða öryggisráðstöfun
Portúgal, sem gerði fyrirvara við Evrópusamninginn um framsal sakamanna frá 1957 þess efnis að það myndi ekki framselja menn sem eftirlýstir væru vegna brots sem varðar ævilangri fangelsisvist eða öryggisráðstöfun, lýsir því yfir að þegar farið er fram á framsal vegna brots sem varðar ævilangri fangelsisvist eða öryggisráðstöfun muni það einungis heimila framsal, í samræmi við viðeigandi ákvæði stjórnarskrár Lýðveldisins Portúgals eins og þau eru túlkuð af stjórnskipunardómi þess, ef það telur að aðildarríkið, sem leggur fram beiðni, hafi lagt fram fullnægjandi tryggingar fyrir því að það muni hvetja, í samræmi við landslög og venjur varðandi fullnustu dóma, til beitingar vægari refsingar sem sá sem óskað er eftir framsali á, gæti átt rétt á.
Portúgal áréttar gildi þeirra skuldbindinga sem það hefur tekist á herðar með gildandi alþjóðasamningum, sem það er aðili að, einkum með 5. gr. samningsins um aðild Portúgals að samningnum um framkvæmd Schengen-samkomulagsins.
Yfirlýsing ráðsins um eftirfylgni við samninginn
Ráðið lýsir því yfir:
a) að það telji rétt að hefja, á grundvelli upplýsinga frá aðildarríkjunum, reglubundna endurskoðun á eftirfarandi atriðum:
— hvernig þessum samningi er komið í framkvæmd,
— hvernig samningur þessi reynist í framkvæmd eftir gildistöku hans,
— möguleikar aðildarríkjanna á að breyta fyrirvörum, sem hafa verið gerðir innan ramma þessa samnings, með það fyrir augum að milda skilyrðin fyrir framsali eða afturkalla fyrirvara,
— hvernig málsmeðferð um framsal reynist almennt í framkvæmd milli aðildarríkjanna;
b) að það muni íhuga, einu ári eftir gildistöku þessa samnings, hvort dómstóll Evrópubandalaganna fái lögsögu í þessum málum.
- Neðanmálsgrein: 1
- 1 Með þingsályktunartillögu, sem samþykkt var 11. maí 2001, heimilaði Alþingi ríkisstjórninni að tilkynna fyrir Íslands hönd samþykki á ákvörðun ráðherraráðs Evrópusambandsins um að koma á, í samræmi við 34. gr. sáttmálans um Evrópusambandið, samningi um gagnkvæma réttaraðstoð í sakamálum milli aðildarríkja Evrópusambandsins að því leyti sem ákvæði hans byggjast á Schengen-samningnum og var ráðherraráði Evrópusambandsins tilkynnt um samþykki Íslands í kjölfarið.
- Neðanmálsgrein: 2
- 1 Þessi handtökuskipun er notuð samkvæmt samningi milli Evrópusambandsins og lýðveldisins Íslands og Konungsríkisins Noregs frá 28. júní um málsmeðferð við afhendingu milli aðildarríkja Evrópusambandsins og Íslands og Noregs. Ef dómsmálayfirvald í aðildarríki Evrópusambandsins hyggst hins vegar, í samræmi við 2. og 3. mgr. 12. gr. samningsins, skrá einstakling í Schengen-upplýsingakerfið skal líta á evrópsku handtökuskipunina, sem fylgir rammaákvörðun (2002/584/JHA) frá 13. júní 2002 um evrópska handtökuskipun og málsmeðferð við afhendingu milli aðildarríkjanna, sem jafngilda þessu eyðublaði að því er þennan samning varðar.
- Neðanmálsgrein: 3
- 2 Þessi handtökuskipun skal skrifuð eða þýdd á eitt af opinberum tungumálum í framkvæmdarríkinu, ef ljóst er hvert það er, eða á hvert það annað tungumál sem það ríki samþykkir.
- Neðanmálsgrein: 4
- (1) Stjtíð. EB C 195, 11.7.2001, bls. 13.
- Neðanmálsgrein: 5
- (2) Áliti var skilað 13. nóvember 2001 (hefur enn ekki verið birt í Stjórnartíðindum ESB).
- Neðanmálsgrein: 6
- (3) Stjtíð. EB C 78, 30.3.1995, bls. 2.
- Neðanmálsgrein: 7
- (4) Stjtíð. EB C 313, 23.10.1996, bls. 12.
- Neðanmálsgrein: 8
- (5) Stjtíð. EB L 239, 22.9.2000, bls. 19.
- Neðanmálsgrein: 9
- (6) Stjtíð. EB L 176, 10.7.1999, bls. 31.
- Neðanmálsgrein: 10
- (7) Stjtíð. EB L 176, 10.7.1999, bls. 36.
- Neðanmálsgrein: 11
- (1) Stjtíð. C 78, 30. 3. 1995, bls. 1.