Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 509. máls.
133. löggjafarþing 2006–2007.
Þskj. 975 — 509. mál.
félagsmálaráðherra við fyrirspurn Jóhönnu Sigurðardóttur um stöðu blindra og daufblindra.
1. Hver er fjöldi blindra og daufblindra í þjóðfélaginu, annars vegar barna og hins vegar fullorðinna?
Fjöldi blindra og sjónskertra barna og ungmenna eftir aldri og svæðum kemur fram í töflu 1, sundurliðaður eftir leikskóla-, grunnskóla- og framhaldsskólaaldri samkvæmt upplýsingum frá Blindrafélaginu í febrúar 2007.
Fjöldi barna og ungmenna eftir svæðum og alvarleika sjónskerðingar samkvæmt greiningarviðmiðum Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar (WHO) kemur fram í töflu 2.
Greiningarviðmiðin eru:
* Lögblindir, sjón undir 6/60 eða sjónsvið þrengra en 10 gráður.
* Sjónskertir, sjón undir 6/18 eða sjónsvið þrengra en 20 gráður.
* Óviss sjónskerðing, af einhverjum ástæðum er ekki hægt að mæla sjón nákvæmlega en hún er undir sjónskerðingarmörkum.
Samkvæmt upplýsingum Sjónstöðvar Íslands var heildarfjöldi sjónskertra á landinu 1.416 um áramótin 2006/2007 samkvæmt greiningarviðmiðum Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar. Af þeim voru 625 (44,1%) lögblindir og 791 (55,9%) með minni sjónskerðingu.
Heildarfjöldi sjónskertra skiptist eftir aldri eins og fram kemur hér á eftir, samkvæmt upplýsingum frá Sjónstöð Íslands 3. febrúar 2007.
Eins og sjá má gætir nokkurs misræmis á milli talna frá Sjónstöð Íslands og Blindrafélaginu. Sjónstöðin tilgreinir nokkuð fleiri sjónskert börn og ungmenni á aldrinum 0–20 ára (142) en Blindrafélagið (127). Félagsmálaráðuneytið leggur áherslu á að þessar upplýsingar verði samræmdar.
Hvað daufblinda varðar, þá hefur starfsfólk Sjónstöðvar leitast við að skrá sérstaklega þá skjólstæðinga stöðvarinnar sem einnig eru heyrnarskertir, nota t.d. heyrnartæki. Forstöðumaður stöðvarinnar tekur fram að sú skráning sé hvorki tæmandi né vísindaleg en samkvæmt henni eru 62 einstaklingar daufblindir, flestir eldri en 70 ára, eða 46.
Samkvæmt upplýsingum Daufblindrafélags Íslands eru hins vegar 30–40 einstaklingar nú taldir daufblindir á Íslandi. Í þeim hópi eru 3–4 börn. Líklegt má telja að munurinn á tölum Sjónstöðvarinnar og Daufblindrafélagsins felist í ólíkum greiningarviðmiðum.
2. Telur ráðherra að þjónusta við blinda og daufblinda hér á landi standi langt að baki slíkri þjónustu annars staðar á Norðurlöndum?
Til þess að hægt sé að gera sér nákvæmlega grein fyrir stöðu blindra og daufblindra á Íslandi samanborið við önnur ríki á Norðurlöndum þurfa að liggja fyrir nákvæmari upplýsingar en nú eru aðgengilegar. Þess ber að geta í því sambandi að Blindrafélagið er nú að láta vinna tvær skýrslur um stöðu blindra og sjónskerta í samfélaginu. Í annarri skýrslunni verður að finna tillögur og aðgerðaáætlun um þjónustu í skólamálum við blind og sjónskert börn á Íslandi og verður sú skýrsla kynnt innan tíðar.
Í hinni skýrslunni, sem unnin er af Pricewaterhouse Coopers, er fjallað um Sjónstöð Íslands og rekstrarvanda hennar. Sú skýrsla verður einnig kynnt á næstunni.
Það er mat Blindrafélagsins að almennt þurfi að styrkja ýmsa þætti þeirrar þjónustu sem blindum og sjónskertum er veitt af opinberum aðilum. Félagið bendir t.d. á nauðsyn þess að styrkja þjónustu skólakerfisins og nauðsyn þekkingarmiðstöðvar sem styðja mundi við bakið á hinu almenna skólakerfi þannig að það gæti enn betur rækt hlutverk sitt í þessum efnum. Einnig bendir félagið á nauðsyn þess að styrkja hæfingu og endurhæfingu og að blindir fái aukinn stuðning til að komast út á almennan vinnumarkað eftir að skólagöngu lýkur.
Það er ennfremur mat Daufblindrafélagsins að þau verkefni sem framundan eru til þess að styrkja stöðu daufblindra séu mörg og þurfi að vera afar fjölbreytileg þar sem þarfirnar séu afar mismunandi.
Til þess að geta gert raunhæfan samanburð á stöðu blindra og daufblindra á Íslandi við önnur ríki á Norðurlöndum þarf að ráðast í umfangsmiklar úttektir. Það er hins vegar mat félagsmálaráðuneytisins að stjórnvöld eigi að fara yfir og meta þær hugmyndir sem nú liggja fyrir og þær sem koma væntanlega fram í þeim skýrslum sem fyrr eru nefndar og bregðast við þeim í samráði og samvinnu við félög blindra og daufblindra.
3. Njóta blindir annars vegar og daufblindir hins vegar þeirrar þjónustu og réttar sem lög og reglugerðir um málefni fatlaðra kveða á um? Óskað er eftir sundurliðun þeirrar þjónustu sem þeim stendur til boða.
Í lögum um málefni fatlaðra, nr. 59/1992, og lögum um Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins, nr. 83/2003, er kveðið á um rétt þeirra sem eru andlega og líkamlega fatlaðir og þarfnast sérstakar þjónustu eða stuðnings af þeim sökum. Hér er átt við þroskahömlun, geðfötlun, hreyfihömlun og sjón- og heyrnarskerðingu. Ennfremur getur fötlun verið afleiðing af langvarandi veikindum og slysum.
Þjónusta sem blindum og daufblindum stendur til boða og snýr að félagsmálaráðuneytinu getur því verið af margvíslegum toga í samhengi við þær þarfir sem fyrir hendi eru. Um er að ræða þarfir fyrir þjónustu á heimilum sem felst í því að styrkja möguleika til aukins sjálfstæðis í heimilishaldi, þjónustu á sviðum hæfingar, endurhæfingar og atvinnu til þess að geta tekið aukinn þátt í samfélaginu, og sálfræðiþjónustu, ráðgjöf, félagslegan stuðning og félagslegt samneyti, þ.m.t. tómstundir og menningarlíf, auk þarfa fatlaðra barna fyrir umönnun og þjálfun ásamt nauðsynlegum stuðningi við fjölskyldur þeirra.
Þjónustustofnanir sem koma til móts við þessar þarfir geta því verið hæfingar- og endurhæfingarstöðvar, atvinna með stuðningi á vegum svæðisskrifstofa málefna fatlaðra eða annarra þjónustuaðila, dagvistarstofnanir, verndaðir vinnustaðir og skammtímaþjónusta. Á sviði búsetu getur verið um að ræða stuðning við búsetu í félagslegum íbúðum, sambýlum, á áfangastöðum og heimilum fyrir börn.
4. Þurfa blindir og daufblindir að bíða eftir þjónustu, og þá hverri og hve lengi?
Sé horft til almennrar þjónustu ríkis og sveitarfélaga er biðtíminn afar mismunandi og ræðst hann að nokkru af búsetu, þ.e. aðgengi að þjónustu og þeim þörfum sem reynt er að koma til móts við. Ekki er því hægt að gefa einhlítt svar við því hver biðtíminn er eftir þjónustu.
Í upplýsingum frá Blindrafélaginu kemur fram að skortur sé á því að blindir og sjónskertir njóti jafnréttis. Sjónarmið daufblindra eru svipuð og hjá blindum og benda þeir auk þess á mikilvægi vandaðrar stefnumörkunar og samhæfingar.
5. Hefur ráðherra tillögur um hvernig bæta megi stöðu blindra og daufblindra í þjóðfélaginu?
20. september 2006 samþykkti ráðgjafarnefnd Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga tillögu um aðkomu sjóðsins að ráðningu sérstaks kennsluráðgjafa fyrir blinda og sjónskerta nemendur á landsvísu. Meginmarkmiðið með ráðningu kennsluráðgafans er að veita þessum nemendahópi heildstæða kennsluráðgjöf, veita ráðgjöf í heimaskólum umræddra nemenda og fylgja henni eftir.
Ráðning kennsluráðgjafans grundvallast á samningi milli menntamálaráðuneytisins, Reykjavíkurborgar og Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga. Um tímabundna ráðningu er að ræða meðan fundin verður varanleg lausn á þjónustu og kennslufræðilegri ráðgjöf fyrir blinda og sjónskerta nemendur í grunn- og framhaldsskólum landsins. Aðkoma Jöfnunarsjóðs tekur mið af kennsluráðgjöf fyrir blinda og sjónskerta grunnskólanemendur í öðrum sveitarfélögum en Reykjavíkurborg. Kennsluráðgjafinn mun hafa aðsetur í þjónustumiðstöð á vegum Reykjavíkurborgar.
Þetta verkefni er tímabundið en mikilvægt er að á grundvelli reynslu af því verði tekin ákvörðun um framtíðarfyrirkomulag.
Með þeirri viðamiklu stefnumótun í málefnum fatlaðra barna og fullorðinna sem félagsmálaráðuneytið hefur unnið að undanfarin misseri og kynnt verður með formlegum hætti í lok mars kemur fram ríkur vilji og metnaður ráðuneytisins til þess að þjónusta við fatlaða á Íslandi verði til fyrirmyndar. Í stefnumótuninni birtist ákveðin framtíðarsýn og gerð er grein fyrir þeim grundvallarsjónarmiðum sem stefnan byggist á. Síðan er fjallað um einstök málasvið þar sem greint er á milli meginmarkmiða og starfsmarkmiða og gerð grein fyrir leiðum að þeim markmiðum.
Sett eru fram skýr markmið á málasviðum sem lúta að þjónustu við börn 0–17 ára, stoðþjónustu við 18 ára og eldri, þjónustu vegna búsetu, atvinnu og hæfingar svo eitthvað sé nefnt. Stefnumiðin og framkvæmd þeirra taka því mið af þjónustuþörfum blindra og daufblindra eins og þörfum annarra hópa fatlaðra.
Rétt er að benda á að nú er unnið að áætluninni „Aðgengi fyrir alla“ undir forystu félagsmálaráðuneytisins. Hugmyndin er sú að stefna og framkvæmdaáætlun ráðuneytisins í málefnum fatlaðra barna og fullorðinna verði samþætt þeirri áætlun, þ.e. verði hluti af því markmiði að tryggja öllum landsmönnum fullt aðgengi að samfélaginu. Þessi áætlun mun liggja fyrir á vordögum. Ljóst er að þessi stefnumótun hefur mikil áhrif á líf og starf allra fatlaðra á næstu árum, nái stefnumiðin fram að ganga.
Hvað varðar sérstök úrræði, t.d. þau er lúta að stuðningi við búsetu og atvinnu, hjálpartækjum og annarri stoðþjónustu, er mikilvægt að koma á samstarfi við alla sem koma að málefnum blindra og daufblindra.
6. Hvenær má vænta þess að sett verði á fót þekkingarmiðstöð sem yrði þjónustumiðstöð fyrir þessa hópa og aðstandendur þeirra líkt og nú eru starfandi annars staðar á Norðurlöndum?
Blindrafélag Íslands hefur nýverið mótað áhugaverðar tillögur um endurhæfingar- og þekkingarmiðstöð blindra og sjónskertra. Þar er lagt til að þjónustu við blint og sjónskert fólk verði komið fyrir á einum stað, þ.e. Sjónstöð Íslands, þekkingarmiðstöð blindra og sjónskertra nemenda, námsgagnagerð á blindraletri og stækkuðu letri og endurhæfingu blindra og sjónskertra. Félagið telur að mikið hagræði geti orðið að því, bæði fyrir fagfólk og notendur, að hafa þessa starfsemi undir sama þaki.
Megináhersluatriði í starfseminni yrðu: hæfing og endurhæfing, umferli, ADL og sjónþjálfun, félagsráðgjöf, sálgæsla, tölvukennsla, atvinnuráðgjöf, kennsluráðgjöf, blindraleturskennsla, kynningarstarf, námskeiðahald, úttektir á aðgengi og ráðgjöf í meðferð hjálpartækja o.fl. Þannig yrði blindum og sjónskertum á öllum aldri veitt alhliða þjónusta í miðstöðinni.
Rök fyrir þessari tilhögun eru einkum þessi:
* Grunnur yrði lagður að sameiginlegri endurhæfingar- og þekkingarmiðstöð blindra og sjónskertra þar sem þjónustu við þá yrði komið fyrir á einum stað og aðgengi að henni þannig auðveldað.
* Aukin áhersla yrði lögð á endurhæfingu með það fyrir augum að auka atvinnuþátttöku blindra og sjónskertra og bæta lífsgæði þeirra.
* Gert er ráð fyrir aðkomu sveitarfélaga og ráðuneyta menntamála, félagsmála og heilbrigðis- og tryggingarmála.
* Húsakynni Blindrafélagsins, sem hafa verið byggð upp í samstarfi við ríkið, geta nýst vel til þessarar starfsemi. Í samráði við Sjónstöð Íslands hefur húsnæði á 5. hæð í Hamrahlíð 17 verið endurhannað og þar má koma miðstöðinni fyrir. Enda þótt starfsemin heyri undir þrjú ráðuneyti, auk sveitarfélaga, má samnýta húsnæði og aðra stoðþjónustu.
Blindrafélagið leggur til að settur verður á fót framkvæmdahópur með aðild allra hlutaðeigandi aðila sem komi tillögunum í framkvæmd fyrir 1. janúar 2008.
Þessar tillögur eru allrar athygli verðar og líklegar til þess að koma til móts við þjónustuþarfir blinds og sjónskerts fólks sem þekkir vitaskuld best sjálft hvar skórinn kreppir. Félagsmálaráðuneytið vill taka þátt í samstarfi við önnur ráðuneyti, sveitarfélög og þau hagsmunasamtök sem málið varðar um að móta tillögurnar frekar og stuðla að því að koma þeim í framkvæmd.
133. löggjafarþing 2006–2007.
Þskj. 975 — 509. mál.
Svar
félagsmálaráðherra við fyrirspurn Jóhönnu Sigurðardóttur um stöðu blindra og daufblindra.
1. Hver er fjöldi blindra og daufblindra í þjóðfélaginu, annars vegar barna og hins vegar fullorðinna?
Fjöldi blindra og sjónskertra barna og ungmenna eftir aldri og svæðum kemur fram í töflu 1, sundurliðaður eftir leikskóla-, grunnskóla- og framhaldsskólaaldri samkvæmt upplýsingum frá Blindrafélaginu í febrúar 2007.
Tafla 1.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Fjöldi barna og ungmenna eftir svæðum og alvarleika sjónskerðingar samkvæmt greiningarviðmiðum Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar (WHO) kemur fram í töflu 2.
Greiningarviðmiðin eru:
* Lögblindir, sjón undir 6/60 eða sjónsvið þrengra en 10 gráður.
* Sjónskertir, sjón undir 6/18 eða sjónsvið þrengra en 20 gráður.
* Óviss sjónskerðing, af einhverjum ástæðum er ekki hægt að mæla sjón nákvæmlega en hún er undir sjónskerðingarmörkum.
Tafla 2.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Samkvæmt upplýsingum Sjónstöðvar Íslands var heildarfjöldi sjónskertra á landinu 1.416 um áramótin 2006/2007 samkvæmt greiningarviðmiðum Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar. Af þeim voru 625 (44,1%) lögblindir og 791 (55,9%) með minni sjónskerðingu.
Heildarfjöldi sjónskertra skiptist eftir aldri eins og fram kemur hér á eftir, samkvæmt upplýsingum frá Sjónstöð Íslands 3. febrúar 2007.
| 0–20 ára: | 142 einstaklingar. |
| 21–69 ára: | 307 einstaklingar. |
| 70 ára og eldri: | 967 einstaklingar. |