Þskj. 980 — 654. mál.
Frumvarp til laga
um breytingar á ýmsum lögum er varða útgáfu leyfa o.fl.
(Lagt fyrir Alþingi á 133. löggjafarþingi 2006–2007.)
I. KAFLI
Breyting á iðnaðarlögum, nr. 42 18. maí 1978, með síðari breytingum.
1. gr.
II. KAFLI
Breyting á lögum um lögskráningu sjómanna, nr. 43 30. mars 1987,
með síðari breytingum.
2. gr.
a. Á eftir orðinu „tollstjórar“ í 1. málsl. 1. mgr. kemur: og sýslumenn, að undanskildum sýslumönnunum í Reykjavík og Keflavík.
b. Á eftir orðinu „tollstjórum“ í 2. og 3. málsl. 1. mgr. kemur: og sýslumönnum.
c. Á eftir orðinu „tollstjóra“ fyrra sinni í 1. málsl. 2. mgr. kemur: og sýslumanna.
d. Á eftir orðinu „tollstjóra“ síðara sinni í 1. málsl. 2. mgr. kemur: eða sýslumanna.
e. Á eftir orðinu „tollstjóra“ í 2. málsl. 2. mgr. kemur: eða sýslumanns.
f. 3. málsl. 2. mgr. orðast svo: Tollstjórar og sýslumenn skulu hafa eftirlit með lögskráningarfulltrúum í umdæmum sínum.
III. KAFLI
Breyting á umferðarlögum, nr. 50 30. mars 1987, með síðari breytingum.
3. gr.
4. gr.
Í stað orðsins „lögreglustjóri“ í 1. og 2. málsl. 1. mgr. 53. gr. laganna kemur: útgefandi ökuréttinda.5. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 56. gr. laganna:a. Í stað orðsins „ríkislögreglustjóra“ í 1. mgr. kemur: sýslumanns, að undanskildum sýslumanninum í Reykjavík, en lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu fer með það hlutverk.
b. Í stað orðsins „Ríkislögreglustjóri“ í 6. mgr. kemur: Útgefandi ökukennararéttinda.
6. gr.
Í stað orðanna „ríkislögreglustjóri“ og „ríkislögreglustjóra“ í 1. málsl. 1. mgr. og 1. málsl. 3. mgr. 106. gr. laganna kemur í viðeigandi beygingarfalli: lögreglustjóri. IV. KAFLI
Breyting á lögum um framkvæmdarvald ríkisins í héraði, nr. 92 1. júní 1989,
með síðari breytingum.
7. gr.
Sýslumenn í hverju umdæmi skulu veita leyfisumsóknum viðtöku fyrir hönd lögreglustjóra umdæmisins.
8. gr.
Við 6. gr. laganna bætist ný málsgrein, svohljóðandi:Sýslumenn og löglærðir fulltrúar þeirra skulu bera einkennisfatnað eftir því sem ráðherra ákveður í reglugerð.
V. KAFLI
Breyting á lögum um sinubrennur og meðferð elds á víðavangi,
nr. 61 1. júní 1992, með síðari breytingum.
9. gr.
VI. KAFLI
Breyting á lögum um kirkjugarða, greftrun og líkbrennslu,
nr. 36 4. maí 1993, með síðari breytingum.
10. gr.
VII. KAFLI
Breyting á vopnalögum, nr. 16 25. mars 1998, með síðari breytingum.
11. gr.
12. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 5. gr. laganna:a. Í stað orðanna „nema með leyfi ríkislögreglustjóra“ í 1. málsl. 1. mgr. kemur: í atvinnuskyni nema með leyfi lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu.
b. 3. málsl. 1. mgr. fellur brott.
c. Orðið „lögreglustjóra“ í 4. málsl. 1. mgr. fellur brott.
d. Í stað orðsins „Ríkislögreglustjóra“ í 2. mgr. og 2. málsl. 3. mgr. kemur: Lögreglustjóra.
e. Í stað orðsins „ríkislögreglustjóra“ í 1. málsl. 7. mgr. kemur: lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu, að fenginni umsögn ríkislögreglustjóra.
f. Í stað orðanna „Ríkislögreglustjóri getur og“ í 2. málsl. 7. mgr. kemur: Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu getur og, að fenginni umsögn ríkislögreglustjóra.
13. gr.
1. mgr. 6. gr. laganna orðast svo:Enginn má flytja úr landi skotvopn, skotfæri, sprengiefni eða skotelda nema með leyfi lögreglustjóra, enda liggi fyrir staðfesting frá þar til bærum yfirvöldum um heimild fyrir innflutningi. Ákvæði þetta á aðeins við þegar um varanlegan útflutning er að ræða.
14. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 7. gr. laganna:a. Í stað orðsins „ríkislögreglustjóra“ í 1. mgr. kemur: lögreglustjóra.
b. 2. mgr. orðast svo:
Leyfi skv. 1. mgr. má aðeins veita skrásettu firma eða félagi, enda tilnefni firmað eða félagið mann með sérþekkingu á þeim vörum sem þar um ræðir sem hafi umsjón með daglegri verslun og ábyrgist vörslu varanna ásamt stjórnendum firmans eða félagsins. Ráðherra setur nánari reglur um efni og skilyrði slíks leyfis.
c. 3. mgr. fellur brott.
d. 4. mgr. orðast svo:
Í sérstökum tilvikum er heimilt að veita félagasamtökum leyfi til að selja skotelda í smásölu.
e. Orðin „lögreglustjóra og“ í 6. mgr. falla brott.
f. Í stað orðsins „ríkislögreglustjóra“ í 7. mgr. kemur: lögreglustjóra.
15. gr.
Í stað orðsins „Ríkislögreglustjóra“ í 1. mgr. 8. gr. laganna kemur: Lögreglustjóra.16. gr.
2. mgr. 14. gr. laganna fellur brott.17. gr.
Í stað orðanna „ríkislögreglustjóri“ og „ríkislögreglustjóra“ í 1. málsl. 1. mgr. og 1. málsl. 2. mgr. 15. gr. laganna kemur í viðeigandi beygingarfalli: lögreglustjóri.18. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 17. gr. laganna:a. Í stað orðsins „ríkislögreglustjóra“ í 1. málsl. 1. mgr. kemur: lögreglustjóra.
b. 2. málsl. 1. mgr. fellur brott.
19. gr.
Síðari málsliður 4. mgr. 30. gr. laganna orðast svo: Sama gildir um úðavopn, svo sem gasvopn og táragasvopn.VIII. KAFLI
Breyting á lögum um verslunaratvinnu, nr. 28 8. apríl 1998, með síðari breytingum.
20. gr.
IX. KAFLI
Gildistaka.
21. gr.
Athugasemdir við lagafrumvarp þetta.
Frumvarp þetta er samið í dóms- og kirkjumálaráðuneytinu að höfðu samráði við samgönguráðuneytið, umhverfisráðuneytið og iðnaðar- og viðskiptaráðuneytið.
Hinn 1. janúar sl. tóku gildi lög nr. 46/2006, um breyting á lögreglulögum, nr. 90/1996, og lögum um framkvæmdarvald ríkisins í héraði, nr. 92/1989, sem kveða á um umfangsmiklar breytingar á skipan lögreglumála, þ.m.t. fækkun lögregluumdæma úr 26 í 15. Við gildistöku laganna fara 11 sýslumenn ekki lengur með lögreglustjórn í umdæmum sínum.
Víðs vegar í lögum er kveðið á um að lögreglustjóri gefi út leyfi. Í ljósi þess að við gildistöku laganna hafa sýslumenn sem ekki eru jafnframt lögreglustjórar ekki lögformlegt umboð til að gefa út slík leyfi er nauðsynlegt að gera viðeigandi ráðstafanir.
Mikilvægt er að almenningur geti áfram sótt sömu þjónustu við útgáfu leyfa í sínu byggðarlagi, ýmist á lögreglustöð eða sýsluskrifstofu, án tillits til þess hvort sýslumaður hafi einnig á hendi lögreglustjórn.
Meginefni frumvarpsins lýtur að breytingum vegna fækkunar lögregluumdæma. Er sú leið farin í frumvarpinu að færa þær leyfisveitingar sem lögreglustjórar hafa með höndum samkvæmt núgildandi lögum til sýslumanna, að undanskildum þeim leyfisveitingum þar sem eðli leyfanna er með þeim hætti að sérþekkingar lögreglustjóra er þörf. Slík leyfi verða áfram gefin út af lögreglustjórum, en þar er meðal annars um að ræða leyfi á grundvelli vopnalaga, nr. 16/1998, og ákveðin leyfi á grundvelli umferðarlaga, nr. 50/1987. Í þeim tilvikum geti almenningur þó eftir sem áður lagt fram umsóknir um leyfi hjá sýslumanni í umdæmi sínu. Framkvæmdin verður þá með þeim hætti að sýslumaður veitir leyfisumsókn viðtöku, skráir hana inn, innheimtir gjald, eftir atvikum, og framsendir hana til úrvinnslu og ákvörðunar hjá embætti lögreglustjóra umdæmisins. Að því loknu sendir lögreglustjórinn sýslumanni leyfið til afhendingar og eftir atvikum gjaldtöku.
Þá eru gerðar nokkrar breytingar á leyfisveitingum sem eru samkvæmt gildandi lögum á hendi ríkislögreglustjóra. Er hér einkum um að ræða leyfisveitingar samkvæmt umferðarlögum og vopnalögum. Samkvæmt gildandi vopnalögum eru það ýmist lögreglustjórar eða ríkislögreglustjóri sem gefa út leyfi. Hagræðing fylgir því að færa sem flestar leyfisveitingar til lögreglustjóra þar sem hún verður þá nær borgaranum. Í sumum tilfellum hafa leyfisveitingar þegar verið færðar frá ríkislögreglustjóra til lögreglustjóra á grundvelli sérstakra heimildarákvæða í lögunum. Sú framkvæmd hefur reynst vel og er í frumvarpinu lagt til að hún verði fest í sessi, sbr. VII. kafli frumvarpsins.
Samkvæmt umferðarlögum má enginn stjórna bifreið eða bifhjóli nema hann hafi til þess gilt ökuskírteini sem lögreglustjóri gefur út. Í frumvarpinu er lagt til að sýslumenn verði útgefendur ökuskírteina, þó með þeirri undantekningu að lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu gefi út ökuskírteini í umdæmi sýslumannsins í Reykjavík. Rökin að baki þessari breytingu eru þau að ökuskírteini hafa hingað til verið gefin út hjá sýslumannsembættum úti á landi. Þátttöku lögreglu í útgáfu slíkra leyfa er ekki þörf þar sem allar upplýsingar eru í sérstöku ökuskrárkerfi og ekki þörf á upplýsingum úr skrám lögreglu. Útgáfa ökuskírteina hefur þó verið í höndum lögreglustjórans í Reykjavík sem heitir nú lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu. Stendur sú tilhögun á gömlum merg en þar hefur verið starfrækt sérstök leyfadeild um langt skeið. Eðli máls samkvæmt hefur því skapast allmikil sérþekking í þessum málaflokki og þykir með hliðsjón af því eðlilegt að það embætti fari áfram með útgáfu ökuskírteina í umdæmi sýslumannsins í Reykjavík. Aðrir sýslumenn á höfuðborgarsvæðinu, þ.e. í Kópavogi og Hafnarfirði, munu hins vegar áfram gefa út ökuskírteini í sínum umdæmum. Sömu breytingar eru lagðar til varðandi útgáfu ökukennararéttinda, en samkvæmt umferðarlögum gefur ríkislögreglustjóri út slík réttindi, sbr. 3. og 5. gr. frumvarpsins.
Samkvæmt gildandi umferðarlögum er ríkislögreglustjóra einnig falin endurveiting ökuréttinda. Um endurveitingu ökuréttinda gilda önnur sjónarmið en um útgáfu og endurnýjun ökuréttinda. Í slíkum tilvikum er nauðsynlegt að leyfisveitandi hafi aðgang að lögregluskrám. Af þeim sökum er lagt til að slíkar leyfisveitingar verði í höndum lögreglustjóra, sbr. 6. gr. frumvarpsins.
Þrátt fyrir að meginefni frumvarpsins lúti að breytingum vegna fækkunar lögregluumdæma eru einnig af öðru tilefni lagðar til annars konar breytingar á vopnalögum og lögum um framkvæmdarvald ríkisins í héraði, en þær breytingar eru að mestu leyti smáar í sniðum, sbr. 7., 8., 14., 16. og 19. gr. frumvarpsins og athugasemdir við þær.
Athugasemdir við einstakar greinar frumvarpsins.
Um 1. gr.
Samkvæmt iðnaðarlögum, nr. 42/1978, lætur lögreglustjóri af hendi meistarabréf og iðnaðarleyfi og er synjun um slík bréf og leyfi einnig í höndum hans. Þá fer lögreglustjóri með ýmis önnur verk samkvæmt lögunum, svo sem framsendingu tilkynninga til sérstakrar skrár vegna allra breytinga sem verða á atvinnurekstri. Er lagt til í samræmi við tilgang frumvarpsins að þessi verkefni verði færð í hendur sýslumanna. Eftirlit með framkvæmd laganna verður þó eftir sem áður í höndum lögreglustjóra enda um að ræða aðgerðir sem samræmast hlutverki lögreglu.
Um 2. gr.
Samkvæmt lögum um lögskráningu sjómanna, nr. 43/1987, gegna tollstjórar hlutverki lögskráningarstjóra, en í lögskráningu felst m.a. að skrá skipverja í og úr skiprúmi. Lögskráning í skiprúm miðar t.d. að því að tryggja sönnun fyrir því hvaða menn séu á skipi og hvort þeir hafi réttindi til að hafa með höndum störf þau sem þeir eru ráðnir til. Með lögum nr. 80/2006 sem breyttu tollalögum, nr. 88/2005, var tollumdæmum fækkað. Fyrir gildistöku laganna voru tollumdæmin 26 eins og stjórnsýsluumdæmin. Allir sýslumenn landsins, að undanskildum sýslumanninum í Reykjavík, fóru því með lögskráningu sjómanna en tollstjórinn í Reykjavík sá um lögskráningu sjómanna fyrir Reykjavíkurumdæmi. Með breytingunum var tollumdæmum fækkað í átta. Lögreglustjórar í sjö umdæmum eru nú jafnframt tollstjórar, þ.e. lögreglustjórinn á Vestfjörðum, Akureyri, Seyðisfirði, Eskifirði, Selfossi, í Vestmannaeyjum og á Suðurnesjum. Áttunda umdæmið er umdæmi tollstjórans í Reykjavík. Í samræmi við breytingar sem urðu á embætti lögreglustjórans og sýslumannsins á Suðurnesjum er lagt til að tollstjórinn á Suðurnesjum fari með lögskráningar og að sýslumaðurinn í Keflavík fari ekki með þann málaflokk. Mikils hagræðis gætir af því að lögskráningu sjómanna verði áfram sinnt í umdæmum sýslumanna. Þannig skerðist ekki þjónusta við þá sem lögskráningarskylda snýr að auk þess sem þekking á málaflokknum er til staðar á sýslumannsembættum.
Um 3. gr.
Útgáfa ökuskírteina er í höndum lögreglustjóra samkvæmt umferðarlögum. Hér er lagt til að það verkefni verði í höndum sýslumanna, þó að því undanskildu að lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu mun gefa út ökuskírteini í umdæmi sýslumannsins í Reykjavík. Vísast um þetta til nánari umfjöllunar í almennum athugasemdum með frumvarpinu.
Um 4. gr.
Samkvæmt umferðarlögum er bæði útgáfa og afturköllun ökuréttinda í höndum lögreglustjóra. Eins og að framan er rakið er lagt til að útgáfa ökuskírteina verði færð í hendur sýslumanna og lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu. Eðli máls samkvæmt þykir rétt að hið sama gildi um afturköllun ökuréttinda.
Um 5. gr.
Sömu breytingar eru lagðar til í tengslum við útgáfu ökukennararéttinda og varðandi ökuréttindi, en samkvæmt umferðarlögum gefur ríkislögreglustjóri út réttindi til ökukennara. Með frumvarpinu er lagt til að útgáfan verði færð í hendur sýslumanna, að undanskildum sýslumanninum í Reykjavík, en lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu gefur út ökukennararéttindi í umdæmi hans.
Að sama skapi eru lagðar til breytingar í tengslum við sviptingu ökukennararéttinda. Fór ríkislögreglustjóri áður með það verkefni en með frumvarpinu er eðli máls samkvæmt gert ráð fyrir að það verði lagt í hendur útgefenda ökukennararéttinda, þ.e. sýslumanna og lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu.
Að öðru leyti er vísað til almennra athugasemda og athugasemda með 3. gr. frumvarpsins.
Um 6. gr.
Hér er lagt til að endurveiting ökuréttinda færist frá ríkislögreglustjóra til lögreglustjóra. Um þetta vísast til almennra athugasemda með frumvarpinu.
Um 7. gr.
Með ákvæðinu er lögð til lögfesting á því að sýslumenn skuli veita leyfisumsóknum viðtöku fyrir hönd lögreglustjóra, en framkvæmdinni er lýst í almennum athugasemdum með frumvarpinu.
Um 8. gr.
Hér er lagt til að lögfest verði að sýslumenn og löglærðir fulltrúar þeirra skuli bera einkennisfatnað eftir því sem ráðherra ákveður í reglugerð. Ýmsum opinberum embættismönnum er gert að klæðast einkennisbúningum við skyldustörf sín eða við framkvæmd sérstakra athafna við skyldustörf. Á þetta t.d. við um lögreglu, landhelgisgæslu, tollgæslu, fangaverði, sýslumenn, ákærendur og dómara. Upphaflega gilti um einkennisbúninga flestra áðurnefndra embættismanna reglugerð nr. 145/1946 um einkennisbúninga héraðsdómara, hreppstjóra, tollgæslumanna og bifreiðaeftirlitsmanna og sérstakra löggæslumanna. Sótti reglugerðin stoð sína í launalög, nr. 60/1945. Með tímanum voru ýmsir embættismenn teknir undan reglugerðinni og kveðið sérstaklega á um einkennisbúninga þeirra í einstökum reglugerðum. Löggæslumenn voru t.d. teknir undan reglugerðinni með reglugerð nr. 255/1980 um einkennisbúnað og búnað lögreglumanna, tollgæslumenn með reglugerð nr. 188/1989 um einkennisbúnað tollgæslumanna og héraðsdómarar með reglugerð nr. 228/1992 um skikkjur dómara og málflytjenda. Lagastoðir fyrir nefndum reglugerðum voru með tíð og tíma settar í þau sérlög sem um viðkomandi málefni giltu. Til stóð árið 1993 að setja sérstaka reglugerð um einkennisfatnað sýslumanna og var sérstök nefnd skipuð af dómsmálaráðherra til að fara yfir málið. Nefndin skilaði tillögum árið 1994 ásamt drögum að nýrri reglugerð en aldrei varð af setningu hennar. Upphaflega lagastoðin fyrir reglugerð nr. 145/1946 í launalögum frá 1945 féll niður þegar þau voru numin úr gildi og var heimildarákvæði tekið upp í 24. gr. starfsmannalaga, nr. 38/1954. Þegar ný starfsmannalög voru svo lögfest 1996 var sambærileg heimild ekki tekin upp í lögin. Þar með féll niður viðhlítandi stoð fyrir reglugerð nr. 145/ 1946 um einkennisfatnað sýslumanna og reglugerð nr. 228/1992 um skikkjur dómara og málflytjenda. Þrátt fyrir það hefur í framkvæmd verið farið eftir ákvæðum nefndra reglugerða. Ekki hefur þessi tilhögun valdið vandkvæðum hingað til enda ekki um að ræða reglugerðir sem kveða á um málefni borgaranna eða eru íþyngjandi fyrir þá á nokkurn hátt. Ljóst er að engin lagastoð er í gildandi lögum fyrir nefndum reglum. Því er lagt til í frumvarpinu að slíkri lagastoð verði komið inn í lög um framkvæmdarvald ríkisins í héraði, nr. 92/1989.
Um 9. gr.
Sýslumenn gefa út leyfi samkvæmt lögum nr. 61/1992, um sinubrennur og meðferð elds á víðavangi. Ekki er lagt til að breyting verði þar á, en þó er lagt til að samráð verði haft við lögreglustjóra umdæmsins áður en slíkt leyfi er gefið út enda kalla slík leyfi á athugun ýmissa þátta sem lögregla er betur í stakk búin til að meta en sýslumenn.
Um 10. gr.
Samkvæmt gildandi lögum er óheimilt að greftra eða brenna lík nema fyrir liggi staðfesting sýslumanns á því að andlát hafi verið tilkynnt. Áður en líkbrennsla fer fram þarf enn fremur að vera fyrir hendi vottorð lögreglustjóra þess efnis að hann sjái ekkert því til fyrirstöðu að líkbrennsla fari fram. Sú breyting er lögð til með frumvarpinu að sýslumaður gefi út slíkt vottorð, þó með þeim fyrirvara að honum ber að hafa samráð við lögreglustjóra áður en ákvörðun er tekin. Rétt þykir að kveða á um að slíkt samráð skuli haft en í því felst ákveðinn varnagli þar sem lík verður ekki rannsakað eftir að líkbrennsla fer fram. Getur þetta til dæmis skipt máli í þeim tilvikum sem andlát hefur leitt til lögreglurannsóknar. Að þessum skilyrðum uppfylltum er ekkert því til fyrirstöðu að færa þetta verkefni til sýslumanna.
Um 11. gr.
Með ákvæðinu er lagt til að lögreglustjórum verði falin útgáfa leyfa til framleiðslu skotvopna, skotfæra, sprengiefna eða skotelda í atvinnuskyni. Er þetta í samræmi við tilgang frumvarpsins um að færa leyfisveitingar nær borgaranum.
Um 12. gr.
Í a-lið greinarinnar er lagt til að útgáfa innflutningsleyfa í atvinnuskyni verði falin lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu, en fram til 1. apríl 2005 fór ríkislögreglustjóri með þessar leyfisveitingar. Frá og með þeim degi fól ríkislögreglustjóri lögreglustjóranum í Reykjavík útgáfu leyfanna samkvæmt heimild vopnalaga. Sú framkvæmd hefur reynst vel og er því lagt til að hún verði fest í sessi. Rétt þykir að útgáfa leyfanna verði áfram á einni hendi, þ.e. eingöngu hjá lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu, þar sem mikilvægt er að yfirsýn glatist ekki í málaflokknum. Á þetta eingöngu við um innflutning í atvinnuskyni.
Í b-lið er lagt til að almenn heimild ríkislögreglustjóra til að fela lögreglustjórum útgáfu nefndra leyfa verði felld úr gildi eðli máls samkvæmt.
Í c-lið er lagt til að lögreglustjórar verði eðli máls samkvæmt felldir út sem umsagnaraðilar um slíkar leyfisveitingar þar sem gert er ráð fyrir því í frumvarpinu að útgáfa nefndra leyfa verði falin þeim.
Í d-lið er lagt til að lögreglustjórum verði heimilt að veita þeim sem hafa skotvopnaleyfi leyfi til innflutnings skotvopna og skotfæra til eigin nota. Ekki þykir varhugavert að færa þessar leyfisveitingar til lögreglustjóra í hverju lögregluumdæmi þar sem um er að ræða innflutning til eigin nota og því ekki gert ráð fyrir að um stórfelldan innflutning verði að ræða.
Í e- og f-lið er lagt til að lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu verði falin útgáfa leyfa til framleiðslu vopna til útflutnings og leyfa til innflutnings vopna ef þau hafa ótvírætt söfnunargildi vegna aldurs þeirra eða tengsla við sögu landsins, en samkvæmt gildandi lögum gefur ríkislögreglustjóri út slík leyfi. Rétt þykir þó að hann leiti umsagnar ríkislögreglustjóra þar sem um er að ræða vopn sem ekki eru leyfð til almennrar notkunar hér á landi.
Um 13. gr.
Samkvæmt vopnalögum veitir ríkislögreglustjóri leyfi til útflutnings skotvopna, skotfæra, sprengiefna og skotelda. Frá og með 1. apríl 2005 fól ríkislögreglustjóri lögreglustjórum að annast útgáfu tímabundinna útflutningsleyfa samkvæmt heimild í vopnalögum. Sú framkvæmd hefur reynst vel og því lagt til með frumvarpinu að hún verði fest í sessi og jafnframt að lögreglustjórum verði falin útgáfa leyfa til varanlegs útflutnings.
Um 14. gr.
Lagt er til að leyfi til að versla með skotvopn, skotfæri, sprengiefni og skotelda verði aðeins gefin út til skrásettra firma eða félaga, en ekki til einstaklinga. Helgast breytingin einkum af því að óeðlilegt er að einstaklingar geti stundað kaup og sölu þeirra vara sem hér um ræðir í stórum stíl án þess að hafa sérstakt félag um þau viðskipti. Með þessu fyrirkomulagi verður eftirlit með slíkri starfsemi einfaldara.
Með ákvæðinu er lagt til að lögreglustjórum verði falin útgáfa þessara leyfa, en ríkislögreglustjóri gefur þau út samkvæmt gildandi lögum, að fenginni umsögn lögreglustjóra og slökkviliðsstjóra í viðkomandi umdæmi. Að fengnum jákvæðum umsögnum þessara aðila hafa viðkomandi leyfi verið gefin út og því hníga öll rök að því að lögreglustjórar gefi leyfin út að lokinni öryggis- og brunaúttekt. Með þessu móti einfaldast umsóknarferillinn og leyfisveitingar eru færðar nær borgaranum.
Svokölluð verslunarleyfi eru ekki lengur gefin út og er lagt til að greininni verði breytt til samræmis við það.
Um 15. gr.
Með ákvæðinu er lagt til að lögreglustjórum verði falin útgáfa leyfa til reksturs skotvopnaleigu, en samkvæmt gildandi vopnalögum veitir ríkislögreglustjóri slíkt leyfi. Samkvæmt 53. gr. reglugerðar um skotvopn, skotfæri o.fl., nr. 787/1998, getur ríkislögreglustjóri sett frekari reglur um leigu á skotvopnum. Engar umsóknir hafa borist um slík leyfi og því hefur ekki verið talin þörf á að setja slíkar reglur. Ef til kæmi mundi lögreglustjóri annast öryggisúttekt og því eðlilegt að hann gefi leyfið út á grundvelli hennar.
Um 16. gr.
Hér er lagt til að 2. mgr. 14. gr. vopnalaga falli brott. Um er að ræða undanþáguákvæði sem veitir heimild til að víkja frá ákvæði vopnalaga sem kveður á um að öll vopn sem flutt eru til landsins skuli bera eintaksnúmer framleiðanda. Í dag eru engar undanþágur veittar á grundvelli ákvæðisins þar sem öll vopn sem flutt eru til landsins bera eintaksnúmer framleiðanda. Varðandi eldri vopn af þessu tagi, sem voru á skrá án eintaksnúmers fyrir gildistöku vopnalaga, hefur framkvæmdin verið sú að við endurnýjun skotvopnaskírteinis, eða breytingu á skráningu, hafa eintaksnúmer verið slegin eða grafin á vopnin. Ekki er því lengur þörf á ákvæðinu.
Um 17. gr.
Með ákvæðinu er lagt til að lögreglustjórum verði falin útgáfa svokallaðra söfnunarleyfa, en til þessa hafa þau verið gefin út af ríkislögreglustjóra, að fenginni umsögn viðkomandi lögreglustjóra og slökkviliðsstjóra. Að fengnum jákvæðum umsögnum þessara aðila hafa viðkomandi leyfi verið gefin út og því hníga öll rök að því að lögreglustjórar gefi leyfin út að lokinni öryggis- og brunaúttekt. Lögreglustjórar skulu þó leita heimildar ríkislögreglustjóra, sbr. 7. mgr. 5. gr. vopnalaga, varðandi vopn sem ekki eru leyfð til almennrar notkunar hér á landi.
Um 18. gr.
Með ákvæðinu er lagt til að útgáfa leyfa til iðkunar skotfimi verði færð til lögreglustjóra, en samkvæmt gildandi lögum hafa þau verið gefin út af ríkislögreglustjóra, að fenginni umsögn viðkomandi lögreglustjóra. Að fenginni jákvæðri umsögn lögreglustjóra hafa leyfin verið gefin út. Ekkert mælir gegn því að lögreglustjórum verði falin útgáfa slíkra leyfa að lokinni öryggisúttekt. Með því móti einfaldast umsóknarferillinn og leyfisútgáfan er færð nær borgaranum.
Um 19. gr.
Hér er lagt til að ákvæðinu verði breytt þannig að það nái með ótvíræðum hætti til allra svokallaðra úðavopna, en undir þau falla til dæmis gasvopn og táragasvopn. Hugtakið úðavopn er notað í reglum ríkislögreglustjóra er lúta að valdbeitingu lögreglu og því þykir rétt til samræmis að nota það hér.
Um 20. gr.
Hér er lagt til að sýslumönnum verði falin leyfisveiting samkvæmt lögum um verslunaratvinnu, nr. 28/1998. Samkvæmt lögunum gefa lögreglustjórar út leyfi til að halda ýmis uppboð, m.a. uppboð á notuðum ökutækjum, svokölluð frjáls uppboð og lokuð uppboð. Í tilviki frjálsra uppboða synjar lögreglustjóri um leyfi ef almannahagsmunir krefjast eða hann telur skipulagi uppboðs ábótavant. Ekkert er því til fyrirstöðu að sýslumönnum verði falin þessi framkvæmd en þeir fara með annars konar uppboð samkvæmt fyrirmælum laga, svo sem lausafjáruppboð og nauðungarsölur. Eftirlit með uppboðum, stöðvun starfsemi og annað slíkt verður þó eftir sem áður í höndum lögreglustjóra enda um að ræða aðgerðir sem eðlilegt þykir að séu í verkahring lögreglu.
Um 21. gr.
Greinin þarfnast ekki skýringa.
Fylgiskjal.
Fjármálaráðuneyti,
fjárlagaskrifstofa:
Umsögn um frumvarp til laga um breytingar
á ýmsum lögum er varða útgáfu leyfa o.fl.