Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 407. máls.
133. löggjafarþing 2006–2007.
Þskj. 979 — 407. mál.
menntamálaráðherra við fyrirspurn Kolbrúnar Halldórsdóttur og Jóns Bjarnasonar um tónlistarnám og fjárhagslegan stuðning við tónlistarskóla.
1. Hvað líður starfslokum nefndar um endurskoðun laga um fjárhagslegan stuðning við tónlistarskóla, nr. 75/1985, sem starfað hefur á vegum ráðuneytisins síðan vorið 2004?
Eins og áður hefur komið fram á Alþingi í svari menntamálaráðherra við fyrirspurn frá Jóni Bjarnasyni um jafnrétti til tónlistarnáms (mál nr. 289 á yfirstandandi þingi) tók nefnd til starfa á vegum ráðuneytisins í mars 2004 er hafði það hlutverk að endurskoða lög um fjárhagslegan stuðning við tónlistarskóla, nr. 75/1985. Nefndinni var ætlað að gera tillögur um endurskoðun gildandi laga um tónlistarfræðsluna. Drög að frumvarpi hafa um langt skeið verið til umræðu í nefndinni en ýmis ágreiningsmál milli ríkis og sveitarfélaga sem tengjast beint efni frumvarpsins eru óleyst. Til dæmis er ágreiningur um fyrirkomulag og kostnaðarskiptingu tónlistarnáms nemenda á framhaldsskólaaldri.
Fulltrúar sveitarfélaga telja að kennslukostnaður við tónlistarnám nemenda á framhaldsskólaaldri eigi að falla á ríkið en fulltrúar ríkisins í nefndinni telja að óbreytt fyrirkomulag eigi að gilda um skyldur sveitarfélaga til að greiða kennslukostnað við tónlistarskólann að óbreyttri kostnaðarskiptingu. Þá kom einnig fram í svari ráðherra við fyrrnefndri fyrirspurn í 289. máli að fyrir lá í upphafi skólaársins 2005–2006 að rekstrarfyrirkomulagi Listdansskóla Íslands yrði breytt á því ári. Lagði ráðherra því til við Samband íslenskra sveitarfélaga að flutningi grunnskólastigsins til sveitarfélaga yrði lokið með sambærilegri skiptingu á skólastigum listnáms. Sveitarfélögin bera ábyrgð á tónlistarkennslu, í samræmi við lög um fjárhagslegan stuðning við tónlistarskóla, þótt ríkið hafi aftur á móti staðið fyrir greiðslum og stuðningi við listdanskennslu. Að baki tillögu ráðherra var sú hugmyndafræði að grunnstig og miðstig listnáms ætti að vera á ábyrgð sveitarfélaganna og þá ætti ekki að skipta máli í hvaða listgrein nemendur stunduðu nám. Framhaldsstig í viðkomandi listnámsgrein væri á ábyrgð ríkisins. Með því átti ráðherra ekki eingöngu við einingarbært nám til námsloka frá framhaldsskóla, heldur allt framhaldsstigið í tónlist og listdansi.
Samkomulag náðist ekki á milli ríkis og sveitarfélaga um þessa tillögu ráðherra sem hefði haft í för með sér flutning 200 millj. kr. greiðsluskyldu frá sveitarfélögunum til ríkisins en á móti hefðu sveitarfélögin tekið á sig skuldbindingu um þátttöku í kennslukostnaði í listdansi á grunnstigi og miðstigi. Að mati ráðherra hefði samkomulag á milli ríkis og sveitarfélaga um framangreint verið til þess fallið að leysa úr vanda þeirra nemenda sem stunda nám í tónlistarskólum utan lögheimilissveitarfélags. Eins og kunnugt er stafa vandamál þeirra nemenda fyrst og fremst af breyttum reglum Reykjavíkurborgar um þátttöku í kennslukostnaði í tónlistarskólum sem tóku gildi frá og með skólaárinu 2003–2004. Reglur Reykjavíkurborgar hafa leitt til þess að fjöldi nemenda með lögheimili utan Reykjavíkur getur ekki haldið áfram tónlistarnámi sínu þar sem lögheimilissveitarfélög nemendanna sjá sér ekki fært að taka þátt í kennslukostnaði. Um tíma var hag þessara nemenda borgið á grundvelli samkomulags ríkis og sveitarfélaga frá október 2004 um greiðslu kennslukostnaðar af einingabæru tónlistarnámi nemenda í framhaldsskólum, sem gilti fyrir skólaárið 2004–2005. Með samkomulaginu var leitast við að jafna aðstöðu nemenda í framhaldsskólum til tónlistarnáms, þrátt fyrir að ríkið hefði enga lagaskyldu til þess, með því að taka þátt í kennslukostnaði tónlistarskóla vegna framhaldsskólanemenda sem stunda tónlistarnám á tónlistarkjörsviði listnámsbrauta framhaldsskóla eða fá tónlistarnám sitt metið til eininga sem hluta af lokaprófi til framhaldsskóla. Samkvæmt framansögðu kom ekki til endurnýjunar samkomulagsins vegna viðræðuslita ríkis og sveitarfélaga um fyrirkomulag og kostnaðarskiptingu vegna náms í listdansi.
2. Hefur ráðuneytið fallið frá því að vinna að verkaskiptingu milli ríkis og sveitarfélaga varðandi tónlistarnám á þeim grunni að ríkið yfirtaki ábyrgð á námi á framhaldsstigi en sveitarfélögin ábyrgist grunn- og miðstigið?
Að mati ráðherra eru starfslok nefndar um endurskoðun laga um fjárhagslegan stuðning við tónlistarskóla háð því að samkomulag náist á milli ríkisins og Sambands íslenskra sveitarfélaga um fyrirkomulag og kostnaðarskiptingu vegna náms í listdansi og tónlist sem fram fer í samræmi við opinberar námskrár menntamálaráðuneytisins. Eins og fram hefur komið í fyrri svörum um þetta málefni telur ráðherra það vera skyldu Sambands íslenskra sveitarfélaga og ríkisvaldsins að komast að ásættanlegri niðurstöðu um fyrirkomulag og kostnaðarskiptingu vegna listnáms á öllum skólastigum. Slíkt samkomulag mundi greiða fyrir því að nefnd um endurskoðun laganna geti orðið samstíga í tillögum sínum um fyrirkomulag og kostnaðarskiptingu tónlistarfræðslu á milli ríkis og sveitarfélaga. Vegna gildandi laga verður hins vegar enn um sinn að búa við það að tónlistarfræðsla sé ekki meðal skylduverkefna sveitarfélaga. Hverju sveitarfélagi er í sjálfsvald sett hvort það ákveður að veita fjármuni til tónlistarfræðslu og ráðstafa fénu í samræmi við stefnu sína í tónlistarfræðslumálum. Að óbreyttum lögum er tónlistarnám því á verksviði sveitarfélaganna en aðrar listgreinar eru á ábyrgð ríkisins.
Með hliðsjón af framansögðu skal áréttað að ráðherra hefur ekki fallið frá því að vinna að verkaskiptingu á milli ríkis og sveitarfélaga varðandi listnám á þeim grundvelli að ríkið beri ábyrgð á kennslukostnaði vegna náms á framhaldsstigi en sveitarfélög beri ábyrgð á námi á grunn- og miðstigi. Ráðherra telur hins vegar engar líkur á slíku samkomulagi nema ábyrgð á kennslukostnaði vegna listdans lúti sömu lögmálum.
3. Hver varð greiðsluþátttaka ríkisins vegna tónlistarkennslu á framhaldsstigi eftir að ríkið og Samband íslenskra sveitarfélaga gerðu samkomulag um greiðslu kostnaðar við kennslu veturinn 2004–2005? Hvers vegna var samkomulagið ekki endurnýjað?
Hvað varðar framkvæmd samkomulags um fyrirkomulag og kostnaðarskiptingu vegna tónlistarnáms framhaldsskólanemenda skólaárið 2004–2005, þá greiddi menntamálaráðuneytið alls 22.847.660 kr. til framhaldsskóla sem kennslukostnað vegna tónlistarnáms. Rétt er að benda á að þessir fjármunir voru ekki afhentir einhliða úr ríkissjóði heldur var fyrirvari í samkomulaginu um að tekið yrði tillit til útgjalda ríkissjóðs í síðari viðræðum nefndar félagsmálaráðherra um verkaskipti á milli ríkis og sveitarfélaga. Eins og rakið er að framan kom ekki til framlengingar samkomulagsins vegna viðræðuslita á milli ríkisins og Sambands íslenskra sveitarfélaga um fyrirkomulag og kostnaðarskiptingu náms í listdansi og tónlist.
4. Er ráðuneytinu kunnugt um að ekki hafi verið farið að ákvæði 3. tölul. 1. gr. laga um fjárhagslegan stuðning við tónlistarskóla, nr. 75/1985, um að hverjum nemanda tónlistarskóla skuli veitt kennsla í aðalnámsgrein eina stund á viku? Hvaða úrræði hefur ráðuneytið til að tryggja að þessum réttindum nemenda sé framfylgt?
Um eftirlit ráðuneytisins með tónlistarkennslu vísast í fyrsta lagi til orðalags 12. gr. laga um fjárhagslegan stuðning við tónlistarskóla, nr. 75/1985. Í 1. mgr. er kveðið á um að ráðuneytið skuli hafa með höndum faglega umsjón og eftirlit með tónlistarkennslu og í 2. mgr. eru verkefni ráðuneytisins nánar útlistuð. Þar segir að verkefnin séu m.a. yfirstjórn námskrár- og námsefnisgerðar, sbr. 3. tölul. 1. gr. laganna, samræming náms, prófa og réttinda er þau veita, aðstoð varðandi ráðningar kennara, ráðgjöf varðandi gerð starfs- og fjárhagsáætlana skóla, upplýsingamiðlun og erlend samskipti. Þegar lögin voru sett var ekki að finna í 12. gr. ákvæði um faglega umsjón og eftirlit ráðuneytisins með tónlistarkennslu, en ákvæði þess efnis kom inn í lögin með lögum nr. 87/1989, er vörðuðu breytingu á verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga. Umfram það sem segir í lagatextanum er ekki að finna í lögskýringargögnum leiðbeiningar um faglega umsjón og eftirlit ráðuneytisins með tónlistarkennslu. Í framkvæmd hefur ráðuneytið sinnt hinu lögboðna hlutverki sínu með ýmsum hætti. Þannig hefur ráðuneytið haft yfirumsjón með námskrárgerð og gaf út á árinu 2000 aðalnámskrá tónlistarskóla, sbr. auglýsingu nr. 529/2000. Aðalnámskrá tónlistarskóla er gefin út í 10 heftum og skiptist í almennan hluta aðalnámskrár og níu einstaka greinahluta. Í almennum hluta aðalnámskrárinnar er m.a. gerð grein fyrir hlutverki og meginmarkmiðum tónlistarskóla, skipan tónlistarnáms, greinanámskrám og skólanámskrám, fjallað um kennslu og kennsluhætti, þætti í hljóðfæra- og tónfræðanámi, námsmat og próf, tengsl heimila og skóla og samvinnu í skólastarfi. Í lok almenna hlutans er umfjöllun um námsumhverfi og mat á skólastarfi.
Í greinahlutum aðalnámskrárinnar er fjallað um markmið, inntak og skipulag náms á tilteknum námssviðum. Jafnframt er gerð grein fyrir prófum og gefnar ábendingar um viðfangsefni. Heftin sem komin eru út bera þessi heiti: Ásláttarhljóðfæri, Einsöngur, Gítar og harpa, Hljómborðshljóðfæri, Málmblásturshljóðfæri, Strokhljóðfæri, Tónfræðagreinar, Tréblásturshljóðfæri og Aðalnámskrá í rytmískri tónlist. Námskrá í tónfræðagreinum hefur verið dreift til tónlistarskóla, framhaldsskóla, skólaskrifstofa og annarra hagsmunaaðila. Í kjölfar útgáfu almenns hluta aðalnámskrár tónlistarskóla var sett á fót prófanefnd tónlistarskóla. Hlutverk prófanefndarinnar er að annast samræmt og hlutlaust mat á áfangaprófum í tónlistarskólum í samræmi við þær kröfur sem gerðar eru í aðalnámskrá tónlistarskóla. Menntamálaráðuneytið hefur veitt prófanefndinni styrki til að þróa starfið og mennta prófdómara.
Auk framangreinds hefur menntamálaráðuneytið reglulega safnað upplýsingum um starfsemi tónlistarskóla. Fyrr á árum var slíkum upplýsingum safnað árlega frá tónlistarskólum, en ekki voru unnar sérstakar skýrslur úr þeim gögnum. Á síðari árum hefur mats- og eftirlitsdeild ráðuneytisins þrisvar aflað upplýsinga um starfsemi tónlistarskóla og gefið út í skýrsluformi. Fyrst gaf ráðuneytið út rit með upplýsingum um leikskóla, grunnskóla og tónlistarskóla skólaárið 1996–1997. Spurt var um rekstrarform tónlistarskóla, skólagjöld, starfstíma, fjölda kennara, fjölda nemenda, skiptingu nemenda eftir deildum og stigum og samstarf við aðra skóla. Beiðni um upplýsingar um starfsemi tónlistarskóla 1999–2000 var send öllum starfandi tónlistarskólum. Spurt var um sambærilega þætti og árin 1996–1997. Þá lét menntamálaráðuneytið í febrúar 2003 gera könnun á tónmenntakennslu í grunnskólum skólaárið 2002–2003. Markmið könnunarinnar var að afla upplýsinga um hvernig staðið er að tónmenntakennslu í grunnskólum. Aðaláhersla var lögð á öflun upplýsinga um tímafjölda í hverjum árgangi og menntun þeirra sem kenna tónmennt í grunnskólum.
Menntamálaráðuneytið gerði árið 1997 samkomulag við Hagstofu Íslands um öflun tölulegra upplýsinga um skóla- og menningarmál og úrvinnslu þeirra í tengslum við hagskýrslugerð. Í samkomulaginu er m.a. sérstakur kafli um öflun upplýsinga um starfsemi tónlistarskóla en í samningnum gerði Hagstofan fyrirvara um á hvaða tíma verði hægt að standa skil á þessum flokki upplýsinga. Hagstofan hefur ekki enn sem komið er uppfyllt ákvæði samningsins um öflun upplýsinga um tónlistarskóla. Auk framangreinds er starfandi samstarfsnefnd tónlistarfræðslunnar skv. 13. gr. laga nr. 75/1985, um fjárhagslegan stuðning við tónlistarskóla. Nefndin tók til starfa fljótlega eftir setningu laganna og hefur tekið fyrir fjölmörg málefni sem snerta starfsemi tónlistarskóla, sem tengist m.a. námskrárgerð, námsgagnagerð, þróunarstarfi, mati á skólastarfi og almennt þróun þessa skólastigs. Nefndin hefur einnig fjallað um nauðsyn heildstæðrar löggjafar um tónlistarskóla og komið ábendingum þar að lútandi til ráðuneytisins.
Hvað varðar framkvæmd 3. tölul. 1. gr. laga um fjárhagslegan stuðning við tónlistarskóla og úrræði ráðuneytisins til að fylgja ákvæðinu eftir, skal tekið fram að lögin fela ekki í sér nein bein úrræði fyrir ráðuneytið utan þeirrar eftirlitsskyldu sem getið er um hér að framan. Vera má að komið geti til afturköllunar á sérstakri staðfestingu ráðuneytis skv. 5. tölul. 1. gr. laganna ef leitt er í ljós að tónlistarskóli uppfylli ekki lengur skilyrði 1. gr. laganna en ekki hefur reynt á slíkt ennþá hjá ráðuneytinu.
5. Er ráðuneytinu kunnugt um að tónlistarskólar þurfi í auknum mæli að nota innheimt skólagjöld til að standa undir launakostnaði kennara og skólastjóra sem sveitarfélögunum ber að greiða skv. 10. gr. laganna? Hvaða úrræði hefur ráðuneytið til að tryggja að sveitarfélögin uppfylli skyldur sínar í þessum efnum?
Varðandi ráðstöfun innheimtra skólagjalda til greiðslu launa kennara og skólastjóra og meint brot sveitarfélaga gegn 10. gr. laga um fjárhagslegan stuðning við tónlistarskóla í því sambandi skal tekið fram að lögin fela ekki í sér nein úrræði fyrir ráðherra til að bregðast við slíku. Lögin byggjast á því að rekstur tónlistarskóla sé annaðhvort á hendi sveitarfélaga eða annarra aðila sem njóta styrks úr sveitarsjóði að uppfylltum nánari skilyrðum laganna. Því gildir 78. gr. stjórnarskrárinnar, sbr. 16. gr. stjórnarskipunarlaga nr. 97/1995, um sjálfstjórnarrétt sveitarfélaga og sú meginregla sem af þeim rétti leiðir, að ákvarðanir sveitarstjórnar sæta ekki endurskoðun af hálfu ráðherra nema fyrir því sé lagaheimild. Þótt ráðuneytinu sé með 12. gr. laga um fjárhagslegan stuðning við tónlistarskóla falin fagleg umsjón og eftirlit með tónlistarkennslu með þeim hætti sem lýst var að framan, telur ráðuneytið að hvorki það lagaákvæði né önnur ákvæði laganna geymi viðhlítandi heimild til ráðherra til að endurskoða ákvarðanir sveitarstjórna vegna fyrirkomulags við rekstur tónlistarskóla sem eru reknir á ábyrgð þeirra.
133. löggjafarþing 2006–2007.
Þskj. 979 — 407. mál.
Svar